Fleiri fréttir

Breivik fluttur í annað fangelsi

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik var fluttur úr Ila fangelsinu í Skien fangelsið í gær. Þetta staðfesti Geir Lippestad, verjandi Breiviks, í samtali við norska ríkisútvarpið. Lippestad segir að hann hafi verið í sambandi við fangelsismálayfirvöld bæði fyrir og eftir flutningana og hafi fengið þær fréttir að flutningarnir hafi gengið vel.

Upprættu kannabispartý í miðborginni

Lögreglan upprætti kannabispartý í íbúðarhúsi í miðborginni nótt. Upphaflega var hún kölluð á vettvang vegna hávaða frá samkvæminu.

Offeit börn í hættu á að fá hjartasjúkdóma

Ný hollensk rannsókn sýnir að börn sem þjást af verulegri offitu séu í hættu á að fá hjartasjúkdóma þegar í grunnskóla eða fyrir 12 ára aldurinn. Hjartsjúkdómar hafa hingað til nær eingöngu verið bundnir við miðaldra fólk.

Hópur gæsa olli umferðarslysi á Hringbraut

Hópur gæsa olli umferðarslysi á Hringbraut, vestan Njarðargötu, um klukkan hálf ellefu í gærkvöldi, þar sem einn maður slasaðist og tveir bílar eyðilögðust í bruna.

Lög um reynslulausn verði gerð skýrari

Umboðsmaður Alþingis telur að skýra þurfi löggjöf um útreikning á afplánunartíma og reynslulausn fanga. Þetta kemur fram í áliti Róbert R. Spanó, setts umboðsmanns Alþingis, um útreikning refsitíma og hvenær fangar eigi rétt á reynslulausn.

Þögn Obama og Romney um skotvopnalög vekur athygli

Athygli vekur að hvorki Barack Obama Bandaríkjaforseti né Mitt Romney keppinautur hans um forsetaembættið hafa tjáð sig um skotvopnalög Bandaríkjanna í kjölfar árásarinnar í Denver í Colorado.

Öflugur jarðskjálfti við Grímsey

Allt hefur verið með kyrrum kjörum í Grímsey í nótt, eftir að heimamenn fundu greinilega fyrir skjálfta upp á 3,7 á richter, sem varð um 27 kílómetra aust-suðaustur af eynni rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi.

Lokað fyrir strandveiðar á austursvæðinu

Lokað var fyrir strandveiðar á austursvæðinu á miðnætti, þar sem júlíkvótinn var uppurinn. Það er í fyrsta sinn sem mánaðarkvóti klárast á austursvæðinu í sumar.

Geimfarinn Sally Ride er látin

Sally Ride fyrsta bandaríska konan sem fór út í geiminn er látin 61 árs að aldri. Banamein hennar var krabbamein.

Telja ríkið vanbúið í leyfismálum

Þrjár stjórnsýslukærur hafa borist úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar um að leyfi Hraðfrystihússins Gunnvarar fyrir eldi á 7.000 tonnum af laxi og regnbogasilungi í Ísafjarðardjúpi skuli ekki háð umhverfismati.

Endurreiknar 57,7 milljarða

Tryggingastofnun þarf að endurreikna 57,7 milljarða króna af lífeyri og öðru bótafé eftir að uppgjör samkvæmt tekjum eftir skattframtali hefur verið gert.

Engin stefna um virkjanir

Þar til Rammaáætlun hefur verið samþykkt er stefna ríkisstjórnar í virkjanamálum aðeins orðin ein. Ekkert er því til fyrirstöðu að sækja um rannsóknarleyfi á svæðum sem eru í verndarflokki.

Vandi Spánar illviðráðanlegur

Slæmar fréttir af efnahagslífi Spánar síðustu daga þykja hafa aukið mjög líkurnar á því að stjórn landsins þurfi að leita á náðir björgunarsjóðs evruríkjanna. Mikill titringur var á verðbréfamörkuðum í Evrópu vegna ástandsins og gengi evrunnar lækkaði.

Feðgin stukku niður af kletti

Gróðureldarnir á norðaustanverðum Spáni síðustu daga hafa kostað fjóra lífið. Fimm manna fjölskylda komst í sjálfheldu og féll af kletti við ströndina með þeim afleiðingum að sextugur faðir og fimmtán ára dóttir hans fórust.

Aðeins beitt gegn útlendingum

Sýrlandsstjórn segir að efnavopn, sem hún hefur í fórum sínum, yrðu eingöngu notuð gegn innrásarliði. Þeim yrði aldrei beitt gegn eigin landsmönnum.

Kviknaði í bíl á Hringbraut - myndir

Eldur kom upp í bifreið sem keyrði aftan á aðra á Hringbrautinni rétt eftir klukkan tíu í kvöld. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu var enginn fluttur á slysadeild en ekki er vitað á þessari stundu hvers vegna eldur gaus upp. Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu á svæðinu, en Hringbrautinni var lokað um tíma. Fjöldi fólks var á staðnum að fylgjast með slökkviliðinu að ráða niðurlögum eldsins og þá var nokkuð um forvitna ökumenn sem stoppuðu og horfðu á slökkvistarf. Talið er að annar bíllinn sé gjörónýtur og hinn að minnsta kosti mikið skemmdur.

