Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Krafist gæsluvarðhalds yfir meintum kynþáttahatara Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir gæsluvarðhaldi yfir manni á fertugsaldri sem handtekinn var vegna gruns um að hafa hótað feðgum af kúbverskum uppruna lífláti og að hafa valdið eignaspjöllum á heimili þeirra í Vesturbæ Reykjavíkur. 13.9.2010 12:07
Búist við yfirlýsingu um goslok Vísindamannaráð Almannavarna fundar í dag um hvort ástæða sé til að lýsa því yfir að eldgosinu í Eyjafjallajökli sé lokið og hvort endurskoða eigi bann það sem í gildi er um ferðir í kringum eldstöðina. 13.9.2010 12:04
Morð í Hafnarfirði: Enn beðið eftir niðurstöðum rannsókna Lögregla bíður enn eftir niðurstöðum úr sýnatöku af vettvangi í tengslum við morðið á Hannesi Þór Helgasyni. Fjölmörg sýni voru send til Svíþjóðar til rannsóknar en að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjónus vonast hann eftir niðurstöðu í vikunni. 13.9.2010 12:02
Bjarni og Sigmundur samþykkja rannsókn á einkavæðingunni Bæði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, telja vel koma til greina að fram fari rannsókn á einkavæðingu Landsbankans og Búnaðarbankans í upphafi aldarinnar. 13.9.2010 11:35
Atli vildi ekki rjúfa samstöðu Atli Gíslason tók ekki afstöðu til þess hvort fara ætti fram rannsókn á einkavæðingu bankanna vegna þess að hann vildi ekki rjúfa samstöðu innan nefndarinnar. Það vakti athygli þegar skýrsla þingmannanefndar sem fjallaði um rannsóknarskýrslu Alþingis að ekki náðst samstaða um það í nefndinni að slik rannsókn færi fram. 13.9.2010 11:18
Launabilið eykst - enn lægri laun í almannnaþjónustu Launabilið milli starfsmanna í almannaþjónustu og starfsmanna á almennum vinnumarkaði hefur aukist milli ára. Starfsmenn á almennum vinnumarkaði hafa 18 prósent hærri laun en starfsmenn í almannaþjónustu. Í fyrra var munurinn 15 prósent en 20 prósent árið þar á undan. 13.9.2010 10:56
Alþingi má ekki vera verkfæri framkvæmdavaldsins Meginniðurstöður þingmannanefndar sem fjallaði um rannsóknarskýrslu Alþingis er að það þarf að auka sjálfstæði þingsins gagnvart framkvæmdavaldinu og gera stjórnsýsluna faglegri. Alþingi má ekki vera verkfæri í höndum framkvæmdavaldsins. Þetta segir Atli Gíslason, formaður þingmannanefndarinnar. Umræða um skýrslu nefndarinnar hófst klukkan hálfellefu í morgun. 13.9.2010 10:46
Treystir ekki Írönum Yfirmaður kjarnorkueftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna segir að hann geti ekki staðfest að kjarnorkuáætlun Írana sé friðsamleg, þar sem þeir sýni eftirlitsmönnum sínum ekki fulla samvinnu. 13.9.2010 10:43
Þorgerður Katrín snýr aftur á þing Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra og þingkona Sjálfstæðisflokksins tók sæti á Alþingi í dag. Þorgerður hefur verið í leyfi frá þingstörfum frá því í apríl þegar hún sagði af sér sem varaformaður flokksins og vék af þingi tímabundið. 13.9.2010 10:33
Norðlingaalda: Oddviti varar við einhliða friðlýsingu Oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps varar við því að ríkisstjórnin reyni einhliða að friðlýsa Norðlingaöldu og hvetur til samkomulags. Hann telur að friðlýsing þurfi ekki að útiloka veituna umdeildu. 13.9.2010 10:30
