Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stúlka varð fyrir líkamsárás í Ármúla Stúlka varð fyrir líkamsárás í Ármúla eftir hádegi í dag. Hópur stúlkna mun hafa ráðist á hana með nokkuð harkalegum hætti að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. Lögregla veit hverjar stúlkurnar sem að árásinni stóðu voru og ætlar sú sem fyrir henni varð að kæra verknaðinn. Ekki kemur fram í tilkynningu lögreglu hvort stúlkan hafi slasast í árásinni. 7.2.2012 16:29
Upplýsingafulltrúi Marel mun vinna fyrir Hollywoodstjörnur Jón Ingi Herbertsson er að láta af störfum í markaðsdeildinni hjá Marel til þess að fara að vinna í upplýsingadeild Sameinuðu þjóðanna. Hann mun vinna að samskiptum SÞ við kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðinn og hluti af vinnunni snýst um að vinna með velgjörðarsendiherrum SÞ. Á meðal þekktustu velgjörðarsendiherranna eru Angelina Jolie, George Clooney, Michael Douglas og Charlize Theron svo dæmi séu nefnd. Aðspurður segist Jón Ingi þó varla hægt að stilla málum þannig upp að hann hafi yfirgefið Marel fyrir Angelinu Jolie. 7.2.2012 16:06
Almannatengill segir nafnavandræði draga úr trúverðugleika "Ég held að það sé alltaf óheppilegt fyrir stjórnmálaöfl að lenda í nafnavandræðum,“ segir Andrés Jónsson, almannatengill. Lilja Mósesdóttir kynnti í dag nafn á nýjum stjórnmálaflokki sínum en hann ber heitið Samstaða. Í frétt á Vísi hér í kvöld var sagt frá því að til er stjórnmálaafl sem heitir Samstaða, en það eru samtök sem voru stofnuð á Patreksfirði árið 1998. Þau eiga núna þrjá fulltrúa í bæjarstjórn bæjarins. 7.2.2012 21:49
Herjólfur siglir ekki vegna veðurs Seinni ferð Vestmannaferjunnar Herjólfs hefur verið felld niður vegna veðurs. Farþegar eru vinsamlega beðnir að hafa samband við afgreiðslu til að breyta pöntun sinni að því er fram kemur í tilkynningu frá Herjólfi. Þá er fólk beðið um að fylgjast með heimasíðu Herjólfs þar sem frekari upplýsingar verða gefnar þegar þær berast. 7.2.2012 16:06
Umferðarljós á Hafnarfjarðarvegi óvirk í nótt Í nótt er áætlað að ljúka breytingum á umferðarljósum á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar við Fjarðarhraun og Álftanesveg í Engidal. 7.2.2012 15:59
Póstmálum bjargað á Grundarfirði Allt útlit er fyrir að íbúar á Grundarfirði geti áfram fengið póstinn borinn til sín áfram eftir að gengið var frá ráðningu nýs starfsmanns. Útburður á póstinum var til umræðu fyrir fáeinum dögum vegna erfiðleika við að ráða bréfbera til starfans. 7.2.2012 15:10
Geimgæðingar íslenskra listamanna slá í gegn á YouTube Útskriftaverkefni nokkurra Íslendinga í danska skólanum Animation Workshop í Viborg í Danmörku fer nú sigurför á YouTube. Þannig hafa hátt í þrjú hundruð þúsund manns horft á myndbandið frá því það var sett inn í síðustu viku. 7.2.2012 14:36
Frost í Feneyjum Kuldakastið í Evrópu virðist síst vera á undanhaldi og í dag hefur frostið þýtt margskonar tafir á samgöngum. Vegir hafa lokast og flugumferð stöðvast vegna kuldans. Þá voru skólar lokaðir í Róm í dag og um stærstan hluta Ítalíu hefur verið snjókoma. Meðal annars eru hin heimsfrægu síki í Feneyjum nú í klakaböndum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Talið er að tíu manns hafi látist af völdum veðursins á Ítalíu og meðal annars létust tveir þegar snjór féll af þaki of kaffærði þá. 7.2.2012 14:23
