Fleiri fréttir

Sjóvá gaf löggunni myndavélar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið sex myndavélar að gjöf frá Sjóvá. Gjöfin var afhent í síðustu viku í tilefni af 50 ára afmælis umferðardeildar lögreglunnar en þeim tímamótum var fagnað fyrr í sumar. Myndavélarnar koma að mjög góðum notum en þær verða notaðar við umferðarlöggæslu, að því er fram kemur á vef lögreglunnar.

Lögreglan sendi kanadískri fjölskyldu þýfi

Kanadísk hjón og dóttir þeirra urðu fyrir óskemmtilegri reynslu þegar þau heimsóttu Ísland fyrr í sumar. Brotist var inn í bíl þeirra þegar þau skoðuðu sig um í Reykjavík og úr honum var stolið ýmsum búnaði, meðal annars bakpokum þeirra og GPS-tæki. Fram kemur á vef lögreglunnar að með hjálp heiðvirðra borgara hafi lögreglumönnum tekist að endurheimta mest af búnaði þeirra og koma aftur í réttar hendur áður en Íslandsheimsókninni lauk.

Eyddu sprengju á Bolafjalli

Þyrla Landhelgisgæslunnar var send með sprengjusérfræðinga vestur á Bolafjall í gærmorgun til að eyða sprengju, sem þar fannst.

Dópaður í djúpum skít

Ökumaður reyndi í nótt að stinga lögregluna af, eftir að hún ætlaði að hafa tal af honum við venjulegt eftirlit á Nýbýlavegi í Kópavogi.

Lögreglan stöðvaði 40 ökumenn á Veiðivatnasvæðinu

Lögreglumenn frá Selfossi, í samráði við lögregluna á Hvolsvelli, stöðvaði 40 ökumenn á Veiðivatnasvæðinu í gærkvöldi vegna ábendinga um ölvunarakstur, og reyndust tveir þeirra ölvaðir, og fimmtán til viðbótar höfðu smakkað áfengi.

Norskir fjölskyldumeðlimir komnir til Grænlands til leitar

Fjórtán fjölskyldumeðlimir Norðmannanna þriggja sem saknað er við Syðri Straumsfjörð á Grænlandi eru nú komnir til Nuuk og ætla að taka þátt í leitinni að þeim tveimur Norðmönnum sem enn er saknað í svokölluðum Paradísardal.

Norska sendiráðinu í Moskvu lokað

Norska sendiráðinu í Moskvu hefur verið lokað og hafa 55 af 60 starfsmönnum þess verið fluttir heim til Noregs eða til annarra staða í Rússlandi.

Hagnaður ÁTVR þrefaldast

Hagnaður Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) í fyrra nam rúmum 1,3 milljörðum króna. Árið 2008 var hagnaðurinn 447 milljónir króna.

Tilraunaboranir á Siglufirði

Tilraunaboranir Rarik eftir heitu vatni í Skarðdal við Siglufjörð hafa gengið vel. Þetta kemur fram á siglo.is.

Lög um fjárfestingu sögð illa skrifað torf

Eignarhald útlendinga í íslenskum sjávarútvegi er orðið hitamál að nýju eftir að kínverskir fjárfestar keyptu sig inn í Storm Seafood. Lögspekingar efast ekki um að fjárfesting Storms sé lögleg. Þeir segja lögin hins vegar illa skrifað torf.

Greina Alzheimer með mænustungu

Vísindamenn í Belgíu hafa birt niðurstöður rannsókna, þar sem leitað var í mænuvökva fólks eftir ákveðnum prótínum sem grunuð eru um að eiga þátt í Alzheimersjúkdómnum.

Frosktegundir í mestri útrýmingarhættu

Hafið er viðamikið verkefni í fjórtán löndum þar sem leitast verður við að finna tegundir froskdýra sem gætu verið, eða eru, í útrýmingarhættu. Verkefnið á að standa yfir í rúma tvo mánuði.

Engin leynd yfir tölvupósti

Aðallögfræðingur Seðlabankans, Sigríður Logadóttir, segir að engin fyrirvari hafi verið gerður um notkun viðskiptaráðuneytisins á tölvupósti sem hún sendi lögfræðingi ráðuneytisins, en hann fjallaði um heimild til gengistryggingar lána og var endursögn á minnisblaði Sigríðar sama efnis.

