Fleiri fréttir

Skattahækkanir á almenning

Grískur almenningur finnur nú í vaxandi mæli fyrir kreppunni þar í landi en í dag tóku gildi skattahækkanir á matvæli og þjónustu.

Þorsteinn Pálsson: Ólga meðal flokksmanna

Óánægðir sjálfstæðismenn hafa ekki stofnað nýjan flokk eins og rætt var um eftir landsfund. Fyrrverandi formaður segir niðurstöðu landsfundar slæma og að hún þrengi möguleika Sjálfstæðisflokksins til stjórnarsamstarfs á miðju stjórnmálanna. Þá segir hann að töluverð ólga sé í Sjálfstæðisflokknum vegna niðurstöðunnar, en hann er þó ekki á leið úr flokknum. Framkvæmdastjóri flokksins segir fáa hafa sagt sig úr flokknum frá landsfundi.

Íslandsbanki skilar hagnaði

Íslandsbanki, sem er nánast að fullu í eigu erlendra kröfuhafa Glitnis, heldur áfram að skila hagnaði, en bankinn hagnaðist um 3,6 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Bankastjórinn segir bankann vel í stakk búinn að takast á við óvissu vegna dóma Hæstaréttar í bílalánsmálunum sökum sterkrar eiginfjárstöðu.

Pókerræningjar í þriggja ára fangelsi

Mennirnir fjórir sem rændu vinningspotti á pókermóti í Þýskalandi fyrr á þessu ári voru í dag dæmdir í rúmlega þriggja ára fangelsi fyrir verknaðinn. Ránsféð hefur enn ekki komið í leitirnar.

Gengislánaskuldari stal bíl af Lýsingu

Gengislánaskuldari kveðst hafa farið inn á geymslusvæði Lýsingar í nótt og dregið þaðan bíl - til tryggingar endurgreiðslu frá Lýsingu. Hann gefur Glitni 7 daga frest til að veita sér tryggingu fyrir endurgreiðslu og segist ekki ætla að láta það líðast að níðst verði á verkalýðnum til að bjarga fjármálageiranum úr kreppunni.

Festist í gröfu sem valt út í á

Grafa valt út í Sandá í Þistilfirði í dag og festist stjórnandi hennar í henni. Björgunarsveitir voru kallaðar út frá Þórshöfn, Vopnafirði og Húsavík og þá var óskað eftir aðstoð kafara.

Efast um lögmæti starfandi stjórnarformanns OR

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokknum og Vinstri grænum hafa óskað eftir því að borgarlögmaður leggi faglegt mat á lögmæti ákvörðunar um að skipa Harald Flosa Tryggvason sem starfandi stjórnarformann Orkuveitu Reykjavíkur.

Ásdís Rán í Playboy: Tugir eintaka seld í forsölu

Búið er að selja á milli 50 og 60 búlgörsk Playboy-tímarit í forsölu hjá Eymundsson en ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir mun prýða forsíðu þess. Áhuginn virðist ætla að verða gríðarlegur samkvæmt upplýsingum frá Eymundsson sem selur tímaritin á vefsíðu sinni, eymundsson.is.

Kattafár á Kársnesi: Ófrísk kona bitin og klóruð

„Ég er orðinn frekar ráðalaus, ég er búinn að prófa allt,“ segir Ari Steinarsson íbúi á Kársnesi í Kópavogi. Hann segir farir sínar ekki sléttar af kattaumgangi í íbúð sinni en hann býr á jarðhæð. Undanfarnar þrjár vikur hefur Ari, ásamt ófrískri konu sinni, vaknað að minnsta kosti fjórum sinnum við umgang í köttum í íbúð sinni.

Góð stemning þrátt fyrir rigningu

Milli fimm og sex þúsund manns eru nú í Hljómskálagarðinum á tónleikunum Inspired by Iceland. Tónleikagestir láta rigningu og rok ekki á sig fá. „Það er stemning í bæ," segir Hannes Óli Ágústsson, einn tónleikagesta, sem beið spenntur eftir að sveitin Seabear stigi á stokk.

Meirihluti almennings segir íslensk lög óskiljanleg

Meirihluti lögmanna telur að íslensk lög séu skiljanleg almenningi en aðeins fjórðungur almennings telur aftur á móti að lögin séu skiljanleg. Þetta er meðal þess sem kemur fram í mastersritgerð Söru Bjarkar Hauksdóttur um skiljanleika laga.

Strætó og fólksbifreið lentu í árekstri

Strætó og fólksbifreið lentu í árekstri í Lindarhverfinu um klukkan þrjú í dag. Lögregla og slökkvilið var kölluð á vettvang samkvæmt varðstjóra slökkviliðsins.

