Fleiri fréttir

Vilja friða fimm tegundir af svartfugli

Starfshópur á vegum umhverfisráðherra leggur til að fimm tegundir svartfugla verði friðaðar fyrir öllum veiðum og nýtingu næstu fimm árin. Fulltrúi bændasamtakanna sagði sig úr starfshópnum þegar tillögurnar lágu fyrir.

Sex lentu í snjóflóði - mildi að ekki fór verr

"Ég hef aldrei séð annað eins,“ segir Barði Sveinsson, bóndi á Innri-Múla, nærri Patreksfirði, en hann lenti óvænt í snjóflóði síðdegis í gær ásamt fimm öðrum. Barði var að sækja sjö kindur sem voru í sjálfheldu á Fuglbergi í Fossdal á Barðaströnd.

Ráð gert fyrir fundi um kjötkvóta í mánuðinum

Viðræður við ESB um aukningu á tollkvótum lambakjöts sem boðaðar voru í haust hafa tafist. Stefnt er að því að tvöfalda kvótann, úr 1.850 tonnum í 4.000 tonn. Heimila gæti þurft aukinn innflutning á móti.

Allt skal vera opið og sýnilegt

Dráttur sem orðið hefur á afgreiðslu fyrirspurnar erlendra mannréttindasamtaka um fangaflug leyniþjónustu Bandaríkjanna skýrist að hluta af því að opinbera hlutafélagið Isavia fellur ekki undir upplýsingalög.

Flóttamenn frá Norður Kóreu skotnir á færi

Mannréttindasamtök segja að þrír íbúar Norður Kóreu hafi verið skotnir til bana af landamæravörðum á dögunum. Fólkið freistaði þess að flýja yfir landamærin til Kína en Yalu áin sem skilur löndin að er nú í klakaböndum.

Tuttugu tonnum af síld skolaði upp á land í Noregi

Um tuttugu tonn af dauðri síld skolaði upp að ströndinni í sveitarfélaginu Nordreisa í Norður-Noregi í gærmorgun. Málið þykir afar dularfullt og hafa vísindamenn ekki getað gefið eina sérstaka ástæðu fyrir atvikinu. Íbúar í bænum segja það mjög sérstakt að sjá svona mikið magn af síld í ströndinni.

Líkfundur á landareign Bretadrottningar

Líkamsleifar manneskju hafa fundist á Sandringham sveitasetrinu sem er í eigu Elísabetar Bretadrottningar. Setrið er í afskekktum hluta Norfolk héraðs og konungsfjölskyldan eyðir of fríum sínum þar á bæ. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu fann almennur borgari líkamsleifarnar á Nýársdag í skóglendi á landareigninni. Landareignin er mjög stór og líkfundurinn er í um fimm kílómetra fjarlægð frá sjálfu setrinu. Nánari upplýsingar verða gefnar síðar í dag að því er lögreglan segir.

Lilja boðar nýtt stjórnmálaafl

"Við munum fljótlega kynna fleiri sem koma að þessum flokki,“ segir Lilja Mósesdóttir, óháður þingmaður, en hún boðar nýtt stjórnmálaafl þvert á alla flokka. Lilja er dul á framtíðaráætlanir þessa framboðs og segir í samtali við fréttastofu að fleiri nöfn verða kynnt á blaðamannafundi von bráðar. Lilja gat þó ekki sagt til um hvenær sá fundur yrði haldinn.

Sex gripnir við hassreykingar

Lögreglan á höfuðborgrsvæðinu hafði afskipti af sex manneskjum í tveimur bílum í nótt, vegna hassreykinga.

Sex loðnuskip leita að loðnu norður af landinu

Sex loðnuskip héldu úr höfn í nótt til leitar og veiða norður af landinu og annar eins fjöldi munu bætast í hópinn á næstu dögum, auk þess sem hafrannsóknarskip heldur til leitar í dag.

