Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stjörnustríðsaðdáandi myrti eiginkonu sína Rickie La Touche var fundinn sekur um að hafa myrt eiginkonu sína eftir að hún eyðilagði Stjörnustríðsleikföng hans. Hann var dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir morðið. 4.11.2011 21:40
Aðgerðarsinnar teknir höndum við Gasaströndina Sjóher Ísraels stöðvaði tvö skip sem reyndu brjótast í gegnum herkvína við Gasaströndinni í dag. Sjóliðar gengu um borð í skipin sem voru á leið frá Tyrklandi. 27 aðgerðarsinnar voru um borð í bátunum en þeir voru að ferja vistir til Gasa-svæðisins. 4.11.2011 21:02
Sex falla í skyndiflóðum Að minnsta kosti sex hafa látist í skyndiflóðum í hafnarborginni Genoa á Ítalíu í dag. Mikil rigning hefur verið á svæðinu síðustu daga og er henni kennt um flóðin. 4.11.2011 20:40
Söng um einelti fyrir Bo Fjölmargir ungir og efnilegir listamenn vöktu athygli í jólastjörnuleit fyrir jólatónleika Björgvins Halldórssonar. Einn listamannanna er Íva Matín Adichem, sem er þrettán ára. Íva Marín er blind, en lætur fötlun sína ekki aftra sér frá því að láta drauma sína ræta. Í úrtökuprófinu hjá Björgvin Halldórssyni söng hún hollenskt lag við texta sem hún samdi sjálf. Lagið kallar hún "Þú átt þér vin" og fjallar um einelti. 4.11.2011 19:48
Hugsanlegt líf undir yfirborði Mars Niðurstöður nýrrar rannsóknar á vegum Geimferðastofnunnar Bandaríkjanna, NASA, gefa til að kynna að líf hafi líklega aldrei verið á yfirborði Mars. Aftur á móti eru talsverðar líkur á að líf hafi þrifist undir yfirborði plánetunnar. 4.11.2011 20:27
Ríkisstjórnin segist hafa lokið við tæplega 60% verkefna sinna Af þeim 222 aðgerðum sem samstarfsyfirlýsing ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og VG frá því í maí 2009 tekur til, er 130 lokið að fullu eða mestu leyti, 89 í vinnslu eða afgreidd að hluta og þrjú sem ekki hafa enn komist á skrið. Á þessum tíma hafa verið samþykkt 354 frumvörp sem lög frá Alþingi, 100 þingsályktanir auk fjölda annarra þingmála. 4.11.2011 19:58
Kínverjar vara við aðgerðum gegn Íran Hong Lei, talsmaður Utanríkisráðuneytis Kína, sagði í dag að nauðsynlegt sé að koma í veg fyrir hugsanlegar árásir á Íran. Hann sagði einnig að Íran verði að virða áherslur og reglur Alþjóðakjarnorkumálastofnunnar. 4.11.2011 19:57
Hátt í 30 manns komu saman í Silfru Hátt í þrjátíu kafarar voru saman komnir í Silfru í gærkvöldi til að taka þátt í heimsmeti. Vonast er til að yfir þrjú þúsund manns hafi verið í kafi á sama tíma um allan heim. Það var komið kolniðamyrkur við Þingvallavatn í gærkvöldi þegar tugir kafara komu saman með það að markmiði að setja heimsmet í næturköfun, það er að segja flestir kafarar í kafi í einu. 4.11.2011 18:56
Alþingi falið að bera ábyrgð á Vaðlaheiðargöngum Stefnt er að því að Alþingi taki ákvörðun innan tveggja til þriggja vikna um hvort lánsfjárheimild verði veitt til Vaðlaheiðarganga. Nýir arðsemisútreikningar verða kynntir á opnum þingnefndarfundi á mánudag. 4.11.2011 18:23
Jóhanna fundar með forseta framkvæmdastjórnar ESB Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er farin til funda í Brussel. Þar mun hún eiga fundi með Herman van Rompuy, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins og Jose Manuel Barrosso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Jafnframt fundar forsætisráðherra með Yves Leterme, forsætisráðherra Belgíu. 4.11.2011 17:26
Sterkasta kona Íslands haldin um helgina Keppnin „Sterkasta kona Íslands“ verður haldin í Höprunni klukkan tvö á sunnudaginn kemur. Keppnin er hluti af sýningunni „Icelandic Health and Fitness Expo“ 4.11.2011 16:42
