Fleiri fréttir

Tólf fangar fundnir

Mexíkóska lögreglan hefur einungis handsamað 12 af þeim 85 föngum sem tókst að flýja úr fangelsi í norðurhluta landsins í fyrrdag. Um er að ræða fangelsi í borginni Reynosa sem er skammt frá landamærum Mexíkó og Texas í Bandaríkjunum.

Arna ófundin

Arna Víf Hlynsdóttir sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst eftir er enn ófundin. Arna er fædd 1995. Hún er 157 sentímetrar að hæð grannvaxin, með græn augu og ljóst hár. Arna var klædd í ljósar gallabuxur og ljósa peysu þegar hún fór að heiman þann 9. september síðastliðinn.

Áfram siglt til Þorlákshafnar

Nú er orðið ljóst að dýpkun Landeyjahafnar muni taka lengri tíma en upphaflega var ætlað og af þeim sökum mun Herjólfur sigla til Þorlákshafnar næstu daga. Þetta kemur fram á heimasíðu Eimskips sem rekur Herjólf.

Eldur í vörubíl við Norðlingaskóla

Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að Norðingaskóla í Norðlingaholti á þriðja tímanum í dag eftir að tilkynnt var um eld í vörubíl við skólann. Svo virðist sem að kveikt hafi verið í rusli og öðru lauslegu sem staflað var fyrir framan vörubílinn. Að lokum barst eldurinn í bílinn en það tók slökkviliðismenn skamma stund að slökkva eldinn. vörubílinn er talsvert skemmdur.

Meints barnaníðings enn leitað

Karlmaður, sem grunaður er um að hafa sýnt börnum ósæmilega kynferðislega hegðun í Laugarneshverfi í Reykjavík síðastliðinn föstudag, er enn ófundinn. Málið er í fullri vinnslu, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá varðstjóra. Ekki er vitað hver maðurinn er en börnin sem eru á grunnskólaaldri telja að hann sé milli fimmtugs og sjötugs. Maðurinn þuklaði á einu þeirra og sýndi öðrum börnum kynferðislega hegðun.

Ráðherrar eins og trillukarlar

„Á stundum hefur mér fundist að ráðherrar í ríkisstjórn Íslands séu eins og 12 trillukarlar sem hittast í kaffi tvisvar í viku, bera saman aflabrögð og horfur, standa saman gegn utanaðkomandi áreiti eða ógnunum en eru jafnframt í samkeppni innbyrðis um aflanna," segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi umhverfisráðherra.

Samfylkingin gerði engar athugasemdir 2007

Sturla Böðvarsson, fyrrverandi ráðherra og forseti Alþingis, segir að þegar Samfylkingin myndaði ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum árið 2007 hafi ráðherrar flokksins ekki gert neinar athugasemdir gert við stöðu mála hér á landi og þess í stað talið að efnahagsstaða landsins væri sterk og að bankakerfið myndi rétta úr kútunum. Að öðrum kosti hefði stjórnin brugðist strax hart við. Þetta er meðal þess sem kemur fram í bréfi Sturlu til þingmannanefndarinnar sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Fengu langþráðar sígarettur

Námuverkamennirnir sem lokuðust í koparnámu í norðurhluta Chile fyrir rúmum mánuði hafa nú loksins fengið sigarettur sem var það fyrsta sem þeir báðu um þegar náðu sambandi við björgunarmenn.

Greiða atkvæði um stjórnarskrá

Almenningur í Tyrklandi greiðir í dag atkvæði um breytingar á stjórnarskrá landsins. Um er að ræða 26 breytingartillögur sem fela meðal annars í sér að hægt verður að rétta yfir æðstu yfirmönnum hersins fyrir almennum dómstólum og erfiðara verður að leysa upp og uppræta stjórnmálaflokka. Þá hefur verið gagnrýnt að þingið fái vald til að skipa dómara.

Fyrsta haustlægðin

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, segir að lægðin sem nú fari vaxandi á sunnanverðu Grænlandshafi hafi öll einkenni haustlægðar. Skil hennar með tilheyrandi rigningu fer yfir landið í dag.

Framhaldið í höndum Alþingis

„Ég hef áður sagt að ég muni ekkert gera sem geti truflað störf þingsins í þessu mikilvæga máli. Sú yfirlýsing stendur og því mun ég ekki tjá mig um málið opinberlega fyrr en þingið hefur lokið afgreiðslu málsins," segir Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi viðskiptaráðherra, í yfirlýsingu. Hann segir málið nú í höndum Alþingis.

Öryggisgæsla hert við heimili Westergaard

Lögreglan í Danmörku hefur upplýsingar um að dagblaðið Jótlandspósturinn hafi verið skotmark mannsins sem er í haldi eftir að sprengja sprakk í miðborg Kaupmannahafnar. Ritstjórar blaðsins eru í strangri öryggisgæslu.

