Fleiri fréttir

Látinna minnst í Kína

Nú er staðfest að 1239 hafi farist í aurskriðum í Zhouqu í Gansu-héraði í Kína um síðustu helgi. 505 íbúar bæjarins eru ófundnir. Fórnarlamba aurskriðnanna var minnst víðsvegar um Kína í dag.

Morðinginn gengur enn laus

Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við morðið á 37 ára gömlum karlmanni sem fannst látinn á heimili sínu í Hafnarfirði í dag. Þetta sagði Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjón, í samtali við fréttastofu á níunda tímanum í kvöld. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Friðrik gat heldur ekki sagt til um hvort fjölmiðlum yrði send fréttatilkynning um framvindu rannsóknarinnar í kvöld.

Borgarfulltrúi biðst afsökunar

„Þetta voru mistök af minni hálfu. Ég ætlaði ekki að troða neinum um tær,“ segir Karl Sigurðsson, borgarfulltrúi Besta flokksins.

Íhuga að gefa börnunum kók vegna vatnsskorts

Fjölskylda í Úlfarsfelli er orðin langþreytt á viðvarandi vatnsskorti og gruggugu vatni úr krönunum. Hún rekur vatnsskortinn til hrossa sem ganga á brunnvatni, en segir aðgang að hreinu vatni vera mannréttindi.

Bæjarstjóri Kópavogs: Líf að færast í framkvæmdir

Yfir 500 íbúðir stóðu hálfkláraðar eða tómar í Kópavogi undir lok síðasta árs. Bæjarstjóri Kópavogs segir ástandið miður, en sem betur fer telji hún að líf sé að færast í framkvæmdir að nýju.

Íhuga að taka sýni úr neysluvatni

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur fengið staðfestingu á því að verktaki hafi látið seyruvökva úr rotþróm leka á vatnsverndarsvæði á Þingvöllum. Sumarhúsaeigandi fer fram á að verktakanum verið vikið frá verkinu.

Reynir að bæta samskipti Íslendinga og Taílendinga

Íslendingar og Taílendingar geta skapað ótrúlega mörg tækifæri með því að sameina krafta sína. Þetta segir ung kona sem starfar við skúringar hér á landi, en nýtir allar frístundir og laun í að reyna bæta samskipti milli þjóðanna sem hún telur alltof lítil.

Íslenska ríkið skattleggur mannssæði

Ríkið skattleggur innflutt sæði sem notað er hér á landi til tæknifrjóvgunar, en Tollstjóraembættið skilgreinir það núna sem landbúnaðarafurð en ekki lífsýni, eins og áður. Þetta er mikil breyting, því sæðisinnflutningur hefur verið tollfrjáls í áratugi.

Sorpa gefur 7,5 milljónir til söfnunar Reykjadals

Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu, færði starfsfólki Reykjadals, 7,5 milljónir í sumarlokahátíð sumarbúðanna sem fór fram í dag. Á sjöttu milljón hafði safnast í gær.

Morðinginn ófundinn

Maðurinn sem fannst látinn laust fyrir hádegi á heimahúsi í Hafnarfirði var að öllum líkindum myrtur með eggvopni. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlöregluþjónn, segir í tilkynningu að enginn hafi verið handtekinn vegna málsins og að rannsókn þess sé á frumstigi.

Sif á leið til landsins

Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF er væntanleg til Reykjavíkur í kvöld en undanfarin mánuð hefur flugvélin sinnt mengunareftirliti á Mexíkóflóa fyrir bandarísku strandgæsluna og BP, British Petroleum. TF-SIF stoppar þó stutt við hér á landi því um næstu helgi verður haldið til Dakar í Senegal þar sem flugvélin mun sinna á eftirliti fyrir Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins.

Mun aldrei gleyma eyðileggingunni

„Ég mun aldrei gleyma eyðileggingunni og þeirri þjáningu sem ég hef orðið vitni að í dag,“ sagði Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, við fréttamenn eftir að hafa farið um flóðasvæðin í Pakistan í dag. Hrikaleg flóð hafa valdið gríðarlegu tjóni í landinu undanfarna daga. Yfirvöld í Pakistan telja að 20 milljónir íbúa hafi misst heimili sín.

