Innlent

Um 14 þúsund nemendur hefja nám

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það verður líf í grunnskólum borgarinnar eftir næstu viku. Mynd/ GVA.
Það verður líf í grunnskólum borgarinnar eftir næstu viku. Mynd/ GVA.
Um 14 þúsund nemendur munu hefja nám í grunnskólum Reykjavíkurborgar í næstu viku, en skólarnir verða settir á mánudag. Af þessum 14 þúsund eru tæplega 1.500 nemendur að setjast í fyrsta sinn á skólabekk.

Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, segist hafa hitt skólastjóra og aðstoðarskólastjóra í Reykjavík á fimmtudaginn. Hljóðið hafi verið gott í þeim enda sé staða á starfsmannamálum góð. Sér vitandi hafi ekki þurft að auglýsa eftir neinum kennurum.

„Það er hugur í fólki. Ég myndi segja það. Það er himinn og haf á milli þess sem var fyrir örfáum misserum síðan, þá vantaði oft hundrað kennara til starfa á þessum tíma," segir Oddný í samtali við Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×