Leikskólar sameinaðir í Reykjavík

Fjórir leikskólar verða sameinaðar í Reykjavík í lok sumars. Þetta er gert til að nýta fjármagn betur og efla fagstarf innan leikskólanna, að sögn Ingunnar Gísladóttur staðgengils sviðsstjóra leikskólasviðs.

Tunglfiskur veiddist við Íslandsstrendur

Sjómenn á Kap VE veiddu Tunglfisk er þeir voru á Makrílveiðum um það bil 60 mílur út af Reykjanesi á dögunum. Frekar sjaldgæft er að tegundin veiðist hér við land en þeir lifa nánast einungis í hlýjum sjó.

Flestir nýnemar komast í draumaskólann

Öllum nemendum úr 10. bekk sem sóttu um að hefja nám í framhaldsskóla í haust hefur verið boðin skólavist. Betur hefur gengið að útvega öllum nýnemum skólavist en undanfarin ár vegna breytts fyrirkomulags á innritun, að því er fram kemur í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu.

Aukafjárveiting tryggir 135 ungmönnum tímabundin störf

Borgarráð samþykkti fundi sínum í morgun að veita 37,5 milljóna króna aukafjárveitingu til atvinnuskapandi verkefna fyrir 17 til 18 ára ungmenni í borginni í sumar. Auk þess var samþykkt tillaga Vinstri grænna um að veita Topp Starfi í Hinu húsinu 2,5 milljón króna til að skapa fjárhagslegt svigrúm til að ráða ungmenni með fötlun til starfa í sumar.

Lögmannsstofa keypti tónleika Baggalúts

Lögmannsstofa keypti tónleika Baggalúts sem haldnir voru í Nauthólsvík í gær á uppboði í þágu góðs málefnis, en Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, rithöfundur, sem safnað hefur fé í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi fékk hljómsveitina í lið með sér.

Fleiri taka enskupróf eftir bankahrunið

Um 260 hafa tekið TOFEL enskupróf það sem af er ári en prófið er skilyrði fyrir inngöngu í margra erlenda skóla. Eftir bankahrunið meira en þrefaldaðist fjöldi þeirra sem tóku prófið.

Lögreglumenn vilja rafbyssur

Ofbeldi gagnvart lögreglumönnum fer vaxandi. Á síðasta ári hlutu 38 lögreglumenn varanlegan skaða vegna ofbeldis sem þeir urðu fyrir við skyldustörf en árinu á undan voru þeir 29. Formaður Landssambands lögreglumanna segir að tryggja verði öryggi lögreglumanna með rafbyssum.

Umboðsmaður krefur LÍN svara

Umboðsmaður Alþingis hefur sent Lánasjóði Íslenskra námsmanna fyrirspurn vegna innheimtuaðgerða sjóðsins. Sjóðurinn stefndi skuldara og ábyrgðarmanni hans, þrátt fyrir að maðurinn hefði fengið úrskurð um heimild til greiðsluaðlögunar.

Viðbótarlífeyrissparnaður skerðir ekki námslán

Í nýjum úthlutunarreglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna fyrir skólaárið 2010-2011, sem taka gildi í dag, var sett inn ný regla vegna viðbótarlífeyrissparnaðar og gildir hún líka fyrir skólaárið 2009-2010. Reglan felur í sér að útborgun á viðbótarlífeyrissparnaði kemur ekki til skerðingar á námslánum.

Annar hluti rannsóknarskýrslu um vistheimili frestast

Eins og kunnugt er kannar vistheimilanefnd nú starfsemi vistheimilisins Silungapolls, vist­heimilisins Reykjahlíðar og heimavistarskólans Jaðars og er skýrsla nefndarinnar af því tilefni, áfangaskýrsla nr. 2, á lokastigi.

Umferðarstofa leggur línurnar fyrir eina mestu ferðahelgi sumarsins

Fyrsta helgi í júlí hefur um langt árabil verið ein mesta ferðahelgi sumarsins. Líklegt er að svo verði einnig í ár. Víða eru haldnar bæjarhátíðir sem draga að sér fjölda fólks auk þess sem fólk er að fara í sumarfrí sem hefur ferðalög í för með sér.

Bygging nýs fangelsis boðin út

Bygging nýs gæsluvarðhalds- og skammtímavistunarfangelsis verður boðin út fyrir lok september næstkomandi. Þá hefur dómsmála- og mannréttindaráðherra skipað nefnd sem ætlað er að gera tillögur að langtímaáætlun á sviði fullnustumála. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Landspítalinn: Hulda ætlar ekki að snúa aftur

Hulda Gunnlaugsdóttir forstjóri Landspítalans, sem er í ársleyfi frá störfum sínum fram í október á þessu ári, ætlar ekki að snúa aftur á spítalann og hefur sagt upp. Þetta kemur fram á heimasíðu Landspítalans en þar sendir Hulda starfsfólki spítalans kveðju í tilefni af starfslokunum. Hulda var ráðin forstjóri spítalans um miðjan október 2008 en fór svo í ársleyfi í september 2009.