Fannst látinn með stungusár

Karlmaður á fertugsaldri fannst látinn á heimili sínu í Hafnarfirði í hádeginu í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu var hann með stungusár sem talið er að hann hafi hlotið í nótt. Fjölmennt lið lögreglu kom á vettvang og vinnur tæknideild nú að rannsókn málsins.

Sprengjuhótun á kaþólskri hátíð

Franska lögreglan rýmdi fyrr í dag svæði í kringum fjölfarinn ferðamannastað í bænum Lourdes í Frakklandi í kjölfar sprengjuhótunar. Lögreglu barst tilkynning um að fjórar sprengjur myndu springa klukkan eitt eftir hádegi í grennd við helli í bænum sem er helgur staður í augum margra kaþólikka.

Skartgripum og lúxusúrum stolið í London

Brotist var inn í tvær verslanir í miðborg London í gærkvöldi og skartgripum og úrum stolið. Þjófarnir eru ófundnir en ekki liggur fyrir hversu mikið þeir höfðu upp úr krafsinu.

Endurvinna tillögu um fóstrun leikvalla

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að tillaga Besta flokksins og Samfylkingarinnar um fóstrun leikvalla sé í besta falli endurvinnsla. Þáverandi meirihluti hafi hafið þessa vinnu fyrir tveimur árum. Þorbjörg segir mikilvægt að fólk sem sé að hefja stjórnmálaferil sinn sé heiðarlegt.

Geta tekið róló í fóstur

Reykvíkingar geta framvegis tekið leikvelli í nágrenni sínu í fóstur ef hugmynd borgarstjórnarmeirihlutans verður að veruleika. Formaður umhverfisráðs segir börn ekki eiga að þurfa að venjast því að vera á illa hirtum og ljótum leikvöllum.

Lauk Drangeyjarsundi á þrjóskunni einni

Formaður Frjálslynda flokksins synti í gær Drangeyjarsundið svokallaða. Hann fékk krampa á miðri leið og segist hafa lokið sundinu á þrjóskunni einni.

Konan fannst látin

Konan sem leitað hefur verið að í Borgarnesi síðan á mánudag er látin. Lík hennar fannst um tíu kílómetra frá Borgarnesi í gærkvöldi.

„Við erum á varðbergi þessa dagana“

Hætta er talin á að eðjuflóð gætu komið ofan úr Eyjafjallajökli í dag en mikilli úrkomu er spáð á Suðurlandi. Lögregla er með aukin viðbúnað undir Eyjafjöllum og Veðurstofa Íslands fylgist náið með ástandi mála. „Við erum á varðbergi þessa dagana,“ segir jarðfræðingur hjá Veðurstofunni.

„Stjórnmálastéttin er óhæf og spillt“

Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, segir að íslenskir stjórnmálamenn skilji ekki kall og kröfur tímans. Nýju bankarnir fái að starfa á sama grunni og bankarnir sem hrundu. Að hans mati er stjórnmálastéttin óhæf.

Varað við hættu á eðjuflóðum frá Eyjafjallajökli

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er gert ráð fyrir mikilli úrkomu á Suðurlandi í dag og mun úrkomubelti fara yfir Eyjafjallajökul. Mikil aska er á Eyjafjallajökli og samfara úrkomu eykst hætta á eðjuflóðum vatns og ösku í ánum er renna frá jöklinum, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra.

Aðstæður á flóðasvæðunum ógna velferð barna

„Miklir fólksflutningar í kjölfar flóðanna, hætta á útbreiðslu sjúkdóma og versnandi lífsskilyrði fela í sér aukna áhættu fyrir heilsu ungra barna,” segir Mohammed Qazilbash, talsmaður Barnaheilla - Save the Children í Pakistan. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Barnaheillum.