Segir Geir þegar hafa axlað ábyrgð

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, segir að Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, sé þegar búinn að axla pólitíska ábyrgð á hruninu og því sé engin þörf á því draga hann né aðra fyrrverandi ráðherra fyrir landsdóm.

Geir Haarde: Ég er ekki hræddur

„Niðurstaða meirihluta þingmannanefndar, sem fjallað hefur um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, um ákærur á hendur fyrrverandi ráðherrum, veldur mér miklum vonbrigðum. Ég tel að meirihlutinn hafi komist að rangri niðurstöðu,“ segir Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, í yfirlýsingu sem hann fjölmiðlum skömmu fyrir klukkan 12. „Komi til þess að Alþingi samþykkti tillögu um að stefna mér fyrir landsdóm verður það þungbær reynsla en sá sem hefur hreinan skjöld er ekki hræddur við að fá úrlausn sinna mála fyrir óháðum og óvilhöllum dómstóli eins og landsdómi er ætlað að vera.“

Ráðherrarnir gátu ekki komið í veg fyrir hrunið

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir landsdóm leifar af 19. aldar réttarfari og sé þannig úreltur. Hann segir að eftir árið 2006 hafi ekki verið hægt að bjarga bönkunum og því eigi ekki að ákæra fyrrverandi ráðherra fyrir að koma ekki í veg fyrir bankahrunið vegna aðgerðarleysis árið 2008.

Björn og Guðlaugur svöruðu ekki þingmannanefndinni

Hvorki Björn Bjarnason né Guðlaugur Þór Þórðarson sáu ástæðu til að svara bréfum þingmannanefndar sem fjallaði um skýrslu Alþingis. Allir ráðherrar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar fengu send bréf frá nefndinni um miðjan maí þar sem ráðherrunum fyrrverandi var gefinn kostur á senda nefndinni athugasemdir, upplýsingar eða svör við niðurstöðum skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Björgvin: Ég er ekki fullkominn

Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, segir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, hafi setið fjölmarga fundi um um málefni fjármálamarkaðar sem hann hafi ekki verið boðaður á. Björgvin segir að Ingibjörg hefði átt að upplýsa hann um stöðu mála sem rædd hafi verið á umræddum fundum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í bréfi Björgvins til þingmannanefndar sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Björgvin segist taka ásakanir um vanrækslu mjög alvarlega.

Geir Haarde: Mér var vísvitandi sagt ósatt

„Ég hef varið mörgum árum í störf á vettvangi stjórnmála og kynnst þar mörgu fólki. En ég hef ekki átt því að venjast að mér sé vísvitandi sagt ósatt um mikilvæg mál hvað þá að málsmetandi ábyrgðarmenn stórra fyrirtækja geri sig seka um slíkt gagnvart forsætisráðherra,“ segir Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, í bréfi til þingmannanefndar sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. „Slíku hafði ég ekki kynnt fyrr en í aðdraganda bankahrunsins og gerði mér ekki grein fyrir því fyrr en eftir á. Erfitt er að þurfa að sætta sig við slíka framkomu,“ segir Geir.

Talinn hafa ætlað að myrða ritstjóra Jótlandspóstsins

Danska lögreglan fann kort með heimilisfangi Jótlandspóstsins á hótelherbergi mannsins sem talinn er bera ábyrgð á sprengjunni sem sprakk í Kaupmannahöfn á föstudag. Grunur leikur á að maðurinn hafi ætlað ráða ritstjóra blaðsins af dögum með sprengjutilræði en Jótlandspósturinn vakti mikla reiði á meðal múslima með birtingu sinn á skopmyndum af Múhammeð spámanni. Ritstjórarnir hafa um helgina verið í mikilli gæslu og hafa klæðst skotheldum vestum.

Lýst eftir 15 ára stúlku

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Örnu Víf Hlynsdóttur en hún hefur verið týnd síðan á fimmtudag. Móðir hennar biðlaði til almennings í fréttum Stöðvar 2 í gær og bað fólk um að hafa augnun opin og hjálpa þannig til við að finna Örnu.

Tveir fluttir á slysadeild eftir bílveltu

Karl og kona á þrítugsaldri voru flutt á slysadeild Landspítalans eftir að bíll valt í Biskupstungum á Suðurlandi klukkan rúmlega hálf fimm nótt. Þrennt var í bílnum en fólkið sem var flutt til Reykjavíkur var talið beinbrotið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi eru tildrög slyssins óljós.