Hnúfubakar hrella brimbrettakonu - ótrúlegt myndband Litlu munaði að kona ein í Californíu endaði í gini hvals á dögunum. Hún var á brimbretti undan ströndinni í Santa Cruz þegar tveir stærðarinnar hnúfubakar stökkva upp úr sjónum. Hnúfubakarnir komust í feitt þegar torfa af ansjósum synti fram hjá og voru ekki á þeim buxunum að láta konuna á brimbrettinu trufla sig við þá iðju að skófla fiskinum upp í ginið. 4.11.2011 16:29
Ikea reisir risageitina Gävle - var brennd fyrir ári Þeir sem eiga leið um Kauptúnið í Garðabæ reka líklega upp stór augu en þar má finna risastóra geit. Um er að ræða sænsku jólageitina Gävle sem er á vegum Ikea. Geitin á ættir sínar að rekja til Svíþjóðar en hún er vinsælasta geit Svía. Geitin var fyrst reist á aðaltorgi bæjarins Gävle, sem er borið fram sem jevle, í upphafi aðventu ár hvert. 4.11.2011 16:09
Undir allri steinsteypunni - Ræða Gyrðis Elíassonar í heild sinni Gyrðir Elíasson rithöfundur veitti bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs viðtöku í Kaupmannahöfn á miðvikudagskvöld. Fréttablaðið og Vísir birta hér þakkarræðu hans í heild sinni. 4.11.2011 16:00
Myndband Audda fær ótrúlegar viðtökur Myndband sem Auðunn Blöndal frumsýndi hér á Vísi á miðvikudagskvöld hefur farið eins og eldur í sinu um netið og var horft á það hvorki meira né minna en 70 þúsund sinnum á rétt rúmum sólahring. 4.11.2011 15:55
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar um helgina Herjólfur siglir til Þorlákshafnar 5. til 7. nóvember vegna ölduspá samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Herjólfs. 4.11.2011 15:45
Jólabjórinn kemur eftir 11 daga "Það hefur alveg komið fyrir að einstaka tengundir klárast,“ segir Sigrún Ósk Sigurðardótttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, en jólabjórinn kemur í vínbúðir þriðjudaginn 15. nóvember næstkomandi. Um 15 til 20 tegundir verða í boði þetta árið, sem er svipað og í fyrra. 4.11.2011 15:22
Magnús Geir: Viðhorf sem dæmir sig sjálft "Það öfgafulla viðhorf, sem fram kemur í greininni, dæmir sig í raun sjálft," segir Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins og leikstjóri leikritsins, Nei, ráðherra. Listakonurnar í leikhópnum Kviss bang búmm gagnrýndu Magnús harðlega í opinni grein, sem birtist á vef Félags leikstjóra á Íslandi (FLÍ). 4.11.2011 15:16
Tugir fastir í kolanámu í Kína Tugir kínverskra námamanna eru fastir í kolanámu í Henan héraði þegar námugöngin féllu saman. Fjórir létust hið minnsta en um fimmtíu er saknað. Slysið átti sér stað seint í gærkvöldi. Mörg hundruð námamenn látast á hverju ári í Kína og eru námastörft þar í landi talin ein hættulegasta atvinnugrein í heimi. Fyrr í vikunni létust 29 verkamenn í gas sprengingu. 4.11.2011 14:52
Próflaus ökumaður reyndi að ljúga til nafns Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í Reykjavík í gærkvöld og nótt. Þetta voru kona á þrítugsaldri og karl á fertugsaldri, sem hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Annar karl, sömuleiðis á fertugsaldri, var stöðvaður við akstur í Garðabæ en sá hafði líka þegar verið sviptur ökuleyfi. Viðkomandi reyndi að ljúga til nafns en maðurinn hefur áður verið tekinn fyrir að aka sviptur. 4.11.2011 14:51
Menntamenn handteknir fyrir þjófnað Tveir tvítugir piltar voru handteknir í miðborg Reykjavíkur fyrir þjófnað á dögunum. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni gengust mennirnir við þjófnaðinum enda voru þeir gripnir glóðvolgir. 4.11.2011 14:51
Bóluefnið verður rannsakað "Þetta er svolítið sérstakt og óvenjulegt,“ segir Haraldur Briem sóttvarnarlæknir í samtali við fréttastofu. Við sögðum frá því fyrr í dag að fimm stúlkur í Grunnskóla Húnaþings vestra hefðu sýnt ofnæmisviðbrögð eftir að þær voru bólusettar við HPV-veirunni í gær. 4.11.2011 14:43
