Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Snýst um aðferðir en ekki pólitíska stefnu Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, hefur lýst yfir framboði gegn sitjandi formanni flokksins, Bjarna Benediktssyni, á landsfundi sem haldinn verður 17. nóvember. Hanna Birna er fyrsta konan sem sækist eftir formennsku í flokknum í 82 ára sögu hans. 4.11.2011 04:00
Styttist í dómsuppkvaðningu í máli Murrays Nú styttist í að réttarhöldunum yfir Conrad Murray ljúki. Murray var læknir poppstjörnunnar Michael Jackson og var viðstaddur þegar hann lést. 3.11.2011 23:45
Málin flækjast hjá meintri barnsmóður Biebers Yfirvöld í Los Angeles í Bandaríkjunum ætla hugsanlega að rannsaka meint ástarævintýri stórstjörnunnar Justin Bieber og Mariah Yeater, 19 ára stúlku frá San Diego. 3.11.2011 23:08
Nærmynd af Óla Tynes Það var eitt helsta einkennismerki Óla Tynes fréttamanns að gæða fréttir kímni og glettni. Í meðfylgjandi nærmynd er farið yfir feril Óla en þátturinn var sýndur í Íslandi í dag í kvöld. 3.11.2011 22:12
Ísjaki á stærð við Berlín að myndast Risavaxinn ísjaki er nú að myndast á vesturhluta Suðurskautslandsins. Vísindamenn fylgjast grannt með en sérfræðingar á Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, telja að endanleg stærð ísjakans verði um 880 ferkílómetrar. 3.11.2011 21:00
Með vörur frá Karen Millen fyrir milljónir króna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær konu sem er talin tengjast umfangsmiklum þjófnaði í verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Hún er talin tengjast tveimur öðrum konum sem setið hafa í gæsluvarðhaldi fyrir þjófnað að andvirði tugmilljóna króna. 3.11.2011 20:05
Vísindamenn hægja á öldrun músa Vísindamönnum í Bandaríkjunum hefur tekist að hægja á öldrun músa. Með því að eyða óvirkum frumum gátu vísindamennirnir komið í veg fyrir hrukkumyndum, hrörnun vöðva og starblindu í músunum. 3.11.2011 20:04
Ný Bond mynd á næsta ári Leikarinn Daniel Craig tilkynnti í dag að 23. kvikmyndin um spjærann James Bond muni heita Skyfall. Tökur á myndinni hefjast í vikunni og verður hún frumsýnd þann 23. október á næsta ári. 3.11.2011 19:40
Offita barna: Fyrirtæki fara offari í markaðssetningu Næringarfræðingur segir fyrirtæki oft fara offari í markaðssetningu á vörum sínum, það eigi helst við um fæðubótaefni og orkudrykki. Hann segir dæmi um að foreldrar viti oft einfaldlega ekki hvað börnin þeirra eru að innbyrða. 3.11.2011 19:14
Ætla að henda 150 þúsund skömmtum af svínaflensubóluefni Hluta af þeim hundrað og fimmtíu þúsund skömmtum af bóluefninu gegn svínaflensu sem til er í landinu verður fargað á næstu vikum. Sóttvarnarlæknir telur enga þörf fyrir bóluefnið lengur en kostnaður efnisins sem fargað verður er tuttugu og fjórar milljónir. 3.11.2011 18:45
Ólafur Ragnar seldi Neyðarkarlinn Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, hóf formlega sölu Neyðarkalls björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar í verslanamiðstöðinni Kringlunni síðdegis í dag. Fyrsta Neyðarkarlinn keypti Magnús Gunnlaugsson, sem á líf sitt björgunarsveitum að launa, eftir að bátur hans sökk norður af Akurey í mars á þessu ári. 3.11.2011 18:21
Hanna Birna: Hagsmunum okkar best borgið utan ESB „Um leið og það finnur kraftinn, vonina og tækifærin sem hér eru kemur fólk aftur,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir, sem tilkynnti það í dag að hún ætlaði að fara í framboð til formanns Sjálfstæðisflokksins, aðspurð hvort að hún myndi berjast fyrir því að fá þá þúsundir Íslendinga sem hafa flust af landi brott aftur heim. 3.11.2011 17:48
Hamingja í Reykjavík Konu á fertugsaldri, sem tók út reiðufé í banka í borginni um miðjan dag í gær, brá illilega þegar hún uppgötvaði að peningarnir voru horfnir. Konan var komin aftur í vinnuna þegar henni varð þetta ljóst en peningana hafði hún látið í umslag, sem nú fannst hvergi. 3.11.2011 17:24