Talsmaður neytenda vill lögbann á gengislán

Talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, hefur óskað eftir heimild til þess að grípa til lögbanns til varnar neytendum. Gísli hefur þegar óskað eftir heimildinni hjá dómsmála- og mannréttindaráðherra.

Kortleggur aðstæður fátækra Reykvíkinga

Velferðarráð Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu meirihlutaflokkanna um að kortleggja fjölda og aðstæður þeirra Reykvíkinga sem búa við fátækt. Hlutverk hópsins, sem verður undir formennsku séra Bjarna Karlssonar, er jafnframt að koma með tillögur um það hvernig borgin og aðrar velferðarstofnanir samfélagsins geta betur stutt þá íbúa Reykjavíkur sem búa við fátækt.

Samstarfssamningur gerður við Heimili og skóla

Mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir og formaður Heimilis og skóla, Sjöfn Þórðardóttir undirrituðu samstarfssamning í gær, þriðjudaginn 29. júní, vegna stuðnings samtakanna við foreldra skólabarna.

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig

Sjálfstæðisflokkurinn er í sókn, samkvæmt nýrri skoðanakönnun, sem Miðlun gerði fyrir Morgunblaðið. Hann fengi 34,6 prósent atkvæða ef kosið yrði nú, sem er ellefu prósentustiga aukning frá kjörfylgi úr síðustu kosningum, og væri stærsti flokkurinn á Alþingi. Vinstri grænir halda nokkurn veginn kjörfylgi sínu og mælast með 21,5 prósenta fylgi.

Herjólfur óskemmdur

Vélarbilun varð í Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi þegar skipið var að fara frá bryggju í Eyjum síðdegis í gær, og rak það stjórnlaust um stund.

Spegill spegill

Tvöþúsund bandarískar konur tóku þátt í að velja fegurstu konu tuttugustu aldarinnar fyrir sjónvarpsmarkaðsstöðina QVC.

Talibanar vissir um sigur

David Richards hershöfðingi yfirmaður breska herráðsins sagði fyrir skömmu að það gæti verið gagnlegt að ræða við talibana.

Fimmtíu milljarðar færast á neytendur

Eftirlitsstofnanir telja ófært að miða við samningsvexti þegar myntkörfulán verða endurreiknuð og mælast til að Seðlabankavextir verði viðmiðið. Samtök neytenda fordæma tilmælin og segja þau á skjön við lög um neytendavernd.

Sigraðist á sorginni í skóm látinnar móður

Guðrún Guðmundsdóttir heiðraði minningu látinnar móður sinnar með því að ganga í skóm hennar frá Reykjanestá að Fonti. Faðir Guðrúnar lést daginn fyrir upphaf eins áfangans. Fyrir hvatningu ferðafélaganna hélt hún þó sínu striki.

Fréttaskýring: Kostar 190 milljónir ef ráðherrar víkja

Verði tillaga flokksstjórnar Samfylkingarinnar samþykkt og ráðherrar víkja af þingi kostar það 190 milljónir króna árlega. Kostnaður minnkar ef ráðherrum fækkar. Þá þarf að gjörbreyta þingsalnum því þröngt er um þingmenn núna.

Njósnamálið: Minnir á löngu liðna tíma

Rússarnir tíu sem handteknir voru í Bandaríkjunum um helgina hafa verið ákærðir fyrir að skrá sig ekki sem erindreka erlends ríkis. Hámarksrefsing við því broti er fimm ára fangelsisvist. Sá ellefti, sem var handtekinn á Kýpur, er ákærður fyrir að hafa árum saman komið peningum til hinna tíu.

Nemendur koma vanbúnir í háskóla

Brottfall nemenda úr Háskóla Íslands (HÍ) er óviðunandi, segir Kristín Ingólfsdóttir, rektor skólans. Hún segir að svo virðist sem ein af ástæðunum fyrir brottfallinu sé að nemendur komi ekki nægilega vel undirbúnir úr framhaldsskólum.Hún segir ástæðu til að skoða námsframboð í skólunum.

Walesverjar rannsaka gjósku

Rannsóknir á ösku frá Eyjafjallajökli eru nú stundaðar í Snowdon þjóðgarðinum í Wales sem dregur nafn sitt af hæsta fjalli landsins. Vísindamenn safna þar gras- og regnvatnssýnum í þeim tilgangi að meta umhverfisáhrif öskufallsins á svæðinu.

Sjá næstu 50 fréttir