Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Palin: Umhverfisverndarsinnar bera ábyrgð á olíulekanum Sarah Palin, varaforsetaefni Repúblíkana í síðustu forsetakosningum, segir að umhverfisverndarsinnar beri ábyrgð á olíulekanum á Mexíkóflóa. Andstaða þeirra við olíuboranir á landi hafa neytt stjórnvöld og einkafyrirtæki til ráðast í afar áhættusöm verkefni á miklu dýpi, að mati Palin. Hún kom þessum skilaboðum á framfæri í gegnum Facebook. 6.6.2010 06:30
Leigubílstjórinn skildi ekki eftir sjálfsmorðsbréf Rannsóknarlögreglan í Bretlandi segir að leigubílstjórinn Derrick Bird sem skaut 12 manns til bana á miðvikudaginn hafi ekki skilið eftir sjálfsmorðsbréf eða lista yfir hugsanleg skotmörk. 5.6.2010 22:45
Ísraelskur ráðherra: Erum ekki í stríði við friðarsinna „Við erum ekki í stríði við þessa friðarsinna,“ segir Isaac Herzog, ráðherra í ríkisstjórn Ísraels. 5.6.2010 21:15
Guðlaugur fyrir fjórum árum: Hóflegur kostnaður Kostnaðurinn við prófkjör Guðlaugs Þórs Þórðarsonar fyrir fjórum árum var hóflegur, sagði hann sjálfur daginn eftir prófkjörið. Hann birti í gær yfirlit yfir styrki sem hann þáði vegna prófkjörsins. 5.6.2010 19:45
Getur tekið á móti 160 leikskólabörnum fyrir ísbjarnarfé Það mun kosta miklu meira en 250 milljónir króna að koma ísbirni fyrir í Húsdýragarðinum. Þetta segir forstöðumaður Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, um hugmyndir verðandi borgarstjóra. Formaður Samtaka sjálfstæðra skóla bendir á að fyrir sömu upphæð gæti borgin tekið á móti 160 börnum í leikskóla. 5.6.2010 18:48
Töluðu um launakjörin Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ræddu um væntanleg launakjör Más í júní í fyrra áður en hann tók við sem seðlabankastjóri. Þetta kemur fram í tölvupóstsamskiptum Más við forsætisráðuneytið, sem Morgunblaðið hefur fengið aðgang að, að hluta og birt er á vef blaðsins. 5.6.2010 20:38
Fjórir Íslendingar skipta um kyn næstu tvo daga Fjórar manneskjur gangast undir svokallaða kynskiptiaðgerð á morgun og á mánudag á Landspítalanum. Málið er umdeilt þar sem aðgerðirnar þykja dýrar á niðurskurðartímum. 5.6.2010 18:53
Um 900 Kópavogsbúar strikuðu Gunnar út Alls var 1483 atkvæðum sjálfstæðismanna í Kópavogi breytt eða 36% þeirra atkvæða sem flokkurinn fékk í kosningunum fyrir viku. Samtals var 1745 atkvæðum í Kópavogi breytt ýmist með því að strika út nöfn frambjóðenda eða með því að færa þá til um sæti. 5.6.2010 16:39
Fyrsti vinningur gekk ekki út Enginn var með allar tölurnar réttar í lottóinu í kvöld. Þrír voru með fjórar tölur réttar auk bónustölurnar og fá vinningshafarnir tæpar 78 þúsund krónur í sinn hlut. 5.6.2010 19:38
80 hjól seldust á uppboði lögreglunnar Rúmlega 50 þúsund krónur fengust fyrir dýrasta hjólið á árlegu hjólauppboði lögreglu höfuðborgarsvæðisins í dag. 80 hjól seldust á uppboðinu, minnst fengust þúsund krónur fyrir barnahjól. 5.6.2010 19:17
Óttast að íslenskar matvöruhefðir leggist af Við þurfum að nýta okkur hefðbundinn íslenskan mat; skyr, hangikjöt, harðfisk og fleira til að auka vinsældir hans. Þetta segir talsmaður Slow food á Íslandi sem óttast að framleiðsla á þessum matvörutegundum leggist af. 5.6.2010 19:08