Svæfingalæknir í skilorðsbundið fangelsi Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Retykjavíkur yfir Árna Þór Björnssyni, svæfingalækni sem ákærður var fyrir að hafa blekkt Tryggingastofnun Ríkisins, til að greiða sér rúmar 4 milljónir króna með því að framvísa 265 röngum reikningum. 3.11.2011 17:01
Lekandi hjá 23 einstaklingum Á fyrstu níu mánuðum ársins greindust 23 ný tilfelli af lekanda, samkvæmt upplýsingum frá sýklafræðideild Landspítala. Þar af eru sextán karlar og sjö konur frá tvítugu til 66 ára. 3.11.2011 17:00
Óli Tynes borinn til grafar Útför Óla Tynes fréttamanns var gerð frá Fossvogskirkju í dag, að viðstöddu fjölmenni. Séra Pétur Þorsteinsson, prestur Óháða safnaðarins, jarðsöng. Samstarfsmenn Óla af fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis báru kistuna úr kirkju, þau Telma Tómasson, Edda Andrésdóttir, Heimir Már Pétursson, Gissur Sigurðsson, Freyr Einarsson, Haukur Holm, Gunnar Reynir Valþórssson og Kristján Már Unnarsson. 3.11.2011 16:45
Brýnasta verkefnið að lækka skatta - Yfirlýsing Hönnu Birnu „Ég trúi því að framboð mitt styrki stöðu Sjálfstæðisflokksins í næstu kosningum. Formannskjörið snýst einfaldlega um það, hver sé líklegastur til að leiða okkur sjálfstæðismenn til sigurs í næstu kosningum. Með sigri getum við rofið kyrrstöðuna sem hvílir eins og mara á þjóðinni," segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér rétt í þessu vegna framboðs síns til formanns Sjálfstæðisflokksins. 3.11.2011 16:29
Hanna Birna býður sig fram Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, ætlar að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi hans sem hefst eftir tvær vikur. Hann Birna mun tilkynna þetta síðar í dag, samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Í skoðanakönnunum sem hafa verið gerðar á fylgi Hönnu Birnu mælist hún með umtalsvert meira fylgi en aðrir mögulegir frambjóðendur. Þeirra á meðal er Bjarni Benediktsson, núverandi formaður flokksins. 3.11.2011 15:57
Davíð Þór biður Maríu afsökunar Guðfræðingurinn og pistlahöfundurinn Davíð Þór Jónsson, hefur beðið Maríu Lilju Þrastardóttur afsökunar á að hafa hótað að stefna henni fyrir meiðyrði. María Lilja svaraði pistli Davíðs, sem var birtur í Fréttablaðinu um helgina, og þótti Davíð illa að sér vegið. Hann gaf henni því þrjá sólarhringa til þess að biðja sig afsökunar á ummælum eins og að hann hefði brenglað viðhorf til kynlífs og hefði ritstýrt klámbækling. 3.11.2011 15:48
Lögreglan minnir á endurskinsmerki Nú þegar svartasta skammdegið fer að skella á þykir rétt að minna aftur á mikilvægi endurskinsmerkja fyrir gangandi vegfarendur í umferðinni. 3.11.2011 15:34
Bankamaður sem var sakaður um áreiti hættur Maðurinn, sem var sakaður um að beita konur kynferðislega áreitni í Arion banka, hefur sagt upp störfum samkvæmt upplýsingum frá bankanum. 3.11.2011 15:22
Leita að Yaris Leitað er að gráum þriggja dyra Toyota Yaris, bílnúmer er UO 265, sem var hvarf eiganda sínum fyrir nokkru. Þeir sem hafa upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn vinsamlega hafi samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu 444 1000. 3.11.2011 15:02
BSRB varar við neyslusköttum Betra væri að lækka gjöld á hollari mat en að hækka gjöld á óhollan mat. Þetta segir Hilmar Ögmundsson, hagfræðingur BSRB. 3.11.2011 15:00
Táragasi beitt á bandaríska mótmælendur Lögregla í Bandaríkjunum beitti táragasi gagnvart mótmælendum í Oakland fyrr í dag. Mótmælendurnir kenna sig við Occupy Wall Street hreyfinguna. Eftir friðsamleg mótmæli gærdagsins bárust lögreglu upplýsingar um að mótmælendur hefðu brotist inn í byggingu og kveikt elda seint í gærkvöld. Þá höfðu einhverjir lamað starfsemi hafnarinnar í Oakland. Lögreglan mætti á staðinn til að reyna að dreifa mótmælendum. Að sögn yfirvalda tóku þá mótmælendur að kasta steinum og skjóta flugeldum að lögreglumönnum og þar með þvinga þá til að beita táragasi. 3.11.2011 14:45