Úrskurðaður í varðhald

Karlmaðurinn sem grunaður er um sprengjutilræði í miðborg Kaupmannahafnar í fyrrdag var í gær úrskuraður í gæsluvarðhald. Fyrst um sinn verður hann hafður í einangrun. Hann naut aðstoðar túlks þegar hann kom fyrir dómara. Enn er margt á huldu um manninn og til að mynda liggur ekki fyrir hvaðan hann er.

Bjarni: Tillaga meirihlutans ótraustvekjandi

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að tillaga meirihluta þingmannanefndar varðandi ráðherraábyrgð sé ekki trausvekjandi. Meirihlutinn vill að fjórir fyrrverandi ráðherrar verði dregnir fyrir landsdóm vegna refsiverðrar háttsemi.

Tvöfaldur næst í lottóinu

Fyrsti vinningur í lottóinu gekk ekki út í kvöld og verður potturinn því tvöfaldur næst. Einn var með fjórar tölur réttar auk bónustölunnar og fær hver um sig tæpar 210 þúsund krónur.

Gangast ekki við ábyrgð

Þeir ráðherrar sem eru sakaðir um að hafa sýnt vanrækslu í starfi í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis hafa hingað til ekki viljað gangast við ábyrgð. Erfitt getur orðið fyrir landsdóm að sakfella í málinu þar sem refsiákvæði eru óljós.

Steingrímur: Nefndin vann mikið og vandað starf

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG, segir að það hafi hafi verið óskandi að þingmannanefndin hefði komist að sameiginlegri niðurstöðu. Meirihluti nefndarinnar vill að fjórir fyrrverandi ráðherrar verði dregnir fyrir landsdóm vegna refsiverðrar háttsemi.

Líðan eftir atvikum góð

Líðan mannsins sem brenndist eftir að vatn úr djúpsteikingarpotti skvettist á hann á skyndibitastaðnum KFC er eftir atvikum góð, að sögn vakthafandi læknis á Lýtalækningadeild Landspítalans. Ekki liggur fyrir hvort maðurinn, sem er rúmlega tvítugur Ungverji og starfaði á KFC, þarf lýtaaðgerð. Líklegt er að hann dvelji á spítala í að minnsta kosti tvær vikur til viðbótar, en hann brenndist illa á höndum og brjósti.

Merkilegar tillögur

Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir að skýrsla þingmannanefndarinnar sem birt var í dag afar merkileg. Að hans mati er um umbótatillögur að ræða.

Bilun í háspennubúnaði olli skammhlaupi

„Varnarbúnaðuar brást við með eðlilegum hætti og aftengdi álver Norðuráls frá raforkukerfinu þegar bilun varð í háspennubúnaði álverssins fimmtudaginn 9. september,“ segir í tilkynningu frá Landsneti vegna bilunar sem olli skammhlaupi um mest allt land. Landsnet hefur að því er fram kemur í tilkynningunni þegar gert ráðstafanir til að reyna að koma í veg fyrir að slíkar truflanir valdi almennum notendum vandræðum í framtíðinni.

Ferðamenn fari gætilega umhverfis Eyjafjallajökul

Veðurstofa Íslands spáir mikilli rigningu á Eyjafjallajökli á morgun. Spáin hljóðar uppá að rigni frá klukkan 9 í fyrramálið og alveg fram til klukkan 17. Á tímabilinu milli klukkan 11 og 15 er spáð allt að 10 millimetra úrkomu á klukkustund. Reiknað er með að skilin fari yfir jökulinn á tímabilinu milli klukkan 10 og 12 en þá má reikna með að vindhraði verði allt að 20 metrar á sekúndu á fjallinu og að úrkoma verði áköfust þegar skilin fara yfir.

Geir og Ingibjörg útilokuðu Björgvin

Fulltrúar Samfylkingarinnar í þingmannanefndinni sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis fallast ekki á rökstuðning og niðurstöður meirihluta nefndarinnar sem vill að Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, verði dreginn fyrir landsdóm. Þeir segja að Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar hafi útilokað Björgvin frá ákvarðunum er vörðuðu ráðuneyti hans.

Brutu af ásetningi eða sýndu stórkostlegt hirðuleysi

Geir H. Haarde, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Árni Mathiesen og Björgvin G. Sigurðsson brutu á tímabilinu frá febrúar 2008 og fram í októberbyrjun sama ár af ásetningi eða stórkostlegu hirðuleysi gegn lögum um ráðherraábyrgð. Þetta er mat fulltrúar Framsóknarflokks, VG og Hreyfingarinnar í þingmannanefnd sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Fulltrúar Samfylkingarinnar eru sammála meirihluta nefndarinnar nema þegar kemur að Björgvini.