Átta létust þegar kappakstursbifreið ók á hóp áhorfenda

Mikill harmleikur átti sér stað í Kaliforníu þegar að minnsta kosti 8 létust og 12 slösuðust þegar kappakstursbifreið var ekið inn í hóp áhorfenda á vinsælum kappakstri, California 200, í Mojave eyðimörkinni í Suður-Kaliforníu í nótt, að því er fram kemur á vef BBC. Margir hinna slösuðu voru fluttir með sjúkraþyrlum á spítala.

Allt hjálparstarf verði samræmt

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sem kom til Pakistan í morgun segir að allur heimurinn standi við bakið á Pakistan og krefst þess að allt hjálparstarf handa þeim sem illa hafa orðið úti úr flóðunum í landinu verði samræmt.

Ölvaður ók of hratt

Karlmaður á þrítugsaldri var í nótt sviptur ökuréttindum til bráðabirgða eftir að lögreglan á Selfossi handtók hann fyrir ölvunarakstur. Að auki ók hann á 70 km. hraða í íbúðahverfi þar sem hámarkshraðinn er 30 km. Maðurinn á von á töluvert hárri sekt fyrir uppátækið, að sögn lögreglu.

Stútar stöðvaðir á Akureyri

Tveir ökumenn voru teknir grunaðir um ölvunarakstur á Akureyri í nótt og þá stöðvaði lögregla einn ökumann á fimmta tímanum sem talinn var um akstur undir áhrifum fíkniefna. Að öðru leyti gekk nóttin vel og fór skemmtanahald vel fram, að sögn sögn lögreglunnar á Akureyri.

Eldur í Byko í Garðabæ

Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var sent að húsnæði Byko í Kauptúni í Garðabæ í nótt eftir að tilkynnt var um eld í húsinu. Tilkynningin barst skömmu fyrir klukkan fjögur og gekk vel að slökkva eldinn, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá varðstjóra. Ekki var mikinn eld að ræða en svo virðist sem að kviknað hafi í kaffivél í mötuneyti starfsmanna. Talsverður reykur barst um húsnæðið, meðal annars í verslunina, og voru slökkviliðsmenn nokkurn tíma að reykræsta. Að sögn varðstjóra lítur ekki út fyrir að miklar skemmdar hafi orðið á innanstokksmunum og húsnæðinu.

Málglaðir á dollunni

Sex af hverjum tíu aðspurðum hafa talað í GSM síma á meðan þeir sátu á klósettinu, samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem danska markaðsfyrirtækið Wilke gerði þar í landi. Í sömu könnun var þriðjungi aðspurðra sama þótt sá sem þeir töluðu við sæti á dollunni.

Ökumenn sektaðir í fyrsta sinn á menningarnótt

Stöðumælaverðir og lögreglumenn munu sekta þá sem leggja ólöglega í miðborg Reykjavíkur á menningarnótt um næstu helgi. Þetta er i fyrsta sinn sem þetta er gert, segir Kolbrún Jónatansdóttir, framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs.

Vilhjálmur vill annan matseðil

Samtök atvinnulífsins leggja áherslu á það að skattar verði ekki hækkaðir heldur opinber útgjöld lækkuð til að ná jafnvægi í ríkisfjármálum fyrir næsta fjárlagaár, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Morgunblaðið

Neysluvatni stefnt í hættu

Grunur leikur á að seyruvökvi úr rotþróm hafi verið látinn leka út í umhverfið á vatnsverndarsvæði á Þingvöllum. Heilbrigðisfulltrúi segir neysluvatni hætta búin.

Eldur í hreyfli

Flugmaður lítillar Twin Otter flugvélar þurfti að drepa á öðrum hreyfli vélarinnar áður en hann lenti á Akureyrarflugvelli nú á sjötta tímanum. Vélin var að koma frá Grænlandi með tvo menn um borð.

