Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eyjafjallajökull: Mesti órói síðan gosið hætti „Það er búið að vera aukinn órói í dag, sem jókst aðalega upp úr klukkan 17 en datt aftur niður klukkan 19:50,“ segir Gunnar Guðmundsson hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir þennan óróa vera þann mesta síðan hann hætti eiginlega alveg í kringum 21. maí. 4.6.2010 21:23
Blaðamannafundurinn í Æsufellinu - myndband Jón Gnarr og Dagur. B Eggertsson héldu blaðamannafund í Breiðholtinu í dag klukkan fimm. Þar tilkynntu þér nýjan meirihluta þar sem Jón Gnarr verður borgarstjóri og Dagur B. verður formaður borgarráðs. 4.6.2010 19:21
Engar athugasemdir bárust vegna forvals Framsóknar Engar athugasemdir bárust vegna forvals framsóknarmanna í Reykjavík 28. nóvemerber síðastliðinn þar sem valið var á framboðslista í borginni. Enginn gerði athugasemd við forvalið, hvorki frambjóðendur né félagsmenn. 4.6.2010 22:34
Kona klemmdist milli bíls og húss Kona klemmdist milli bíls og húss á Njálsgötu í Reykjavík klukkan fjögur í dag. Hún meiddist á hægri fæti og var flutt á sjúkrahús. Bílstjórinn leitaði á sjúkrahús og fékk áfallahjálp eftir að hafa bakkað á konuna. 4.6.2010 22:25
Lögreglan fann 200 kannabisplöntur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun á þremur stöðum í umdæminu í gær og í dag. Tvær þeirra voru í austurborginni og ein í Mosfellsbæ. 4.6.2010 19:53
Guðlaugur fékk hæstu styrkina frá FL group, Fons og Baugi Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður sjálfstæðisflokksins, hefur birt lista yfir hluta þeirra fyrirtækja sem styrktu hann í prófkjöri sjálfstæðisflokksins í Reykjavík árið 2006. Styrkir til hans námu 24,8 milljónum króna. 4.6.2010 19:47
A og B vinna saman í Ölfusi A listi Fyrir okkur öll og B listi Framfarasinnar hafa gengið frá málefnasamningi um að starfa saman í meirihluta í Sveitarfélaginu Ölfusi kjörtímabilið 2010-2014. 4.6.2010 19:35
Askan varasöm fyrir fólk með linsur Öskumistur lá eins og mara yfir gjörvöllu Suður- og Suðvesturlandi í dag og skyggni var lítið kringum gosstöðvarnar. Hætt er við að öskumistur af þessum toga verði viðvarandi vandamál í sumar, allt þar til snjóa tekur á ný í haust, segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands 4.6.2010 18:21
Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík Jón Gnarr verður næsti borgarstjóri Reykjavíkur. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi sem Besti flokkurinn og Samfylkingin hélt núna klukkan fimm á þaki fjölbýlishúss í Breiðholti. 4.6.2010 17:10
Ungir innbrotsþjófar áfram í gæsluvarðhaldi Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhald yfir tveimur ungum mönnum sem voru handteknir af lögreglunni á Selfossi vegna gruns um fjölmörg innbrot og þjófnaði. Þá eru piltarnir einnig grunaðir um að aðild að 18 innbrotum í sumarbústaði í Borgarfirði sem lögreglan í Borgarfirði og Dölum eru með til rannsóknar. 4.6.2010 16:37
Mikil svifryksmengun hefur ekki áhrif á flugsamgöngur Mikil svifryksmengun í Reykjavík og víðar hefur ekki áhrif á flugsamgöngur innanlands samkvæmt Hjördísi Guðmundsdóttur, upplýsingafulltrúa Isavia, sem sér um rekstur Reykjavíkurflugvallar. Hún segir að aðvörun hafi verið gefin út til flugmanna en mengunin trufli ekki samgöngur að ráði. 4.6.2010 15:20