Lögðu hald á 400 lítra af gambra og 14 lítra af landa í húsleit Lögreglan á Selfossi haldlagði 400 lítra af gambra og fjórtán lítra af ætluðum landa í húsleit sem þeir gerðu um hádegisbilið í dag. Engin tæki eða tól var að finna í húsnæðinu. Karlmaður á sextugsaldri játaði að hafa átt bruggið. Málið telst upplýst. 7.2.2012 14:09
Fleiri ökumenn undir áhrifum fíkniefna en áfengis Um helgina voru tólf ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Átta þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Hafnarfirði og einn í Garðabæ. 7.2.2012 13:57
Ráðhúsinu breytt í Lególand Undirbúningur er í fullum gangi fyrir Vetrarhátíð sem sett verður fimmtudaginn 9. febrúar næstkomandi. Á heimasíðu Reykjavíkurborgar segir að nú sé í fullum gangi undirbúningur að því að breyta Tjarnarsal Ráðhússins í undraheima Legó. Þar gefst gestum og gangandi "tækifæri á að sýsla með tannhjól, mótora og fleira og boðið verður upp á aðstoð við að skapa eigin módel.“ 7.2.2012 13:36
Utanríkisráðherra Rússa fagnað sem hetju í Rússlandi Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands var fagnað sem þjóðhetju af stuðningsmönnum Assads Sýrlandsforseta þegar Lavrov kom til landsins í dag. Þúsundir veifuðu sýrlenskum og rússneskum fánum á götum höfuðborgarinnar Damaskus en Lavrov kom til borgarinnar til viðræðna við Assad forseta. 7.2.2012 13:31
Reykjanesbrautin einn öruggasti vegur landsins - samt flest slys á ári Hættulegasti vegur landsins er leiðin á milli Neskaupsstaðar og Stöðvarfjarðar sem meðal annars liggur í gegnum Oddsskarð. Þetta kemur fram í rannsókn sem birtist í Læknablaðinu nýverið. Það voru þeir Þóroddur Bjarnason og Sveinn Arnarson sem framkvæmdu rannsóknina. Niðurstöðurnar eru athyglisverðar, ekki síst vegna þess að Reykjanesbrautin á milli Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar er ein öruggasta leiðin á Íslandi. 7.2.2012 12:45
PIP-púðar fjarlægðir á kostnað ríkisins Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að bjóða öllum konum með PIP-púða að láta fjárlægja þá, þeim að kostnaðarlausu. Kostnaður ríkisins getur numið allt að 150 milljónum. Þær konur sem vilja nýja púða þurfa sjálfar að greiða fyrir aðra aðgerð. 7.2.2012 12:21
Búist við vitlausu veðri þegar líður á daginn Veður fer versnandi um og eftir miðjan daginn í dag og verður ástandið verst á vestanverðu landinu. Veðurstofan gerir ráð fyrir stormi og allt að 20 til 25 metrum á sekúndu og þá er búist við því að það taki að frysta á fjallvegum. 7.2.2012 12:15
Úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald - sætir geðrannsókn Karlmaðurinn, sem er grunaður um að hafa orðið konu að bana á heimili sínu aðfaranótt mánudags, var í dag í héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. febrúar að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. 7.2.2012 12:06
Tvö börn urðu fyrir bíl Tvö börn urðu fyrir bíl um klukkan átta í morgun. Í öðru tilfellinu varð barn fyrir bíl við skóla í Hafnarfirði og í hinu tilfellinu varð barn fyrir bíl við skóla í Garðabæ. Ekki liggja fyrir upplýsingar um meiðsl á börnunum. Lögreglan brýnir fyrir fólki að vera sífellt á varðbergi í umferðinni hvort sem er við skóla eða annars staðar. 7.2.2012 11:25
Farið fram á gæsluvarðhald yfir meintum morðingja Karlmaðurinn sem er grunaður um að hafa orðið konu að bana á heimili sínu í gær, er fyrir Héraðsdómi Reykjaness, þar sem farið er fram á gæsluvarðhald yfir honum. Dómari hefur ekki úrskurðað manninn í gæsluvarðhald, en maðurinn hefur margsinnis komist í kast við lögin þrátt fyrir ungan aldur. 7.2.2012 11:21
