Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kærleikurinn og nándin sterkari eftir eldgosið Öskumistur sem blásið hefur yfir sunnanvert landið í dag minnti stóran hluta landsmanna á Grímsvatnagosið sem hófst á þessum degi í fyrra. Af Kambabrún mátti sjá að mistrið lá nokkuð þétt yfir Suðurlandsundirlendinu, austur í Vík var skyggnið vart nema um kílómetri, og á veginum milli Víkur og Skaftafells bara nokkrir tugir metra á köflum svo hægja þurfti ferðina. 21.5.2012 19:30
Ekki einfalt að skila undirskriftum - listarnir stundum ógildir Það er ekki einfalt að skila inn meðmælendalistum vegna framboðs til embættis forseta Íslands. Oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavík norður segir það hafa komið fyrir að listi frambjóðanda sé ógildur. 21.5.2012 18:53
Milljónum ríkari í Evrulandi Íslendingur sem tók húsnæðislán árið 2005 - væri fimmtán milljónum ríkari í dag ef honum hefðu boðist meðalvextir á slíkum lánum í Evruríkjunum. Þetta sýnir ný reiknivél Evrópusinna á www.jaisland.is. Ekki eru þó allir á einu máli um hvort reiknivélin gefur rétta mynd. 21.5.2012 18:45
Hælisleitandi neitaði aldursgreiningu - ekki lengur sérmeðferð Hælisleitandi sem hefur haldið því fram að hann sé undir átján ára aldri, neitaði í dag að gangast undir aldursgreiningu. Hann fær því ekki lengur sérmeðferð hjá Útlendingastofnun sem barn. Sex hælisleitendum er gert að gangast undir aldursgreiningu. Tveir þeirra hælisleitenda sem um ræðir voru nýverið dæmdir fyrir að koma hingað til lands með fölsuð skilríki, og dveljast þeir hjá fósturfjölskyldu. Hinir fjórir búa á FIT Hostel í Reykjanesbæ. Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, segir að fimm hælisleitendum hafi verið tilkynnt í dag um aldursgreininguna. "Fjórir samþykktu hana en einn hafnaði," segir hún. Ekki fæst uppgefið hver það er sem neitaði aldursgreiningu. Aldursgreiningin var kynnt þannig fyrir hælisleitendunum að ef þeir samþykktu ekki að gangast undir hana, jafngilti það viðurkenningu þeirra á því að þeir væru í raun orðnir lögráða. Þannig færi mál þeirra í hefðbundið ferli hælisleitenda og þeir hætta að njóta þeirrar sérmeðferðar sem börn njóta. Eins og fréttastofa hefur greint frá fer aldursgreiningin fram með því að meta þroska endajaxla, sem breytast mikið frá um þrettán ára aldir og til tvítugs. Eftir því sem fréttastofa kemst næst eru allir sem um ræðir ýmist frá Marokkó eða Alsír. Einn þeirra var stoppaður af þegar hann reyndi að gerast laumufarþegi með flutningaskipi Eimskipa nýverið. Hann er einn af þremur sem segjast vera sautján ára. Þá barst nýtt mál ungs hælisleitenda inn á borð Útlendingastofnunar í síðustu viku. Gert er ráð fyrir að honum verði á morgun tilkynnt krafa um aldursgreiningu. 21.5.2012 18:45
Mest tekið af þeim sem minnst hafa Tekjutenging ellilífeyris gerir það að verkum að mest er tekið af þeim sem minnst hafa, að sögn fyrrverandi forseta ASÍ. Hann sér eftir að hafa hvatt fólk til að greiða í lífeyrissjóð og vill sjá breytingu á kerfinu hið fyrsta. Í erindi sínu á ráðstefnu um lífeyrismál í dag sagðist Ásmundur Stefánsson fyrrverandi forseti ASÍ skilja þá sem velta fyrir sér af hverju þeir hafi greitt samviskusamlega í lífeyrissjóð þar sem tekjuskerðingin hafi leikið margan grátt. 21.5.2012 18:30
