Innlent

Þyrla LHG sótti slasaðan sjómann í Arnarfjörð

Sjómaður á íslenskum togara féll og brotnaði illa á ökla, þegar togarinn var á siglingu út af Vestfjörðum í gærkvöldi.

Kallað var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar (LHG) og lagði togarinn af stað til móts við hana. Þau mættust á Arnarfirði, þar sem sjómaðurinn var hífður um borð í þyrluna og fluttur á Landsspítalann í Reykjavík.

Tildrög slyssins liggja ekki fyrir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×