Eldsneytisþjófur ók á tvo bíla og stakk af Eigandi vörubifreiðar á Ártúnshöfða kom að manni sem var að stela díselolíu af eldsneytistanki bifreiðarinnar. Þegar þjófurinn varð eigandans var kom styggð að honum og flúði hann af vettvangi. Áður en hann komst í burtu hafði hann þó afrekað að bakka utan í vörubílinn og rekast síðan á jeppabifreið sem var á stæðinu. 7.2.2012 11:17
Frændinn talinn sekur en samt sýknaður Maður sem ákærður var fyrir fjölda kynferðisbrota gagnvart bróðurdóttur sinni hefur verið sýknaður í dómi Héraðsdóms Vesturlands frá fyrsta þessa mánaðar. 7.2.2012 11:00
Aðalmeðferðin hefst 5. mars Aðalmeðferð í Landsdómsmálinu á hendur Geir H. Haarde hefst í Þjóðmenningarhúsinu mánudaginn 5. mars næstkomandi. Þetta kemur fram á vefsíðu saksóknara Alþingis. Eins og kunnugt er liggur þó ekki ljóst fyrir hvort málinu muni ljúka fyrir dómstólum því að fyrir þinginu liggur fyrir tillaga Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að fella málshöfðunina niður. Alls óvíst er hver afdrif þess þingmáls verða. 7.2.2012 10:33
Byrjað að reisa uppblásnu íþróttahöllina í Hveragerði Framkvæmdir eru nú hafnar við nýju Hamarshöllina í Hveragerði, fyrsta uppblásna íþróttahúsið á Íslandi. Húsið verður tekið í notkun á Blómstrandi dögum í ágúst í sumar samkvæmt Fréttablaði Suðurlands.Keppnir eru leyfðar í húsinu sem er hannað fyrir 300 áhorfendur. 7.2.2012 09:46
Aðalmeðferð í meiðyrðamáli Jóns Ásgeirs vegna Rosabaugs Aðalmeðferð í meiðyrðamáli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar gegn Birni Bjarnasyni hófst rúmlega níu í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur. Jón Ásgeir stefndi fyrrverandi dómsmálaráðherranum í september á síðasta ári fyrir meiðyrði sem birtust í bók Björns, Rosabaugur. 7.2.2012 09:25
Vinnuferðir en ekki boðsferðir „Starfsmennirnir sem fóru í þessar ferðir – þeir voru ekki að þiggja neitt boð. Það er meginatriði og þess vegna voru þetta engar boðsferðir,“ sagði Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR, í viðtali við Kastljós RÚV í gærkvöldi. 7.2.2012 09:15
Vill rannsókn á lífeyrissjóðum Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, mun á næstunni leggja fram þingsályktunartillögu um að Alþingi skipi rannsóknarnefnd til að rannsaka starfsemi lífeyrissjóðanna frá árinu 1997 til 2011. 7.2.2012 09:00
Háhyrningar stefna Sea World fyrir þrælahald All sérkennilegt dómsmál er nú rekið fyrir dómstól í Flórída en sækjendurnir í því eru fimm háhyrningar sem eru í eigu skemmtigarðsins Sea World. 7.2.2012 07:14
Roskin hjón sluppu ómeidd úr eldsvoða Roskin hjón sluppu ómeidd út en töluvert tjón varð, þegar eldur kviknaði í einbýlishúsi við Eikjuvog í Reykjavík í gærkvöldi. 7.2.2012 07:03
Ferðakonan í Hvalfirði þakkaði Neyðarlínunni fyrir hjálpina Dönsk ferðakona, sem björgunarsveitarmenn komu til hjálpar í ofsaveðri í Hvalfirði í fyrrinótt, heimsótti starfsfólk Neyðarlínunnar í gærkvöldi og færði því körfu með góðgæti, í þakklætisskyni fyrir þátt þeirra í björguninni. 7.2.2012 07:01
Þrjú prófkjör hjá Repúblikönum í dag Prófkjör verða hjá Repúblikönum í þremur ríkjum í dag en það eru Colorado, Minnesota og Missouri. 7.2.2012 06:58
Varað við stormi á öllu landinu Veðurstofan varar við stormi á öllu landinu og á flestum miðum og djúpum umhverfis landið. 7.2.2012 06:56