Tvö þúsund ferðalangar fastir við Everest Um tvö þúsund ferðalangar eru fastir við fjallsrætur Mount Everest vegna óveðurs sem hefur stöðvað flugsamgöngur við flugvöllinn í bænum Lukla í Nepal. Á meðal þeirra sem eru fastir eru ferðamenn og leiðsögumenn en þeir hafa verið veðurteptir á svæðinu í fimm daga. Fréttamaður breska ríkisútvarpsins segir að matarbirgðir á hótelum á svæðinu séu að klárast og þá hafa sum hótelin þurft að grípa til þess að nota matsali sem svefnhótel. Samkvæmt veðurspám er ekki búist við því að óveðrið gangi niður á næstu dögum. 4.11.2011 14:07
Aftur vélavandræði hjá Airbus A380 - ári eftir að hreyfill sprakk Airbus A380 risaþota sem var á leið frá Sidney í Ástralíu til London neyddist til að lenda í Dúbaí í dag þegar bilun kom upp í hreyflum vélarinnar. Um er að ræða stærstu farþegaþotu í heimi en um 250 farþegar voru um borð. Fjórir hreyflar eru á vélunum og þurftu flugmennirnir að slökkva á einum þeirra þegar bilunin kom upp. Þeim tókst þó að lenda án vandræða í Dúbaí. 4.11.2011 13:45
Fimm stúlkur sýndu ofnæmisviðbrögð - ein flutt á sjúkrahús Kallað var á tvo sjúkrabíla í Grunnskóla Húnaþings vestra í gær eftir að fimm stúlkur í áttunda bekk fengu ofnæmisviðbrögð eftir bólusetningu við HPV-veirunni. Ein stúlkan var flutt til Reykjavíkur á Barnaspítala Hringsins til frekari skoðunar. 4.11.2011 13:42
Hvalkjöt fjarlægt úr Leifsstöð - smyglarar sektaðir um tæpa milljón Hvalkjöt hefur verið fjarlægt út verslun Inspired by Iceland í Leifsstöð sem er í raun 10-11 verslun. 4.11.2011 13:40
Þjóðverjar loksins tilbúnir fyrir "nasistaþáttinn“ í Star Trek Star Trek þættirnir hafa notið mikilla vinsælda í Þýskalandi eins og víðast hvar annars staðar í heiminum í gegnum árin. Einn þáttur í upprunalegu seríunni var þó aldrei sýndur þar í landi en á því verður breyting í kvöld. 4.11.2011 13:06
Segja kvenmenn, homma og útlendinga niðurlægða í Borgarleikhúsinu Leikhúskonurnar Eva Björk Kaaber, Eva Rún Snorradóttir og Vilborg Ólafsdóttir, gagnrýna Leikhússtjórann Magnús Geir Eyjólfsson, harðlega fyrir uppsetningu sína á grínleikritinu Nei, ráðherra. Þær skora meðal annars á Magnús að ráða kynjafræðing til þess að aðstoða við uppsetningu leiksýninga í Borgarleikhúsinu, þar sem leikritið er sýnt. 4.11.2011 12:59
Útvarpsstjóra barst hvítt duft í pósti "Ég held að það sé betra að hafa vaðið fyrir neðan sig og ekki gefa sér að þetta sé grín eða eitthvað svoleiðis,“ segir Páll Magnússon útvarpsstjóri sem fékk torkennilegt bréf frá Marokkó sent á skrifstofu sína í gær. Í bréfinu var miði með arabísku letri og þá var einnig hvítt duft í umslaginu. Nokkur viðbúnaður var í Útvarpshúsinu í gær eftir atvikið. 4.11.2011 11:54
Jóhanna hittir forseta framkvæmdastjórnar ESB Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fer eftir helgina til funda í Brussel. Þar mun hún eiga fundi með Herman van Rompuy, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins og Jose Manuel Barrosso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Jafnframt mun Johanna funda með Yves Leterme, forsætisráðherra Belgíu. 4.11.2011 10:15
Flugvöllurinn verði lögfestur í Vatnsmýri Ellefu þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks vilja að staðsetning Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri verði lögfest og að óvissu um framtíð hans verði þannig eytt. Lagafrumvarp þessa efnis var lagt fram á Alþingi í gær en fyrsti flutningsmaður er sjálfstæðismaðurinn Jón Gunnarsson. 4.11.2011 10:15
