Þorskkvótinn verður aukinn - útvegsmenn vilja meira 16. júlí 2010 18:33
Þorskkvótinn verður aukinn um 10 þúsund tonn á næsta fiskveiðiári samkvæmt ákvörðun sjávarútvegsráðherra sem kynnt var í dag. Útvegsmenn telja að hægt sé auka kvótann um þrjátíu þúsund tonn. Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra kynnti í dag ákvörðun um heildaraflamark fyrir komandi fiskveiðiár en ráðherra fylgir í meginatriðum ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar. Þorskkvótinn verður aukinn um tíu þúsund tonn - og fer úr 150 þúsund tonnum í 160 þúsund tonn. krónum talið er þessi aukning metin á fjóra milljarða. Karfa er í fyrsta sinn skipt í gullkarfa og djúpkarfa en heildarkvóti minnkar um tíu þúsund tonn milli ára. Ýsukvóti minnkar um 13 þúsund tonn en fram kemur í skýrslu Hafró að margt bendi til þess að stofninn eigi nú undir högg að sækja. Hvað ufsa varðar helst kvótinn óbreyttur milli ára en hækkar um eitt þúsund tonn í grálúðu. Sjávarútvegsráðherra á von á því að hægt að verði að auka þorskkvótann enn frekar á næstu árum. „Rannsóknir hafrannsóknarstofnunar sýna að stofninn er í örum vexti og hrygningarstofninn vex hraðar en áætlanir gerðu ráð fyrir þannig að ef allt gengur að óskum eins og nú stefnir í þá á ég von á því að við fáum aukningu í þorskveiðum en það er jafn mikilvægtt að ganga fram að varúð en það er vissulega ánægjuefni hvernig þorskstofninn er að vaxa," segir Jón. Í þessu ljósi hefur ráðherra ákveðið að koma á fót samráðsvettvangi stjórnvalda og hagsmunaaðila til að meta hvort breyta þurfi aflareglum í þorski. Útvegsmenn fagna þessari ákvörðun en þeir telja að núverandi reglur takmarki eðlilega nýtingu þorskstofnsins. „Við teljum að það sé óhætt að veiða þónokkuð meiri þorsk og okkar afstaða er sú að það hefði átt að veiða að minnsta kosti 180 þúsund tonn á næsta fiskveiðiári," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. - Þolir stofninn að ykkar mati mun meiri veiði? „Já það er málið. við teljum að það sé engin áhætta tekin með því að veiða meira," segir Friðrík. „Auðvitað eru mörk á því og við ætlum ekki að fara óvarlega í því en við teljum að þessi aflaregla sem nú er við teljum að hún sé alltof knöpp," segir Friðrik.
Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Fleiri fréttir Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Sjá meira