Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þessi er alveg með'etta Dýrin geta verið alveg yndisleg og þessi voffi er engin undantekning á því. Hann hlustar sko á tónlist, og það er ekki annað að sjá en að hann brosi út að eyrum þegar eigandi hans spilar á gítarinn. En um leið og hann hættir, þá fer brosið. Sjón er sögu ríkari. 25.12.2011 09:41
Jólasnjórinn kemur manni í jólafíling Jólalegt er um að litast höfuðborgarsvæðinu þessa stundina en um klukkan sex í morgun byrjaði að snjóa af krafti. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni hefur snjóað mikið frá klukkan sex til níu, en búist er við meiri snjókomu í dag. 25.12.2011 09:23
Hneykslaður á markaðsvæðingu jólanna Benedikt XVI páfi hneykslaðist á markaðsvæðingu jólanna í jólamessu í Péturskirkjunni í Róm í gærkvöld. Hann hvatti fólk til þess að horfa framhjá “yfirborðskenndu glysi jólahátíðarinnar og finna barnið sem lagt var í jötu í Betlehem.” Í predikun sinni harmaði páfinn líka ofbeldið í heiminum og bað fyrir þeim sem búa við fátækt. 25.12.2011 08:00
Trúin tengir kynslóðir saman Trúin tengir okkur saman, kynslóðirnar í þessu landi, sagði herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, í sjónvarpspredikun sinni sem var sýnd í gær. Mikilvægt væri að hafa það í huga. 25.12.2011 08:00
Snælduvitlaust veður í Neskaupstað Gríðarlegt ofsaveður gengur nú yfir Austurland og hafa stór skip losnað frá bryggju á Neskaupsstað. 24.12.2011 22:38
Gleðileg jól Jólin voru hringd inn í Grafarvogskirkju með aftansöng sem lauk nú rétt fyrir klukkan sjö. Séra Vigfús Árnason predikaði og Egill Ólafsson söng sálminn Ó helga nótt ásamt kór Grafarvogskirkju. Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis óskar öllum lesendum Vísis gleðilegra jóla. 24.12.2011 19:02
Alþjóðalögreglan gefur út handtökuskipun á sílikonframleiðanda Alþjóðalögreglan, Interpol, hefur gefið út handtökuskipun á hendur yfirmanni franska fyrirtækisins sem framleiddi gallaða sílikonpúða í brjóst. Sílikonpúðarnir hafa valdið mikilli skelfingu á meðal kvenna í vikunni eftir að það kvisaðist út að þeir gætu sprungið og jafnvel valdið krabbameini. 24.12.2011 16:45
Eignuðust dreng - sannkölluð guðsgjöf Hann er alveg dásamlega fallegur - sannkölluð guðsgjöf, segir Eva Dögg Sigurgeirsdóttir sem eignaðist... 24.12.2011 16:15
Veginum milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur lokað Búið er að loka veginum milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur vegna ófærðar og snjóflóðahættu. Lögreglan segir ekkert ferðaveður vera á svæðinu og hafa þar til gerðar lokunargrindur verið settar upp beggja vegna. Ekki er búist við að vegurinn opnist í kvöld eða nótt. 24.12.2011 17:53
Veðrið að skána á höfuðborgarsvæðinu Óveðrið á höfuðborgarsvæðinu er að ganga niður, segir Haraldur Eiríksson veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. 24.12.2011 15:55
Aftansöngur jóla frá Grafarvogskirkju Eins og fram hefur komið verður aftansöngur frá Grafarvogskirkju í Reykjavík send út í beinni útsendingu á Stöð 2 og á Vísi. Athöfnin hefst klukkan sex. 24.12.2011 17:45
Þakplötur fuku af Rauðagerði Þakplötur voru byrjaðar að losna af Rauðagerði við Boðaslóð í Vestmannaeyjum eftir hádegið í dag. Björgunarfélaginu í Vestmannaeyjum barst tilkynning um málið klukkan átján mínútur í tvö og fóru umsvifalaust á staðinn. 24.12.2011 14:53
Um 20 slökkviliðsmenn á vakt Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla. Varðstjóri hjá slökkviliðinu bað Vísi sérstaklega um að koma þessari jólakveðju til skila og blaðamanni er það bæði ljúft og skylt. 24.12.2011 14:10
