Fleiri fréttir

Vill eftirlit eftir afplánun

Ögmundur Jónasson segir í aðsendri grein til DV að eftirlit með dæmdum mönnum geti verið nauðsynlegt eftir afplánun. Hann stefnir á að leggja fram frumvarp um málið á haustþingi.

Björn Valur sakaði þingmann um að vera drukkinn í þingsal

Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður VG, sakaði samþingmann sinn um að vera undir áhrifum áfengis í þingsal þegar þingfundur stóð yfir rétt eftir klukkan eitt í nótt. Verið var að ræða frumvarp um veiðigjöld. "Sýnist mér einn þeirra þingmanna sem hér fer mikinn í þingsal í kvöld vera undir áhrifum áfengis og myndi vilja að forseti þingsins kannaði það frekar,“ sagði Björn Valur. Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins fullyrti þá að Björn Valur hefði átt vð sig.

Neyðaraðstoð Íslendinga í Gambíu

Rauði krossinn á Íslandi hefur nú í júní dreifingu á matvælum og útsæði til þeirra 50.000 manna sem verst þjást af matarskorti í Gambíu, einu fátækasta ríki heims. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í landinu í kjölfar meiriháttar uppskerubrests. Uppskerubrestur og matvælaskortur í líkingu við ástandið nú hefur ekki verið í Gambíu í um 15 ár. Síðasta hrísgrjónauppskera, aðalfæða landsmanna, hrundi um nær 80% og aðaltekjulindin, jarðhneturækt, um nær 70%.

Þriðjungur of feitur í Fellaskóla

Mikill munur er á fjölda barna í ofþyngd eftir hverfum á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt könnun sem gerð var fyrir nokkrum árum á sextán þúsund börnum á grunnskólaaldri. Þetta kom fram í þætti Ingu Lindar Karlsdóttur, Stóru þjóðinni, á Stöð 2 í gærkvöldi.

Fundu sprautur í nágrenni leikskóla

Notaðar sprautunálar fundust við göngustíg í Hafnarfirði í gær. Í næsta nágrenni við fundarstaðinn eru leikskólinn Arnarberg, Iðnskólinn í Hafnarfirði og íþróttamiðstöðin Björk.

Fjárveitingar duga ekki fyrir viðhaldi

Bjarni Stefánsson hjá Vegagerðinni segir fjárveitingar í endurnýjun vegakerfisins ekki nægilegar til að sinna brýnum verkefnum. Vegagerðin eyðir rúmlega 600 milljónum í endurnýjun vega. Reykjavíkurborg eyðir 300 milljónum í götur.

Kvótafrumvarp gæti eyðilagt fiskmarkaðina

Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda, sem sækja hráefni sitt að verulegu leiti á fiskmarkaði, óttast að ef frumvarp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða verði að lögum, muni fiskmarkaðir leggist af.

Falun Gong í Kongens Have

Forseti Kína, Hu Jintao, mun heimsækja Danmörku í næstu viku. Meðlimir Falun Gong eru nú þegar byrjaðir að skipuleggja mótmæli í Kaupmannahöfn, nánar tiltekið í Kongens Have. Frá þessu er greint á vef danska dagblaðsins Politiken.

Ferðamönnum fjölgar áfram

Ríflega 45 þúsund ferðamenn fóru frá Íslandi um Leifsstöð í maímánuði, um átta þúsundum fleiri en í maí 2011 sem þó var metmánuður. Samkvæmt tölum Ferðamálastofu hefur ferðamönnum um Leifsstöð fjölgað um 20,7 prósent frá áramótum miðað við sama tíma í fyrra.

Segja fleiri dæmi um leyndarhjúp

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í minnihluta borgarstjórnar vilja að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) geri opinberar fjárhæðir allra fjárfestinga, fjárframlaga og lána fyrirtækisins til Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. og Línu.nets hf. Bókun þar að lútandi var lögð fram á síðasta fundi borgarstjórnar.

Vildi ekkert ræða tölvuleikina

Anders Behring Breivik neitaði að svara í dómsal í Ósló í gær, þegar til stóð að spyrja hann um tölvuleikinn World of Warcraft, sem hann spilaði í gríð og erg meðan hann var að undirbúa fjöldamorðin síðastliðið sumar.