Mikil stemming í Iowa fyrir prófkjörið í dag

Mikil stemming ríkir í Iowa fyrir fyrsta prófkjör Repúblikanaflokksins um forsetaefni flokksins sem haldið verður í dag. Reiknað er með að metfjöldi, eða yfir 120.000 manns, muni taka þátt í prófkjörinu.

Miklar breytingar á heimasíðu Google

Valinn hópur tölvunotenda hefur fengið nýja útgáfu af heimasíðu Google leitarvélarinnar á netinu til notkunnar en hún fer síðan í loftið fyrir alla síðar í þessum mánuði.

Enn óákveðið með aukalandsfund

Tillögu um aukalandsfund Samfylkingarinnar á vordögum, sem fram kom á flokksstjórnarfundi fyrir helgi, var vísað til umræðu á næsta flokksstjórnarfundi, sem gert er ráð fyrir að verði í janúar. Ekki er því rétt sem fram hefur komið í fjölmiðlum undanfarna daga, meðal annars í Fréttablaðinu í gær, að tillagan hafi verið samþykkt.

Ekki borin undir Neytendasamtökin

Neytendasamtökin eru ósátt við að vera skrifuð fyrir greinargerð um fyrirhugaða ræktun á erfðabreyttum lífverum á Reykjum í Ölfusi. Á plagginu eru gerðar fjölmargar athugasemdir við að heimila skuli ræktunina, líkt og samtökin greina frá á heimasíðu sinni. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segist aldrei hafa samþykkt greinargerðina, þó svo að hún hafi verið til umfjöllunar af hálfu samtakanna.

Stjórnarformanni Hafró skipt út

Jón Bjarnason, sem lét af embætti sjávarútvegsráðherra á föstudag, lét það verða eitt af sínum síðustu verkum í embætti að biðja Friðrik Má Baldursson um að láta af embætti stjórnarformanns Hafrannsóknastofnunar. Varð Friðrik við þeirri bón á föstudag og tók Erla Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sjávariðjunnar á Rifi, við starfinu.

Hlé á vinnslu nýtt til fræðslu

HB Grandi nýtir vinnsluhlé yfir hátíðirnar til námskeiðahalds fyrir starfsfólk í landvinnslu fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur haft þennan háttinn á síðustu ár og að þessu sinni tóku 25 nýir starfsmenn í fiskiðjuverinu á Norðurgarði í Reykjavík þátt í „starfsfræðslunámskeiði fiskvinnslunnar“ en slík námskeið hafa verið haldin allt frá árinu 1986.

Nýtist til heilaskurðaðgerða

Tekið hefur verið í notkun nýtt tölvustýrt staðsetningartæki á heila- og taugaskurðdeild Landspítala. „Tækið gerir að verkum að skurðaðgerðir á höfði verða bæði nákvæmari og öruggari. Það nýtist best við aðgerðir á æxlum í heila,“ segir á vef Landspítalans. Þá nýtist tækið við ýmsar aðgerðir háls-, nef- og eyrnalækna og bæklunarskurðlækna. Tækið, sem er um 25 milljóna króna virði, er gjöf frá Arion banka og sjóði sem verið hefur í vörslu hans og stofnaður var á sínum tíma til að styðja tækjakaup.-

Biðst undan auknum verkefnum

„Það er ekki þess virði að berjast fyrir fyrirkomulagi sem kostar forseta fjárhagslegar fórnir og hugnast ekki nema helmingi bæjarstjórnar,“ segir Sigurborg Kr. Hannesdóttir, forseti bæjarstjórnar Grundarfjarðar, í bókun á síðasta fundi bæjarstjórnar þar sem hún baðst undan auknum starfsskyldum.

Biðja Jón að greiða hlut í dýru malbiki

Bæjarstjórn Ölfuss samþykkti á fundi sínum milli jóla og nýárs að greiða verktakafyrirtækinu KNH ehf. þrjár og hálfa milljón fyrir að malbika um hundrað metra vegspotta heim að vatnsverksmiðju Jóns Ólafssonar.