Ljósastaurar slógu út - líklega vegna eldinga „Okkur grunar að kerfið hafi slegið út vegna eldingar,“ segir Gunnlaugur Óskarsson, verkstjóri á rafmagnssviði HS Orku á Suðurnesjum, en stór hluti ljósastaura í Grindavík slógu út í gær. 4.11.2011 10:03
Öryggisbót við hættuleg gatnamót Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í gerð ganga undir Reykjanesbraut við innkeyrslu að álverinu í Straumsvík. 4.11.2011 10:00
Húmanistar verðlauna Pál Óskar Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari fékk í gær Húmanistaviðurkenningu Siðmenntar. Verðlaunin eru árviss viðburður og hafa þau verið veitt samfellt í sjö ár. Í tilkynningu frá Siðmennt segir að Páll Óskar hafi árum saman barist fyrir mannréttindum samkynhneigðra og með jákvæðni sinni, sköpunarkrafti og einlægri framkomu verið landsmönnum öllum kærkomin fyrirmynd. 4.11.2011 09:38
Þriðji þjófurinn ræktaði kannabis Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu yfirheyrði í gærdag konu, sem grunuð er um að hafa stolið allmiklu af fatnaði úr verslunum. Að auki hafði hún í vörslu sinni nokkrar kannabisplöntur. 4.11.2011 08:15
Auki tekjur ríkissjóðs um tæpa 10 milljarða Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi um ráðstafanir í ríkisfjármálum, frumvarpi um nýjan fjársýsluskatt og frumvarpi um lokafjárlög ársins 2010. 4.11.2011 08:00
Hæstiréttur staðfesti dóm yfir svæfingarlækni Hæstiréttur hefur staðfest tólf mánaða fangelsisdóm yfir svæfingalækni sem sveik vel á fimmtu milljón út úr Tryggingastofnun á árunum 2005 og 2006. 4.11.2011 07:59
Nær engar breytingar á fylgi flokkanna Nær engar breytingar hafa orðið á fylgi stjórnmálaflokkanna samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Sem fyrr mælist hátt hlutfall fólks, eða um 15%, sem ætlar sér ekki að kjósa eða skila auðu í næstu kosningum. 4.11.2011 07:55
Mengun frá farfuglum skaðar viðkomu arnarstofnsins Mengun, sem farfuglar bera með sér til landsins, hefur að öllum líkindum skaðleg áhrif á viðkomu arnarstofnsins hér á landi, samkvæmt rannsóknum Náttúrustofu Vesturlands og fleiri aðila. 4.11.2011 07:50
Jarðskjálftar kosta flest mannslíf af náttúruhamförum Jarðskjálftar eru þær náttúruhamfarir sem kosta flest mannslíf. Þannig fórust um 780 þúsund manns í jarðskjálftum á síðustu tíu árum eða um 60% allra þeirra sem fórust í náttúruhamförum á þessum tímabili. Þetta kemur fram í nýrri úttekt í breska læknatímaritinu Lancet. 4.11.2011 07:47
Mikil sýking minnkar síldarkvótann Mikil sýking mælist enn í íslensku sumargotssíldinni og leggur Hafrannsóknastofnun til að veiðikvótinn á þessari vertíð verði aðeins 40 þúsund tonn og að veiðar verði einungis leyfðar við vestanvert landið. 4.11.2011 07:46
Geimfarar sem líktu eftir ferð til Mars lausir eftir hálft annað ár Söguleg stund verður í Moskvu í dag þegar stálhylki með sex geimförum innanborðs verða opnuð einu og hálfu ári eftir að geimfararnir voru læstir inn í þeim. 4.11.2011 07:42
Óljóst hvort Papandreou standi af sér vantraust á gríska þinginu Sólarhringslöngum pólitískum hrossakaupum og uppákomum á gríska þinginu lauk í nótt með því að leiðtogi stjórnarandstöðunnar krafðist þess að George Papandreou forsætisráðherra landsins segði af sér. 4.11.2011 07:40
Finninn Kimmo Sasi næsti forseti Norðurlandaráðs Norðurlandaráð hefur kosið Finnann Kimmo Sasi forseta ráðsins 2012. Finnar munu fara með formennsku í Norðurlandaráði á næsta ári. Hann tekur við stöðunni af Dananum Bertel Haarder. 4.11.2011 07:38
Framboð Hönnu Birnu líkist framboði Davíðs Oddssonar 1991 Tímasetningin á framboði Hönnu Birnu Kristjánsdóttur til formanns Sjálfstæðisflokksins vekur athygli í sögulegu samhengi. 4.11.2011 07:11