Spaugstofan kostaði 81 milljón

Spaugstofan kostaði Ríkisútvarpið 81 milljón í hitteðfyrra samkvæmt tölum sem komu fram í sundurliðuðu svari Katrínar Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í vetur.

Þarf að auka öryggi á Geysissvæðinu

„Maður á náttúrlega að passa þetta lítil börn. Það liggur alveg fyrir því að það er þarna hiti sem vellur upp úr allskonar holum," segir Drífa Kristjánsdóttir, oddviti Bláskógarbyggðar. Geysir í Haukadal er í Bláskógarbyggð en þar slasaðist tveggja ára gömul telpa í gær þegar að hún datt í heitt vatn sem hafði fallið úr hvernum Strokki.

Berst með kjafti og klóm til að viðhalda menningarstarfi

„Ég er staðfastur í því og viss umað það verður einhver flugeldasýning í gangi," segir Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi og formaður menningar- og ferðamálaráðs, um flugeldasýninguna sem venjulegast markar endalok

Katrín: HM málið skoðað í ráðuneytinu

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra ætlar að láta skoða hvort rétt sé að skylda Stöð 2 Sport til þess að sýna leiki á HM í handknattleik í opinni dagskrá. „Það er heimild til að setja reglugerð um viðburði sem eru í opinni dagkskrá," segir Katrín.

Tæplega 130 milljónir bóka til í heiminum

Google fyrirtækið hefur unnið að því í sex ár að gera eins margar bækur aðgengilegar á veraldarvefnum og unnt er. Verkefnið hefur reynst frekar erfitt vegna umfangs þess. Bækur leynast víð, á bókasöfnum í fórum hins opinberra, á bókasöfnum og víðar.

Telja að ráðherra hafi kippt fótunum undan rækjufyrirtækjum

Starfsmenn Byggðastofnunar eru þeirrar skoðunar að landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra hafi kippti fótunum undan rekstrargrundvelli nokkurra viðskiptavina stofnunarinnar þegar hann gerði veiðar á úthafsrækju frjálsar. Þessi ákvörðun gæti þýtt að Byggðastofnun þurfi að afskrifa 1,3 milljarða króna vegna lána til fjögurra fyrirtækja.

Hægist á fjölgun örorkulífeyrisþega

Verulega hefur hægt á fjölgun örorkulífeyrisþega á þessu ári miðað við það undanfarin ári. Með örorkulífeyrisþegum er átt við þá sem skráðir eru með 75% örorku eða meira. Þetta kemur fram á vef Samtaka atvinnulífsins.

Tólf teknir fyrir ölvunarakstur

Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi.

Ráðherra greinir á um ágæti mjólkurfrumvarps

Fjármálaráðherra segist ósammála Samkeppniseftirlitinu um að mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra sé skaðlegt samkeppni. Þá greinir efnahags- og viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra á um kosti frumvarpsins, en sá fyrrnefndi er sammála sjónarmiðum Samkeppniseftirlitsins.

Jóhanna lætur kanna hæfi Bjarnveigar vegna ummæla

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hyggst kanna meint vanhæfi Bjarnveigar Eiríksdóttur til setu í nefnd sem meta á lögmæti kaupa Magma Energy á eignarhlutum í HS Orku. Bjarnveig lýsti skoðun sinni á kaupunum í fjölmiðlum nokkrum vikum áður en hún var skipuð í nefndina.

Vill að ráðherra íhlutist um að HM verði í opinni dagskrá

Páll Magnússon útvarpsstjóri beinir því til Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra að hún íhlutist um að leiki íslenska handboltalandsliðsins á komandi heimsmeistaramóti verði að sýna í ólæstri dagskrá. Í dag var tilkynnt um að mótið verði sýnt á Stöð 2 Sport en ekki í Ríkissjónvarpinu eins og venjan hefur verið.

Dópaður undir stýri með barn í bílnum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði mann um helgina en hann hafði ekið undir áhrifum fíkniefna. Barn mannsins var í bílnum að því er fram kemur í tilkynningu en ökumaðurinn hafði áður verið sviptur ökuréttindum. Alls voru fimm ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna um helgina.

