Fleiri fréttir

Eigandinn gaf sig fram - sá fréttina á Vísi

"Hann kom hingað í gærkvöldi og sótti vélina. Hann þekkti allar myndirnar í vélinni þannig það var góður endir á þessu,“ segir Þór Ólafur Ólafsson, staðarhaldari á tjaldsvæðinu Reykjamörk í Hveragerði. Á mánudaginn kom lögreglumaður á frívakt verðmætri myndavél í hendur Þórs en vélina fann hann upp í Reykjadal á sunnudagskvöldið.

Kanna möguleikann á lagningu sæstrengs

Möguleikinn á lagningu rafmagnsstrengs milli Bretlands og Íslands verður kannaður, samkvæmt viljayfirlýsingu um samstarf í orkumálum sem undirritaður var í dag.

Björgunaræfing í austanverðum Faxaflóa

Varðskipið Þór, þyrla Landhelgisgæslunnar, fulltrúar flugsveitar og C-130 leitar- og björgunarflugvél Bandaríkjamanna auk stjórnstöðva Landhelgisgæslunnar í Keflavík og Reykjavík munu síðdegis í dag taka þátt í björgunaræfingu á austanverðum Faxaflóa með björgunarliðum flugsveitar Bandaríkjamanna. Bandaríkjamenn hafa séð um loftrýmisgæslu hér við land undanfarnar vikur. Björgunarliðar hafa farið í æfingar með þyrluáhöfnum Landhelgisgæslunnar þar sem tækifæri hefur gefist til að miðla reynslu og þekkingu beggja aðila.

Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan

Hundrað og sextíu skólastúlkur í norðurhluta Afganistan voru fluttar á sjúkrahús í gær eftir að eitrað var fyrir þeim. Skólastofur þeirra höfðu verið úðaðar með eitruðu efni, að sögn lögreglunnar í borginni Taluqan.

Um 163 þúsund fóru á skíði síðasta vetur

Tæplega 163 þúsund skíðaiðkendur fóru á skíði á liðnum vetri samkvæmt tilkynningu frá Samtökum Skíðasvæða á Íslandi. Langflestir iðkendur fóru í Hlíðarfjall á Akureyri og í Bláfjöll.

Góða veðrið draumur fyrir frjókornin

Magn birkifrjókorna í lofti í Reykjavík síðustu daga hefur verið langt yfir meðaltali. Veðuspá næstu daga veitir frjókornum fullkomnar aðstæður til að dreifa sér.

Taylor dæmdur í 50 ára fangelsi

Charles Taylor, fyrrverandi forseti Líberíu, var í morgun dæmdur í 50 ára fangelsi fyrir aðild sína að stríðsglæpum sem framdir voru í borgarastríðinu í Sierra Leone. Taylor var sakfelldur fyrir að aðstoða uppreisnarmenn í nágrannalandinu en þeir frömdu margvísleg voðaverk í borgarastríðinu sem stóð frá árinu 1997 og fram til 2003.

Frambjóðendur svara spurningum Vísis

Vísir spurði alla frambjóðendur til embættis forseta Íslands út í nokkur af helstu álitamálum sem snerta embættið og sýn þeirra það. Á meðal þess sem Vísi lék forvitni á að vita er hvort forseti Íslands á að þeirra mati, undir einhverjum kringumstæðum, að tala gegn stefnu ríkisstjórnar Íslands. Einnig hvort frambjóðendur telji að leggja eigi embættið niður, eins og stundum er rætt um.

Ákærðir fyrir að ræna Michelsen úrsmið

Tveir pólskir karlmenn hafa verið ákærðir fyrir að rán í úra- og skartgripaverslun Michelsen að Laugavegi, þar sem þeir tóku 49 armbandsúr af gerðunum Rolex, Tudor og Michelsen að verðmæti 50 milljónir króna. Samkvæmt ákærðu var þetta allt gert eftir fyrirfram gerði áætlun mannanna og tveggja samverkamanna þeirra.