Skýrslunni útbýtt á Alþingi

Skýrslu þingmannanefndar sem skipuð var til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar hefur verið útbýtt á Alþingi. Hún er aðgengileg á vef Alþingis. Þá hefur verið útbýtt niðurstöðum þingmannanefndar um ábyrgð ráðherra samkvæmt ráðherraábyrgðarlögum. Umræður um skýrslu þingmannanefndarinnar munu hefjast í þinginu næstkomandi mánudag klukkan 10:30. Ræðutími þingmanna verður rýmri en þingsköp ákveða.

Fjórir ráðherrar verði dregnir fyrir landsdóm

Þingmannanefnd undir forystu Atla Gíslasonar sem fór yfir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis klofnaði í afstöðu sinni til þess hvort og þá hvaða fyrrverandi ráðherra eigi að draga fyrir landsdóm. Fimm nefndarmenn af níu vilja að fjórir ráðherrar verði kærðir fyrir landsdóm.

Leita að 85 föngum

Umfangsmikil leit fer nú fram í Mexíkó að 85 föngum sem tókst að flýja úr fangelsi í norðurhluta landsins í gær. Yfirmaður fangelsismála á svæðinu segir að fangarnir hafi notað stiga til að komast yfir múra umhverfis fangelsið.

Gillard tilefnir Rudd sem utanríkisráðherra

Julia Gillard, forsætisráðherra Ástralíu, hefur tilnefnt Keven Rudd, fyrrverandi forsætisráðherra, sem utanríkisráðherra. Stutt er síðan hún felldi Rudd óvænt úr sæti formanns Verkamannaflokksins. Hún tók við sem forsætisráðherra í kjölfarið og boðaði strax til þingkosninga.

Hannes Hólmsteinn: Geir og Ingibjörg eru ekki glæpamenn

"Þau Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, eru ekki glæpamenn, þótt oft hafi þeim eflaust verið mislagðar hendur í aðdraganda bankahrunsins,“ segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði. Ákveði meirihluti þingmanna að ákæra Geir og Ingibjörg vill Hannes að sömu þingmenn verði gert að sæta ábyrgð fyrir misnotkun valds.

Þingflokkar funda um skýrsluna

Þingmenn allra flokka eru í þessum töluðu orðum að koma sér fyrir á þingflokksfundum niðrá Alþingi. Þar fá þeir munnlega skýrslu frá nefndarmönnum í þingmannanefnd sem ætlað var að móta viðbrögð Alþingis við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Skýrslan verður ekki gerð opinber fyrr en klukkan fimm.

Hryðjuverkaárásanna minnst í Bandaríkjunum

Þess er minnst víða um Bandaríkin í dag að níu ár eru liðin frá því að ráðist var á Tvíburaturnana í New York og varnarmálaráðuneytið í Pentagon með þeim afleiðingum að á þriðja þúsund óbreyttra borgara fórust. Fjórða flugvélin hrapaði í Pennsylvaníu.

Geir tjáir sig ekki

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst ekki tjá sig í dag um skýrslu þingmannanefndar sem lögð verður fram seinnipartinn. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, ætlar ekki að tjá sig um skýrsluna fyrr en hún hefur séð hvað kemur fram í henni.

Líkt og menn hafi borað niður á kókaínæð

„Geðveikin er núna augljós í jarðvarmabransanum. Þar hafði þróunin verið jöfn og stöðug frá hitaveituvæðingunni á kreppuárunum. Nú er engu líkara en menn hafi borað niður á kókaínæð og fyllt rækilega á sér nasirnar,“ segir rithöfundurinn Andri Snær Magnason í grein í Fréttablaðinu í dag.

Sigurður Líndal: Ég myndi sýkna ráðherrana

Erfitt gæti orðið fyrir landsdóm að komast að annarri niðurstöðu en sýknu fari svo að fyrrverandi ráðherrar verði dregnir fyrir dóminn. Þetta er mat Sigurðar Líndal, lagaprófessors, en hann segir að refsiheimildir í lögum séu ekki nægilega skýrar.

Viðbúnaðarstig hækkað í Danmörku

Lögreglan í Danmörku hefur hækkað hryðjuverkaviðbúnaðarstig vegna sprengingarinnar í miðborg Kaupmannahafnar í gær. Ýmislegt hefur komið fram í rannsókn lögreglu sem bendir til þess að um misheppnaða hryðjuverkaárás hafi verið að ræða.

Telur óskynsamlegt að kaupa Hitaveitu Hveragerðis til baka

Meirihluti Bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar hefur óskað eftir að hefja viðræður við Orkuveituna um að kaupa Hitaveitu Hveragerðis til baka á sanngjörnu verði. Minnihluti bæjarstjórnar telur óskynsamlegt að bæjarfélagið skuldsetji sig enn frekar.

Sjá næstu 50 fréttir