Verða að vettugi kröfu almennings Alþingi mun ekki taka afstöðu til frumvarpa um persónukjör og þjóðaratkvæðagreiðslu fyrr en í fyrsta lagi í haust. Allsherjarnefnd Alþingis frestaði afgreiðslu þessara mála í morgun en þingmaður Hreyfingarinnar sakar stjórnarflokkana um að virða að vettugi kröfu almennings um lýðræðisumbætur. 4.6.2010 19:13
Leigjendur lögðu íbúð í rúst Leigusali í miðbæ Reykjavíkur þurfti að hóta því að siga lögreglu og lögmönnum á leigjendur sína til að koma þeim út úr íbúð sem þeir höfðu nánast lagt í rúst. Tjónið er metið á þrjár milljónir króna. 4.6.2010 18:46
Inspired by Iceland: Ein og hálf milljón SMS skilaboða Þegar ferðaiðnaðurinn virtist vera að hrynja vegna eldgosa tóku ríkisstjórnin og félög í ferðaþjónustu saman höndum til þess að laða ferðamenn til landsins og fullvissa þá um að þeir væru ekki í lífshættu ef þeir kæmu í heimsókn. 4.6.2010 18:12
Gufuvirkni minnkað í Eyjafjallajökli Gufuvirkni hefur minnkað mikið frá því í síðustu viku í Eyjafjallajökli. Lítil virkni er í jöklinum, en hvít vatnsgufa steig upp frá eldstöðinni miðvikudaginn 2. júní í um 2,5 kílómetra hæð. 4.6.2010 17:49
Meirihluti myndaður í Álftanesi Fjórir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, sem fara með meirihluta í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Álftaness, hafa ásamt einum bæjarfulltrúa Framsóknarflokks og einum bæjarfulltrúa L-lista óháð framboð undirritað yfirlýsingu um samvinnu í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Álftanes. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. 4.6.2010 16:52
Bæjarstarfsmaður verður bæjarstjóri Nýr bæjarstjóri hefur verið ráðinn í Kópavogi en það er Guðrún Pálsdóttir sem hefur hingað til starfað sem sviðsstjóri menningarsviðs bæjarins auk þess sem hún hefur verið fjármálastjóri til 20 ára. 4.6.2010 16:51
Svifryksmengunin í dag jafn mikil og á gamlárskvöldi Svifryksmengunin á höfuðborgarsvæðinu er slík að hún jafnast á við það sem mælist á gamlárskvöldi samkvæmt upplýsingum frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. 4.6.2010 16:23
Slökkviliðið bjargar dreng úr háu tréi Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu bjargaði níu ára dreng úr um fimm metra tré í Skerjafirðinum í dag. 4.6.2010 15:49
Svifryk fer yfir heilsuverndarmörk í dag Styrkur svifryks á höfuðborgarsvæðinu fer sennilega yfir heilsuverndarmörkin í dag samkvæmt heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. 4.6.2010 13:40
Rúmlega milljarður tapaðist við gjaldþrot BT Kröfur í bú BT verslana ehf. námu tæpum 1,2 milljörðum króna, samkvæmt Lögbirtingarblaðinu. Rúmlega milljarður tapaðist við gjaldþrotið. 4.6.2010 17:12
Skaut manninn tvisvar í hausinn -sýknuð Áströlsk kona hefur verið sýknuð af morðákæru eftir að hún gaf manni sínum svefnlyf og skaut hann svo í höfuðið. 4.6.2010 15:51
Sala nýrra bíla minnkar um 1% Það sem af er árinu hafa 1.756 ökutæki verið nýskráð samanborið við 1.733 ökutæki eftir jafn marga daga á síðasta ári. Þetta kemur fram í fréttabréfi Umferðarstofu. 4.6.2010 15:33
Boða til blaðamannafundar á þaki Æsufells Borgarstjórnarflokkar Besta flokksins og Samfylkingarinnar hafa boða til blaðamannafundar klukkan fimm í dag uppi á þaki á Æsufells 4 í Breiðholtinu. 4.6.2010 15:22