Rússar segja íhlutun í Sýrlandi ekki koma til greina

Rússar lýstu því yfir í morgun að hernaðaríhlutun alþjóðasamfélagsins í Sýrlandi komi ekki til greina og munu þeir því að öllum líkindum beita neitunarvaldi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðann verði slík tillaga lögð fyrir. Áður hafði Francois Hollande forseti Frakklands sagt að slík íhlutun hljóti að koma til greina.

Árlegt hlaup til styrktar langveikum börnum

Fjórmenningarnir sem hlupu í kringum landið síðastliðið sumar fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna hafa nú stofnað góðgerðarfélagið Meðan fæturnir bera mig. Markmið með stofnun félagsins er að halda úti árlegu hlaupi í Öskjuhlíðinni þar sem þátttökugjald rennur óskipt til félaga sem veita veikum og fötluðum börnum stuðning. Í ár hefur verið ákveðið að hlaupa fyrir Umhyggju sem er stuðningsfélag langveikra barna og er hlaupið tileinkað þriggja ára hetju, Mirru Wolfram Jörgensdóttur.

Sló ólögráða son sinn - fékk handarfar á kinnina

Héraðsdómur Suðurlands dæmdi á föstudaginn í síðustu viku konu fyrir að slá ólögráða son sinn sem hún hafði í umsjá sinni. Konan sló piltinn einu sinni í andlitið með þeim afleiðingum að hann hlaut mar á hægri vanga.

Mega framselja Assange

Hæstiréttur Bretlands úrskurðaði í morgun að framselja megi Julian Assange, stofnanda WikiLeaks vefsíðunnar til Svíþjóðar þar sem hann hefur verið sakaður um nauðgun. Lögfræðingar Assange höfðu haldið því fram að framsalskrafan væri ógild og að hana bæri ekki að taka til greina. Þessu var hæstiréttur ekki sammála og því lítur nú út fyrir að Assange verði framseldur. Þó gæti verið að hann reyni að fá Mannréttindadómstól Evrópu til að taka málið fyrir.

Jón Steinar stefnir Þorvaldi Gylfasyni

Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardóamri hefur ákveðið að stefna Þorvaldi Gylfasyni prófessor fyrir dómstóla vegna greinar sem Þorvaldur skrifaði í ritröð háskólans í Munchen í Þýskalandi og birt var í mars slíðastliðnum. Jón STeinar greinir frá þessu í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Í greininni segir Jón Steinar að Þorvaldur hafi verið með aðdróttun í sinn garð, um að hann hafi misfarið með vald sitt sem dómari við Hæstarétt með því að semja fyrst með leynd kæruskjal til réttarins og stjórna síðan afgreiðslu þess. Þar á Þorvaldur við kæru vegna framkvæmdar kosninga til stjórnlagaþings árið 2010.

Áfram spáð blíðu

Áfram er spáð blíðskaparveðri á landinu í dag og að hitinn geti sumstaðar farið upp í 20 stig. Þó verður mun kaldara ef þokubakkar ná inn á ströndina. Þrátt fyrir blíðuna í gær og góðar horfur í dag, náði aðeins að frjósa í nótt á Fjarðarheiði og Breiðdalsheiði fyrir austan, en á sama tíma var hátt í 13 stiga hiti á sunnanverðum Vestfjörðum.

Þurfa yfir tvo fjallvegi til að komast í banka

Bæjarráð Vesturbyggðar mótmælir harðlega þeirri ákvörðum Landsbankans að loka útibúi sínu á Bíldudal. Til að bíta höfuðið af skömminni, eins og það er orðað, séu engar áætlanir hjá bankanum um að setja upp hraðbanka á svæðinu í staðinn. Þurfa íbúar Bíldudals nú að aka 30 kílómetra leið yfir tvo fjallvegi til að taka út peninga.

