Innlent

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar um helgina

Herjólfur.
Herjólfur.
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar 5. til 7. nóvember vegna ölduspá samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Herjólfs.

Ákvörðun um framhaldið þ.e. siglingar eftir 7. nóvember verður tekin fyrir hádegi á sunnudag.

Farþegar eru vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu herjólfs og síðu 415 í Textavarpi.

Aðstæður geta breyst hratt og við þeim munum við bregðast og setja inn þar að lútandi tilkynningar á ofangreinda staði um leið og einhverjar breytingar verða ákveðnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×