Innlent

Í vímu undir stýri - en hefur aldrei fengið bílpróf

mynd/villi
Sautján ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tólf þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Kópavogi og einn í Garðabæ og Hafnarfirði. Fimm voru teknir á laugardag, ellefu á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru þrettán karlar á aldrinum 21-65 ára og fjórar konur, 18-35 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×