Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Krefja fjármögnunarfyrirtæki um aðgerðir Samtök iðnaðarins hafa sent fjármögnunarfyrirtækjum opið bréf þar sem krafist er aðgerða vegna dóms Hæstaréttar í gengismálinu svokallaða. Samtökin gera þá kröfu að höfuðstólar verði lækkaðir eða lán greidd til baka. 24.6.2010 14:55
Málning skemmir bíla á Suðurlandsvegi „Við erum hérna þrír ökumenn og erum alveg gáttaðir," segir Smári Örn Árnason sem var að keyra Suðurlandsveginn í átt að að Selfossi þegar hann keyrir í málningu sem slettist á veginn úr fötu rétt áður komið er að Litlu-Kaffistofunni. Smári Örn segir að bíllinn hans sé óökufær og sé búinn að bíða eftir lögreglunni í tvo klukkutíma. 24.6.2010 14:15
Segir lánveitendur undirbúa greiðsluseðla með seðlabankavöxtum „Þeir ætla greinilega í stríð,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, á Alþingi í dag þar sem rætt var um áhrif dóms Hæstaréttar um gengistryggingar sem voru dæmdar ólögmætar fyrr í mánuðinum. 24.6.2010 14:15
Gengislánin: Vildi ekki lögfræðiálit Viðskiptaráðherra taldi ekki ástæðu til að fá lögfræðiálit á gengistryggðum lánum þar sem málið væri fyrir dómstólum. Eygló Þóra Harðardóttir, þingkona Framsóknarflokksins, gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir andvaraleysi. 24.6.2010 14:07
Ríkisstjórnin ætlar að bíða eftir dómi vegna óvissuþátta í gengismáli Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á þingi í dag um áhrif dóms Hæstaréttar á gengistryggðum lánum að það væri mikilvægt að úr óvissunni yrði skorið fyrir dómstólum. Hún segir stjórnvöld ekki ætla að aðhafast fyrr en dómstólar hafa skorið úr um óvissuþætti eins og hvaða vexti lánin eigi að bera. 24.6.2010 13:56
Tekist á um Orkuveituna í borgarráði Minnihlutinn í borgarráði Reykjavíkur mótmælir harðlega þeirri tillögu að stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur verði gerður að starfandi stjórnarformanni og verði þannig hluti af launuðu stjórnendateymi fyrirtækisins. Gangi tillagan eftir fær stjórnarformaðurinn, Haraldur Flosi Tryggvason um 920 þúsund krónur í mánaðarlaun. 24.6.2010 13:37
Sakar Jón Gnarr um pólitískar ráðningar "Jón Gnarr hefur sagst opinberlega ætla að hætta pólitískum ráðningum og draga úr yfirbyggingu. Þess vegna er það undarlegt að meirihlutinn skuli taka þessa ákvörðun," segir Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri Grænna, um umdeilda ákvörðun meirihlutans að ráða Harald Flosa Tryggvason sem starfandi stjórnarformann Orkuveitunnar. 24.6.2010 13:20
Ákvað varaformannsframboð á hlaupum í Laugardal Lára Óskarsdóttir íslenskukennari ætlar að bjóða sig fram til varaformanns Sjálfstæðisflokksins á móti Ólöfu Nordal á landsfundinum sem verður haldinn um helgina. Hún segist hafa tekið ákvörðunina þegar hún var að hlaupa í Laugardalnum nýlega og tjáði fjölskyldu sinni í morgun frá framboðinu. 24.6.2010 13:13
Styðjum veiðar Grænlendinga Tómas H. Heiðar, aðalfulltrúi Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu, segir andrúmsloftið á ársfundi ráðsins gott þrátt fyrir að sáttaumleitan um takmarkaðar veiðar hafi ekki verið samþykkt í gær. Í dag liggur fyrir tillaga Grænlendinga um aukin kvóta til hnúfubaksveiða. Tómas segir Íslendinga styðja Grænlendinga heilshugar. 24.6.2010 12:42
