Innlent

Sótti veikan farþega um borð í skemmtiferðaskip

Blóðþrýstingur féll niður úr öllu valdi í farþega á skemmtiferðaskipinu Aþenu, þegar skipið var út af Reykjanesi rétt fyrir miðnætti.

Skipslæknirinn óskaði eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar, en þar sem eina fullmannaða áhöfnin hafði verið lengi á vakt, var brugðið á það ráð að senda björgunarskip slysavarnafélagsins Landsbjargar til móts við skipið.

Þurfti að slaka sjúklingnum og skipslækninum marga metra niður skipssíðuna ofan í björgunarskipið. Læknirinn fylgdi manninum í land, en Þar tóku læknir og sjúkraflutningsmenn við honum og fluttu hann á Landsspítalann, þar sem hann nýtur læknishjálpar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×