Sigmundur Ernir: Stjórnsýslan með klíkukenndum blæ „Almennt séð hafa vinnubrögðin á Alþingi komið manni mjög á óvart miðað við það sem maður þekkir utan af akrinum,“ segir Sigrmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Hann undrast mjög hversu hægt það gengur innan Alþingis og innan stjórnsýslunnar að taka ákvarðanir sem virðast liggja beint fyrir og koma þeim í framkvæmd. 13.9.2010 10:09
Kínverski forsætisráðherrann vill heimsækja Íslendinga Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fundaði í morgun með forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao. 13.9.2010 09:51
Nýfætt barn skilið eftir í flugvél Öryggisverði um borð í flugvél frá Gulf Air sem var nýlent á flugvellinum í Manila á Filipseyjum brá heldur betur í brún þegar hann sá hreyfingu í svörtum ruslapoka sem átti að bera út úr flugvélinni. 13.9.2010 09:50
Auka stuðning við fólk með ólæknandi sjúkdóma Þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar ætlar að hrinda af stað tilraunaverkefni sem felst í sérþjónustu fyrir fólk með ólæknandi og lífsógnandi sjúkdóma. 13.9.2010 09:43
Segja nóg komið af áhættufjárfestingum hjá lífeyrissjóðum Stjórn Farmanna og fiskimannasambands Íslands gagnrýnir kaup Framtakssjóðs Íslands á eignarhaldsfélaginu Vestia ehf. af Landsbankanum. Stjórnin telur að með kaupunum hafi stjórn sjóðsins farið langt út fyrir þann ramma sem lagður var til grundvallar þegar hlutverk sjóðsins var kynnt fyrir stjórnum þeirra lífeyrissjóða sem gert er ráð fyrir að standa muni að fjármögnun Framtakssjóðsins. 13.9.2010 09:34
Beinar útsendingar á YouTube YouTube, stærsta vefmyndskeiðasíða í heimi, ætlar í dag og á morgun að senda út myndefni í beinni útsendingu. Ef vel tekst til ætla forsvarsmenn vefsíðunnar að senda beint efni reglulega hér eftir. „Við erum að hugsa beinar útsendingar sem næsta kafla í netsjónvarpi," segir Joshua Siegel, framleiðslustjóri hjá YouTube. 13.9.2010 09:23
Kókaínneysla dregst saman Færri leita sér meðferðar vegna kókaínfíknar og telur starfsfólk á Vogi að þessi þróun haldi áfram út árið. Í ársskýrslu SÁÁ má sjá að marktækt dregur úr fjölda þeirra sem leituðu sér meðferðar árið 2009 vegna kókaínneyslu. 13.9.2010 09:15
Bandaríkjamenn undirbúa risa vopnasölusamning Stærsti vopnasölusamningur í sögu Bandaríkjanna er á teikniborðinu. Frá þessu er greint í Wall Street Journal í dag og sagt að Barack Obama forseti búi sig nú undir að skýra þinginu frá áformunum. 13.9.2010 09:12
Breskir hermenn grunaðir um heróínsmygl Breska herlögreglan rannsakar ásakanir þess efnis að hermenn hafi staðið í stórfelldum heróíninnfluttningi frá Afganistan til Bretlands. 13.9.2010 09:09
Íslenska lambið best í heimi Bandaríska verslunarkeðjan Whole Foods Market mun í haust ráðast í markaðsátak á íslensku lambakjöti þar sem því er haldið fram að íslenska lambakjötið sé bragðbesta lambakjöt í heimi. Átakið nær til á þriðja hundrað verslana Whole Foods Market í Bandaríkjunum. 13.9.2010 08:48
„Sá stóri“ handtekinn í Mexíkó Mexíkóst yfirvöld hafa handtekið einn af eftirlýstustu glæpamönnum landsins, Sergio Villareal, sem kallaður er „sá stóri". Villareal var handtekinn af hermönnum í borginni Puebla í nótt en hann er sagður einn af hæst settu foringjum Beltran Leyva eiturlyfjahringsins. 13.9.2010 08:35
Fellibylurinn Igor færist í aukana Fellibylurinn Igor sækir nú í sig veðrið langt úti fyrir ströndum Dóminíska lýðveldisins en stormurinn er á vesturleið. Vindhraði mælist nú 220 kílómetrar á klukkustund í mestu kviðunum og að sögn bandarísku veðurstofunnar hefur stormurinn aukist hratt síðustu klukkutíma. 13.9.2010 08:31