11 ára strákur ók 150 km leið

Ökuferð 11 ára norsks stráks lauk í skurði í gær. Vörubílstjóri, sem sá unga ökumanninn í framúrakstri, lét lögregluna vita þar sem hann taldi hann vera 13 eða 14 ára. Í ljós kom að stráksi var ekki nema 11 ára.

Cothran á batavegi

Keith Cothran, sem lék með Stjörnunni í körfuknattleik í vetur, er á batavegi eftir að hafa verið skotinn í höfuðið í síðustu viku. Hann er nú farinn að standa upp úr rúmi sínu og gengur um á spítalanum sem hann dvelur á. Læknar eru vongóðir um að hann nái sér að fullu.

Ray Bradbury látinn

Rithöfundurinn Ray Bradbury, sem er þekktastur fyrir skáldsögu sína Farenheit 451, lést í dag 91 árs að aldri. Bradbury skrifaði sex hundruð smásögur og þrjátíu bækur á ferli sínum. Ekki er vitað hvað banamein hans er.

Vill gefa forsetaframbjóðendum frið

Í tæpa hálfa öld hefur Alþingi ávallt lokið störfum að minnsta kosti fjórum vikum fyrir forsetakosningar og stundum mun fyrr. Í dag eru hinsvegar tuttugu og fjórir dagar í forsetakjör og ekkert útlit fyrir að þingmenn komist að samkomulagi.

Hefur hótað lögmanninum áður

Tveir menn réðust inn á lögmannsskrifstofu við Lækjartorg í dag og veittust að eiganda hennar. Ofbeldismennirnir höfðu áður haft í hótunum við starfsfólkið.

Dani og Finnar skipta með sér 103 milljónum

Enginn Íslendingur var með 1. vinning í Víkingalottóinu í kvöld heldur skipta tveir Finnar og einn dani með sér um 103 milljónum króna. Einn Íslendingur var þó með fimm jókertölur í réttri röð og fær hann tvær milljónir í sinn hlut. Fimm voru með fjórar í réttri röð og fá þeir 100 þúsund krónur.

Guðbjartur deilir áhyggjum af svartri atvinnustarfsemi

Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, deilir áhyggjum vinnumálastofnunar af svartri atvinnustarfsemi. Hann tekur undir athugasemdir Vinnumálastofnunar um að efla beri eftirlit og endurskoða löggjöf og segist munu fylgja þeim tillögum eftir.

Mæðgin tekin fyrir framleiðslu fíkniefna

Kona á sextugsaldri hefur viðurkennt að hafa staðið að framleiðslu og sölu fíkniefna. Hún játaði sök við yfirheyrslu eftir að lögreglan hafði stöðvað kannabisræktun á heimili hennar í vesturbæ Reykjavíkur í síðustu viku en þar var einnig að finna talsvert af tilbúnu marijúana. Sonur konunnar var einnig yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar en hann mun hafa komið að sölu fíkniefnanna. Konan, sem upplýsti að kannabisræktunin hefði staðið yfir í nokkurn tíma, var mjög ósátt með afskipti lögreglu og taldi að laganna verðir ættu frekar að einbeita sér að þeim sem væru stórtækir við framleiðslu og sölu fíkniefna. Sjálf væri hún ekki í þeim hópi.

Frábær þátttaka í ljósmyndaleik Vísis og Wow

Ljósmyndakeppni Vísis og WOW air fór af stað með látum um síðustu helgi. Á örfáum dögum hafa borist mörg hunduð myndir í keppnisflokkana þrjá og eins og sjá má á heimasíðu keppninnar hér á Vísi, visir.is/wow, eru margar þeirra líklegar til að ná langt.

Hraðbraut hættir starfsemi

Við blasir að starfsemi Menntaskólans Hraðbrautar verður hætt nú að skólaárinu loknu, í bili að minnsta kosti. Ólafur Johnson, skólastjóri Hraðbrautar, segir að reynt verði að aðstoða nemendur á fyrra námsári til að tryggja þeim skólavist annars staðar eins farsællega og kostur er. Sama eigi við um kennara og aðra starfsmenn Hrað­brautar sem margir hafi leitað á aðrar slóðir, með góðum árangri í flestum tilvikum.