Vill jafna stöðu manna Réttarstaða þeirra sem hafa verið á leigumarkaði hefur verið mjög veik, segir Lúðvík Geirsson, formaður hóps sem endurskoðaði húsnæðisbætur. Tilgangur vinnunar er að finna leiðir til þess að jafna rétt þeirra sem þiggja húsaleigubætur og þeirra sem þiggja vaxtabætur. 21.5.2012 17:37
Er möguleiki að steypa fleiri götur á Íslandi? "Við erum með bergtegundir sem við höfum aðgang að, það er svo lítil hersla að þau efni duga mun verr en þau efni sem eru í nágrannalöndunum okkar. En klárlega er steypta slitlagið mjög gott. Menn eru að leggja saman og skoða hvað það kosti í upphafi. Þá er aðallega verið að hugsa um hvernig er hægt að setja slitlagið á, á sem ódýrastan hátt," segir Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB. 21.5.2012 17:28
Gríðarlegt öskumistur á Suðurlandi Gríðarlegt öskumistur var yfir fjöllunum austan við Vík í Mýrdal í dag. Á köflum var skyggnið á þjóðveginum ekki nema nokkrir metrar á milli Víkur og Skaftárfells og þurftu ökumenn að hægja á sér til að lenda ekki í ógöngum. 21.5.2012 16:54
Bjölluóður utanbæjarmaður eyddi öllu í vín og villtar meyjar Bjölluónæði er hvimleitt og ekki síst ef það á sér stað að næturlagi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er stundum kölluð til í slíkum málum, og svo var einmitt raunin þegar íbúum fjölbýlishúss í Kópavogi var nóg boðið á dögunum. 21.5.2012 16:48
Ögmundur: Aldrei vitlausara að ganga í ESB en nú Það hefur aldrei verið vitlausara en nú að ganga í Evrópusambandið, sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. 21.5.2012 16:17
Segir Íslendinga þurfa að undirbúa sig undir hrun evrunnar Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill að Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, upplýsi um það hvað gert hafi verið til að undirbúa Ísland undir hrun evrunnar. Sagði Illugi á fyrirspurnartíma á Alþingi í dag að veruleg hætta væri á að Grikkir myndu þurfa að yfirgefa evrusamstarfið. 21.5.2012 15:54
Varðstjóri sýknaður - mátti aflífa hreindýr og skera úr því kjöt Varðstjóri lögreglunnar var sýknaður í Héraðsdómi Austurlands í síðustu viku en hann var ákærður fyrir að hafa gerst brotlegur í opinberu starfi með því að hafa misnotað stöðu sína sem aðalvarðstjóri og komið því til leiðar, er hann var á frívakt, að hann sinnti sjálfur aflífun særðs hreindýrs, sem tilkynnt hafði verið um að væri fast í girðingu við, undir því yfirskini að hann væri að sinna verkefni lögreglu, en í þeim tilgangi að komast yfir kjöt af dýrinu til eigin nota, og notfært sér í því skyni lögreglubifreið, skotvopn og annan búnað og aðstöðu lögreglu í eigin þágu. 21.5.2012 15:52
Stendur ekki í vegi fyrir vilja almennings ef óvissunni verður eytt Ólafur Ragnar Grímsson útskýrði orð sín um að hann myndi hugsanlega hverfa til annarra verkefna áður en næsta kjörtímabili lyki, yrði hann endurkosinn. Þannig svaraði hann spurningu Jóhannesar Benediktssonar í Beinni línu á dv.is í dag: 21.5.2012 15:07