Ungir skákmenn gera það gott Ungir skákmenn gerðu það gott á erlendri grund um helgina, þegar skáksveit Menntaskólans í Reykjavík varð Norðurlandameistari farmhaldsskóla í skák, annað árið í röð. 13.9.2010 08:28
Lestarslys í Svíþjóð Átján voru fluttir á sjúkrahús í gærkvöldi þegar farþegalest í Svíþjóð ók á traktorsgröfu við bæinn Kimstad. 24 ára gömul kona slasaðist mest og gekkst hún undir agðerð í nótt og er á gjörgæslu. Ökumaður traktorsgröfunnar fékk taugaáfall en slapp að öðru leyti ómeiddur. 244 farþegar voru um borð í lestinni sem var á leið frá Kaupmannahöfn til Stokkhólms. Lestin er talin hafa verið á 100 til 115 kílómetra hraða þegar áreksturinn varð. 13.9.2010 08:26
Rætt um skýrslu þingmannanefndar í dag Skýrsla þingmannanefndarinnar,sem birt var um helgina, verður tekin til umræðu á Alþingi klukkan hálfellefu. Ein umræða verður um skýrsluna sjálfa en tvær um þingályktunartillögurnar um málshöfðun gegn fyrrverandi ráðherrum. 13.9.2010 08:04
Í haldi grunaður um að ofsækja kúbverska fjölskyldu Einn maður er í haldi lögreglu, grunaður um að hafa ofsótt fjölskyldu af kúbverskum uppruna í Reykjavík, með þeim afleiðingum að fjölskyldufaðirinn og eldri sonur hans, 17 ára, flúðu land í gær, í lögreglufylgd. 13.9.2010 08:00
Reykur í íbúð á Baldursgötu Slökkvililðið á höfuðborgarsvæðinu var kvatt að fjölbýlishúsi við Baldursgötu í Reykjavík upp úr klukkan tvö í nótt, þar sem reyk lagði frá íbúð í húsinu fram á stigagang. 13.9.2010 07:56
Gangnamaður kom í leitirnar Gangnamaður, sem björgunarsveitamenn höfðu leitað að á milli Skagafjarðar og Húnaflóa síðan í gærmorgun, komst að sjálfsdáðum að bænum Ketu á Skaga um klukkan tíu í gærkvöldi og knúði þar dyra. 13.9.2010 07:54
Ógnaði pari með kúbeini og tók fartölvu Ungt par var rænt fartölvu í Breiðholti um klukkan hálf eitt í nótt, eftir að ræninginn hótaði því með kúbeini. 13.9.2010 07:01
Bifröst og HR ræða sameiningu skólanna Forsvarsmenn Háskólans í Reykjavík (HR) og Háskólans á Bifröst ræða nú saman um möguleika á nánara samstarfi milli skólanna og jafnvel sameiningu. Þetta staðfesta Magnús Árni Magnússon, rektor á Bifröst, og Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, í samtali við Fréttablaðið. 13.9.2010 06:45
Þorláksbúð tekin í gagnið næsta sumar Endurbygging Þorláksbúðar við Skálholtskirkju er nú í fullum gangi og verður lokið fyrir næsta sumar ef áætlanir ganga eftir. Þorláksbúðarfélagið, félag áhugamanna um endurbygginguna, hefur lengi haft þetta að markmiði, en nú er verkefnið komið á fullt og hleðslu veggja nærri lokið. 13.9.2010 06:00
Bíður umræðu á þingi Guðbjartur Hannesson, ráðherra Samfylkingarinnar, var búinn að lesa stóran hluta skýrslunnar þegar náðist í hann í gærkvöldi. „Ég ætla að fara vel yfir hana og hlusta á alla umræðuna á morgun og draga mínar ályktanir þegar ég er búinn að fara vel yfir málsatvik og rökstuðning.“ 13.9.2010 06:00
Dómurinn ekki bundinn við refsikröfur saksóknara "Framkvæmdin á að vera nokkuð augljós af löggjöfinni, fari svo að þingið ákveði að kalla saman Landsdóm,“ segir Ásmundur Helgason héraðsdómari, sem áður starfaði sem lögfræðingur á Alþingi. "Þingið þarf að kjósa sérstakan saksóknara, sem mun reka málið áfram. Þingið kýs líka nefnd 13.9.2010 05:00