Ölfusárbrúin tekin út

Hópur sérfræðinga frá Vegagerðinni og verkfræðistofu hafa í nótt og í fyrrinótt verið að kanna ástand Ölfusárbrúar á Selfossi og ganga úr skugga um að hún beri enn alla þá þungaflutninga, sem um hana fara.

Vinnuskúr varð eldi að bráð

Vinnuskúr á hjólum brann til kaldra kola á Hólmsheiði, í grennd við hitaveitugeymana þar, um ellefu leytið í gærkvöldi. Hann var alelda og að hruni kominn þegar slökkviliðið kom á vettvang og slökkti í glæðum. Eldsupptök eru ókunn, en ekkert rafmagn var tengt við skúrinn.

Ástþór andvaka yfir framboði í uppnámi

Jóhannes Tómasson, upplýsingafulltrúi hjá innanríkisráðuneytinu, segir Ástþór Magnússon ekki hafa gert athugasemdir við tiltekna lista annarra frambjóðenda til embættis forseta. Hann hafi ekki tilgreint athugasemd sína nánar en að hann sæi á meðmælendalistum annarra frambjóðenda sömu rithönd.

Fær loks afhent Nóbelsverðlaun

Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma, er lögð af stað í heimsreisu. Hún hefur verið í stofufangelsi meira og minna í tvo áratugi. Í næsta mánuði fer hún meðal annars til Noregs þar sem hún tekur loks formlega á móti friðar-verðlaunum Nóbels sem henni voru veitt árið 1991.

Þingmenn vilja afturkalla aðildarumsókn

Atli Gíslason og Jón Bjarnason lögðu í dag fram þingsályktunartillögum um að afturkalla umsókn Íslands að Evrópusambandinu (ESB). Þeir leggja til að ekki verði haldið áfram með aðildarviðræðurnar fyrr en fram hafi farið þjóðaratkvæðagreiðsla sem staðfestir vilja þjóðarinnar til aðildar. Tvímenningarnir telja umboð ríkisstjórnarinnar til að halda áfram aðlögunar- og aðildarvinnu ekki lengur fyrir hendi.

Obama veitti Bob Dylan Frelsisverðlaunin

Barack Obama veitti 13 einstaklingum Frelsisverðlaunin (e. Medal of Freedom) í Hvíta Húsinu um helgina. Meðal þeirra var tónlistarmaðurinn Bob Dylan. Frelsisverðlaunin þykja meðal virðingarverðustu verðlauna sem almennir borgarar geta hlotið í Bandaríkjunum. Dæmi um eldri verðlaunahafa eru Móðir Teresa, Margaret Thatcher, Stephen Hawking og Walt Disney.

Nýjar fartölvur frá Google

Google hefur boðað nýja gerð af tölvum sem keyra á Chrome stýrikerfinu. Þær verða búnar öflugum örgjörva, en fyrri gerðin þótti of kraftlítil. Chrome stýrikerfið keyrir öll forrit sín af vefsvæði fyrirtækisins og vistar öll gögn notenda á internetinu. Google hefur lagt áherslu á að tölvurnar þurfi lítið viðhald, enda sé stýrikerfið keyrt af netinu og því sjái fyrirtækið um allt viðhald auk þess sem vírusvörn sé innbyggð í kerfið.

Fyrsta utanlandsför Suu Kyi í tvo áratugi

Þjóðarhetjan og friðarsinninn Aung San Suu Kyi hélt í fyrstu ferð sína út fyrir landamæri Búrma síðustu tvo áratugi og er nú stödd í Tælandi. Hún fékk vegabréf í byrjun maí. Suu Kyi mun eyða nokkrum dögum í Tælandi þar sem hún hyggst meðal annars heimsækja flóttamannabúðir og halda erindi á ráðstefnu næsta föstudag. Eftir það mun hún halda aftur til Búrma, stoppa þar stutt við og fljúga svo til Evrópu um miðjan júní.