Dómsmálaráðherra Breta segir Íslendinga einangraða Ég get ekki ímyndað mér neitt meira óviðeigandi í núverandi aðstæðum, né heldur get ég hugsað mér neitt verra en að Bretar yfirgefi Evrópusambandið og ákveddu að nú væri tími til að einangra sig algerlega með Íslendingum og öðrum," segir Kenneth Clarke, dómsmálaráðherra Breta. 21.5.2012 15:07
Dorrit verður viðstödd skírn sænsku prinsessunnar Dorrit Moussaieff forsetafrú hélt áleiðis til Svíþjóðar í dag til að sækja skírn prinsessunnar Stellu, dóttur Viktoríu krónprinsessu og Daníels prins, í boði sænsku konungshjónanna. Athöfnin fer fram á morgun, klukkan tólf að staðartíma, í kapellu konungshallarinnar í Stokkhólmi. Í kjölfarið sækir forsetafrúin móttöku og situr hádegisverð í konungshöllinni. Sænsku konungshjónin, Karl Gústav XVI og Silvía drottning, buðu íslensku forsetahjónunum til athafnarinnar ásamt þjóðhöfðingjum annarra Norðurlanda. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, gat ekki sótt viðburðinn vegna anna. 21.5.2012 14:25
Forsetaframbjóðendur kynna sig í Borgarbókasafninu - nema Ólafur Ragnar Borgarbókasafn efnir til vikulegra kynningarfunda um forsetaembættið og frambjóðendur til embættisins. Fundirnir verða á miðvikudögum kl. 17.15-18.15 í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15. Þeir eru ætlaðir almenningi og öllum opnir. 21.5.2012 13:56
Mistur yfir höfuðborgarsvæðinu Mistur hefur legið yfir höfuðborgarsvæðinu í gær og dag, 20. og 21. maí. Um er að ræða svifryk sem berst frá öskufallssvæðinu fyrir austan fjall. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands má búast við að svipaðar aðstæður ríki fram eftir degi. Búist er við úrkomu um mestallt sunnan- og austanvert landið í kvöld og í kjölfarið má reikna með að loftgæði batni í Reykjavík. 21.5.2012 13:41
Vill þyngri refsingu yfir konu sem varð barni sínu að bana Vararíkissaksóknari, Helgi Magnús Gunnarsson, hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Agné Krataviciuté sem var dæmd í tveggja ára fangelsi í mars síðastliðnum, fyrir að hafa orðið nýfæddu sveinbarni sínu að bana í júlí á síðasta ári. Þá veitti hún barninu skurðáverka í andliti og koma líkama þess fyrir í ruslageymslu Hótel Frón, þar sem Agné starfaði við þrif. 21.5.2012 13:24
Jóhanna hugsanlega fjarverandi við atkvæðagreiðslu stærstu mála Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tók tveggja vikna leyfi frá þingstörfum á föstudag. Baldur Þórhallsson, varaþingmaður Samfylkingarinnar, tók hennar sæti á meðan. Ástæðan er sú að Jóhanna þarf, sem forsætisráðherra, að sinna fjölmörgum erindum erlendis. Þar á meðal er fundur Atlantshafsbandalagsins í Chicago sem stendur núna yfir. Þá mun Jóhanna sitja fleiri fundi erlendis undir lok mánaðarins. 21.5.2012 13:01
Haglabyssa fannst við húsleit hjá Vítisengli Fíkniefni, þýfi og haglabyssa fundust þegar lögregla gerði húsleit í Árbæ á föstudagskvöld, en húsráðandi tengist Hells Angels. Lögreglan naut aðstoðar fíkniefnahunds við þessa aðgerð. Í íbúð fjölbýlishúss í miðborginni, þar sem einnig var gerð húsleit á föstudag, fann lögreglan kókaín, amfetamín og stera. 21.5.2012 12:43
