Endurvinna tillögu um fóstrun leikvalla 15. ágúst 2010 13:30 Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir. Mynd/GVA
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að tillaga Besta flokksins og Samfylkingarinnar um fóstrun leikvalla sé í besta falli endurvinnsla. Þáverandi meirihluti hafi hafið þessa vinnu fyrir tveimur árum. Þorbjörg segir mikilvægt að fólk sem sé að hefja stjórnmálaferil sinn sé heiðarlegt. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Besta flokksins lögðu fram tillögu í borgarráði fyrir helgi um að bjóða borgarbúum leikvelli til fósturs. Karl Sigurðsson, borgarfulltrúi Besta flokksins og formaður umhverfisráðs, sagði í samtali við fréttastofu að hugmyndin gangi út á að áhugasamir og borgarbúar geti tekið að sér svæði eins og leikvelli í borginni. Borgarbúar sjái þá um viðhald og endurbætur með aðkomu borgarinnar í formi efniskostnaðar og leiðbeininga. Karl sagði unnið að því í stjórnsýslunni að gera hugmyndina að veruleika, útbúa verklagsreglur og annað slíkt. Þorbjörg Helga gagnrýnir þessa framsetningu í tölvubréfi til fréttastofu. „Ég sem formaður umhverfis- og samgönguráðs hóf þessa vinnu fyrir 2 árum og átti samstarf við öflugan Vesturbæing um að setja svona verkefni á laggirnar."Segi rétt frá Hún segir að helst ætti að eigna Ólafi Mathiesen hugmyndina þar sem hann hafi verið fyrsti borgarbúinn sem tók fyrsta völlinn í fóstur fyrir um ári síðan. Verkefnið sé hluti af stærra verkefni sem heiti Gleym-mér-ei og feli í sér verkefni eins og að fóstra garða, leikvelli og að kaupa og merkja sér bekki. „Mikilvægast er að mínu mati að menn sem eru að hefja feril sinn sem stjórnmálamenn séu heiðarlegir að þessu leyti og segi að minnsta kosti frá því að verkefnið hafi verið komið af stað - og að tillagan snùist aðeins um að formfesta þær reglur sem nauðsynlega verða að liggja fyrir," segir Þorbjörg Helga.
Tengdar fréttir Geta tekið róló í fóstur Reykvíkingar geta framvegis tekið leikvelli í nágrenni sínu í fóstur ef hugmynd borgarstjórnarmeirihlutans verður að veruleika. Formaður umhverfisráðs segir börn ekki eiga að þurfa að venjast því að vera á illa hirtum og ljótum leikvöllum. 15. ágúst 2010 13:01 Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Mjólkurhvít mengun í Sauðá Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Sjá meira
Geta tekið róló í fóstur Reykvíkingar geta framvegis tekið leikvelli í nágrenni sínu í fóstur ef hugmynd borgarstjórnarmeirihlutans verður að veruleika. Formaður umhverfisráðs segir börn ekki eiga að þurfa að venjast því að vera á illa hirtum og ljótum leikvöllum. 15. ágúst 2010 13:01