Ógnuðu öryggisvörðum í Kringlunni

Lögreglumenn handtóku tvo unga menn í Bogahlíð nú á fjórða tímanum í dag. Samkvæmt heimildum Vísis höfðu þeir ógnað öryggisvörðum í Kringlunni með einhverskonar vopni og kölluðu öryggisverðir eftir aðstoð lögreglu. Eftir það hlupu þeir á brott en náðust fljótt.

Aldrei líflegra á markaðnum en nú

Það er mikið um að vera þessa dagana, segir Haukur Olavsson, verslunarstjóri í Griffli. Eins og fréttastofa sagði frá í hádeginu og hér á Vísi má gera ráð fyrir að bókakostnaður framhalds- og háskólanema hlaupi á tugum þúsunda á hverri önn að því gefnu að bækurnar séu keyptar nýjar.

Um 14 þúsund nemendur hefja nám

Um 14 þúsund nemendur munu hefja nám í grunnskólum Reykjavíkurborgar í næstu viku, en skólarnir verða settir á mánudag. Af þessum 14 þúsund eru tæplega 1.500 nemendur að setjast í fyrsta sinn á skólabekk.

Steingrímur styður Gylfa

„Ég sé ekki að það liggi fyrir neitt annað en að hann hafi svarað samkvæmt því sem hann best vissi á þessum tíma. Ég hef ekkert í höndum sem fær sannað að þarna hafi ásetningi eða vísvitandi verið hallað rétt að máli. Ég hef það ekki. Á meðan nýtur Gylfi Magnússon vafans af minni hálfu,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra.

Heimsækir flóðasvæðin í Pakistan

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, heimsækir Pakistan um helgina en hrikaleg flóð hafa valdið gríðarlegu tjóni í landinu að undanförnu. Raza Gilani, forsætisráðherra landsins, sagði í ávarpi í tilefni þjóðhátíðardags Pakistans fyrr í dag að 20 milljónir manna hafi misst heimili sín í flóðunum en áður höfðu Sameinuðu þjóðirnar sagt að 14 milljónir íbúa landsins væru heimilislausir.

Á sjöttu milljón safnað fyrir börnin í Reykjadal

„Söfnunin gengur stórvel og nú hafa um 5,6 milljónir safnast. Við eigum von á stórum gjöfum á morgun og á þriðjudaginn þegar gangan hefst,“ segir Sólveig Hlín Sigurðardóttir forstöðumaður Reykjadals.

Jazzhátíð Reykjavíkur hefst í dag

Jazzhátíð Reykjavíkur verður formlega sett í Þjóðmenningarhúsinu klukkan 17 dag. Auk íslenskra tónlistarmanna koma listamenn frá Norðurlöndunum, Frakklandi, Bandaríkjunum og Austurríki fram á hátíðinni sem stendur yfir í hálfan mánuð. Jazzhátíð Reykjavíkur er skipulögð af Jazzdeild FÍH með hjálp frá Menningarsjóði FÍH, Reykjavíkurborg og Tónlistarsjóði.

Skólabækur með sál ódýrari

Kostnaður framhalds- og háskólanema við bókakaup hleypur á tugum þúsunda, en töluvert er hægt að spara með því að kaupa bækur með sál.

Gylfi: Skil ekki eftir naglaför í parketinu

„Auðvitað hef ég velt því fyrir mér,“ segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, aðspurður hvort hann hafi íhugað að segja sér embætti. Hann segir að það verði ekki erfitt að koma honum út þegar ákvörðun um það verði tekinn. Hann muni ekki skilja eftir naglaför í parketinu. Þetta kom fram í máli Gylfi í þættinum Vikulokin á Rás 1 í dag.

Franskur ferðamaður fékk nýrnasteinakast

Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti í Reykjavík á ellefta tímanum í dag með veikan ferðamann. Björgunarsveitarmenn og þyrla Gæslunnar var kölluð út í morgun eftir að neyðarboð barst frá staðsetningartæki fransks ferðamanns sem staddur var suðaustan Hagafells við Markarfljót. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Landhelgisgæslunni er talið að maðurinn hafi fengið nýrnasteinakast.

Sjá næstu 50 fréttir