Fleiri fréttir

Heiðar Már stefnir Seðlabankanum - mál gegn Heiðari fellt niður

Bæði ríkissaksóknari og sérstakur saksóknari hafa fellt niður rannsókn máls á hendur fyrirtæki í eigu Heiðars Más Guðjónssonar fjárfestis, sem hafin var af Seðlabanka Íslands. Heiðar Már fullyrðir að rannsóknin hafi orðið til þess að hann var útilokaður frá viðskiptum með hlutafé í vátryggingafélaginu Sjóvá Almennum tryggingum hf.

Í lagi að hjólreiðamenn séu á akbrautum

Vegfarendur á hjóli hafa fullan rétt á að vera á akbrautum, segir í orðsendingu sem Umferðarstofa hefur sent fjölmiðlum vegna þeirra fullyrðinga Áreksturs.is að hjólreiðamenn hafi valdið árekstrum í umferðinni. Árekstur.is fullyrti í morgun að hjólreiðamenn ættu ekki að vera á akbrautum.

Tala látinna hækkar í Damaskus

Tala látinna í kjölfar sjálfsmorðssprengjuárása í sýrlensku borginni Damaskus fer hækkandi. Samkvæmt innanríkisráðuneyti Sýrlands létust að minnsta kosti 55 í tilræðinu og rúmlega 370 særðust, margir alvarlega.

Karlmenn verði 10% leikskólastarfsmanna árið 2050

Stefna á að því að karlmenn verði 10% starfsmanna á leikskólum árið 2050, samkvæmt tillögum um aðgerðir til að efla leikskólastigið. Tillögurnar voru unnar af starfshóp á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Markmiðum er skipt niður í langtíma- og skammtímamarkmið.

Íslensk hjón bíða eftir barni í Kólumbíu

Íslensk hjón hafa dvalið í Kólumbíu í rúma fjóra mánuði og beðið eftir að ættleiða kólumbískt barn. Ættleiðingin hefur dregist úr hófi fram og hafa íslensk yfirvöld blandað sér í málið.

Gera athugasemdir við að Geysissvæðið fari í verndarflokk

Eigendur Geysis í Haukadal gera verulegar athugasemdir við að Geysissvæðið skuli sett í verndarflokk í rammaáætlun án samráðs við landeigendur og segja það skýlaust brot á stjórnsýslulögum. Þeir segjast geta haft tugi milljóna í árlegar tekjur með því að leigja orkuauðlindina.

Veðurstofan varar við kuldakasti um helgina

Veðurstofan vill vekja sérstaka athygli á slæmri veðurspá fyrir nk. sunnudag og mánudag. Ferðafólki, bændum, sjómönnum og öðrum sem eru háðir veðri í leik og starfi er bent á að gera viðeigandi ráðstafanir.

Rétt að endurskoða reglur og siði um komu flóttamanna

Ögmundur Jónassson, innanríkisráðherra, telur rétt að endurskoða reglur og siði varðandi komu flóttamanna hingað til lands. Þetta kom fram í máli ráðherra á Alþingi í morgun þegar rætt var um alsírsku drengina sem voru handteknir á Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði. Þingmaður Samfylkingarinnar dregur í efa að barnaverndarsáttmáli Sameinuðu þjóðanna hafi verið virtur í málinu.

Hryðjuverk í Damascus - 40 látnir

Mikið öngþveiti ríkir í Damascus, höfuðborg Sýrlands, eftir að tvær sprengjur sprungu í borginni í morgun. Að minnsta kosti 40 létust í sprengingunum og um 170 særðust, margir hverjir alvarlega.

Óljóst hvenær Björk byrjar að syngja á ný

Alveg óljóst er hvenær Björk Guðmundsdóttir mun geta sungið opinberlega að nýju, segir Guðmundur Gunnarsson faðir hennar. Björk hefur verið í hvíld frá tónleikahaldi að undanförnu að læknisráði en læknar fundu hnúð á raddböndum hennar.

"Bryggjuball“ á Djúpavogi

Óvænt vertíðarstemmning ríkir nú á Djúpavogi og komu um það bil 40 strandveiðibátar þangað til hafnar að loknum veiðidegi í gærkvöldi.

