Fleiri fréttir

Allt tiltækt slökkvilið kallað að Öldugötu

Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað að húsi á Öldugötunni í miðborg Reykjavíkur vegna reyks. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sást reykur koma úr þakskeggi húss, en ekki er vitað nákvæmlega hvar eldurinn er þegar þetta er skrifað.

Hátt í 700 hjólum stolið á ári

Rúmlega 100 reiðhjól verða boðin upp hjá óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á laugardag klukkan 13. Þetta eru reiðhjól sem hafa fundist í óskilum víða í umdæminu og enginn hefur hirt um að sækja. Uppboðið verður haldið í húsnæði Vöku í Skútuvogi 8 í Reykjavík.

20 stiga hiti í Borgarfirði

Um og yfir tuttugu stiga hiti hefur mælst á veðurstöðvum í Borgarfirði og á Mýrum í dag. Hæstur hefur hitinn mælst á Hvanneyri, 20,5 gráður, en í Húsafelli og á Fíflholtum á Mýrum 20,1 gráða. Vestan- og norðvestanvert landið, sem og uppsveitir Suðurlands, hafa vinninginn í hitatölum dagsins.

Neyðarskilaboð klukkan 16 í dag

Klukkan fjögur í dag verður prófað viðvörunarkerfi almannavarna, sem sendir neyðar-sms-skilaboð í farsíma. Skilaboðin verða send á alla farsíma, bæði innlend og erlend númer, sem eru á þjónustusvæði símafyrirtækjanna í Vík í Mýrdal. Þau verða send úr númerinu 112 og verða á íslensku og ensku.

Al Thani málið dregst á langinn

Héraðsdómari veitti í dag verjendum sakborninga í svokölluðu al-Thani máli fresti til þess að skila greinargerðum í málinu til 1. október næstkomandi. Þeim hafði áður verið gefinn frestur til 12. júní.

Guðgeir sýndi engin svipbrigði - Skúli missti 50 lítra af blóði

Guðgeir Guðmundsson sýndi engin svipbrigði þegar fulltrúi ríkissaksóknara las yfir ákæruatriðin gegn honum í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu. Guðgeir er ákærður fyrir tilraun til manndráps er hann stakk Skúla Eggert Sigurz fimm sinnum með hníf þegar hann réðist á hann á lögfræðistofunni Lagastoðum í mars síðastliðnum, þar af voru fjórar stungur lífshættulegar.

Lítil flugvél í vanda

Viðbúnaður var á Reykjavíkurflugvelli núna í hádeginu vegna eins hreyfils vélar sem var að koma inn til lendingar. Tveir menn voru í vélinni. Gangtruflanir voru í vélinni en hún lenti heilu og höldnu.

Fórnarlömbin í Houla voru flest tekin af lífi

Flestir hinna 108 sem fórust í Houla héraði í Sýrlandi á föstudaginn voru teknir af lífi. Þetta fullyrða eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna sem hafa skoðað líkin. Vitni að morðunum fullyrða að vígamenn á vegum ríkisstjórnar Sýrlands hafi staðið að fjöldamorðunum. Þessi yfirlýsing Sameinuðu þjóðanna kemur á sama tíma og Kofi Annan erindreki samtakanna í landinu ræðir við Bashar al-Assad Sýrlandsforseta. Að sögn talsmanns SÞ lítur út fyrir að færri en tuttugu af fórnarlömbunum hafi fallið í loftárásum eða af völdum skriðdrekaskothríðar. Hinir verið teknir af lífi í tveimur aðskildum árásum á þorp á svæðinu. Fjöldi barna eru á meðal hinna látnu.

Viltu hvíla í grafhýsi Presleys?

Nú 35 árum eftir að Elvis Presley lést er hann ennþá að mala gull. Samkvæmt nýjustu fréttum getur heppinn aðdáandi hans, eða vellauðugur maður, keypt legstað í grafhýsi hans í Memphis í Tennesse fylki.