Akið hvorki Hellisheiði né Þrengslin Af gefnu tilefni ræður lögregla og Vegagerðin ökumönnum frá því að vera á ferðinni á Suðurlandsvegi um Hellisheiði og eins um Þrengslaveg. Mjög hvasst er orðið og glórulítið að vera á ferð nema ökumenn séu á sérstaklega vel búnum bílum. Skyggni er nánast ekkert og mikil hálka, enn er lítil ofankoma en það breytist skjótt. Búast má við að þetta ástandi vari næstu klukkutíma. Björgunarsveitir eru EKKI á ferðinni til aðstoðar ökumönnum. 24.12.2011 13:55
Þúsundir flykkjast til Betlehem Þúsundir kristinna manna, hvaðanæva að úr heiminum, flykkjast til Betlehem, fæðingarborgar Frelsarans, á hverju ári þegar jólahátíðin gengur í garð. Vænst er þess að um 90 þúsund manns ferðist þangað um þessi jól. Fjöldi tónleika verður haldinn og að sjálfsögðu verður messað í hinni 1700 ára gömlu Fæðingarkirkju sem byggð er á staðnum þar sem talið er að Jesús hafi fæðst. 24.12.2011 13:49
Drottningin heimsótti eiginmann sinn á spítala Elísabet II Bretadrottning heimsótti í dag Fillipus, eiginmann sinn, á spítala þar sem hann dvelur vegna kransæðastíflu. Filipus er orðinn 90 ára gamall. Hann gekkst undir hjartaþræðingu. Í tilkynningu frá konungshöllinni segir að líðan Filipusar sé góð en grannt sé fylgst með honum á Papworth spítalanum. Þegar drottningin heimsótti Filipus í morgun var hún í fylgd barna sinna Edward, Andrew og Anne. 24.12.2011 13:18
Íslenski jólasveinninn sá fimmti versti í heimi Íslenski jólasveinninn er sá fimmti versti í heimi samkvæmt óvisindalegri úttekt danska blaðsins Jyllands Posten. Í umsögn blaðsins segir að á Íslandi séu þrettán jólasveinar sem séu vondir, bæði við dýr og menn. Einstakur kvikyndisskapur einkenni hvern og einn þeirra. Einn þeirra sé gluggagæir, annar bjúguþjófur og sá þriðji skelfi konur með því að kíkja undir kjólinn þeirra. Þá segir að jólasveinarnir þrettán eigi vonda móður, sem heiti Grýla og eigi jólakött. Grýla hati börn sem fái ekki ný föt í jólagjöf. Hún sigi því jólaketttinum á börnin og setji þau svo í pokann sinn. 24.12.2011 12:40
Björgunarsveitamenn losuðu fasta bíla og aðstoðuðu jólasveina Hjálparsveit skáta Hveragerði aðstoðaði nokkra bíla á Hellisheiði sem lentu í vandræðum upp úr klukkan 5 í morgun. Slæmt veður var á Heiðinni. Þegar félagar sveitarinar höfðu lokið við að aðstoða bíla á Hellisheiði í morgun kom símtal frá jólasveinum um að aðstoða þá við að dreifa jólapökkum í Hveragerði þar sem þar var þungfært í morgun. Félagar í Hjálparsveita skáta fóru því á tveimur sérútbúnum björgunarsveitarbílum til að aðstoða þá og því komast allar gjafir til skila í tæka tíð. 24.12.2011 12:13
Dásamlegt að fólk um allan heim geti fylgst með messunni Tugþúsundir manna sækja helgihaald yfir jólahátíðina. Stöð 2 og Vísir sýna beint frá aftansöng í Grafarvogskirkju klukkan sex í dag. Vigfús Þór Árnason sóknarprestur segist fá gæsahúð þegar kórinn gengur inn kirkjugólfið. 24.12.2011 12:06
Færeyskur borgarstjóri datt í lukkupottinn Borgarstjórinn í Eiði í Færeyjum datt heldur betur í lukkupottinn þegar dregið var í Happadrætti DAS á fimmtudaginn. Borgarstjórinn fékk vinning á tvöfaldan miða sem þýðir Toyota Land Cruiser 150 eða 900 þúsund færeyskar krónur. Happdrætti DAS byrjaði árið 1996 að bjóða Færeyingum að spila með í Happadrátti DAS eins og Happdrætti DAS heitir á færeysku. Færeyingar urðu strax áhugasamir og keyptu miða sína með gíróseðlum sem þeir fá senda til sín mánaðarlega. Samkvæmt upplýsingum frá Happadrætti DAS hefur miðasalan í Færeyjum haldist stöðug í þessi sextán ár. 24.12.2011 11:52