Varna því að fólk kaupi of mikið sælgæti

Veggspjöld sem hjálpa neytendum við að kaupa ekki óhóflegt magn af sælgæti hafa verið sett upp í nokkrum Krónuverslunum. Fyrirtækið sýnir samfélagslega ábyrgð með verkefninu segir Steinar Aðalbjörnsson næringarfræðingur hjá Matís.

Stakk pilt ítrekað með brotinni glerflösku

Tveir tæplega tvítugir karlmenn voru handteknir á hátíðinni "Sjóaranum síkáta" í Grindavík um síðustu helgi, grunaðir um stórfelldar líkamsárásir í tveimur aðskildum málum. Annar þeirra var staðinn að því að berja mann á sextugsaldri með flösku. Í hinu tilvikinu stakk hinn meinti árásarmaður átján ára pilt nokkrum sinnum í handlegginn með brotinni glerflösku. Gerendurnir voru báðir fluttir á lögreglustöð þar sem skýrsla var tekin af þeim og var þeim sleppt að því loknu.

Dvergar ósáttir við nýja mynd um Mjallhvíti

Framleiðendur kvikmyndarinnar Mjallhvítar og veiðimannsins sæta nú ámæli vestanhafs fyrir að hafa sniðgengið dverga þegar leikarar voru valdir í myndina og ráðið í staðinn fólk í fullri stærð í hlutverk dverganna sjö.

Fylgst verður með aðsetrum dæmdra kynferðisbrotamanna

Unnt verður að fylgjast með dvalarstað þeirra sem dæmdir hafa verið fyrir kynferðisbrot gegn börnum í framtíðinni. Barnaverndastofa mun sjá um eftirlitið og vinnur að verkferlum um það hvernig slíku eftirliti verður háttað. Þá stendur jafnframt til að breyta hegningarlögum þannig að unnt verði að dæma kynferðisbrotamenn til meðferðar. Barnaverndalögum var breytt í fyrra með slíka heimild í huga en Álfheiður Ingadóttir,

Samfylkingin frestar flokkstjórnarfundi vegna þingstarfa

Framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar ákvað á fundi sínum í gær að fresta flokksstjórnarfundi sem boðaður var á föstudag og laugardag. Ástæðan er sú að störfum Alþingis er ekki lokið. Margrét Björnsdóttir, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, segir í tölvupósti til flokkstjórnarmanna að eðlilegt sé að taka tillit til þess að þessi tuttugu manna hópur flokksstjórnarfulltrúa gæti verið við skyldustörf á sama tíma og flokksstjórnarfundur yrði haldinn. Stjórn flokksins var falið að finna nýja dagsetningu fyrir flokksstjórnarfundinn.

Miklir gróðureldar í Heiðmörk

Miklir gróðureldar eru nú í Heiðmörk, skammt frá Maríuhellum. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir liðsinni Landhelgisgæslunnar við starfið. Í slíku starfi eru notaður vatnspoki sem hangir úr þyrlunni.

Sigla til Reykjavíkur til að mótmæla

Tugir fiskiskipa munu á morgun sigla af landsbyggðinni og til Reykjavíkur til að mótmæla frumvörpum stjórnvalda um veiðigjöld og stjórn fiskveiða. LÍÚ stendur fyrir samstöðufundi klukkan 16:00 á Austurvelli.

Hefðum átt að endurskoða færri kafla

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að réttara hefði verið að endurskoða færri kafla stjórnarskrárinnar og skýra þá vel en að skrifa hana alla upp á nýtt.

Sólstólarnir auðir á Grikklandi

Í kjölfar efnahagsvandamála Grikklands hefur ferðamannaiðnaður þar dregist saman að undanförnu. Stærsti atvinnuvegur Grikklands er ferðamannaiðnaður. Um 20% af gríska hagkerfinu má með einum og öðrum hætti rekja til ferðamanna. Áætlað er að einn af hverjum fimm Grikkjum vinni í greininni.

Sjá næstu 50 fréttir