Framsýn vill fund um málefni Stapa-lífeyrissjóðs Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi að fara þess á leit við stjórn Stapa-lífeyrissjóðs að þegar í stað verði boðað til fulltrúaráðsfundar í sjóðnum. 7.2.2012 06:55
Jarðskjálftinn á Filippseyjum kostaði 15 mannslíf Að minnsta kosti 15 manns létu lífið í öflugum jarðskjálfta sem varð við Filippseyjar í gær. 44 er enn saknað og rúmlega 50 eru slasaðir. 7.2.2012 06:52
Kjósarhreppur hafnar hugmyndum um nýja háspennulínu Hreppsnefnd Kjósarhrepps hafnar með öllu hugmyndum Landsnets um að leggja nýja háspennulínu frá Geithálsi í gegnum hreppinn og að Grundartanga, til að mæta aukinni orkuþörf þar. 7.2.2012 06:51
Miðaldra par gerði sig heimakomið í tómri íbúð Lögregla handtók í gærkvöldi par á miðjum aldri, sem hafði komið sér fyrir í tómri íbúð í austurborginni. 7.2.2012 06:47
Þolinmæðin gagnvart leiðtogum Grikklands á þrotum Grísk stjórnvöld eru farin að reyna mjög á þolinmæði annarra leiðtoga ríkja á evrusvæðinu. 7.2.2012 06:42
Óreglumaður í haldi grunaður um morð Ungur maður kom í annarlegu ástandi á lögreglustöð í gær og átti erfitt með að gera sig skiljanlegan. Í kjölfarið fannst látin kona á heimili hans og svo virðist sem henni hafi verið ráðinn bani með hníf. Maðurinn er góðkunningi lögreglu. 7.2.2012 06:15
Brottnám PIP-púða kostar tugi milljóna Velferðarráðherra mælist til að allar konur með PIP-púða geti látið fjarlægja þá á Landspítalanum. Hópur kvenna vill nýta aðgerðina til að fá nýja púða. Gætt verður að hagsmunatengslum og enginn mun vísa á sjálfan sig, segir ráðherra. 7.2.2012 06:00
Ríkisstjórnin hrökklast frá Ríkisstjórn Rúmeníu hefur sagt af sér vegna mikillar ólgu og mótmæla undanfarnar vikur. Aðhaldsaðgerðir að kröfu AGS og EBS eru óvinsælar. 7.2.2012 05:00
Sprengjum rigndi á Homs Stjórnarherinn í Sýrlandi gerði öflugar sprengjuárásir á borgina Homs í Sýrlandi í gær, þar sem harðir bardagar við uppreisnarmenn hafa staðið yfir undanfarna daga. Þetta eru hörðustu árásir stríðsins til þessa. 7.2.2012 03:15
Sagðist eiga skilið heiðursmerki Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik sagðist eiga skilið heiðursmerki og krafðist þess að vera látinn laus. 7.2.2012 01:00
Handleggirnir geta sagt til um sjúkdóma Mishár blóðþrýstingur í handleggjum fólks getur verið merki um sjúkdóma í æðakerfinu samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem gerð var við Exeter-háskóla í Bretlandi. 6.2.2012 23:15
Er hreinn sveinn en á samt fjórtán börn Þrjátíu og sex ára gamall bandaríkjamaður er talinn hafa feðrað fjórtán börn þrátt fyrir að vera hreinn sveinn. 6.2.2012 22:26
Ómar Stefáns: Við þurfum tilfinningalegt svigrúm eins og forsetinn "Maður finnur fyrir því að bæjarbúar vilja fara að fá niðurstöðu í þessi mál en eins og forsetinn sagði þá þurfum við smá tilfinningalegt svigrúm," segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi. 6.2.2012 21:53
Yfirvöld í Íran banna Simpson Yfirvöld í Íran hafa nú bannað leikföng af bandarísku þáttaröðinni Simpson og er nu bannað að selja eða eiga slík leikföng í landinu. Það er þó í lagi að eiga Superman og Spiderman. 6.2.2012 21:09
Slær í gegn á Youtube Borðtennispilturinn Jamie hefur fengið gríðarlega mikla athygli á veraldarvefnum síðustu daga. En í myndskeiði sem birt var á myndbandasíðunni Youtube.com sést hann sitja á borðtennisborði og faðir hans dælir í hann kúlum sem hann slær af miklum krafti. Ekki fylgir sögunni hversu gamall Jamie er en hann er eflaust eins til tveggja ára. 6.2.2012 20:28