Flóttadrengir áfrýja

Máli drengjanna sem dæmdir voru í fangelsi fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum fyrir skömmu verður áfrýjað til Hæstaréttar. Ragnar Aðalsteinsson lögfræðingur sem fer með mál drengjanna segir óheppilegt að ákæruvaldið hafi sent tilkynningu um að drengirnir væru hugsanlega eldri en þeir segjast vera.

Tillögur að breyttum kvótafrumvörpum kynntar

Breytingartillögur við kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar verða kynntar á fundi atvinnuveganefndar nú rétt eftir hádegið. Forseti Alþingis ræðir í dag við formenn þingflokkanna um möguleg þinglok, og í kvöld eru eldhúsdagsumræður.

Íslendingar fara bjartsýnni inn í sumarið en í fyrra

Íslendingar fara mun bjartsýnni inn í sumarið nú en í fyrra, samkvæmt Væntingavísitölu Gallup og Capacent Gallup birti í morgun. Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maí en það er annar mánuðurinn sem væntingar landsmanna glæðast á milli mánaða.

Ísland myndi fagna aðild Bandaríkjanna

Ísland fullgilti, fyrst vestrænna ríkja, Hafréttarsamning Sameinuðu þjóðanna fyrir 27 árum. Bandaríkjastjórn leggur áherslu á að landið gerist aðili og tryggi með því hagsmuni sína. Bandaríkin eru eina stórþjóðin sem ekki hefur fullgilt samninginn.

Enn einn hnakkastuldurinn á Selfossi

Brotist var inn í hesthús við Bæjartröð á Selfossi um helgina og þaðan stolið Royal Air Ástundarhnakki með koparístöðum.

Venus gengur fyrir sólu

Að kvöldi 5. júní og aðfaranótt 6. júní næstkomandi mun plánetan Venus ganga fyrir sólina. Þvergangan hefst klukkan 22:04 og tekur rúmar sex klukkustundir. Reykjavík er eina borgin í heiminum þar sem sólin sest og rís aftur á meðan gangan stendur yfir.

Jóhanna fer til Þýskalands

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, heldur út til Þýskalands í dag þar sem hún tekur þátt í leiðtogafundi Eystrasaltsráðsins á morgun og fimmtudag. Fundurinn fer fram í bænum Stralsund.

Mál Guðgeirs þingfest í dag

Mál Guðgeirs Guðmundssonar verður þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur eftir hádegi í dag. Guðgeir er ákærður fyrir að hafa ráðist á Skúla Eggert Sigurz, framkvæmdastjóra Lagastoðar, í byrjun mars, og stungið hann ítrekað með hnífi. Það var líklega samstarfsmaður hans, lögfræðingurinn Guðni Bergs, sem kom í veg fyrir að Guðgeir yrði Skúla að bana.

Átta fórust í skjálftanum í morgun

Nú er ljóst að átta fórust hið minnsta í jarðskjálftanum sem reið yfir norðausturhluta Ítalíu í morgun. Aðeins tíu dagar eru liðnir frá því sex fórust í skjálfta á sama svæði. Skjálftinn í morgun mældist 5.8 stig og samkvæmt Sky fréttastofunni eru margir sárir eftir skjálftann í morgun. Þá varð hann til þess að nokkrar byggingar sem löskuðust í fyrri skjálftanum féllu nú til grunna. Skólar og verslanir voru rýmdar á svæðinu strax í morgun.

Ráðist á kosningamiðstöð forsetaframbjóðanda

Ráðist var á kosningamiðstöð Ahmed Shafiq í nótt en hann er annar þeirra frambjóðenda í Egyptalandi sem keppa í seinni umferð forsetakosninganna sem þar fara fram. Shafiq var forsætisráðherra í valdatíð Mubaraks forseta sem steypt var af stóli í fyrra og hann mun mæta leiðtoga Bræðralags múslíma í kosningunum.