Fundust á göngu á níunda tímanum

Erlenda parið sem leitað hefur verið að í dag er komið fram en það fannst á göngu til byggða austur í Lóni á níunda tímanum í kvöld. Parið hafði ekki hugmynd um að björgunarsveitiri væru að leita að þeim en að sögn lögreglu amaði ekkert að þeim. Ekkert hafði spurst til parsins frá 14. júlí síðastliðnum. Fólkið ætlaði að láta vita af sér á miðvikudag í síðustu viku en gerði ekki.

Jarðskjálftar við Grímsey

Nokkrir jarðskjálftar mældust austsuðaustur af af Grímsey um klukkan 20 í kvöld. Að sögn jarðfræðings á vakt hjá Veðurstofunni voru nokkrir skjálftar yfir 2 stig af stærð en sá stærsti mældist rúmlega þrjú og hálft stig. Skjálftar á þessu svæði eru algengir en ólíklegt er að íbúar á svæðinu hafi fundið fyrir þeim þar sem þeir áttu upptök sín tæplega 30 kílómetrum frá Grímsey.

Gunnar og Jónína ekki að stofna nýtt trúfélag

"Nei, það er ekki rétt,“ segir Gunnar Þorsteinsson í Krossinum, spurður hvort að hann ásamt eiginkonu sinni, Jónínu Benediktsdóttur, undirbúi stofnun nýs trúfélags. Í helgarblaði DV var sagt frá því að miklar deilur væru innan Krossins og sjálfur stofnandinn, Gunnar, væri að undirbúa stofnun nýs trúfélags.

Bærinn eins og ein stór fjölskylda eftir bruna

"Þau bera sig bara vel en fengu náttúrulega sjokk þegar þetta gerðist. Núna eru þau búin að átta sig á þessu. Auðvitað eru þau skelkuð og önnur fjölskyldan búin að missa allt," segir Pálína Hermannsdóttir hjá Rauða Krossinum í Vestur Barðastrandarsýslu, en samtökin hafa aðstoðað fjölskyldu á Tálknafirði í kjölfar eldsvoða sem varð í fjölbýlishúsi í bænum í gærkvöldi.

Börnin ómeidd eftir bílveltu

Þrjú börn á aldrinum þriggja, sjö og tíu ára, sluppu ómeidd eftir að bifreið sem þau voru í valt á Álftanesvegi, við Presthól, um klukkan þrjú í dag. Slysið varð með þeim hætti að ökumaðurinn var að sinna börnunum þegar bifreiðin varð stjórnlaus og valt á veginum. Börnin og ökumaðurinn reyndust ómeidd eftir skoðun á slysadeild en þau voru öll í belti, að sögn lögreglu.

Verð á metani hækkaði um 18 krónur um helgina

Verð á metaneldsneyti hækkaði um átján krónur á rúmmetran um helgina. Það er meðal annars til þess að Sorpa geti ráðist í framkvæmdir til að framleiða meira metaneldsneyti svo hægt sé að anna eftirspurn.

Telja að parið sé komið til byggða

Talið er öruggt að erlenda parið sem leitað hefur verið að í dag sé komið til byggða, segir varðstjóri hjá lögreglunni á Hvolsvelli. Lögreglan hefur fengið upplýsingar um ferðir fólksins eftir að myndir birtust af þeim í fjölmiðlum í dag. "Við erum áhyggjulausir. Við erum ekki hræddir um að þau sé á fjöllum,“ segir varðstjórinn. Ekkert hafði spurst til parsins frá 14. júlí síðastliðnum. Fólkið ætlaði að láta vita af sér á miðvikudag í síðustu viku en hefur ekki gert það. Lögreglan mun þó halda áfram að reyna ná sambandi við fólkið.

Brynjar: Kröfur öryrkja hafa ekkert með mannréttindi að gera

Brynjar Níelsson, fyrrum formaður Lögmannafélagsins, tekur undir með Sigurði Líndal að kröfur Öryrkjabandalagsins (ÖBÍ) um ógildingu forsetakosninganna séu frekja. Í nýjum pistli á Pressunni segir hann að vel megi vera að einhverjum fötluðum kjósendum finnist betra að njóta aðstoðar nákominna aðila heldur en aðstoðar kjörstjórnar. "Þau þægindi hafa hins vegar ekkert með réttlæti að gera hvað þá mannréttindi," segir hann.

Bensínþjófur slapp án refsingar

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag 35 ára gamlan karlmann fyrir að stela bensíni á bíl sinn af bensínstöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Hann stal bensíni í þrjú skipti, af N1 og Skeljungi, fyrir samtals um 30 þúsund krónur. Manninum var ekki gerð refsing en hann mun þurfa að endurgreiða Skeljungi bensínið og vexti í ofanálag.