Leikskólaplássum fjölgað í Norðlingaholti

Þrjátíu ný leikskólapláss verða til í Norðlingaholti um miðjan september þegar opnuð verður ný deild við leikskólann Rauðhól að Sandavaði 7, en brýn þörf er í hverfinu fyrir leikskólapláss fyrir börn sem verða tveggja ára á árinu að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Fagna merkingu erfðabreytta matvæla

Neytendasamtökin fagna þeirri ákvörðun Jóns Bjarnasonar, landbúnaðarráðherra, ætlar að setja reglugerð um merkingu erfðabreyttra matvæla. Reglugerðin mun kveða á um skyldu til að merkja sérstaklega allar matvörur sem seldar eru hér á landi og innihalda hráefni úr erfðabreyttum lífverum. Stuðst verður við samsvarandi reglur Norðmanna og mun ný reglugerð taka gildi fjótlega, með nauðsynlegum aðlögunartíma fyrir framleiðendur og söluaðila.

Vinnur gegn hagsmunum bænda og neytenda

Neytendasamtökin fullyrða að mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra vinni gegn hagsmunum bænda og neytenda. Verði frumvarpið samþykkt verður einokun fest í sessi að mati samtakanna og því vilja þau að frumvarpið verði fellt á Alþingi.

Jón vanhæfur til að skipa í embætti skrifstofustjóra

Forsætisráðherra hefur skipað Rögnu Árnadóttur dóms- og mannréttindaráðherra í stað Jóns Bjarnasonar til þess að taka ákvörðun um skipun í embætti skrifstofustjóra auðlindaskrifstofu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.

Kertafleyting á Akureyri

Samstarfshópur um frið stendur fyrir kertafleytingu á Akureyri næstkomandi fimmtudagskvöld til að minnast þess að 65 ár eru liðin frá því að kjarnorkusprengjum var varpað á japönsku borgirnar Hirosima og Nagasaki. Athöfnin verður haldin við Minjasafnstjörnina á Akureyri og hefst klukkan 22. Ávarp flytur Björn Þorláksson, bæjarlistamaður Akureyrar.

Fleygðu fimmhundruð plastgítörum yfir Heklu

Margt hefur á daga Þristsins, DC3 flugvélar Þristavina drifið þá áratugi sem vélin hefur verið á flugi en sennilega hefur hún aldrei farið í eins skrítið verkefni og á dögunum. Afraksturinn má nú sjá á Youtube og fleiri netsíðum en um er að ræða auglýsingu frá tölvuleikjaframleiðanda.

Spaugstofan hættir: Hefðu viljað kveðja áhorfendur

Spaugstofan verður ekki áfram á dagskrá Sjónvarpsins í haust vegna boðaðs niðurskurðar stjórnvalda á tekjum RÚV. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Páli Magnússyni útvarpsstjóra á vef RÚV. Karl Ágúst Úlfsson einn meðlima Spaugstofunnar segir að það hafi legið í loftinu í nokkurn tíma að þátturinn yrði lagður niður. Hann er staddur erlendis og fékk fréttirnir í hádeginu.

Sigruðu í alþjóðlegri kórakeppni í Rússlandi

Flensborgarkórinn, kór útskrifaðra nemenda frá Flensborgarskólanum, keppti í alþjóðlegri kórakeppni í Sankti Pétursborg í Rússlandi sem lauk fyrir helgi. Kórnum var boðin þátttaka og keppti í flokki blandaðra kóra sem var stærsti flokkurinn og vann fyrstu verðlaun í þeim flokki. Magnús Þorkelsson, skólastjóri Flensborgarskólans, segir í tilkynningu mikla viðurkenningu fólgna í þessum árangri.

Erfðabreytt matvæli verði merkt sérstaklega

Jón Bjarnason, landbúnaðarráðherra, hyggst setja reglugerð um merkingu erfðabreyttra matvæla. Að því er fram kemur í tilkynningu frá landbúnaðarráðuneytinu mun reglugerðin kveða á um skyldu til að merkja sérstaklega allar matvörur sem seldar eru hér á landi og innihalda hráefni úr erfðabreyttum lífverum.

Sjálfstæðismenn styðja mjólkurfrumvarp

Annar fulltrúa Sjálfstæðisflokks í landbúnaðarnefnd segist standa við stuðning sinn við mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra, en hinn segir gagnrýni á frumvarpið sem fram hefur komið ekki eiga rétt á sér. Báðir eru þeir þó sammála um að landbúnaðarnefnd þurfi að fara yfir málið í ljósi gagnrýninnar og útiloka ekki að frumvarpið taki breytingum.

Sjá næstu 50 fréttir