Björgunarsveitir farnar að rukka fyrir aðstoðina Björgunarsveitir eru farnar að rukka fyrir aðstoð við ökumenn, sem ekið hafa inn á lokaða vegi í trássi við merkingar. 21.5.2012 12:04
Stal loki af setlaug en tæmdi laugina af ótta við frostskemmdir Þeir eru misstillitsamir þjófarnir, en sumarhúsaeigandi í Þingvallasveit fékk að kynnast einum slíkum. Þannig var loki af rafmagnssetlaug stolið frá sumarbústað í landi Kárastaða í maí. Þjófurinn lét sig þó hafa það að tæma setlaugina, líklega af ótta við að laugin skemmdist vegna næturfrostsins. Þjófurinn stal einnig tröppum og útiljósi. Lögreglan á Selfossi telur að þjófnaðurinn gæti hafa átt sér stað á tímabilinu 1. til 18. maí. 21.5.2012 11:29
Vill að samfélagið taki þátt umræðunni um breytingar á kerfinu Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir að það taki líklegast þrjú til fjögur ár að innleiða svo viðamiklar breytingar á húsnæðisbótakerfinu eins og þær sem vinnuhópur undir stjórn Lúðvíks Geirssonar hefur lagt fram. Í tillögunum er leitast við að jafna stöðu eigenda húsnæðis og leigjenda á markaði. 21.5.2012 11:09
Björgvin minnist Robin Gibb - frábærir lagahöfundar "Hljómsveitin Bee Gees hafði mikil áhrif á tónlistina um heim allan, mér fannst þeir æðislega góðir," segir stórsöngvarinn Björgvin Halldórsson um andlát Robin Gibb, sem lést í gær, 62 ára að aldri. Björgvin segir að andlát Robin hafi ekki komið sér á óvart, hann var orðinn mjög veikur, enda háð harðvítuga baráttu við krabbamein í lifrinni síðustu mánuði. 21.5.2012 10:46
Allir fái húsnæðisbætur, óháð búsetuformi Nú stendur yfir kynningarfundur á tillögum vinnuhóps sem velferðarráðherra skipaði um breytingar á húsnæðisbótakerfinu. Lúðvík Geirsson þingmaður Samfylkingarinnar er formaður hópsins en tillögur hans miða að því að gjörbreyta kerfinu frá því sem nú er. "Með nýju kerfi yrði öllum tryggður sami réttur til fjárhagsstuðnings hins opinbera vegna húsnæðiskostnaðar, óháð búsetuformi, hvort sem fólk kýs að búa í eigin húsnæði, leiguhúsnæði eða búseturéttaríbúðum,“ segir í tilkynningu en í gildandi kerfi eru almennar húsaleigubætur mun lægri en vaxtabætur og uppbygging kerfanna ólík. 21.5.2012 10:08
Öskumistur í veðurblíðunni Rykmystur hefur verið víða á sunnanverðu landinu síðustu daga og urðu margir höfuðborgarbúar varir við það í morgunsárið. Hjá Veðurstofunni fengust þær upplýsingar að hluti væri aska úr Eyjafjallajökli og Grímsvötnum. Búast má við að mystur verði áfram meðan veður er þurrt. Svifryk mælist rétt undir heilsuverndarmörkum. 21.5.2012 09:35
Strauss-Kahn bendlaður við hópnauðgun í Bandaríkjunum Franska lögreglan hefur nú hafið formlega rannsókn á því hvort Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafi tekið þátt í hópnauðgun í Bandaríkjunum. 21.5.2012 09:23
