Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Írar reka ísraelska erindreka úr landi vegna Dubai-morðsins Írsk yfirvöld hafa rekið ísraelska erindreka úr landinu vegna fölsunar á vegabréfum í nafni þjóðarinnar þegar ísraelska leyniþjónustan á að hafa tekið leiðtoga Hamas af lífi í Dubai í byrjun árs. 15.6.2010 20:55
Dæmdur fyrir að sofa hjá konum vegna umferðarlagabrota Breski lögreglumaðurinn Jamie Slater var í dag dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að misnota aðstöðu sína og sofa hjá og bjóða konum kynlíf sem hann stöðvaði vegna umferðalagabrota. 15.6.2010 19:49
Námsbrautum í Háskólanum í Reykjavík fækkað um þrjár Námsbrautum í Háskólanum í Reykjavík verður fækkað um þrjár og fjöldi starfsmanna missir vinnuna. Skólameistari segir aðgerðirnar mjög sársaukafullar en það eina skynsamlega í stöðunni. 15.6.2010 18:35
Samið um þinglok - vatnalögin söltuð og fækkun ráðuneyta í nefnd Flokkarnir á Alþingi hafa komist að samkomulagi um þinglok. Þá mun vatnafrumvarpið verða sett í salt þangað til í haust. Frumvarp sem snertir á greiðsluvanda heimilanna, eða svokallaður heimilispakki, verður afgreiddur fyrir þinglok. Varnamálalög munu verða samþykkt en með breytingum þó. Fækkun ráðuneyta verður afgreitt í nefnd. 15.6.2010 18:06
Ný bæjarstjórn tekin við í Kópavogi Ný bæjarstjórn Kópavogs tók við völdum í dag. Í upphafi fyrsta fundar nýrrar bæjarstjórnar var kynntur málefnasamningur um meirihlutasamstarf Lista Kópavogsbúa, Næst besta flokksins, Samfylkingar og Vinstri grænna. Þá var kosið í helstu embætti, nefndir og ráð og var Guðrún Pálsdóttir kjörin nýr bæjarstjóri Kópavogs. Hún tekur við af Gunnsteini Sigurðssyni sem verið hefur bæjarstjóri frá 1. júlí 2009. Honum voru, á fundinum, þökkuð störf í þágu sveitarfélagsins. 15.6.2010 17:58
Stefán: Reyndi að keyra á vin minn og tvo hunda „Maðurinn gerði þetta viljandi. Hann bakkaði bílnum áður en hann lagði til atlögu svo hann kæmist hraðar og reynir að keyra á vin minn og báða hundana," segir Stefán Már Guðfinnsson hundaeigandi í samtali við Vísir.is. 15.6.2010 16:54
Gerir ekki athugasemd við sameiningu embætta Um síðustu áramót voru embætti ríkisskattstjóra og níu skattstjóra víðs vegar um landið sameinuð í eitt. Þar með var landið gert að einu skattumdæmi. 15.6.2010 17:03
Borgarstjóri: „Love is all you need“ Jón Gnarr var settur í embætti borgarstjóra á fundi borgarstjórnar í dag og að loknum fundi tók hann við lyklum að skrifstofu borgarstjóra úr höndum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur fyrrverandi borgarstjóra. 15.6.2010 16:34
Samkomulag um vinnustaðaskírteini undirritað Fulltrúar Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og aðildarsamtaka þess og Samtaka atvinnulífsins (SA) undirrituðu í dag samkomulag um vinnustaðaskírteini og framkvæmd eftirlits á vinnustöðum. Í tilkynningu segir að samkomulagið byggi á lögum nr. 42/2010 sem samþykkt voru á Alþingi 11. maí sl. um sama efni sem veita heildarsamtökum vinnumarkaðarins heimild til að semja um hvaða starfsgreinar falli undir gildissvið laganna hverju sinni. 15.6.2010 16:19
Kynnti áætlun um aukið samstarf á milli háskóla Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, kynnti fyrir ríkisstjórn í morgun áætlun um aukið samstarf og verkaskiptingu opinberu háskólanna með hugsanlega sameiningu að markmiði. 15.6.2010 16:10
Skrifað undir skjöl til VÍS með músinni VÍS er nú að innleiða breytingar sem gera viðskiptavinum félagsins kleift að fylla út og undirrita á netinu tjónstilkynningar og önnur form sem þeir þurfa að senda félaginu. Allir viðskiptavinir VÍS sem eru með nettengingu og tölvupóst geta nýtt sér þessa tækni án nokkurs aukabúnaðar, segir í tilkynningu. 15.6.2010 15:43
Hernum einum um að kenna í Londonderry Ný skýrsla hefur leitt í ljós að allir þeir sem féllu fyrir byssukúlum breskra hermanna í Londonderry á Norður-Írlandi árið 1972 voru saklausir og breska hernum er einum um að kenna hvernig fór. 15.6.2010 15:28
Árleg sólstöðuganga í Reykjavík Hinn árlega sólstöðuganga í Reykjavík verður farin á mánudaginn en þá eru sumarsólstöður, sem er lengsti dagur ársins. 15.6.2010 15:01
Aukin vernd lífríkis sjávar með reglugerð um kjölfestuvatn Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur sett reglugerð um kjölfestuvatn. Markmið reglugerðarinnar er að takmarka losun kjölfestuvatns skipa til að koma í veg fyrir að framandi lífverur, svo sem þörungar, krabbadýr og sýklar, berist til hafsvæða og stranda umhverfis Ísland. 15.6.2010 14:53
Þrjár námsbrautir HR lagðar niður Þrjár námsbrautir hjá Háskólanum í Reykjavík verða lagðar niður þegar núverandi nemendur hafa lokið sínu námi. 15.6.2010 14:27
Jón Gnarr borgarstjóri Reykjavíkur Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, var kosinn borgarstjóri Reykjavíkur á fundi Borgarstjórnar Reykjavíkur rétt í þessu. 15.6.2010 14:17