Fjölsóttur fjölskyldudagur | Myndir Fjölskyldudagur Ungmennafélags Íslands var haldinn við rætur Miðfells í Hrunamannahreppi í dag. Dagurinn var fjölsóttur en um 300 manns skemmti sér hið besta í blíðskaparveðri og 20 stiga hita. 5.6.2010 18:03
Dögun sigraði Siglingamót Brokeyjar á Hátíð hafsins fór vel í dag og sigraði skútan Dögun. Keppnin var svo ræst með fallbyssuskotum af varðskipsbryggjunni klukkan 14:15. 5.6.2010 17:59
Mótmæltu aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar Um tuttugu Akureyringar mótmæltu aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar og alþjóðasamfélagsins vegna aðgerða Ísraela þegar ráðist var á skipalest með hjálpargögn á leið til Gazasvæðsins fyrr í vikunni. Á sama tíma kom hópur fólk saman við Akureyrarkirkju og krafist aðskilnaðar ríkis og kirkju. 5.6.2010 16:24
Ók yfir kant og ofan á bíl Óvenjuleg sjón blasti við íbúum í Engjaseli í Reykjavík í morgun þegar í ljós kom að bíl hafði verið ekið yfir kant sem staðnæmst ofan á bíl á bílastæðinu. 5.6.2010 16:02
„Þjóðin vill breytingar og þarf breytingar“ Ágúst Einarsson lét af störfum sem rektor Háskólans á Bifröst í dag. Í sinni síðustu útskriftaræðu gagnrýndi hann stjórnvöld harðlega og sagðist vilja nýtt lýðveldi og beina kosningu framkvæmdavaldsins. 5.6.2010 15:19
Rofar til seinnipartinn Skyggni yfir Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu hefur lítið breyst frá því morgun en talið er að það muni rofa til seinnipartinn. Líkt og undanfarna daga liggur aska yfir nágrenni Eyjafjallajökuls og höfuðborgarsvæðinu, en þó í mun minni mæli en í gær að sögn Hrafns Guðmundssonar, veðurfræðings hjá Veðurstofunni. Hann segir erfitt að spá fyrir um dreifingu öskunnar. 5.6.2010 15:15
Tveir breskir hermenn féllu í Afganistan Tveir breskir hermenn létu lífið í átökum við talibana í Helmandhéraði í suðurhluta Afganistan í gær. Alls hafa 292 breskir hermann fallið í Afganistan síðan stríðið hófst árið 2001. 5.6.2010 14:19
Ólafur: Jón þarf að leggja mikið á sig til að verða betri en ég Ólafur F. Magnússon, fráfarandi borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri, segist ætla gefa meirihluta Besta flokksins og Samfylkingarinnar tíma til að sanna sig. Ólafur segir að Jón Gnarr þurfi að leggja mikið á sig til að verða betri borgarstjóri enn hann hafi verið. 5.6.2010 13:57
Áfram í varðhaldi vegna innbrota í tugi sumarbústaði Tveimur ungum mönnum sem hafa verið í gæsluvarðhaldi grunaðir um að hafa brotist inn í tugi sumarbústaði í Grímsnesi, Borgarfirði, Dölunum og á Þingvöllum í maí hefur verið sleppt úr haldi. Þriðji maðurinn, sem jafnframt er sá elsti hópnum verður haldið lengur í gæsluvarðhaldi vegna hagsmuna rannsóknarinnar en einangrun hefur verið aflétt, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi. Fjórði aðilinn, sem er 15 ára, hefur alfarið verið undir umsjón barnaverndaryfirvalda. 5.6.2010 13:49
Blendnar tilfinningar „Það er gott að hrista upp í hlutunum,“ segir Halldóra Geirharðsdóttir, leikkona, sem fékk í gær þrjár tilnefningar til Grímuverðlauna. 5.6.2010 13:26
Boða til mótmæla á Ráðhústorginu Hópur Akureyringa ætlar að koma saman á Ráðhústorginu klukkan tvö á eftir og mótmæla aðgerðarleysi íslensku ríkisstjórnarinnar og alþjóðasamfélagsins í garð ofbeldis og kúgunar Ísraelsmann á Gazasvæðinu, líkt Sóley Björk Stefánsdóttir einn skipuleggjanda mótmælanna orðar það. 5.6.2010 13:20
