Innlent

Þurfa yfir tvo fjallvegi til að komast í banka

Bæjarráð Vesturbyggðar mótmælir harðlega þeirri ákvörðum Landsbankans að loka útibúi sínu á Bíldudal. Til að bíta höfuðið af skömminni, eins og það er orðað, séu engar áætlanir hjá bankanum um að setja upp hraðbanka á svæðinu í staðinn. Þurfa íbúar Bíldudals nú að aka 30 kílómetra leið yfir tvo fjallvegi til að taka út peninga.

Bæjarráð Vesturbyggðar skorar á stjórnvöld að grípa til aðgerða til að verja þjónustu við íbúana. Þessi bókun er í samræmi við viðbrögð úr öðrum sveitarfélögum, þar sem bankinn ætlar að loka útibúum nú um mánaðamótin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×