Stefnt er að mokstri á stéttum í vikulokin

Yfir þúsund fyrirspurnir bárust frá íbúum Reykjavíkurborgar fyrir áramótin í gegnum ábendingagáttina á Reykjavík.is vegna mikils snjós á gangstígum víðs vegar um borgina. Til stendur að hefja mokstur á fimmtudag eða föstudag, að sögn Bjarna Brynjólfssonar, upplýsingastjóra Reykjavíkur.

Ákvað makrílkvóta fyrir 2012

Jón Bjarnason, sem lét af embætti sjávarútvegsráðherra á föstudag, gaf út nýja reglugerð um makrílveiðar við Ísland á síðasta starfsdegi sínum.

Olíugóðærið lifir góðu lífi

Þrátt fyrir að íslensku auðjöfrarnir séu hættir að fljúga erlendum poppstjörnum til landsins eða fá þær til að heiðra sig með nærveru sinni í afmælum eru arabískir olíufurstar enn í góðum gír. Það hefur löngum verið hefð fyrir því að moldríkir auðjöfrar fljúgi heimsþekktum poppstjörnum til sín og láti þær syngja fyrir sig og veislugesti sína. Soldáninn af Brunei ruddi brautina fyrir þessa hefð, hann hélt meðal annars upp á fimmtugsafmælið sitt með einkatónleikum Michaels Jackson og borgaði honum ríflega sautján milljónir dala. Önnur saga af honum er ekki síður fræg, en þá fékk hann Whitney Houston til að syngja fyrir sig og veislugesti sína og lét hana fá auðan tékka að launum; hún mátti sjálf fylla hann út.

Anonymous sýnir klærnar

Tölvuþrjótar á vegum Anonymous hafa birt rúmlega 800.000 netföng og lykilorð viðskiptavina bandaríska öryggisfyrirtækisins Stratfor. Gögnin voru birt á internetinu og hafa þau að geyma viðkvæmar upplýsingar um alþjóðleg fyrirtæki sem og hátt setta einstaklinga í opinberum stofnunum Bandaríkjanna.

Síldartorfu rak á landi í Noregi

Rúmlega 20 tonn af síld skolaði á land í Noregi í gær. Vísindamenn reyna nú að komast að því hvað hafi ollið dauða fiskann og segja rökrétta skýringu vera á fyrirbærinu. Þó eru sumir sem segja fyrirbærið vera fyrirboða um heimsendi. Fiskarnir fundust í Kvænes í Tromsfylki.

MacBook Air er græja ársins 2011

Græja ársins að mati notenda tæknifréttasíðunnar Gizmodo er MacBook Air. Spjaldtölva vefverslunarinnar Amazon, Kindle Fire, hreppti annað sætið en aðeins munaði einu prósenti á milli efstu sætanna.

Strætófarþegar ekki fleiri í áratug

Strætisvagnafarþegar hafa ekki verið fleiri hér á landi í meira en áratug. Um níu milljónir farþega ferðust með strætó á síðasta ári sem er um tuttugu prósent aukning frá fyrra ári.

Auglýsingaherferð vegna offitu barna í Bandaríkjunum hneykslar

Nýleg auglýsingaherferð gegn offitu barna í Georgíufylki í Bandaríkjunum hefur vakið hörð viðbrögð. Auglýsingarnar sýna sorgmædd börn sem lýsa einelti og öðrum erfiðleikum. Sérfræðingar segja að þetta sé gert til að varpa ljósi á alvarleika málsins á meðan gagnrýnendur segja að auglýsingarnar brjóti niður sjálfstraust barnanna.

Innbrotsþjófar tilkynntu sjálfir um innbrot hjá sér

Tveir karlmenn voru handteknir í austurborginni í nótt eftir að þeir höfðu hringt í lögreglu og tilkynnt um innbrot. Þegar lögreglumenn ræddu við þá á vettvangi voru mennirnir margsaga en einnig var ýmislegt í fari þeirra sem gaf sterklega til kynna að þeir hefðu komið við sögu í öðru innbroti, sem lögreglan hafði nýhafið rannsókn á. Það var framið skömmu áður á svipuðum slóðum. Í fórum mannanna fundust munir sem þeir gátu ekki gert grein fyrir, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Mennirnir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu.