Annan ræðir við al-Assad

Kofi Annan, erindreki Sameinuðu þjóðanna og Arababandalagsins í Sýrlandi hittir í dag forseta landsins Bashar al-Assad í höfuðborginni Damaskus.

Ferðakonan gekkst undir aðgerð

Breska ferðakonan, sem féll nokkra metra ofan í Hamragil við Þórsmerkurleið síðdegis í gær, gekkst undir aðgerð á Landsspítalanum í gærkvöldi.

Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna

Útvegsfyrirtækið Eskja á Eskifirði ætlar að rafvæða fiskimjölsverksmiðjuna og hætta að nota olíu við bræðsluna. Jafnframt verða mengunarvarnir auknar til muna og verður meðal annars reistur 42 metra hár reykháfur.

Enn skelfur jörð á Ítalíu

Jarðskjálfti sem mældist 5.8 stig reið yfir nú í morgun um 50 kílómetrum norðaustur af borginni Parma á Ítalíu á tæplega tíu kílómetra dýpi. Aðeins rúm vika er liðin frá því að svipað stór skjálfti reið yfir með þeim afleiðingum að sex létust. Engar upplýsingar hafa enn borist um hvort einhver hafi slasast í skjálftanum í morgun en við flytjum af því fréttir á Vísi um leið og þær berast.

Ætluðu að fremja hryðjuverk í Danmörku

Tveir menn grunaðir um að leggja á ráðin um hryðjuverk í Danmörku voru handteknir í nótt að því er danska leyniþjónustan segir. Mennirnir, sem eru bræður, eru grunaðir um að tengjast herskáum íslamistum í Sómalíu.

42% vilja að Huang Nubo fái að leigja

Ríflega fjórir af hverjum tíu Íslendingum vilja leyfa kínverska athafnamanninum Huang Nubo að leigja jörðina Grímsstaði á Fjöllum en tæpur þriðjungur er því mótfallinn, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2.

Blíðan varir út vikuna

„Menn fara sennilega að kvarta undan úrkomuleysi í lok vikunnar,“ segir Björn Sævar Einarsson veðurfræðingur. Veðurstofa Íslands spáir blíðskaparveðri á landinu öllu út vikuna, en útlit er fyrir að hitinn haldist í um 20 gráðum í innsveitum norðaustanlands fram til laugardags. „Það verður yfirleitt heitast inn til landsins og má alveg búast við við þessum hita út vikuna,“ segir Björn Sævar.. „Þetta verður mjög aðgerðarlítið veður.“

Rússar taka undir ásakanir

Báðir aðilar hafa greinilega átt hlut að dauða saklausra manna, þar á meðal nokkurra tuga kvenna og barna, segir Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, um fjöldamorðin í Houla í Sýrlandi á föstudag.

Mæta auknum umsvifum fyrir austan

HB Grandi vinnur að því að stækka og betrumbæta frystihús sitt fyrir uppsjávarfisk á Vopnafirði. Unnið er að því að auka afkasta- og frystigetu auk þess sem starfsmannaaðstaða er stækkuð. Vinnsla liggur niðri bæði í uppsjávarfrystihúsinu og fiskmjölsverksmiðjunni og hefst starfsemi að nýju væntanlega ekki fyrr en í lok júní, eins og kemur fram á heimasíðu fyrirtækisins.

Innan við eitt prósent barna býr við skort

Innan við eitt prósent íslenskra barna býr við efnislegan skort samkvæmt nýrri skýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Skýrslan er hluti af rannsóknarritröð sem nefnist Report Card, eða einkunnaspjaldið. Í henni er barnafátækt í velmegandi ríkjum skoðuð.

