Innlent

Launabilið eykst - enn lægri laun í almannnaþjónustu

Starfsmenn Landspítala eru að stórum hluta í SFR
Starfsmenn Landspítala eru að stórum hluta í SFR Mynd: Vilhelm Gunnarsson

Launabilið milli starfsmanna í almannaþjónustu og starfsmanna á almennum vinnumarkaði hefur aukist milli ára. Starfsmenn á almennum vinnumarkaði hafa 18 prósent hærri laun en starfsmenn í almannaþjónustu. Í fyrra var munurinn 15 prósent en 20 prósent árið þar á undan.

Þetta er niðurstaða nýrrar launakönnunar SFR stéttarfélags í almannaþjónustu. Könnunin er unnin í samstarfi við VR af Capacent Gallup.

Þegar tekið hefur verið tillit til kyns, aldurs, starfsstéttar, starfsaldurs, vinnutíma, vaktaálags og menntunar, er munurinn á heildarlaunum félagsmanna SFR og VR 18 prósent.

Launaskrið á almennum markaði

Í tilkynningu frá SFR segir að á þessum tölum má sjá að enn er þrengt mun meira að starfsmönnum í almannaþjónustunni en þeim sem starfa á almennum vinnumarkaði. Launaskrið hefur orðið hjá þeim síðarnefndu en ekki hjá starfsmönnum almannaþjónustunnar. Almenni vinnumarkaðurinn virðist miðað við þessar tölur vera að rétta hraðar úr kútnum eftir efnahagshrunið en sá opinberi, en starfsmenn í almannaþjónustunni sitja eftir í launaþróuninni.

Launamunur kynjanna minnkar

Launakönnunin leiddi ennfremur í ljós að kynbundinn launamunur meðal félagsmanna SFR minnkar á milli ára og er nú 9,9%, en var 11,8% 2009. Við útreikninga liggja til grundvallar laun fólks í fullu starfi. Tekið er tillit til áhrifa fjölmargra þátta í útreikningunum þannig að sá munur sem fram kemur í launum karla og kvenna skýrist ekki af vinnutíma, starfi, atvinnugrein, aldri, starfsaldri eða menntun.

Aukagreiðslur til karla hækka

Þegar heildarlaunaþróun karla og kvenna er hins vegar skoðuð má sjá að heildarlaun kvenna hækkuðu minna en heildarlaun karla eða um 0,5% á meðan laun karla hækkuðu um 3,8% á tímabilinu. Þetta er viðsnúningur frá því fyrir ári, þegar heildarlaun karla stóðu í stað milli ára, en heildarlaun kvenna hækkuðu um 7,4%. Helsta skýringin á meiri hækkun heildarlauna karla en kvenna er sú að aukagreiðslur til karla hækkuðu meira en aukagreiðslur til kvenna á milli ára. Einkum hækka greiðslur vegna yfirvinnu hjá körlum, en laun kvenna fyrir yfirvinnu lækkuðu milli ára. Þessi þróun veldur því að heildarlaun karla hækka en heildarlaun kvenna standa því sem næst í stað á milli ára. Þrátt fyrir þetta minnkar launamunurinn þegar tekið hefur verið tillit til allra þátta, segir í tilkynningunni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×