Alþingi falið að bera ábyrgð á Vaðlaheiðargöngum Kristján Már Unnarsson skrifar 4. nóvember 2011 18:23
Stefnt er að því að Alþingi taki ákvörðun innan tveggja til þriggja vikna um hvort lánsfjárheimild verði veitt til Vaðlaheiðarganga. Nýir arðsemisútreikningar verða kynntir á opnum þingnefndarfundi á mánudag. Nú hyllir undir ákvörðun um hvort draumur Norðlendinga um rúmlega sjö kílómetra göng undir Vaðlaheiði muni rætast en við það styttist leiðin milli Akureyrar og Húsavíkur um sextán kílómetra. Tilboð liggur fyrir frá verktökum um að skila göngunum tilbúnum fyrir tæpa níu milljarða króna. Þá liggja jafnframt fyrir nýir arðsemisútreikningar sem benda til þess að veggjöld muni greiða upp á kostnaðinn á 25 árum, miðað við gefnar forsendur, meðal annars um tekjur af umferð. Þar sem slíkir útreikningar eru óvissu háðir og verkefnið umdeilt, ekki síst innan stjórnarflokkanna, vill ríkisstjórnin að það verði Alþingi sem beri hina pólitísku ábyrgð og að ákvörðun verði tekin fyrir opnum tjöldum að undangenginni opinberri umræðu. Í því skyni verður sjónvarpað frá fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis fyrir hádegi á mánudag þar sem gögn verða lögð fram og kynnt. Ráðherra vegamála, Ögmundur Jónasson, og fjármálaráðherrann, Steingrímur J. Sigfússon, koma fyrir nefndina, en einnig fulltrúar hlutafélagsins um Vaðlaheiðargöng og fulltrúar Félags íslenskra bifreiðaeigenda, sem lýst hafa efasemdum um verkefnið. Eftir að þingmenn hafa fengið tækifæri til að kryfja útreikningana er stefnt að því að atkvæðagreiðsla fari fram á Alþingi innan tveggja til þriggja vikna um lánsfjárheimild til Vaðlaheiðarganga á fjáraukalögum. Fáist heimildin samþykkt má búast við að vinna við Vaðlaheiðargöng hefjist innan fárra vikna.
Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent