Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gylfi Magnússon: Afsögn ekki rædd „Það er ekki minn skilningur heldur þvert á móti að starfsmenn ráðuneytisins hafi haldið frá mér upplýsingum eða blekkt mig. Ég var fyllilega upplýstur um það sem átti að upplýsa mig um," segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, sem ræddi við Fréttablaðið í gærkvöld. 14.8.2010 09:40
Lokuðust í lyftu Slökkviliðsmenn aðstoðuðu fólk sem lokaðist inni í lyftu í húsi við Hverfisgötu í miðbæ Reykjavíkur á þriðja tímanum í nótt. Fólkið þurfti ekki að dúsa lengi í lyftunni því slökkviliðsmenn komu á staðinn skömmu eftir að það náði að láta vita af sér. Notaður var þartilgerður lykill til að opna lyftuna og amaði ekkert af fólkinu, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá varðstjóra. 14.8.2010 09:33
Tíu gistu fangageymslur Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt þrátt fyrir að engin meiriháttarmál hafi komið upp og gistu tíu fangageymslur, að sögn lögreglu. Tveir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um ölvunarakstur og þá stöðvaði lögregla í nótt för ökumanns sem talinn var aka undir áhrifum fíkniefna. 14.8.2010 09:13
Gengjaátök í fangelsunum Brotamenn sem afplána í íslenskum fangelsum mynda í auknum mæli hópa, sem síðan lenda í átökum innan fangelsisveggjanna. Þetta segir Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar. 14.8.2010 08:30
Ekkert svigrúm til bjórhækkana Heimsmarkaðsverð á byggi hefur tvöfaldast á síðustu mánuðum vegna uppskerubrests í Evrópu, líkt og verð á hveiti. Má því búast við því að verð á bjór muni hækka töluvert í kjölfarið hér á landi. 14.8.2010 08:00
Meira rignir ofan í flóðin Ár flæddu enn yfir bakka sína og nýjar aurskriður ollu tjóni á hamfarasvæðunum í Kína, þar sem enn meiri rigningu er spáð næstu daga. Ástandið er verst í Gansu-héraði í norðvestanverðu Kína, þar sem á annað þúsund manns hafa farist og tugir þúsunda þurft að yfirgefa heimili sín. 14.8.2010 06:00
Milljóna afgangur af fjárframlögum til tannlækna Tæplega þrjú hundruð milljóna afgangur var af fjárframlögum til tannlækninga á síðasta ári. Árin 2001 til 2009 var afgangurinn 784 milljónir króna. 14.8.2010 05:00
Eldsneytið sent í næstu viku Rússar ætla í næstu viku að útvega eldsneyti í fyrsta kjarnorkuver Írans þrátt fyrir harða andstöðu Bandaríkjamanna, sem vilja koma í veg fyrir að Íranar geti framleitt kjarnorku nema þeir hafi fyrst fært sönnur á að þeir ætli ekki að koma sér upp kjarnorkuvopnum. 14.8.2010 05:00
Íbúarnir allir sendir úr landi Meira en 40 búðir sígauna hafa verið rýmdar í Frakklandi á síðustu tveimur vikum. Um 700 íbúar þeirra verða sendir úr landi til Búlgaríu eða Rúmeníu með flugi. 14.8.2010 04:00
Mjólkurfrumvarp hindrar nýsköpun Viðskiptaráð hefur sent frá sér álit á frumvarpi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til búvörulaga. Viðskiptaráð gagnrýnir frumvarpið og hvetur til þess að það nái ekki fram að ganga. 14.8.2010 04:00
Útlendar sveitir vilja æfa hérna Alþjóðarústabjörgunarsveit Hollendinga (USAR-NL) vill halda æfingu á Gufuskálum, æfingasvæði íslensku rústabjörgunarsveitarinnar (ÍA). Á vef Landsbjargar segir að fulltrúar sveitarinnar hafi rætt þetta á fundi með stjórnendum íslensku sveitarinnar í byrjun vikunnar. 14.8.2010 04:00
Dómari leyfir hjónaböndin Vaughn R. Walker, yfirhéraðsdómari í Kaliforníu, sá hinn sami og fyrir skemmstu kvað upp þann dóm að bann við hjónaböndum samkynhneigðra brjóti í bága við stjórnarskrá ríkisins, hafnaði í gær beiðni um að gildistöku dómsins verði frestað þangað til áfrýjunardómstóll ríkisins hefur tekið á málinu. 14.8.2010 04:00
Erlendir tjónabílar bannaðir Óheimilt verður að skrá ökutæki hér á landi sem eru skráð sem tjónaökutæki erlendis, frá og með áramótum. Samgönguráðuneytið hefur beint þeim tilmælum til Umferðarstofu. 14.8.2010 04:00
Um 1.300 hafa skrifað undir Undirskriftasöfnun til að mótmæla þeim fyrirætlunum bæjarráðs Akureyrar að byggja KFC veitingastað við Hafnarstræti, hófst fyrir um viku. Um 1.300 manns hafa skrifað undir á vefsíðunni sem stofnuð var í þessum tilgangi. 14.8.2010 03:30
Gylfi situr áfram í embætti Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra mun sitja áfram í embætti, segir Benedikt Stefánsson, aðstoðarmaður hans, í samtali við Vísi. 13.8.2010 22:19
Neituðu sér um úrvalsviský Þegar Ernest Shackleton fór í könnunarleiðangur á Suðurheimsskautið árið 1907 hafði hann meðferðis 11 flöskur af skosku viský. Hann náði hins vegar aldrei að smakka á guðaveigunum. Viskýflöskurnar, sem eru merktar McKinley & Co, fundust í kössum í ísnum á Suðurheimsskautinu þegar fornleifafræðingar frá Nýja-Sjálandi rannsökuðu vegsummerki eftir Shackleton og félaga fyrir fjórum árum síðan. 13.8.2010 21:47
Verkfallið skapar álag á slysadeild Aukið álag er á slysadeild Landspítalans i Fossvogi vegna verkfallsins, samkvæmt upplýsingum sem Vísir fékk frá hjúkrunarfræðingi á deildinni. 13.8.2010 20:00
Stefnt að Icesave samningaviðræðum með haustinu Samninganefndir Íslands, Bretlands og Hollands hittast í næstu viku til að ræða Icesave málið. Þetta hefur danski viðskiptavefurinn epn.dk eftir ónafngreindum heimildarmanni úr íslensku stjórnsýslunni. Heimildarmaðurinn segir að samningaviðræður muni standa yfir í ágúst og í byrjun september. 13.8.2010 20:31
Sendi forsetum Pakistan og Kína samúðakveðjur Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sendi í dag forseta Kína Hu Jintao samúðarkveðjur vegna náttúruhamfaranna sem orðið hafa í Kína undanfarna daga. Á annað þúsund hafa látist og mikill fjöldi misst heimili sín enda eyðilegging þorpa og byggða gífurleg. 13.8.2010 15:54
Ræddu gagnrýni á Gylfa Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ræddu saman í síma í kvöld um þá gagnrýni sem beinst 13.8.2010 21:57
Styðja við bakið á Stjörnunni og Reykjadal Bónus ætlar að styrkja Stjörnuna um 1,5 milljónir króna og sumarbúðirnar í Reykjadal um eina milljón króna. Ákvörðun um stuðninginn er tekin í tilefni af því að ný og stærri Bónusverslun er að opna í Kauptúni á morgun. 13.8.2010 21:04
Traust Jóhönnu til Gylfa skilyrðum háð Forsætisráðherra ber enn traust til viðskiptaráðherra, en traust hennar er því skilyrði háð að hann geti gefið greinargóðar skýringar á ásökunum sem settar hafa verið fram á hendur honum. Þingmenn Hreyfingarinnar ætla að leggja fram vantrauststillögu á hendur viðskiptaráðherra ef hann segir ekki af sér. 13.8.2010 18:52
Flugfélag Íslands kærir hugsanlega aðgerðir slökkviliðsmanna Framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands íhugar að kæra aðgerðir slökkviliðsmanna. Hann segir tjón félagsins vegna aðgerðanna nema milljónum og harmar að þeir láti kjaradeiluna bitna á ferðafólki og fyrirtæki sem enga aðild eigi að kjaradeilunni. 13.8.2010 18:30
Um 150 ný störf skapast til áramóta Um 150 ný störf skapast fram að næstu áramótum með þeirri ákvörðun borgarráðs sem tekin var fyrr í sumar um að breyta forgangsröðun á framkvæmdaáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 og verja 500 milljónum í átaksverkefni skapast. 13.8.2010 17:29
Lögreglan leitar að Sindra Lögreglan á Selfossi leitar að Sindra Þór Ragnarssyni, fjórtán ára gömlum. Sindri Þór er 1,77 cm á hæð. Hann er klæddur í hvíta adidas peysu og beislitaðar carhartt buxur. Í dag er hárið á honum heldur styttra en það er á meðfylgjandi mynd og brúnleitt. 13.8.2010 16:48
Gylfi brunar í bæinn Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, er á leiðinni í bæinn en hann hefur verið í sumarleyfi undanfarna daga og utan símasambands. 13.8.2010 16:37
ASÍ átelur flutning farþegaflugs til Akureyrar Alþýðusamband Íslands átelur aðgerðir Isavia og Flugfélags Íslands, sem felast í flutningi farþegaflugs frá Akureyri til Húsavíkurflugvallar. 13.8.2010 16:22
Öllu flugi til Húsavíkur aflýst í dag Öllu flugi til Húsavíkur hefur verið aflýst í dag vegna verkfallsaðgerða Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á Reykjavíkurflugvelli. 13.8.2010 15:08
Búið að aflýsa fluginu - Farþegar ósáttir Flugfélag Íslands hefur ákveðið að aflýsa fyrirhuguðu flugi til Húsavíkur þar sem slökkviliðsmenn komu í veg fyrir að farþegar kæmust um borð. Næsta flug til Húsavíkur er áætlað klukkan fjögur og segjast starfsmenn vonast til þess að unnt verði að koma farþegum um borð í það flug. 13.8.2010 14:29
Jóhanna vill fá svör frá Gylfa - Ráðherrar telja hann í vondum málum Forsætisráðherra mun ekki ræða við fjölmiðla um stöðu Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra fyrr en Gylfi sjálfur útskýrir mál sitt fyrir henni, samkvæmt upplýsingum úr stjórnarráðinu. 13.8.2010 14:11
Reyna að stöðva flugfarþega á Reykjavíkurflugvelli Um fjörutíu slökkviliðsmenn eru nú á Reykjavíkurflugvelli til þess að mótmæla innanlandsflugi til Húsavíkur en þangað var Akureyrarflug dagsins fært þar sem slökkviliðsmenn fóru í verkfall í morgun. Slökkviliðsmennirnir reyna að hindra að farþegar komist um borð. 13.8.2010 13:48
Munu ekki fara út í ólöglegar aðgerðir „Meðan þeir halda sig inni á svæðinu sem slíku, teljum við okkur ekki getað gert neitt til að hindra þeirra för. Ef þeir fara út fyrir svæðið er viðbúið að við hindrum för bílsins," Anton Carrasco slökkviliðsmaður og verkfallsvörður á Húsavík. Anton er staddur á Aðaldalsfluvelli á Húsvík ásamt fimmtán til tuttugu örðum slökkviliðsmönnum. 13.8.2010 13:38
Isavia: Ekki slegið af öryggiskröfum Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia segir að ekkert sé slegið af öryggiskröfum á Aðaldalsvelli við Húsavík en þangað stendur til að vísa Akureyrarflugi dagsins vegna verkfalls Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Slökkviliðsbíll hefur verið fluttur frá Bakkaflugvelli til þess að uppfylla öryggiskröfur og munu starfsmenn Isavia manna hann. 13.8.2010 12:37
Tveggja krónu eldsneytislækkun Atlantsolía og Orkan lækkuðu bensínlítrann um tvær krónur í morgun og díselolíuna um eina krónu. Bensínlítrinn kostar nú innan við 195 krónur hjá báðum félögunum og dísellítrinn innan við 192 krónur. 13.8.2010 12:25
„Tíu þúsund lítrar eru ekki neitt“ Samtökin Beint frá býli vilja að heimild til heimaframleiðslu utan kvótakerfis í umdeildu mjólkurfrumvarpi sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra verði hækkuð úr tíu þúsund lítrum í þrjátíu þúsund. Samtökin segja að frumvarpið gangi ekki nógu langt í núverandi mynd. 13.8.2010 12:15
Verulega slegið af öryggiskröfum í Húsavíkurflugi Landssamband Slökkviliðs og sjúkraflutningamanna telur að með því að flytja gamlan slökkvibíl frá Bakkaflugvelli til Húsavíkur til þess að hægt sé að lenda á flugvelli bæjarins sé verið að slá verulega af öryggiskröfum sem alla jafna séu gerðar í farþegaflugi. 13.8.2010 12:10
Raggi Bjarna og Þorgeir í Sólheimakirkju Komið er að lokum Menningarveislu Sólheima í Grímsnesi og af því tilefni verður mikið um að vera um helgina. 13.8.2010 10:36
Blaðamenn fordæma WikiLeaks Samtökin Blaðamenn án landamæra hafa skrifað WikiLeaks opið bréf þar sem þau gagnrýna harðlega birtingu á 70 þúsund leyniskjölum bandaríska hersins um stríðið í Afganistan. 13.8.2010 09:49
Fara yfir grundvallaratriði og meta stöðuna „Við erum að fara yfir grundvallaratriði í þessum málum og ræða saman,“ segir Sverrir Björn Björnsson formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Um 70 félagsmenn hittust í Húnabúð í Skeifunni klukkan níu í morgun til að fara yfir stöðuna í samningaviðræðum en þriðja verkfall þeirra hófst klukkan átta í morgun og lýkur á miðnætti. 13.8.2010 09:32
Friðjón aðstoðar Bjarna Ben Friðjón R. Friðjónsson tekur í dag tímabundið við starfi aðstoðarmanns Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins. Sigurður Kári Kristjánsson var aðstoðarmaður Bjarna Benediktsson þar til hann tók sæti á þingi í apríl síðastliðnum. Það gerði hann þegar að Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálftæðisflokksins, tók sér leyfi frá þingstörfum á meðan sérstakur saksóknari skoðar hvort tilefni sé til að taka málefni sem snúa að peningamarkaðssjóðum bankanna til rannsóknar. Illugi var í stjórn Sjóðs 9 hjá Glitni. 13.8.2010 09:21
Skora á Gylfa að segja af sér Þingmenn Hreyfingarinnar skora á Gylfa Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, að segja af sér. 13.8.2010 09:05
Isavia samþykkir að opna flugvöllinn á Húsavík Flugfélag Íslands hefur farið þess á leit við Isavia ohf. að flugvöllurinn á Húsavík verði opnaður í dag 13.ágúst 2010 fyrir flugvélar Flugfélagsins. Isavia hefur samþykkt að verða við þessari beiðni og hefur því flutt slökkvibifreið sína frá flugvellinum á Bakka til Húsavíkur. 13.8.2010 08:05
Lögreglumenn náðu þjóf á hlaupum Lögreglumenn hlupu uppi þjóf, sem var ásamt öðrum að sniglast við verslun Bykó í kauptúni í Garðabæ í nótt. 13.8.2010 07:51
Bandarískur fangi fékk milljarð í skaðabætur Rúmlega 61 árs gamall Bandaríkjamaður sem setið hefur 24 ár í fangelsi fyrir glæp sem hann framdi ekki hefur fengið 8 milljón dollara eða rétt tæpann milljarð króna í skaðabætur. 13.8.2010 07:48
Tveir slösuðust í bílveltu, loka þurfi þjóðveginum Tveir menn slösuðust og voru fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri, eftir að bíll þeirra valt út af veginum á móts við bæinn Strjúpstaði í Húnavatnssýslu laust eftir miðnætti. 13.8.2010 07:46