Innlent

Lögreglan stöðvaði 40 ökumenn á Veiðivatnasvæðinu

Lögreglumenn frá Selfossi, í samráði við lögregluna á Hvolsvelli, stöðvaði 40 ökumenn á Veiðivatnasvæðinu í gærkvöldi vegna ábendinga um ölvunarakstur, og reyndust tveir þeirra ölvaðir, og fimmtán til viðbótar höfðu smakkað áfengi.

Magnið var hinsvegar undir sektarmörkum hjá þeim, en þeim var gert að hætta akstri. Annar þeirra sem tekin var yfir mörkunum, var talsvert ölvaður. Það þurftu því margir að verða sér úti um far í náttstað í skálum á svæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×