Velti bíl í hálku

Ökumaður velti bifreið sinni á Biskupstungnabraut í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi slasaðist enginn í veltunni. Full ástæða er til að vara fólk við hálku í Árnessýslu og víðar.

Svifrykið 17 sinnum yfir mörkum á síðasta ári

Styrkur svifryks í Reykjavík var á mælistöðinni við Grensásveg um 61 míkrógramm á rúmmetra á nýársnótt 2012. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfis- og samgöngusviði borgarinnar.

Eldur í Smárabíó

Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um klukkan hálf átta í morgun um eld í Smáralind, nánar tiltekið í einum af bíósölum Smárabíós. Dælubíll var sendur á staðinn en þegar þangað var komið höfðu öryggisverðir slökkt eldinn sem var minniháttar.

Tvö innbrot í Kópavogi í dag

Tilkynnt var um innbrot í húsnæði við Nýbýlaveg í Kópavogi um klukkan tuttugu mínútur yfir tólf í dag. Að sögn lögreglu voru rúður brotnar og farið inn í húsnæðið. Ekki er þó ljóst hvort einhverju hafi verið stolið. Skömmu síðar, eða rétt fyrir klukkan tvö í dag var síðan tilkynnt um innbrot í bifreið við Skemmuveg, einnig í Kópavogi. Framhlið á bílaútvarpi var tekin og skemmdir unnar á innréttingu bílsins. Málin eru í rannsókn.

Jón var bara að grínast - ekki í framboði

Jón Ólafsson athafnamaður vísar því alfarið á bug að hann hyggi á framboð til forseta Íslands. Fyrr í dag var sagt frá því að Jón hafi lýst því yfir í nýársfagnaði í gær að hann ætlaði að bjóða sig fram. Jón segir hinsvegar nú í samtali við Vísi að um gamanmál hafi verið að ræða.

Varð fyrir árás Doberman-hunds

Til stendur að aflífa Dobermanhund, sem beit sex ára gamla stúlku í matarboði á Akranesi á annan í jólum, á næstu dögum, segir Snorri Guðmundsson dýraeftirlitsmaður á Akranesi.

Jón Ólafs lýsir yfir framboði og Jón Gnarr íhugar það

Eftir yfirlýsingu Ólafs Ragnars Grímssonar þess efnis að hann hyggi ekki á áframhaldandi búskap á Bessastöðum keppast menn nú við að finna mögulegan arftaka. Tveir Jónar hafa í dag bæst í hópinn, Jón Gnarr borgarstjóri sagðist í viðtali á Rás 2 í morgun vera að íhuga framboð. Jón Ólafsson, sem síðustu ár hefur einbeitt sér að því að selja vatn, er á Pressunni sagður hafa lýst yfir framboði á Nýársfagnaði í gær. Ekki hefur náðst í Jón til þess að fá þetta staðfest.

Rætt um að Katrín taki við af Katrínu

Þegar að Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra fer í fæðingarorlof, sem reiknað er með að gerist á næstunni, er líklegt að ráðherra úr röðum VG haldi um stjórnartaumana í iðnaðarráðuneytinu.

Tveir fjögurra bíla árekstrar á sama tíma

Tveir fjögurra bíla árekstrar urðu á sama tíma í höfuðborginni á öðrum tímanum í dag. Einn varð á Kringlumýrarbraut í Fossvogi og hinn á Miklubraut til móts við Kringluna. Engin meiðsli urðu á fólki samkvæmt upplýsingum frá árekstur.is. Mikil hálka er að myndast á götum borgarinnar og eru ökumenn beðnir um að fara sérstaklega varlega.

Sjá næstu 50 fréttir