Sóttu slasaðan vélhjólamann

Maður féll af vélhjóli í grennd við Kleifarvatn um ellefu leitið í gærkvköldi, og meiddist í fallinu. Þetta gerðist á slóða í nokkurri fjarlægð frá þjóðveginum.

Lögðu fram nýja lögbannskröfu

Hagsmunasamtök heimilanna og talsmaður neytenda lögðu í gær fram nýja lögbannskröfu hjá sýslumanninum í Reykjavík, þar sem farið er fram á að stöðvuð verði öll innheimta greiðsluseðla áður gengistryggðra lána. Sýslumaður hafnaði lögbannskröfu þessa efnis þann 27. apríl síðastliðinn á þeim forsendum að hún væri ekki nægilega skýrt afmörkuð.

Ólympíuloginn tendraður

Kveikt verður í Ólympíukyndlinum við hátíðlega athöfn í borginni Ólympíu í Grikklandi síðar í dag. Síðan verður hlaupið með logann í boðhlaupi um allt Grikkland uns hann verður fluttur til Bretlands.

Fundu brak rússneskrar farþegaþotu

Yfirvöld í Indónesíu segjast hafa fundið brakið af rússneskri farþegaþotu sem fórst í landinu í gær. Vélin, sem kallast Sukhoi Superjet hvarf af radar fimmtíu mínútum eftir flugtak í höfuðborginni Jakarta en vélin var í stuttu kynningarflugi með um fimmtíu manns innanborðs.

Risafugl á flugi yfir Reykjanesbæ

Mjög sérstætt skýjafar sást víða af Reykjanesi um ellefu leytið í gærkvöldi, þegar skýjaslæða á annars heiðum himni tók á sig hinar ýmsu kynjamyndir.

Pútín mætir ekki á G8 fundinn

Vladimir Putin, sem aftur er kominn á forsetastól í Kreml, ætlar ekki að mæta á G8 fundinn síðar í þessum mánuði þar sem helstu leiðtogar heimsins hittast og ráða ráðum sínum. Pútin hefur tilkynnt Obama bandaríkjaforseta þessa ákvörðun sína en hann segist eiga of annríkt þar sem hann sé að leggja ráðherrakapalinn í ríkisstjórn Rússlands.

Þriðja tilraun gerð til stjórnarmyndunar

Tilraun Vinstrimanna á Grikklandi til stjórnarmyndunar fór út um þúfur í gær og nú er röðin komin að leiðtoga þriðja stærsta flokks landsins að gera tilraun. Formaður Pasok flokksins, Evangelos Venizelos, er þó ekki talinn líklegur til að takast það ætlunarverk og því veðja flestir á að blása verði til kosninga að nýju í landinu.

Segja herbúðasnið slæmt - hafa samt meiri áhyggjur af umferðinni

"Í bókuninni er líka gefið til kynna að líkamsrækt með herbúðasniði eigi lítið erindi í dalinn og dregið fram að líkamsræktarstöð á þessum stað fylgir mikil umferð bíla og rík þörf fyrir stæði. Þetta bílakraðak er auðvitað mesta áhyggjuefnið,“ skrifa fulltrúar Vg í skipulagsráði Reykjavíkurgborgar, þau Torfi Hjartarson og Sóley Tómasdóttir, í grein sem birtist á Vísi í dag.

Vilja láta taka á uppsöfnuðum halla ríkisstofnana

Ráðherrar þurfa að svara fyrir uppsafnaðan halla stofnana á fundi með fjárlaganefnd. Ríkisendurskoðun gagnrýnir skort á viðbrögðum vegna vandans og bendir á 19 stofnanir með mestan uppsafnaðan halla.

Greniskógi rutt burt vegna snjóflóðagarða

Ekki eru allir sammála um að reisa eigi snjóflóðagarða í hlíðinni fyrir ofan grunnskólann og sjúkrahúsið á Patreksfirði. Íbúi segir gríðarleg náttúruspjöll verða við framkvæmdirnar. Veik rök að vilja verja hríslur, segir bæjarstjóri.