Verkfallsboðun Sinfó dæmd lögmæt Boðað verkfall Sinfóníuhljómsveitar Íslands var í dag dæmt lögmætt fyrir Félagsdómi. Íslenska ríkið stefndi hljómsveitinni fyrir Félagsdóm með þeim rökum að ekki væri um verkfall að ræða heldur verkföll, en hljómsveitin hafði boðað til verkfalla nánar tilgreinda daga í nóvember. Á þessi málfræðilegu rök ríkisins var ekki fallist fyrir Félagsdómi og verkfallsboðunin talin lögmæt. 3.11.2011 14:10
Icelandair vann markaðsverðlaun fyrirtækja Íslensku markaðsverðlaunin 2011 voru afhent í dag á hótel Nordica. Þrjú fyrirtæki voru tilnefnd til markaðsverðlauna fyrirtækja, en þau voru veitt í 21. sinn í dag. Fyrirtækin voru Icelandair, Nova og Össur. Verðlaunin í ár hlaut Icelandair. Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, tók við verðlaununum. Hann þakkaði Íslensku auglýsingastofunni gott samstarf og tilkynnti að fyrirtækið myndi á næsta ári enn auka við markaðsstarf sitt og leggja í það tvo milljarða króna. 3.11.2011 13:59
Tillögur að orkustefnu Stýrihópur um mótun heildstæðrar orkustefnu fyrir Ísland skilaði í dag tillögum sínum til Katrínar Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra. Orkustefnan er byggð svoleiðis upp að fyrst er sett fram leiðarljós; þá eru meginmarkmið ákveðin í samræmi við leiðarljósið; loks eru afmarkaðari leiðir ákvarðaðar út frá þeim meginmarkmiðum. Leiðarljós orkustefnunnar er „Að orkubúskap Íslands verði hagað með sjálfbærum hætti, samfélaginu og almenningi til hagsbóta." 3.11.2011 13:37
Með andlit á eista Læknar sem meðhöndluðu mann sem fann fyrir verkjum í eista urðu furðu lostnir þegar þeir skoðuðu röntgenmyndir af eistanu. Við þeim blasti mynd af andliti. Röntgenmyndin birtist í grein í vísindaritinu Urology og barst þaðan til allra helstu dagblaða og vefrita í heimi, enda þykir myndin einstök. 3.11.2011 13:30
Ólafur Ragnar selur fyrsta Neyðarkallinn Neyðarkall björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður seldur um land allt nú um helgina. Salan hefst í dag, fimmtudag en þetta er í sjötta sinn sem þessi fjáröflun fer fram og er hún orðin ein sú mikilvægasta fyrir björgunarsveitir landsins. Ólafur Ragnar Grímsson forseti hefur söluna í dag með því að selja Magnúsi Gunnlaugssyni, sem á líf sitt björgunarsveitum að launa eftir að bátur hans sökk norður af Akurey í mars á þessu ári, fyrsta Neyðarkallinn. 3.11.2011 13:30
Umhverfishættur ógna lífskjaraþróun „Sjálfbærni er ekki eingöngu og ekki einu sinni aðallega umhverfismál,“ sagði Helen Clark, yfirmaður Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, þegar hún kynnti nýjustu þróunarskýrslu stofnunarinnar í Kaupmannahöfn í gær. 3.11.2011 13:30
Telur aðild Palestínu að UNESCO ekki til góðs „Aðild Palestínu að stofnunum Sameinuðu Þjóðanna (SÞ) er engum til góðs," sagði Ban Ki-moon, aðalritari SÞ, í viðtali í gær. Hann benti á að afleiðingar þess að fjármagn stofnananna minnki í kjölfar umsókna Palestínu muni bitna á milljónum manna. Sem kunnugt er fékk Palestína inngöngu í UNESCO fyrr í vikunni. Í kjölfarið hættu Bandaríkin og Kanada að styðja stofnunina. Þar með missti stofnunin um einn fjórða hluta fjármagns síns. 3.11.2011 13:04
Papandreou að segja af sér? Búist er við því að forsætisráðherra Grikklands, George Papandreou, segi af sér á næsta hálftímanum samkvæmt upplýsingum fréttamiðilsins BBC. Papandreou mun hitta gríska forsetann í dag strax eftir að neyðarfundi í ríkisstjórninni sem hann situr þessa stundina lýkur. Gera menn ráð fyrir því að þar muni hann bjóðast til að láta af völdum og leggja til að mynduð verði samsteypustjórn með Lucas Papademos, fyrrverandi varaforseta seðlabanka Evrópu, í forsvari. 3.11.2011 12:43
Tónlistarmenn styðja Kattholt Björgvin Halldórsson, Bubbi Morthens og Ragnheiður Gröndal eru meðal þeirra tónlistarmanna sem koma fram á tónleikum í Fríkirkjunni í kvöld. Tónleikarnir eru haldnir til styrktar Kattholti, athvarfi fyrir óskilaketti. 3.11.2011 12:30