Rauði krossinn til taks um jólin Einmana fólk sem sumt á engan að hringir mikið í Hjálparsíma Rauða krossins 1717 yfir hátíðarnar, að því er fram kemur á vef Rauða krossins. „Svarað er í símann allan sólarhringinn, allan ársins hring.“ 24.12.2011 11:30
Margt um manninn í Kringlunni Það var töluverð örtröð karlmanna í Kringlunni fyrir hádegi í dag. Þarna var í mörgum tilfellum um að ræða karlmenn sem áttu eftir að kaupa gjafir handa eiginkonunum. Innpökkunarborðið var umkringt sem aldrei fyrr. Það var mál verslunarmanna í Kringlunni að þetta væri eini dagur ársins sem fleiri karlmenn sóttu þangað en konur. 24.12.2011 11:22
Helgistund í Vestmannaeyjum fellur niður Helgistund sem átti að vera í kirkjugarðinum í Vestmannaeyjum klukkan tvö fellur niður vegna veðurs. Þessar upplýsingar hefur Vísir frá Guðmundi Erni Jónssyni presti í Vestmannaeyjum. 24.12.2011 11:12
Vonast til að ná takmarkinu strax í janúar „Miðað við þann gang sem hefur verið í söfnuninni ætti þetta að klárast í janúar,“ segir Guðmundur Felix Grétarsson, sem vantar nú aðeins um fjórar milljónir af þeim fjörutíu sem hann hyggst nota til að verða sér úti um handaágræðslu í Lyon í Frakklandi. 24.12.2011 11:00
Öllu flugi aflýst Öllu flugi Flugfélags Íslands hefur verið aflýst í dag vegna vonskuveðurs. Tugir manna biðu á vellinum í morgun þegar fréttastofa leit þar við. Tilkynnt var í gær að ferðum Herjólfs í dag yrði aflýst, en búið var að gera ráðstafanir þannig að engin átti bókað far með ferjunni. 24.12.2011 10:36
Kirkjugarðarnir opnir alla hátíðina Starfsmenn kirkjugarða Reykjavíkur hafa verið að önnum kafnir við að ryðja snjó í morgun og sanda stíga en búist er við miklum fjölda fólks í garðana í dag sem vitjar leiða látinna vina og ættingja, venju samkvæmt. 24.12.2011 10:21
Sjónvarpsfréttir klukkan tólf Sjónvarpsfréttir Stöðvar 2 í dag, aðfangadag, verða klukkan tólf, eins og venja er á aðfangadag. Það verða svo aftur sjónvarpsfréttir annað kvöld klukkan hálfsjö. Fréttavakt verður á fréttavefnum Vísi alla jólahátíðina. 24.12.2011 10:18
Björgunarsveitamenn standa vaktina Björgunarsveitir á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar munu standa vaktina yfir alla jólahátíðina, að sögn Gunnars Stefánssonar hjá Landsbjörg. Nokkuð var um að björgunarsveitamenn þyrftu að hjálpa fólki sem hafði fest bíla sína vegna ófærðar í nótt, meðal annars á Kirkjubæjarklaustri og á Snæfellsnesi en annars var nóttin róleg að sögn Gunnars. 24.12.2011 09:43
Gorbachev skammast sín fyrir Putin Mikhail Gorbachev, fyrrverandi leiðtogi Sovétríkjanna, segist skammast sín fyrir Vladimir Putin, forsætisráðherra Rússlands, vegna viðbragða þess síðarnefnda við mótmælendum sem krefjast úrbóta hjá rússneskum stjórnvöldum. 24.12.2011 09:30
Láta 2900 fanga lausa Stjórnvöld í Kúbu ætla að láta 2900 fanga lausa á næstu dögum, þar á meðal nokkra sem dæmdir hafa verið fyrir pólitíska glæpi. Raul Castro, forseti Kúbu, segir að þetta sé gert til að sýna góðvilja í verki eftir að hafa fengið nokkrar óskir frá ættingjum og trúarsamtökum. 24.12.2011 09:01
Víða slæm færð í dag Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar vegfarendur við slæmri færð sökum vatns og krapa á stofnbrautum. Inni í íbúðarhverfunum er þæfingsfærð og í sumum tilfellum þungfært. Lögreglan biður því alla um að fara varlega og fara hægt yfir svo það megi komast hjá óhöppum og slysum. 24.12.2011 08:03
Íbúar fylltust skelfingu á ný Harðir jarðskjálftar riðu yfir í Christchurch í gær, tæplega fjórum mánuðum eftir að stóri skjálftinn reið þar yfir í haust. 24.12.2011 08:00