Flugvélar til sýnis Flugvélar af ýmsum stærðum og gerðum verða til sýnis á Reykjavíkurflugvelli í dag þar sem Flugdagurinn er haldinn frá hádegi til klukkan fjögur. 5.6.2010 12:24
Vísindamenn fylgjast með óróanum í Eyjafjallajökli Órói í eldstöðinni í Eyjafjallajökli var nokkur frá miðnætti í nótt. Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur, segir að jarðvísindamenn fylgist vel með svæðinu enda hafi óróinn varað lengur en í fyrstu var búist við. 5.6.2010 12:19
Erfitt að spá fyrir um framhaldið Skyggni yfir Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu er mun betra í dag en það var í gær, búast má við því að enn rofi til seinni partinn í dag. Veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir þó afar erfitt að spá fyrir um framhaldið þar sem aðstæður líkt og þær sem Eyjafjallajökull hefur skapað séu nær óþekktar. 5.6.2010 12:14
Hermenn komnir um borð í hjálparskipið Ísraelski sjóherinn hefur ráðist um borð í skip friðarsinna sem var á leið með birgðir til Gaza og siglir því nú til Ashdod Port, sem er helsta lestunarhöfn í Ísrael. Ekkert hefur heyrst frá friðarsinnunum frá því Ísraelsher tók skipið yfir. Samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar hafði skipið Rachel Corrie ekki svarað fjórum skipunum hersins um að leggjast að bryggju í Ísrael. 5.6.2010 10:21
Meintur morðingi í haldi Lögreglan í Belgíu hefur handtekið mann sem hún hefur grunaðan um að hafa skotið dómara og aðstoðarmann hennar til bana þegar þau voru að koma úr réttarsal í Brussel á fimmtudagsmorgun. 5.6.2010 10:13
Ísraelar reyna að stöðva för friðarsinna Ísraelski sjóherinn reynir nú að stöðva för friðarsinna um borð í hjálparskipi á leið til Gaza. Samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar hefur skipið Rachel Corrie ekki svarað fjórum skipunum hersins um að leggjast að bryggju í Ashdod Port, sem er helsta lestunarhöfn í Ísrael. 5.6.2010 09:59
Enn órói í Eyjafjallajökli Órói í eldstöðinni í Eyjafjallajökli var nokkur frá miðnætti í nótt. Þetta kemur fram á vefsíðu Veðurstofu Íslands, samkvæmt upplýsingum þaðan frá því í morgun virðist einhver mökkur stíga upp frá jöklinum en mjög lítill, hugsanlega hefur kvika komið upp úr gosgígnum en við það myndast sprengingar og mökkur. Ekki séu þó líkur á að gos sé aftur að hefjast. 5.6.2010 09:54
Allir kátir í Grindavík Skemmtanahald á sjómanna- og fjölskylduhátíðinni Sjóarinn síkáti í Grindavík hefur farið vel fram að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum. Tveir þurftu þó að gistu fangageymslur lögreglu vegna ölvunar í nótt. Mikill fjöldi fólks er saman kominn í bæjarfélaginu og fylltist tjaldstæðið snemma í gær. 5.6.2010 09:51
Sló mann í höfuðið með felgulykli Tveimur mönnum sinnaðist á tjaldstæði í umdæmi Borgarneslögreglunnar með þeim afleiðingum að annar sló hinn í höfuðið með felgulykli. Sá leitaði sér aðstoðar á sjúkrahúsinu á Akranesi. Maðurinn var með skurð á höfði en áverkar voru minni háttar. Árásaraðilinn var á bak og burt þegar lögregla kom á vettvang. 5.6.2010 09:46
Fimm líkamsárásir í Reykjavík Fimm líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Ekki er vitað til þess að þær hafi verið alvarlegar. Nóttin var nokkuð erilsöm í umdæminu án þess að stór mál hafi komi upp. Sjö voru teknir fyrir grun um ölvunar- eða vímuakstur, þrjú eignaspjöll voru tilkynnt auk fimm innbrota og þjófnaða. 5.6.2010 09:39