Bæjaryfirvöld losi þau undan tóbaki

Krakkarnir í 7. M í grunnskólanum í Þorlákshöfn hafa skorað á bæjaryfirvöld í Ölfusi að gæta þess að tóbaksnotkun við byggingar og á lóðum sveitarfélagsins trufli ekki þá sem ekki nota tóbak.

Athuga hvort setja eigi samruna skilyrði

Samkeppniseftirlitið er með til athugunar hvort unnt sé að setja kaupum Reiknistofu bankanna (RB) á Teris skilyrði sem tryggi nýjum og smærri keppinautum fullan aðgang að öllum kerfum og allri þjónustu sem sameinað fyrirtæki innir af hendi. Þetta kom fram í ræðu Páls Gunnars Pálssonar, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, á málþingi um framtíð Sparisjóðanna sem fram fór á þriðjudag.

Sameiningar fækka fagfólki á leikskólum

Foreldrar barna á leikskólanum Funaborg sendu harðort bréf til borgarfulltrúa og embættismanna vegna sameiningar þriggja leikskóla. Segjast fullsaddir á aðgerðaleysi, áhugaleysi og samskiptaleysi stjórnenda leikskólans og borgarinnar.

Allt of mikið af pólitískum fjárveitingum

Ungir vísindamenn flýja land af því að styrktarfé til rannsókna er af svo skornum skammti. 544 vísinda- og fræðimenn skora á menntamálaráðherra að gera bragarbót á. Telja fjárveitingar allt of pólitískar.

4,7 milljarða halli á rekstri borgarinnar

Tæplega 4,7 milljarða króna halli er á rekstri A- og B-hluta samstæðu Reykjavíkurborgar samkvæmt ársreikningi. Niðurstaðan er sögð lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir. Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2011 var samþykktur á fundi borgarstjórnar á þriðjudag.

Stjórnarmyndun gengur illa

Alexis Tsipras, leiðtogi bandalags vinstriflokka á Grikklandi, gafst í gær upp á því að mynda ríkisstjórn. Keflið fer nú til Evangelos Venizelos, leiðtoga sósíalistaflokksins Pasok.

Skelfileg umgengni í Heiðmörk

Vegfarandi sem átti leið um Heiðmörk í góða veðrinu í dag sendi fréttastofu tölvupóst í kvöld þar sem hann segir að sér hafi mætt sér skelfileg sjón á svæðinu í dag. Hann segir að hópur manna hafi verið með grillveislu og hreinlega skilið allt ruslið eftir sig. Ruslið var í pokum en fuglar og mýs voru búin að tæta gat á pokana svo draslið var á víð og dreif.

Söguleg yfirlýsing Obama: Styður hjónabönd samkynhneigðra

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sagði í sjónvarpsviðtali við ABC-sjónvarpsstöðina í Bandaríkjunum í kvöld að hann myndi styðja hjónabönd samkynhneigðra. Yfirlýsing hans er söguleg því hann er fyrsti forsetinn í sögu landsins sem opinberar þessa skoðun á málinu.

Skreið eftir Reykjanesbrautinni

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í vörubifreið á Reykjanesbrautinni í dag vegna óviðunandi frágangs á farmi, eins og sjá má myndinni hér til hliðar. Rekja mátti skreiðarslóðina eftir bifreiðina á Reykjanesbrautinni og hefði þurft að gera betur í að tryggja að farmurinn félli ekki af.

Furðulegt hvarf farþegaflugvélar

Um 200 björgunarsveitarmenn leituðu í dag að rússneskri farþegaþotu sem hvarf af ratsjá suður af Jakarta, höfuðborg Indónesíu, snemma í morgun. Um 50 manns eru um borð í vélinni. Þotan er glæný og er af gerðinni Superjet 100, framleidd af Sukhoi í Rússlandi. Framleiðendur hennar voru að kynna hana fyrir indónesískum flugmálayfirvöldum en þau hafa pantað um 40 flugvélar sem átti að afhenda á þessu ári. Leitinni hefur verið hætt í bili þar sem afar slæmar veðuraðstæður eru á svæðinu. Óttast er að vélin hafi brotlent en leit verður haldið áfram á morgun.