Hægt að koma málum fyrir dóm án lagabreytinga Dómsmálaráðherra, Ragna Árnadóttir, telur ekki þörf á sérstakri flýtimeðferð einkamála eins og Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði til á þingi í morgun. 24.6.2010 12:38
Sveinn Andri: Ástæða til að óttast klofning í Sjálfstæðisflokknum Sjálfstæðismenn hafa ástæðu til að óttast klofning flokksins verði tillaga um að Ísland dragi umsókn sína um aðild að Evrópusambandinu til baka borin upp á landsfundi flokksins um helgina. Þetta segir Sveinn Andri Sveinsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna. 24.6.2010 12:17
Jón Gnarr: Verð bara í jakkafötum við sérstök tilefni Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík hefur ákveðið að ganga aðeins í jakkafötum við sérstök tilefni. Þetta segir hann í dagbók sinni sem hann heldur úti á fésbókinni. Þar segir hann einnig að hann hafi heimsótt Fjölskylduhjálp Íslands sem og Konukot í gær og „fundað um allskonar". 24.6.2010 12:16
Eðlan svæfð í morgun Meters-langa eðlan, sem fannst í húsgarði á Selfossi í gærkvöldi, var aflífuð í morgun. Lögreglan fann eðluna og kom fundurinn lögreglunni í opna skjöldu, enda óárennilegt kvikindi viti maður ekkert um það. 24.6.2010 12:05
Gekk með öxi og stal kardimommudropum og bikiní Fimmtugur karlmaður var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að stela fjórum glösum af kardimommudropum og bikiní. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir að bera öxi á almannafæri þar sem hann gekk eftir Hverfisgötunni í janúar síðastliðnum. 24.6.2010 11:29
Heimdallur vill ekki ríkisafskipti vegna dómsins Stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hvetur stjórnvöld til þess að sitja á sér með afskipti af svokölluðum myntkörfulánum og samningum þess efnis í kjölfar dóms Hæstaréttar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem félagið hefur sent fjölmiðlum. 24.6.2010 10:39
Vill að gengistryggingarmál fái flýtimeðferð Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur ásamt fleiri þingmönnum Sjálfstæðisflokksins lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á lögum um meðferð einkamála sem tryggja að mál sem varða gengistryggð lán og álitaefni þeim tengd fái flýtimeðferð í dómskerfinu. 24.6.2010 10:35
Sveitastjóri blæs á lygasögur Gengið verður til kosninga í Reykhólahreppi þann 24. júlí næstkomandi. Endurtaka þarf kosningarnar vegna mistaka sveitastjórans en það láðist að senda íbúum Flateyjar upplýsingar um sveitastjórnarkosningarnar á dögunum. Sveitastjórinn blæs á sögur þess efnis að hann hafi þegar sótt um aðra sveitastjórastöðu. 24.6.2010 10:31
„Þau geta bara vandræðast með þessar undirskriftir innanhúss“ Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, fékk rúmlega 700 undirskriftir mótmælenda við yfirlýsingu um árásir á alþingi afhentar í morgun. Ásta Ragnheiður fékk undirskriftirnar afhentar úr höndum Ragnheiðar Ástu, fyrrum þulu RÚV, en Ásta Ragnheiður hitti þrjátíu manna hóp fyrir utan Alþingishúsið. 24.6.2010 09:49
Orkan sektuð fyrir auglýsingu Orkan hefur verið sektuð af Neytendastofu vegna auglýsinga fyrirtækisins. Alls þarf Orkan að greiða 600 þúsund krónur í stjórnvaldssekt. Neytendastofu barst kvörtun frá Olíuverslun Íslands vegna fullyrðinga í auglýsingum Bensínorkunnar sem rekur bensínstöðvar Orkunnar. 24.6.2010 09:42
Bensínbetlarinn náðist á eftirlitsmyndavél í Reykjanesbæ Svonefndur bensínbetlari hefur nú náðst á eftirlitsmyndavél bensínstöðvar í Reykjanesbæ. 24.6.2010 07:55
Um 40% námsmanna prófa hass í sumarfríum sinum Ný rannsókn í Bandaríkjunum leiðir í ljós að um 40% námsmanna undir tvítugu í Bandaríkjunum prófar að reykja hass í skólafríum sínum yfir sumartímann. 24.6.2010 07:26
Tveir þekktir innbrotsþjófar handteknir í Hlíðunum Tveir þekktir innbrotsþjófar voru handteknir í Hlíðahverfi í Reykjavík undir morgun. 24.6.2010 07:23
Kona í fyrsta sinn orðin forsætisráðherra Ástralíu Kona er orðin forsætisráðherra Ástralíu í fyrsta sinn í sögunni. Hún heitir Julia Gillard og tekur við embættinu af Kevin Rudd. 24.6.2010 07:21
Alvarlegt lestarslys á Spáni, 12 manns fórust Að minnsta kosti 12 manns fórust í alvarlegu lestarslysi suður af Barcelóna á Spáni um skömmu fyrir miðnætti í gærkvöldi. Nokkrir aðrir eru alvarlega slasaðir. 24.6.2010 07:16
Fundu nær meterslanga eðlu í garði á Selfossi Tæplega meters löng eðla, sem lögreglunni á Selfossi var vísað á í húsagarði í bænum í gærkvöldi, verður væntanlega aflífuð í dag. 24.6.2010 07:05
Hvetja fólk til að taka fjármuni sína út úr bönkunum Samtök lánþega hvetja innistæðueigendur í bönkunum til að taka fjármuni sína út úr bönkunum og koma þeim í betra og öruggara skjól. 24.6.2010 06:52
Vilja starfandi stjórnarformann Nýr meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar í Reykjavík mun leggja til að Haraldur Flosi Tryggvason verði starfandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR), samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Það þýðir að hann mun gegna formennsku í fullu starfi á hærri launum en fyrrum formenn. 24.6.2010 06:30
Fréttaskýring: Um hvað snúast fundahöld stjórnmálaflokka um helgina? Landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður haldinn um helgina, auk flokksráðsfunda Samfylkingarinnar og Samfylkingarinnar. Á fundunum verður meðal annars rætt um niðurstöður rannsóknarskýrslu Alþingis og niðurstöðu sveitarstjórnarkosninganna, þar sem allir hefðbundir flokkar töpuðu fylgi frá kosningunum fyrir fjórum"arum. 24.6.2010 06:00
Kennslu í ritmáli ábótavant Tæpur þriðjungur nemenda í Háskóla Íslands (HÍ) telur sig vanbúinn að skrifa ritgerðir eða skýrslur þegar í HÍ er komið. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem unnin var í HÍ. 24.6.2010 06:00
Fiskarnir synda á ný í Vesturbæjarlaug Hulunni var svipt af forláta fiskabúri í anddyri Vesturbæjarlaugar í gær. Mímir, vináttufélag Vesturbæjar, stóð fyrir söfnun meðal íbúa Vesturbæjar og í gær varð afraksturinn öllum ljós. 24.6.2010 06:00
Barði í höfuð með skiptilykli Ríkissaksóknari hefur ákært mann á fertugsaldri fyrir að berja annan mann með skiptilykli. 24.6.2010 06:00
Skólar búa námsfólk misvel undir háskóla Nemendur úr framhaldsskólum telja sig misvel búna undir háskólanám eftir því í hvaða skóla þeir stunduðu nám. Nokkrir skólar skera sig úr og nemendur þeirra virðast betur undirbúnir. 24.6.2010 06:00
Íslendingar til fyrirmyndar Þjóðarátakinu „Til fyrirmyndar“ verður hleypt af stokkunum í dag með opnun heimasíðunnar tilfyrirmyndar.is. 24.6.2010 05:15
Földu lyf og efni í bifreið Lögreglan á Selfossi handtók tvo karlmenn og eina konu síðastliðinn föstudag vegna gruns um tilraun til að smygla lyfjum og öðrum efnum inn í fangelsið á Litla-Hrauni. Aðferðin fólst í því að fela efnin í bifreið sem annar karlmannanna hafði ætlað að láta bóna og þrífa á Litla-Hrauni. 24.6.2010 05:00
Kosið aftur í Reykhólahreppi Kosið verður á ný í Reykhólahreppi laugardaginn 24. júlí. Kosningin fer fram í skrifstofum sveitarfélagsins að Reykhólum. 24.6.2010 04:45
Metfjöldi ungmenna fær vinnu Aldrei áður hafa jafnmörg ungmenni fengið vinnu við Jafningjafræðslu Hins hússins en alls fengu nítján ungmenni á aldrinum 17 til 21 árs vinnu í sumar. Þessi störf eru gríðarlega eftirsóknarverð hjá ungu fólki en árlega sækja um 400 til 500 ungmenni um störfin. 24.6.2010 04:15
Mikill áhugi á jurtalituninni Gríðarlegur áhugi er á jurtalitun um þessar mundir. „Það er algjör sprenging í jurtalitun. Við finnum fyrir gríðarlegum áhuga," segir Þorgerður Hlöðversdóttir textíllistakona. 24.6.2010 04:00
Bætt aðgengi að Gunnuhver Opnað var fyrir aðgengi ferðamanna að Gunnuhver í landi Grindavíkurbæjar í gær. Síðustu tvö ár hefur svæðið verið lokað. 24.6.2010 03:45
Hart sótt að forsætisráðherra Ástralíu Í fyrramálið fer fram leiðtogakjör í ástralska Verkamannaflokknum eftir að Julia Gillard, lýsti yfir mótframboði gegn, forsætisráðherranum Kevin Rudd sem er núverandi formaður flokksins. Talið er að Gillard mun bera sigur úr býtum en dregið hefur mjög úr vinsældum Rudd að undanförnu meðal almennings og innan Verkamannaflokksins Sigri Gillard verður hún fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra Ástralíu. 23.6.2010 23:15
Stjórnsýslufræðingur: Það á ekki að bjarga fjármálafyrirtækjunum „Mér sýnist ef að stjórnvöld ætla að grípa hér inn í og taka ákveðið högg af lögbrjót, sem eru fjármálafyrirtækin, þá eru þau á mjög hættulegri braut," segir Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, stjórnsýslufræðingur. 23.6.2010 22:02
Staðan furðugóð miðað við samdrátt Almennt er staða á biðlistum eftir skurðaðgerðum á sjúkrahúsum og læknastofum góð ef miðað er við sama tímabil fyrir ári. Þó eru þar undantekningar á, svo sem vegna gerviliðaaðgerða á hné, að því er fram kemur á vef landlæknisembættisins. 23.6.2010 21:23
Petraeus tekur við í Afganistan Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hefur tilkynnt að hershöfðinginn David Petraeus verði eftirmaður Stanley McChrystal sem yfirmaður fjölþjóðahersins í Afganistan. Obama rak McChrystal í dag vegna gagnrýni hans á framgöngu ríkisstjórnar Obama í Afganistan. Í viðtali við Rolling Stone gagnrýndi hann Obama og ýmsa áhrifamenn. 23.6.2010 23:00
„Lánþegar hafa mátt þola nóg“ „Samræður aðila eru fyrsta skref í átt að lausn. Einhliða ákvarðanir stjórnvalda og þeirra sem Hæstiréttur dæmdi brotlega er hvorki lögleg leið, né réttlát eða leið til sátta,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu frá Hagsmunasamtökum heimilanna, Samtökum lánþega og talsmanni neytenda. 23.6.2010 21:14
Ræðir um hindurvitni og hnignun skynseminnar „James er þekktur fyrir að afhjúpa miðla og svikahrappa. Í erindi sínu mun hann fjalla um hindurvitni og hnignun skynseminnar," segir Sigurður Hólm Gunnarsson hjá Siðmennt, félagi siðrænna húmanista á Íslandi, um heimsókn Bandaríkjamannsins James Randi til Íslands. 23.6.2010 20:41
Þór Saari: Þeir gengu alveg fram af mér „Þeir gengu alveg fram af mér og að ég held flestum fundarmönnum með afstöðu sinni til þessara dóma og með afstöðu sinni til almennings í landinu. Mér líst miklu verr á stöðuna eftir þennan fund þó hann hafi vissulega verið upplýsandi,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar. 23.6.2010 20:08