Tuttugu björgunarsveitarmenn leituðu ferðalangs

Blásið var til leitar eftir að tilkynnt var um erlendan ferðamann sem orðið hafði viðskila við hópinn sinn við Jökulsárlón í dag. Maðurinn fannst stuttu eftir að leitin hófst. Tuttugu björgunarsveitarmenn frá Björgunarfélagi Hornafjarðar tóku þátt í leitinni auk 5 starfsmanna Jökulsárlóns. Maðurinn varð viðskila við hóp sinn um klukkan sex. Björgunarsveit var kölluð út milli klukkan átta og níu, en þá hafði starfsfólk Jökulsárlóns leitað í um klukkutíma. Maðurinn var kominn í leitirnar fyrir klukkan níu. Hann er heill heilsu. Friðrik Jóns Friðriksson, formaður Björgunarfélags Hornafjarðar, telur ólíklegt að maðurinn hafi upplifað sig týndan. "Það er náttúrlega sól og blíða og blankalogn. Hann bara fór og fékk sér labbitúr."

Sakar ríkisstjórnina um yfirgang

Framganga ríkisstjórnarinnar í stjórnarskrármálinu ber vott um yfirgang hennar gagnvart löggjafarvaldinu, sagði Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, við upphaf eldhúsdagsumræðna á Alþingi í kvöld.

Kraftaverk að sleppa lifandi eftir 40 metra fall

Það er kraftaverk að við séum á lífi, segja hjónin sem lifðu af allt að fjörutíu metra fall með skriðu stórgrýtis við Dyrhóley fyrir helgi. "Ég hélt að mín hinsta stund væri upprunnin," segir Jeorden Graaf, vélarverkfræðingur. "Fyrst móður náttúru tókst ekki að slíta okkur í sundur í þessum hamförum, er okkur ekki skapað að skilja," segir Irmgard Fraune, leikskólakennari.

Sigmundur: Álag á opinbera starfsmenn aukist gríðarlega

Álag á opinbera starfsmenn á borð við kennara og heilbrigðisstarfsfólk hefur aukist gríðarlega, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Hann sagði mikilvægt að búa starsfólki í þessum mikilvægu greinum betri starfskjör og vinnuumhverfi. Annars muni það leita að vinnu annars staðar.

Birgitta: Fulltrúalýðræðið hefur mistekist

Fulltrúalýðræðið er tilraun sem hefur mistekist, sagði Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, við eldhúsdagsumræður á Alþingi í dag. Hún hvatti fólk til þess að taka virkan þátt í umræðunni um nýja stjórnarskrá.

Var óheimilt að stöðva flutning 150 bifhjóla til landsins

Umferðarstofa var í dag sýknuð af skaðabótakröfu fyrir héraðsdómi Reykjavíkur. Krafan var sprottin af því að tollafgreiðslu yfir 150 bifhjóla, sem stefnandi hugðist flytja til landsins, var hafnað vegna afstöðu Umferðarstofu árið 2004. Í kjölfarið var hjólunum komið fyrir í geymslu fram til ársins 2006 sem innflytjandinn mátti greiða fyrir. Hann fór fram á skaðabætur vegna þess.

Túnfiskur geislavirkur eftir slysið í Fukushima

Geislun frá kjarnorkuverinu í Fukushima fannst nýlega í túnfiski við strendur Kaliforníu. Þetta kom fram í rannsókn sem birt var í gær í blaði the Proceedings of the National Academy of Sciences. Þó magn geislavirkra efna í fiskinum sé undir þeim mörkum sem almennt eru talin hættuleg er það þó tíu sinnum hærra en venjulegt er á þessum slóðum.

Virkjanir langstærstu tækifæri Skaftárhrepps

Ein virkjun gæti aukið tekjur Skaftárhrepps af fasteignasköttum um 40 prósent. Sveitarstjórinn segir fyrirhugaðar virkjanir langstærstu tækifærin sem sveitarfélagið hafi til atvinnusköpunar. Tvær stórar virkjanir í Skaftártungu eru nú á teikniborðinu. Landsvirkjun vill virkja Hólmsá ofan Hrífuness og Suðurorka vill virkja Skaftá með Búlandsvirkjun. Báðar virkjanir eru umdeildar, í rammaáætlun ríkisstjórnar eru þær settar í biðflokk.