Verktaki segir komið til móts við borgina

Kári Arngrímsson, forstjóri Atafls, segir ekki rétt að verktakafyrirtækið hyggist byggja fjölbýlishús á Mýrargötu 26 eftir sömu teikningum og samþykktar voru hjá Reykjavíkurborg árið 2006. Í Fréttablaðinu á fimmtudag sagði frá því að aðeins neðsti hluti hússins á Mýrargötu hefði verið steyptur þegar kom að hrunárinu 2008. Haft var eftir Ástu Olgu Magnúsdóttur tölvunarfræðingi, sem er andvíg byggingu háhýsis á lóðinni, að fulltrúar borgarinnar hafi reynt að semja við lóðarhafann um að lækka húsið í fimm hæðir en lóðarhafinn hafi á endanum ákveðið að halda sig við samþykkta teikningu og hafa húsið sjö hæðir.

Bankar fái ekki að bólgna út

Nefnd háttsettra embættismanna og sérfræðinga í Danmörku á að koma í veg fyrir að bankastjórar láti fjármálastofnanir sínar bólgna út og veiti áhættusöm veðlán. Með þessu á meðal annars að koma í veg fyrir nýja eignabólu.

Þrír Íslendingar slógu í gegn í karókí í Berlín

Þó svo Íslendingar hafi ekki riði feitum hesti frá Euorvison keppninni í ár þá voru þrír dularfullir Íslendingar sem héldu uppi söngheiðri lands og þjóðar í Þýskalandi í gær. Þannig má finna þetta myndband á Youtube af þremur íslenskum strákum sem syngja sívinsælan slagara eftir kónginn sjálfann, Elvis Presley.

Frábær flugsýning - myndir

Boðið var upp á 25 flugatriði í lofti á flugsýningunni á Reykjavíkurflugvelli í dag. Meðal annars sveif Catalina tignarlega yfir Reykjavíkurborg áhorfendum til skemmtunar.

Féll niður gil og margbrotnaði

Bresk kona um fimmtugt féll um fimm metra niður í grýtt gil í Þórsmörk um klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli þá er konan margbrotin eftir fallið og mjög illa slösuð. Konan gekk eftir göngustíg ásamt hópi samlanda sinna þegar svo virðist sem henni hafi skrikað fótur með þeim afleiðingum að hún féll niður Hamragilið.

Ætluð fíkniefni reyndust neftóbak

Öryggisgæsla í Flugstöð Leifs Eiríkssonar tilkynnti á föstudag lögreglunni á Suðurnesjum um grunsamlegan poka í almenningssalerni í flugstöðinni. Pokinn var tekinn í vörslu lögreglu og afhentur tollgæslunni til skoðunar.

Fann rúmlega 200 þúsund krónur í flugvél

Tíu þúsund krónur í norskum seðlum, sem samsvarar um tvö hundruð og fimmtán þúsundum íslenskra króna, fundust þegar verið var að þrífa eina af flugvélum Iceland Express í gærdag.

Hrakti innbrotsþjófa á flótta

Húsráðanda í Reykjanesbæ brá heldur í brún þegar hann kom heim til sín aðfararnótt laugardagsins. Þar voru þá fyrir í forstofunni tveir bláókunnugir karlmenn samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Týndir þú myndavél í Reykjadal?

"Þetta eru líklega áhugamenn um svifdreka,“ segir Þór Ólafur Ólafsson, staðarhaldari á tjaldsvæðinu Reykjamörk í Hveragerði en lögreglumaður á frívakt kom verðmætri myndavél í hendur Þórs en vélina fann hann upp í Reykjadal í gærkvöldi. Þór Ólafur ákvað því að hafa samband við fréttastofu í von um að finna eiganda myndavélarinnar sem er af gerðinni Canon G10.

Tuttugu stiga hiti á Akureyri í dag

Þó að sumarið hafi byrjað illa á Vestfjörðum og Norðurlandi, þá virðast veðurguðirnir ætla að bæta landsmönnum það verulega upp í dag. Þó aðalllega á Norðurlandi. Spáð er tuttugu stiga hita á Akureyri í dag, þar sem hlýjast verður. Þá verður 15 stiga hita á Egilsstöðum og Sunnlendingar fá sinn skerf af góðviðrinu, en spáð er átján stiga hita á Kirkjubæjarklaustri.

Sjá næstu 50 fréttir