Skátar létu rigninguna ekkert á sig fá

Hvorki íslenskir skátar, né erlendir gestir þeirra á Landsmóti skáta, sem sett var í gær, létu rigningu á sig fá. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussiaeff, eiginkona hans, heimsóttu skátana og slógu þau á létta strengi með mótsgestum. Í setningarávarpi sínu ræddi Hrólfur Jónsson mótsstjóri meðal annars 100 ára sögu skátahreyfingarinnar á Íslandi. Ávarpi Hrólfs lauk skyndilega þegar jarðálfar og eldspúandi púkar brutust fram á sjónarsviðið en þar var á ferðinni skrílsleiftur (e. Flash-mob) sem undirbúið hafði verið af yfir 70 skátum af fjórum þjóðernum. Áður en langt um leið sungu og dönsuðu viðstaddir við sigurlag Eurovision 2012, Euphoria, áður en mótseldurinn var kveiktur við mikinn fögnuð.

Þarf ekki að greiða vask af lyftum fyrir fatlaða

Lögum samkvæmt bar tollstjóra að endurgreiða virðisaukaskatt af tveimur lyftum fyrir fatlað fólk sem sveitarfélag fékk að gjöf til nota í sundlaug. Þetta var niðurstaða Umboðsmanns Alþingis í máli gefandans.

Sýna stuðning við Hinsegin daga í verki

Iceland Express styrkir Hinsegin daga í Reykjavík og til að sýna þann stuðning í verki er vönduðu dagskrárriti hátíðarinnar dreift um borð í flugvélum félagsins. Þá skarta flugfreyjur okkar regnbogaslæðum og flugþjónar regnbogabindum til að minna á hátíðina sem hefst hinn 6. ágúst næstkomandi og stendur til 12. ágúst.

Skotmaðurinn verður ekki látinn laus

Hinn 24 ára gamli James Holmes, sem grunaður er um að hafa skotið tólf manns til bana í Aurora í Colorado á föstudagsmorgun, var í fyrsta sinn leiddur fyrir dómara í dag. Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu að Holmes mun sitja í gæsluvarðhaldi og á ekki möguleika á því að verða látinn laus gegn tryggingu. Samkvæmt frásögn BBC fréttastöðvarinnar eru níu alvarlega særðir eftir árásina en alls særðust 58.

Skærgrænt hjól við sumargötu

Reykjavík öðlaðist í morgun nýtt kennileiti þegar skærgrænt hlið úr notuðu reiðhjóli var sett upp á Laugarvegi til að hindar bílaumferð. Hjólahliðið vakti strax athygli ferðamanna sem stilltu sér unnvörpum upp við hjólin og brostu í myndavélar.

Eldurinn kom upp í rafmagnstöflu

Orsakir þess að eldur kom upp í skipinu Maggý VE á fimmtudag í síðustu viku eru raktar til þess að loki við lensidælu í vélarrúmi hafi ekki lokast og síðuloki virkaði ekki. Sjór lak því inn um lensirör skipsins og komst þannig inn í vélarrúmið. Í framhaldi af þessu kviknaði eldur í rafmagnstöflu. Eins og fram kom á fimmtudag voru sjö í bátnum þegar eldurinn kom upp. Björgunarsveitabátar úr Grindavík og Vestmannaeyjum voru kallaðir til aðstoðar og jafnframt þyrla Landhelgisgæslunnar. Báturinn var svo dreginn til hafnar í Vestmannaeyjum.

Starfsmenn sérstaks saksóknara enn til skoðunar

Rannsókn Ríkissaksóknara á málum tveggja starfsmanna embættis sérstaks saksóknara, þeirra Guðmundar Hauks Gunnarssonar og Jóns Óttars Ólafssonar, stendur enn yfir. Samkvæmt upplýsingum frá Sigríði Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara, er búist við að henni ljúki á næstu vikum. Mennirnir tveir eru grunaðir um brot á þagnaskylduákvæði í störfum sínum þegar þeir seldu þrotabúi Milestone upplýsingar sem þeir urðu sér úti um í störfum sínum fyrir sérstakan saksóknara. Embætti sérstaks saksóknara kærði mennina í maí síðastliðnum og hefur rannsókn staðið yfir síðan þá.

Eldmar, Ebonney og Einbjörg voru öll samþykkt

Mannanafnanefnd samþykkti þrjú ný eiginnöfn þann 11. júlí síðastliðinn. Um er að ræða karlmannsnafnið Eldmar og kvenmannsnöfnin Ebonney og Einbjörg. Í rökstuðningi mannanafnanefndar segir að nöfnin taki íslenskri beygingu í eignarfalli og samræmist að öðru leyti lögum um mannanöfn.

Myndu ekki nota efnavopn gegn eigin fólki

Stjórnin í Sýrlandi myndi aldrei nota efnavopn gegn eigin borgurum en myndi líklega gera það gegn utanaðkomandi árás. Þetta segja stjórnvöld þar í landi.

Rækjuveiðar bannaðar og leyfðar aftur

Sjávarútvegsráðuneytið hefur fellt úr gildi reglugerð sem sett var á fimmtudaginn síðasta um stöðvun úthafsrækjuveiða. Atburðinn má að öllum líkindum rekja til klaufaskapar í ráðuneytinu eða þess að afladagbækur voru ekki skoðaðar nógu vel.

Sjá næstu 50 fréttir