Erlendu drengirnir láta reyna á flóttamannasamning SÞ

Aðeins einu sinni hefur reynt á grein í flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna sem kveður á um að ekki skuli refsa þeim sem koma ólöglega inn í land ef lífi þeirra var ógnað. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður furðar sig á þessu. Í 31. grein flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna segir meðal annars að aðildarríkin skulu ekki beita refsingum gagnvart flóttamönnum vegna ólöglegrar komu þeirra til landsins ef þeir koma beint frá landi, þar sem lífi þeirra eða frelsi var ógnað gefi þeir sig tafarlaust fram við stjórnvöld. Á þessa grein æltar Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður að láta reyna í máli drengjanna frá Marakkó og Alsír sem dæmdir voru í 30 daga fangelsi í lok apríl fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum en hann hefur áfrýjað dómi yfir þeim til Hæstaréttar.

Íslendingar greiddu um 68 þúsund atkvæði

Íslendingar greiddu hátt í 68 þúsund atkvæði í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á laugardaginn. Flest atkvæðin fóru til Svíþjóðar, sem sigraði í keppninni, og næstflest til Eistlands sem fékk 10 stig frá Íslendingum.

Þurfti allt að fjórðung blóðeininga Blóðbankans

"Þetta er mjög mikið,“ svarar Þorbjörn Jónsson læknir hjá Blóðbankanum spurður út í blóðmissi Skúla Eggerts Sigurz, framkvæmdastjóri Lagastoða. Guðgeir Guðmundsson hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps þegar hann stakk Skúla fimm sinnum, fjórar hnífstungur voru lífshættulegar. Í árásinni missti Skúli 50 lítra af blóði samkvæmt ákæruskjali.

Bandaríski herinn sýnir kúnstir í Íslandi í dag

Bandaríski flugherinn hefur sinnt loftrýmisgæslu NATO á Íslandi frá 8. maí og verður hér til 7. júní. Í Íslandi í dag í kvöld verður farið á æfingu með bandaríska flughernum. Þátturinn fékk að fara með hernum í loftið og fylgjast með því þegar F15 orrustuþota er fyllt af eldsneyti í 22 þúsund feta hæð.

140 milljónir til viðbótar vegna eldgosanna

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag 139 milljóna aukafjárframlög vegna brýnna verkefna á gossvæðum á Suðurlandi í kjölfar eldgosanna árin 2010 og 2011.

Þessir tala í eldhúsdagsumræðunum

Eldhúsdagsumræður á Alþingi hefjast klukkan tíu mínútur i átta í kvöld. Umræðurnar verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar fara þannig fram að hver þingflokkur fær 22 mínútur til umráða sem skiptast í þrjár umferðir, 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur í síðustu umferð. Þingmenn utan flokka tala síðastir í hverri umferð og hafa 4 mínútur.

Jón Páll er 700 hestafla tryllitæki

Kraftmesti "rib“ bátur landsins fór í jómfrúarsiglingu sína á dögunum. Tryllitækið hlaut nafnið Jón Páll eftir sterkasta manni heims, og það var Sigmar sonur hans sem sigldi bátnum fyrstu metrana. Sigríður Elva og Gísli Berg fengu að fljóta með og herlegheitin verða sýnd í Íslandi í dag klukkan 18.55 í kvöld.

Steingrímur: Atvinnuleysið að ná niður í sex prósent

Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra og formaður VG, býst við því að atvinnuleysið fari niður í sex prósent núna í maí eða júní á sama tíma og íbúatala landsins fari upp í 320 þúsund. Þetta sagði Steingrímur við eldhúsdagsumræður í dag.

Sjá næstu 50 fréttir