Ellefu litlir hvolpar teknir með keisara Ellefu hvolpum var hjálpað í heiminn í Dýralæknamiðstöðinni í Grafarholti í gær. Þeir voru teknir með keisaraskurði sem tveir dýralæknar á spítalanum framkvæmdu. Allir voru þeir sprelllifandi og komnir á spena þegar tíkurnar tvær sem áttu þá voru útskrifaðar síðdegis. Í báðum tilvikum var um tíkur af ensku bolabítskyni að ræða. 24.12.2011 08:00
Hugið að niðurföllum Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim tilmælum til fólks að það hugi vel að niðurföllum og moki frá þeim. Þetta á sérstaklega við um niðurföll á svölum og í kjöllurum. Ástæðan er sú að þegar snjóa leysir er alltaf hætta á að vatn leki inn með tilheyrandi skemmdum á íbúðum og innanstokksmunum. 24.12.2011 07:44
Amagermaður í lífstíðarfangelsi Amagermaðurinn, Marcel Lychau Hansen, var í gær dæmdur í lífstíðarfangelsi. Á 23ja ára tímabili myrti hann tvær konur og nauðgaði sex öðrum, síðast táningsstúlku á síðasta ári. 24.12.2011 07:00
140.000 manns kíkja í „heimsókn“ á viku Fjarskiptafyrirtækið Míla hefur hlotið eftirsótt verðlaun fyrir vefmyndavél sína við Jökulsárlón. Fjórar milljónir manna „heimsækja“ Ísland á ári í gegnum veggátt Mílu. Frelsisstyttan í New York og Everest-fjall eru meðal vinningshafa. 24.12.2011 07:00
Segja samræmi í launum hafa riðlast Kjararáð hefur ákveðið að draga til baka lækkun á launum þingmanna, ráðherra og embættismanna sem heyra undir ráðið, sem ákveðin var árið 2008 og tók gildi 2009. 24.12.2011 06:30
Í Árneshreppi eru allir með gervitré „Héðan fara allir að minnsta kosti eina verslunarferð til Reykjavíkur,“ segir Ragnheiður Edda Hafsteinsdóttir, íbúi í Norðurfirði í Árneshreppi á Ströndum. Árneshreppur er ein einangraðasta sveit landsins, í það minnsta yfir vetrarmánuðina og það getur verið svolítið spennandi fyrir jólin. „Ef flugið klikkar núna rétt fyrir jólin þá fær fólk ekki rjóma og annan mjólkurmat um jólin,“ bætir hún við, en Edda, eins og hún er kölluð, sér um Kaupfélagið í Árneshreppi. 24.12.2011 06:00
Beinast gegn leyniþjónustunni Tugir manna fórust í tveimur sjálfsvígsárásum í Damaskus, höfuðborg Sýrlands. Árásirnar beindust að höfuð stöðvum lögreglu og leyniþjónustu í borginni. Yfir hundrað manns eru særðir. 24.12.2011 06:00
Lýðræðishetja syrgð í Tékklandi Útför Vaclavs Havel var gerð í Prag í gær að viðstöddum fjölda erlendra þjóðhöfðingja. 24.12.2011 05:00
Engir vagnar aka á jóladag Strætó mun skerða þjónustu yfir hátíðarnar. Ekið verður eins og á laugardegi til klukkan 14 í dag, þegar vagnarnir hætta akstri. Enginn akstur verður á jóladag og á annan í jólum verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun, að því er fram kemur á vef Reykjavíkurborgar. Akstur verður með hefðbundnum hætti milli jóla og nýárs.- bj 24.12.2011 05:00
Gera fyrirvara um breytt skipulag Perlu Orkuveita Reykjavíkur (OR) hefur undirritað viljayfirlýsingu við félag sem hefur hug á að festa kaup á Perlunni. OR skuldbindur sig til að eiga ekki viðræður við aðra á gildistíma yfirlýsingarinnar, en hún rennur út 31. mars 2012. 24.12.2011 05:00
Allir sjómenn heima um jólin Allir sjómenn á íslenska fiskiskipaflotanum verða heima um jólin. Síðustu skipin voru að tínast til hafnar seint í gær. Nokkur erlend flutninga- og fiskiskip voru innan íslenska leitar- og björgunarsvæðisins í gær. 24.12.2011 03:15
Sakar Frakka um þjóðarmorð „Talið er að Frakkar hafi frá 1945 drepið um 15 prósent alsírsku þjóðarinnar. Það er þjóðarmorð,“ segir Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands. 24.12.2011 02:00
Verslunaræði eftir að Nike opinberaði nýja skó Nýir íþróttaskór hafa valdið miklum usla í Bandaríkjunum. Nike opinberaði nýjustu týpu af Air Jordan skónum í vikunni og hafa raðir myndast víðsvegar um Bandaríkin. 23.12.2011 22:15