Má sekta á öllu höfuðborgarsvæðinu ökutæki sem lagt er ólöglega Reglugerðarbreyting sem gerir lögreglu kleift að leggja gjald á ökutæki sem lagt er ólöglega í sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu tók í gildi 1. jún í, segir í tilkynningu. 4.6.2010 15:10
Tölvuleikurinn Path to Ares sigrar í tölvuleikjakeppni IGI Tölvuleikurinn Path to Ares sigraði í fyrstu árlegu tölvuleikjakeppni Samtaka leikjaframleiðenda á Íslandi (IGI, Icelandic Gaming Industry) en úrslitin voru kynnt í lok tölvuleikjadags IGI og Háskólans í Reykjavík um helgina. Þetta kemur fram í tilkynningu. 4.6.2010 15:02
Strandsiglingar eru taldar álitlegur kostur Strandsiglingar eru álitlegur kostur, nægilegir flutningar virðast vera fyrir hendi, þær henta ákveðnum vöruflokkum, áhugi er hjá kaupendum slíkrar þjónustu og flutningsgjöld eru samkeppnishæf við landflutninga. 4.6.2010 14:48
Metþátttaka í Háskóla unga fólksins Metþátttaka verður í Háskóla unga fólksins í ár en 1500 grunnskólabörn eru skráð í skólann að þessu sinni. Háskóli unga fólksins opnar upp á gátt á mánudaginn 7. júní og stendur í tvo daga, segir í tilkynningu. 4.6.2010 13:43
Landsbjörg kaupa björgunarbáta Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa fest kaup á sex björgunarbátum, fimm af gerðinni Atlantic 75 og einn Atlantic 21. Björgunarsveitir landsins hafa undanfarið verið að efla sjóbjörgunarþátt sinn enda ekki vanþörf á. Tilkoma strandveiða og niðurskurður hjá opinberum aðilum gera það að verkum að verkefni hafa reynst ærin, sem dæmi má nefna að björgunarskip félagsins hafa í síðustu viku farið um 15 sinnum til aðstoðar bátum í vanda við Íslandsstrendur. 4.6.2010 13:26
Ekki stefnir í að listamenn sniðgangi Grímuna Ekkert bendir til að listamenn muni sniðganga Grímuverðlaunin í ár, þrátt fyrir umræðu um aðkomu ráðamanna að verðlaununum. Formaður stjórnar Grímuverðlaunanna segir engan ráðamann afhenda verðlaun að þessu sinni. 4.6.2010 12:20
Óprúttnir aðilar safna styrkjum í nafni Geðhjálpar Geðhjálp hefur undanfarna daga borist tilkynningar um að einhver eða einhverjir séu að hringja í fólk og bjóða því að styrkja ýmis málefni í nafni þeirra samkvæmt tilkynningu sem þeir sendu frá sér. 4.6.2010 12:07
Samfylkingin í Kópavogi kynnir málefnasamning fyrir félagsmönnum Samfylkingin í Kópavogi hefur boðað til félagsfundar í Hamraborg klukkan fjögur í dag en þar verður málefnasamningur væntanlegs meirihluta kynntur. 4.6.2010 11:56
600 þúsund manns náðu í Íslandsmyndbandið Inspired by Iceland markaðsherferðin, sem hófst fyrir rúmum tveimur vikum, náði nýjum hæðum í gær í átakinu „Þjóðin býður heim“ en gær höfðu að minnsta kosti ein og hálf milljón smáskilaboða verið send og fimm milljónir Twitter skilaboða. 4.6.2010 11:26
Vodafone býður viðskiptavinum að hringja frítt Viðskiptavinum Vodafone býðst um helgina að hringja frítt úr heimilissímanum til útlanda, í tilefni af kynningarátaki Íslensku þjóðarinnar sem ætlað er að laða erlenda ferðamenn til Íslands. 4.6.2010 11:19
Vinstri grænir og Framsókn mynda meirihluta í Skagafirði Sveitarstjórnarfulltrúar Framsóknarflokks og Vinstri grænna í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar hafa gert með sér samkomulag um meirihlutasamstarf samkvæmt heimasíðu Feykis. 4.6.2010 10:07