Hálka á fjallvegum Hálka er á vegum víða um land samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Á Austurlandi er einkum hálka á fjallvegum en autt á láglendi. Vegagerðin vinnur sérstaklega að hálkuvörnum á Möðrudalsöræfum, en þar ku vera flughált sem stendur. 3.11.2011 12:23
Segir fjármálaráðherrann „stinga höfðinu í steininn“ Þingmaður Framsóknarflokksins, Vigdís Hauksdóttir, sakaði ríkisstjórnina um að hvetja til svartra atvinnustarfsemi hér á landi með skattastefnu sinni þegar hún gerði skýrslu ríkisskattstjóra og aðila atvinnulífsins um svarta atvinnustarfsemi að umtalsefni á Alþingi í morgun. 3.11.2011 12:03
Afhendir forsetahjónunum húsið um miðjan nóvember „Mig er farið að vanta geymsluhúsnæði,“ segir Jón Hjörleifsson, sem seldi forsetahjónunum húsið sitt að Reykjamel í Mosfellsbæ, en hjónin keyptu húsið á 70 milljónir og staðgreiddu eignina, eins og Pressan.is hefur áður greint frá. 3.11.2011 11:17
Bretar vara þegna sína við íslensku hvalkjöti Bresk stjórnvöld vara þegna sína við því að kaupa hvalkjöt á Íslandi. Viðurlög við því að koma með hvalkjöt til Bretlands eru þung sekt og jafnvel fangelsisdómur. Á dögunum gerðu náttúruverndarsamtök könnun á því hvort hægt væri að kaupa hrefnukjöt í verslunum í Leifsstöð og fullyrt var að starfsfólk verslunarinnar hefði gefið þær upplýsingar að óhætt væri að kaupa kjötið og fara með til Bretlands. 3.11.2011 11:14
Ingvari gert að greiða Kaupþingi 2,6 milljarða Héraðsdómur fellst á að rifta skuli niðurfellingu persónulegrar ábyrgðar og flutningi skuldar í hlutafélag. 3.11.2011 11:00
Málaferli vegna dauðrar rottu Þegar danska matvælaeftirlitið fékk tilkynningu frá fyrirtækinu Flex Pack, sem selur Nupo megrunarduftið, í apríl síðastliðnum um að fundist hefði dauð rotta í gámi með heslihnetum frá Tyrklandi ákvað eftirlitið að farminum, 24 tonnum, yrði eytt. Litið var svo á að hneturnar væru mengaðar af úrgangi frá rottum og þess vegna gætu þær verið heilsuspillandi. Þær væru ekki hæfar til neyslu. 3.11.2011 11:00
Ferja með 1.200 manns í ljósum logum á Rauða hafinu Ferja með yfir 1.200 manns innanborðs stendur nú í ljósum logum á Rauða hafinu. Ferjan var að sigla með egypska farandverkamenn frá höfninni í Aqaba í Jórdanínu og yfir til Egyptalands. 3.11.2011 10:11
Miðborgarstjóri vill hærri framlög til landamæraeftirlits Jakob Frímann Magnússon, miðborgarstjóri, skorar á innanríkisráðuneytið að tryggja hærri fjárframlög til landamæraeftirlits "með hliðsjón af vaxandi tíðni erlendra glæpagengja,“ eins og hann orðar það í grein sinni sem hann birti í Fréttablaðinu í dag og á Vísi. 3.11.2011 10:02
Neyddust til að nota árásarhnapp Starfsmenn í verslun Samkaupa á Selfossi óttuðust um eigið öryggi vegna skrílsláta ungmenna í versluninni á sunnudagskvöld og notuðu árásarhnapp til að kalla til lögreglu. 3.11.2011 10:00
Svavar sýknaður í meiðyrðamáli Jóns Ásgeirs Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Svavar Halldórsson, fréttamann á RÚV, af meiðyrðastefnu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. 3.11.2011 09:33
Breytingar á skjön við markmið Eggert B. Guðmundsson, forstjóri HB Granda, sagði á aðalfundi LÍÚ á dögunum að fyrirliggjandi hugmyndir um breytingar á fiskveiðistjórn séu í hrópandi andstöðu við markmið ríkisstjórnarinnar um að skapa greininni sem best rekstrarskilyrði. Hann sagði að margt af því sem þegar hefur verið gert leiddi síst af öllu til sátta. „Strandveiðar eru eitthvað það alvitlausasta í þessum hugmyndum sem kynntar hafa verið og er þó af nægu að taka,“ sagði Eggert. 3.11.2011 09:30
Kvað lyfin flest í eigu draughræddrar konu Júlíus Þorbergsson kaupmaður, betur þekktur sem Júlli í Draumnum, kvaðst fyrir dómi í gær aldrei hafa selt lyfseðilsskyld lyf úr verslun sinni við Rauðarárstíg. 3.11.2011 09:15