Tveir 16 ára í einangrun á Litla-Hrauni Tveir sextán ára piltar, sem grunaðir eru um yfir 80 innbrot í Grímsnesi, Borgarfirði, Dölunum og á Þingvöllum í maí, eru nú vistaðir í einangrunarklefum á Litla-Hrauni. Þar hafa þeir verið í rúma viku og verða fram á þriðjudag hið minnsta. 5.6.2010 08:00
Ómar saknar ekki hins gamla „Mér líst mjög vel á þetta enda komnir litlir og öflugir farsímar sem draga langt,“ segir fjölmiðlamaðurinn Ómar Ragnarsson og bætir við að hann sakni ekkert sérstaklega NMT-farsímakerfisins, það nýja sé betra. Síminn slekkur endanlega á NMT-kerfinu 1. september næstkomandi og tekur langdræga 3G-netið þá við. 5.6.2010 07:30
Meintur gerandi í geðrannsókn Rúmlega fimmtugur karlmaður sem lést af mannavöldum í maí í Reykjanesbæ var látinn á vettvangi þegar lögregla kom á staðinn, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Áverkar voru á honum. 5.6.2010 07:30
Fangar vinni við að rækta skóg Unnið er að því að útvega tveimur til þremur föngum úr fangelsinu á Bitru vinnu við skógrækt á jörðinni. 5.6.2010 07:00
Ók yfir tvo erlenda ferðamenn í tjaldi Tveir erlendir ferðamenn voru fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur eftir að bíll hafði ekið yfir tjald þeirra á Patreksfirði nóttina áður. Mennirnir eru ekki alvarlega slasaðir. 5.6.2010 06:30
Stefna að sameiningu við Garðabæ Þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkur hafi fjóra af sjö bæjarfulltrúum á Álftanesi og þar með meirihluta í bæjarstjórn hefur flokkurinn myndað meirihluta með bæjarfulltrúa Framsóknarflokks og bæjarfulltrúa L-lista. 5.6.2010 06:00
Kemur sér upp öskunemum Breska flugfélagið EasyJet hyggst setja sérstakan búnað í flugvélar sínar sem getur numið öskuský frá eldfjöllum. 5.6.2010 06:00
Hvers vegna Æsufell? Bæði Jón Gnarr og Dagur B. tengjast Æsufelli 4. Óskar Kristinsson, eini bróðir Jóns, hefur búið þar um margra ára skeið og voru kynningarmyndbönd Besta flokksins tekin á þaki blokkarinnar. Óskar var litla bróður sínum innan handar vegna fundarins í gær. Systir Jóns, sem búsett er í Noregi, var gestkomandi hjá Óskari þegar oddvitar flokkanna kynntu samstarfið. 5.6.2010 06:00
Enn er fundað í Firðinum „Við erum langt komin með málefnasamning og reiknum með að boða til félagsfundar í byrjun næstu viku,“ segir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, oddviti VG í Hafnarfirði. 5.6.2010 06:00
Hafa stöðvað mesta lekann Seigfljótandi olía barst á norðvesturstrendur Flórídaskaga í gær, hálfum öðrum mánuði eftir að sprenging varð í olíuborpalli BP í Mexíkóflóa. 5.6.2010 06:00
Ætla að mynda hægristjórn Vaclav Klaus, forseti Tékklands, fól Petr Necas, leiðtoga íhaldsmanna, að mynda stjórn í landinu í gær, nærri viku eftir að þingkosningar voru haldnar. 5.6.2010 05:00
Eftirlaunaaldur kvenna of lágur Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins krefst þess að ítölsk stjórnvöld hraði hækkun eftirlaunaaldurs kvenna. 5.6.2010 05:00
Leiðsöguskóli sagður afvegaleiða nemana „Það er ranglega farið með á hvaða menntunarstigi þetta nám er,“ segir Kristín Jónsdóttir, endurmenntunarstjóri Háskóla Íslands. Hún gagnrýnir Menntaskólann í Kópavogi fyrir að kynna Leiðsöguskóla MK sem nám á háskólastigi. 5.6.2010 05:00