Velferðarkerfið sagt í hættu Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra og Brian Mikkelsen, atvinnu- og efnahagsráðherra Danmerkur, segja danska velferðarkerfið í hættu ef ekki tekst að skapa hagvöxt svo um munar næstu misserin. 13.9.2010 05:00
Óflokkspólitískt mál "Ég er enn þá að fara yfir gögnin og geri ekki ráð fyrir að tjá mig um þetta fyrr en í ræðu í þinginu,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, inntur eftir viðbrögðum við skýrslu þingmannanefndar um rannsóknarskýrslu Alþingis. 13.9.2010 05:00
Gríðarlega gott gagn „Ég ætla ekki að úttala mig um skýrsluna fyrr en ég er í fyrsta lagi búinn að lesa hana,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, sem var þó langt kominn með hana um miðjan dag í gær. „Ég er búinn að lesa síðan átta á laugardagskvöld. Ég ætla eins og aðrir að klára það, hlusta síðan á framsögurnar og taka þátt í umræðum á Alþingi. Mér finnst það rétti vettvangurinn.“ 13.9.2010 04:00
Lárus var of tengdur klíku Jóns Ásgeirs Lárus Welding tók sem forstjóri Glitnis gjarnan ákvarðanir með hagsmuni stærstu hluthafa bankans í huga, frekar en almennra hluthafa. Þannig var honum mjög áfram um að veita félögum á borð við Baug, FL Group og Fons óeðlilega há og mörg lán, vegna óþægilega náinna tengsla hans við 13.9.2010 04:00
GPS-tæki í strætó Endurbætur á upplýsingakerfi strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu standa nú yfir og er grunnbúnaður nú þegar kominn í um fjörutíu bifreiðar. Brátt munu allir vagnar verða útbúnir GPS-tæki sem sendir upplýsingar um staðsetningu vagnsins, hraða og akstursstefnu til stjórnstöðvar. 13.9.2010 03:15
Auglýsingaherferð vestanhafs Bandaríska verslunarkeðjan Whole Food Market setur íslenskt lambakjöt á oddinn í markaðsátaki sem hleypt verður af stokkunum nú í haust. Átakið ber yfirskriftina „Einfaldlega bragðbesta lambakjöt í heimi“. 13.9.2010 03:15
Gangnamaður fannst óhultur Gangnamaður sem björgunarsveitir úr Skagafirði og Húnavatnssýslu leituðu í allan gærdag fannst um klukkan tíu í gær, heill á húfi 13.9.2010 00:00
Meinti kynþáttahatarinn áður handtekinn af sérsveit lögreglunnar Karlmaðurinn sem hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna árásar á heimili kúbverskra feðga um helgina heitir Jón Hilmar Hallgrímsson, oft kallaður Jón stóri. 13.9.2010 19:13
Kanna samhengi milli bólusetningar við svínaflensu og drómasýki Landlæknisembættið kallar eftir upplýsingum frá læknum til að kanna hvort samhengi sé á milli bólusetningar við svínaflensu og drómasýki. 150 þúsund Íslendingar hafa verið bólusettir við inflúensunni. 12.9.2010 18:50
Margskipti um dulargervi dagana fyrir sprenginguna Lögreglan í Danmörku hefur birt myndir úr eftirlitsmyndavélum hótelsins þar sem sprengja sprakk á föstudaginn. Hún hefur enn ekki náð að bera kennsl á manninn sem hún hefur í haldi grunaðan um að bera ábyrgð á sprengingunni. 12.9.2010 19:38
Stúlkan komin fram Arna Víf Hlynsdóttir sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir er fundin. Ekki hafði spurst til hennar frá því á fimmtudag. Móðir hennar biðlaði til almennings í fréttum Stöðvar 2 í gær og bað fólk um að hafa augnun opin og hjálpa þannig til við að finna Örnu. 12.9.2010 20:02
Atli sat hjá Afstaða Atla Gíslasonar, þingmanns Vinstri grænna, varð til þess að ekki náðist meirihluti innan uppgjörsnefndar Alþingis um að rannsaka á ný einkavæðingu ríkisbankanna. Atli sat hjá við afgreiðslu málsins. 12.9.2010 20:00