Ný flugvélaratsjá greinir gosösku Breska flugfélagið EasyJet verður fyrst flugfélaga til þess að prófa nýja ratsjá sem getur greint öskuský frá eldgosum. 4.6.2010 09:54
Óku um bæinn og skemmdu bíla Þrír karlmenn voru handteknir í nótt en þeir höfðu ekið vítt og breytt um bæinn og skemmt bíla, meðal annars með exi. Talið er að þeir hafi skemmt samtals átta bíla en þeir gætu verið fleiri að sögn lögreglu. Mennirnir voru allir í annarlegu ástandi og verða yfirheyrðir síðar í dag og þá kemur mögulega í ljós hvað þeim gekk til. 4.6.2010 08:41
Fjarðabyggð: Meirihluti myndaður Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur í Fjarðabyggð hafa náð saman um myndun meirihluta í bæjarstjórn Fjarðabyggðar á kjörtímabilinu sem nú er að hefjast. Í tilkynningu segir að stjórnir og framboðslistar félaganna hafi samþykkt drög að málefnasamningi milli þessarar framboða. Hann verða fullgerður á næstu dögum og birtur opinberlega á heimasíðu sveitarfélagsins þegar ný bæjarstjórn tekur við á fyrsta fundi sínum þann 15.júní næstkomandi ásamt því að hann verður kynntur í endanlegri mynd innan framboðanna. 4.6.2010 08:15
Ákvarðana um orkuskipti brátt að vænta Á næstu vikum kunna að liggja fyrir tillögur um skattaívilnanir og hvata frá hinu opinbera til fólks og fyrirtækja sem vill færa sig yfir í vistvæn ökutæki, eða breyta ökutækjum sínum þannig að þau verði vistvænni. Starfshópurinn var kynntur á ráðstefnu um visthæfar samgöngur í Háskólanum í Reykjavík í gær. 4.6.2010 08:00
Fundu stjörnu sem er heill demantur Stjarnfræðingar hafa fundið stjörnu sem er heill demantur. Stjarna þessi glitrar á himinhvolfinu í 50 ljósára fjarlægð frá jörðinni. 4.6.2010 07:51
Stöðvaður með fölsuð skilríki á Keflavíkurflugvelli Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði tvö ökumenn í nótt sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum fíkniefna og einn sem ók drukkinn. Tveir gistu fangageymslur, annar þeirra tengist fyrrgreindum málum en í hinu tilfellinu er um að ræða útlending sem stöðvaður var við landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli. Skilríki mannsins reyndust vera í ólagi og var hann því hnepptur í varðhald á meðan nánar er grennslast fyrir um hann. 4.6.2010 07:43
Írskt flutningaskip á leið til Gaza Flutningaskip í írskri eigu er nú á leið til Gaza svæðisins með 500 tonn af sementi sem nota á til að endurbyggja skóla, heimili og opinberar byggingar sem eyðilagðar hafa verið í átökum við Ísraelsmenn. 4.6.2010 07:32
Naoto Kan næsti forsætisráðherra Japan Japanski Lýðræðisflokkurinn hefur valið Naoto Kan sem næsta forsætisráðherra Japans en sá fyrri, Yukio Hatoyama sagði óvænt af sér í vikunni eftir deilur um framtíð bandarísku herstöðvarinnar á eyjunni Okinawa. 4.6.2010 07:30
BP tókst að koma tappa á olíulekann í Mexíkóflóa BP olíufélaginu hefur tekist að koma fyrir sérhönnuðum tappa á olíuleiðsluna sem lekur olíu út í Mexíkóflóa. Aðgerð sem þessi hefur aldrei verið reynd áður en nokkur tími þarf að líða til að sjá hvort hún hafi borið árangur. 4.6.2010 07:25
Bíræfnu bankaráni líkt við það besta frá Olsen genginu Bíræfið bankarán í útibúi Danske Bank á Nörreport í Kaupmannahöfn hefur vakið mikla athygli í dönskum fjölmiðlum. 4.6.2010 07:23