Vítisenglar selja Viagra Skipulögð glæpasamtök í Svíþjóð á borð við Vítisengla virðast hafa fundið sér nýja gróðaleið. Að því er fram kemur í sænska blaðinu Dagens Nyheter hafa glæpaklíkurnar tekið upp á því að selja stinningarlyf á borð við Viagra á Netinu. Gríðarleg aukning hefur orðið á ólöglegri sölu slíkra lyfja síðustu misserin í Svíþjóð og bendir ýmislegt til þess að glæpaklíkurnar standi að baki innflutningnum. Salan getur skilað miklum gróða auk þess sem viðurlög við slíkum brotum eru mun vægari en þegar um hörð fíkniefni er að ræða. Fyrir nokkrum mánuðum fannst mikið af stinningarlyfjum í klúbbhúsi Vítisengla í Svíþjóð þegar lögreglan gerði þar húsleit. 21.5.2012 09:21
Seldi Ólympíukyndil á 30 milljónir Ólympíukyndill sem notaður var í fyrsta hluta boðhlaupsins um Bretland í undanfara Ólympíuleikanna í London í sumar var seldur á uppboðssíðunni eBay á 30 milljónir króna. Hlaupararnir fá að kaupa kyndlana sem þeir hlaupa með og var það hugsað til þess að fólkið gæti átt þá til minningar um þáttöku sína í leikunum. 21.5.2012 09:08
Milljónir fylgdust með hringmyrkva Milljónir manna í löndunum við Kyrrahaf fylgdust með sólmyrkva, eða svokölluðum hringmyrkva í gær. Fyrirbærið verður til þegar máninn fer fyrir sólu en er í mestri fjarlægð frá jörðu þannig að hann nær ekki að skyggja algerlega á sólina. Þá myndast einskonar eldhringur þegar útjaðrar sólarinnar skína þótt miðjan sé hulin myrkri. Myrkvinn sást greinilega í Tókíó í Japan og í Kína og Tævan en einnig á vesturströnd Bandaríkjanna. 21.5.2012 09:02
Talið að kviknað hafi í út frá Rafmagni Talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni, þegar veitingahúsið Frú Lára á Seyðisfirði stórskemmdist í bruna í gærkvöldi. Eldsins varð vart upp úr klukkan átta í gærkvöldi og barst hann um allt húsið, en karlmaður, sem var þar á efri hæð, komst út um glugga og sakaði ekki. Slökkvistarf gekk vel en húsið, sem er eitt elsta hús á staðnum og í hjarta bæjarins, er stór skemmt. 21.5.2012 08:55
Unglingar brutust inn í bíla í Breiðholti Þrír unglingspiltar voru handteknir í Breiðholti um tvö leytið í nótt, grunaðir um að hafa farið inn í bíla í leit að verðmætum. Ekki liggur fyrir hvort þeir höfðu eitthvað upp úr krafsinu, en lögregla hafði samband við foreldra þeirra, sem sóttu þá á lögreglustöðina. 21.5.2012 07:29
Sigmaðurinn á gjörgæslu Maðurinn, sem féll í fuglabjargi við Aðalvík, norðan Ísafjarðardjúps síðdegis í gær, gekkst undir aðgerð á Landsspítalanum í gærkvöldi og liggur nú á gjörgæsludeild. 21.5.2012 07:10
Barist í Beirút Að minnsta kosti tveir féllu og um tuttugu liggja sárir eftir bardaga í Beirút höfuðborg Líbanons í nótt. Bardaginn var á milli Súnní og Síta múslima í borginni en Súnníar styðja stjórnvöld í nágrannaríkinu Sýrlandi en Sítar eru andstæðingar þeirra. Átökin hófust í gær eftir að tveir háttsettir Sítar voru skotnir til bana en þeir höfðu verið háværir gagnrýnendur sýrlenskra stjórnvalda og framferðis þeirra gegn mótmælendum í landinu síðasta árið. 21.5.2012 09:13
Cameron setur Grikkjum úrslitakosti David Cameron forsætisráðherra Breta sendi Grikkjum tóninn frá leiðtogafundi Nato ríkja sem nú fer fram í Chicago í Bandaríkjunum. Cameron sagði í ræðu að Grikkir ættu aðeins tvo kosti í þingkosningunum sem fram fara að nýju þann sautjánda júní, að vera áfram aðilar að evrunni, eða hætta í samstarfinu. 21.5.2012 09:11
Kínverskum sjómönnum sleppt Tuttugu og níu kínverskum sjómönnum hefur verið sleppt úr gíslingu en þeir voru teknir til fanga þar sem þeir voru við veiðar á þremur bátum í Gulahafi, undan ströndum Norður Kóreu þann áttunda maí síðastliðinn. 21.5.2012 09:04
Hitabylgja í spánni fyrir hvítasunnuna "Þetta lítur mjög vel út hvað varðar hita á norðan- og austanverðu landinu,“ segir Einar Magnús Einarsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. 21.5.2012 07:00
Malarnám leyft í Svarfaðardalsá Bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar heimilar að teknir verði þrjú þúsund rúmmetrar af möl úr Svarfaðardalsá í Eyjafirði. Malartakan verður vestan Búrfellsár. Þetta er gert með samþykki landeigenda Búrfells og Veiðifélags Svarfaðardalsár. 21.5.2012 07:00
Tuttugu þúsund fyrir eitt kíló af laxi Snarhækkandi verð á villtum laxi á heimsmarkaði leiðir til þess að erfiðara er að kaupa upp netalagnir í íslenskum ám. Þetta kemur fram í grein Haraldar Eiríkssonar á vef Stangaveiðfélags Reykjavíkur. 21.5.2012 06:00
Meinað að sleppa silungi í fólkvangi Ekki fæst leyfi fyrir því að sleppa regnbogasilungi í Stórhólstjörn í Dalvíkurbyggð og selja íbúum í sveitarfélaginu veiðileyfi þar. 21.5.2012 06:00
Öxull brotnaði af sömu þotu Þotan sem missti eitt hjóla sinna við flugtak frá Keflavík á föstudag hefur áður orðið fyrir skakkaföllum. Þann 28. júní 2001 brotnaði öxull undan hægra hjólastellinu að aftan þar sem þotan stóð við flugstöðina í Kastrup. 21.5.2012 06:00
Rannsókn fyrirhuguð á bóluefni gegn krabbameini Umhverfisstofnun hefur til meðferðar leyfisumsókn fyrir rannsókn með erfðabreytt bóluefni þar sem prófuð verður ný aðferð við meðhöndlun blöðruhálskrabbameins. Nýja bóluefnið, PROSTVAC-V/F, er tvíþætt og inniheldur kúabóluveiru annars vegar og fuglabólusóttarveiru hins vegar, sem hefur verið breytt með erfðatæknilegum aðferðum til að tjá ónæmisvaka í þeim tilgangi að hjálpa ónæmisfrumum líkamans að þekkja og drepa krabbameinsfrumur. Í rannsókninni á að meta hversu öruggt bóluefnið er og hversu góða verkun það hefur á krabbamein. 21.5.2012 05:00
Ein sending fyrir 1,8 milljarða Actavis og dótturfyrirtæki þess Medis sendu um mánaðamótin lyf til Evrópu fyrir tæpa tvo milljarða króna, en um er að ræða eina stærstu markaðssetningu fyrirtækjanna frá upphafi. Lyfið er blóðfitulækkandi og ber nafnið Atorvastatín, og keppir við mest selda lyf í heimi sem lyfjarisinn Pfizer framleiðir og selur. 21.5.2012 05:00
Áhætta bæjarsjóðs sögð í lægsta þrepi „Þetta er náttúrulega alveg þrælmagnað,“ segir Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri í Fjallabyggð, um uppganginn á Siglufirði frá því Héðinsfjarðargöng voru opnuð og eftir tilkomu ferðaþjónustu- og veitingafyrirtækisins Rauðku. 21.5.2012 04:00
40 prósent fá ekki sumarstarf Akureyrarbær hafnaði rúmlega 40 prósentum umsækjenda um sumarstörf hjá bænum í fyrra og er útlit fyrir að hlutfallið verði svipað í ár. Í fyrrasumar voru ráðnir 430 einstaklingar í sumarafleysingar en alls sóttu 719 aðilar um auglýst störf. Flest eru störfin í þjónustu við fatlaða og aldraða. Sérstök átaksverkefni fyrir atvinnulausa eru ekki meðtalin í tölunum. 21.5.2012 03:15