80 prósent sjúklinga á Vogi eru börn alkóhólista

"Ef að kona fer í meðferð fyrir 24 ára aldur út af kannabisfíkn, eru næstum því 50 prósent líkur á að sonur hennar geri það líka," sagði Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, í viðtali við þáttinn Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Gista nánast ofan í Slippnum

Aðeins eru nokkrir metrar frá Gamla slippnum í Reykjavíkurhöfn og að inngangi nýjasta hótels borgarinnar, Icelandair Hótel Reykjavík Marína.

Leyndi áhuga Kínverja en pabbinn með prókúru

Aron Karlsson, kaupsýslumaður, lýsti yfir sakleysi sínu í Héraðsdómi í dag en hann er ákærður fyrir fjársvik og gæti átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi vegna blekkinga í tengslum við sölu á fasteign til kínverska sendiráðsins. Faðir Arons, Karl Steingrímsson, fer með prókúru fyrir AK Fasteignir sem einnig sætir ákæru í málinu.

Kjartan enn í Sigur Rós

Hljómsveitin Sigur Rós undirbýr þessa dagana tónleikaferð sem farin verður til að fylgja eftir disknum Valtara sem kemur út í lok þessa mánaðar. Tónleikaferðin hefst í júlí, en eins og kunnugt er verður henni lokið með tónleikum á Iceland Airwaves í haust.

Er að deyja úr tilhlökkun

Sigrún Eðvaldsdóttir er einleikari á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld í Hörpu í hinum fræga fiðlukonsert númer 1 eftir Sjostakovitsj. "Þetta leggst alveg rosalega vel í mig. Ég er að deyja úr tilhlökkun," segir Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðluleikari sem leikur einn glæsilegasta fiðlukonsert 20. aldarinnar á tónleikum Sinfóníunnar annað kvöld. Það er fiðlukonsert númer 1 eftir Dímítríj Sjostakovitsj. Hún kveðst aldrei hafa spilað hann áður og reyndar hafi hún verið mjög hrædd við hann.

Framtíð alsírsku drengjanna í lausu lofti eftir afplánun

Alsírsku drengirnir tveir sem dæmdir voru í óskilorðsbundið fangelsi í síðasta mánuði fyrir vegabréfafölsun falla mögulega undir stöðu flóttamanna samkvæmt flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna og hafa óskað eftir hæli hér á landi. Verjandi drengjanna vill ekki svara því hvort hann hafi farið fram á skilorðsbundna refsingu vegna ungs aldurs þeirra.

Læknar rukka viðbótargjöld

Nánast hver einasti sérfræðilæknir á landinu hefur verið samningslaus við Sjúkratryggingar Íslands í rúmt ár. Sumir þeirra eru farnir að rukka sjúklinga um viðbótargjöld. Kona, sem glímir við afleiðingar krabbameins, segir kjaradeiluna bitna á þeim sem síst skyldi og formaður Öryrkjabandalags Íslands segir málið til skammar fyrir deiluaðila.

Bið hælisleitenda löng og kostnaðarsöm

Forstjóri Útlendingastofunar segir hælisleitendur þurfa að bíða næstum þrisvar sinnum lengur en forsvaranlegt sé. Löng bið kosti samfélagið mikið fé auk þess sem biðin skapi mikla vanlíðan meðal fólks. Á þessu ári hafi orðið veruleg fjölgun meðal hælisleitenda og fyrirséð að biðin lengist enn.

Þarf allt að 10 gengisdóma

Samráðshópur banka og skuldara upplýsti í dag að upp undir tíu prófmál þurfi að fara fyrir dómstóla til að eyða óvissunni sem skapaðist af síðasta gengislánadómi Hæstaréttar. Umboðsmaður skuldara vonar að málaferlunum ljúki strax í haust.

Ræktaði kannabis í blokk

Lögreglan stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Kópavogi í dag. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 70 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Tvö af herbergjum íbúðarinnar voru sérstaklega útbúin fyrir þessa starfsemi. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, var handtekinn á vettvangi og færður til yfirheyrslu. Hann hefur ekki áður komið við sögu hjá lögreglu.

Sjá næstu 50 fréttir