Sóley kosin fyrsti varaforseti borgarstjórnar Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, var kosin fyrsti varaforseti borgarstjórnar á fundi Borgarstjórnar Reykjavíkur rétt í þessu. Allir borgarfulltrúar Reykjavíkur kusu hana, alls 15. 15.6.2010 14:15
Hanna Birna kosin forseti borgarstjórnar Hanna Birna Kristjánsdóttir var kosin forseti borgarstjórnar á fundi Borgarstjórnar Reykjavíkur rétt í þessu. Allir borgarfulltrúar kusu hana, alls 15 15.6.2010 14:08
Skorið niður hjá Háskólanum í Reykjavík Nám í kennslufræði og lýðheilsufræði verður fellt niður í Háskólanum í Reykjavík vegna niðurskurðar á framlagi ríkisins til skólans. Á annan tug starfsmanna var sagt upp um síðustu mánaðamót, segir í frétt RÚV. 15.6.2010 13:58
Kærir mann sem keyrði á hund Eigandi hundsins sem ekið var á aðfaranótt mánudags í Elliðaárdalnum ætlar að kæra ökumanninn í dag, að sögn móður hans. 15.6.2010 13:17
Magnús Orri: Umtalsverðar fjárhæðir með bankaskatti Tvær leiðir eru færar í hinum svokallaða „bankaskatti" sem Samfylkingin hefur hug á að koma á: Tekjuskattur eða skattur á eignir, að sögn Magnús Orra Schram, þingmanns Samfylkingarinnar. Hagnaður bankanna væri jafnframt skattlagður. 15.6.2010 12:45
Ný bæjarstjórn Kópavogs kemur saman Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar í Kópavogi hefst klukkan 16 í dag. Þar verður Guðrún Pálsdóttir, kjörin nýr bæjarstjóri, en jafnframt verður kosið í helstu embætti, nefndir og ráð. 15.6.2010 12:43
Aðstæður kvenfanga mun lakari en karlfanga hér á landi Kvenfangar búa við mun lakari aðstæður en karlfangar á Íslandi. Fangelsismálayfirvöld segja brýnt að bæta aðstöðu þeirra með nýrri fangelsisbyggingu. 15.6.2010 12:21
100 milljarða svigrúm til leiðréttingar Helgi Hjörvar stjórnarþingmaður segir 100 milljarða króna svigrúm til að leiðrétta lán heimilanna. Án almennra leiðréttinga væru þau skilaboð send út í þjóðfélagið að skuldagleðin ein njóti skilnings. Forsætisráðherra tók ekki undir þessi orð á Alþingi í morgun. 15.6.2010 12:16
Landssamband veiðifélaga vilja ekki afnema vatnalögin Landssamband veiðifélaga mótmælir fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar um afnám vatnalaga frá 2006. 15.6.2010 12:06
Vill að Árni Páll komi út í sólina Í umræðum um niðurfellingu skulda við upphaf þingfundar í dag gripu þingmenn til líkingamáls og blandaðist litaraft Árna Páls Árnasonar, félagsmálaráðherra, auk þess í umræðuna. Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Framsóknarflokksins, líkti aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar við það þegar enginn kemur til dyra þegar dyrabjöllu er hringt. Árni Páll kallaði tillögur Guðmundar og stjórnarandstöðunnar bjölluat. 15.6.2010 11:26
Jóhanna: Þurfum einn dag til viðbótar Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að sér sýnist vera þörf á því að þingmenn komi saman til þingfundar í einn dag í viðbót síðar í þessum mánuði. Upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir að þingstörfum ætti að ljúka í dag en Jóhanna svaraði því til við óundirbúnar fyrirspurnir í þinginu í dag að einn dag þurfi til viðbótar. 15.6.2010 10:26
Læknafélagið styður landlækni í deilunni við Jónínu Benediktsdóttur Læknafélag Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við greinargerð landlæknis vegna svokallaðrar detox-meðferða á vegum Jónínu Benediktsdóttur, íþróttafræðings. 15.6.2010 10:15
Hanna Birna verður forseti borgarstjórnar Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Hanna Birna Kristjánsdóttir, fráfarandi borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, ákveðið að taka boði Besta flokksins og Samfylkingarinnar um að gerast forseti borgarstjórnar. Sömu heimildir herma að Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, verði fyrsti varaforseti borgarstjórnar. Ekki liggur fyrir hver aðkoma Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna verður að öðru leyti að stjórn borgarinnar og hvort að flokkarnir muni til að mynda stýra einhverjum nefndum. 15.6.2010 09:41
Yfir 20 mál á dagskrá Alþingis Þingfundur hefst klukkan tíu og eru 23 mál á dagskrá. Enn er ósamið um þinglok. 15.6.2010 09:17
Mannréttindafulltrúi SÞ ræðir um eflingu og verndun mannréttinda Í tilefni af komu Navanethem Pillay, mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna til Íslands, stendur utanríkisráðuneytið, í samvinnu við Mannréttindaskrifstofu Íslands og Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, fyrir opnum fundi um eflingu og verndun mannréttinda á morgun, 16. júní. 15.6.2010 08:46
Palin dreymir um að hitta Járnfrúna Sarah Palin, varaforsetaefni Repúblíkana í síðustu forsetakosningum, dreymir um að hitta Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, sem Palin segir að sé átrúnaðargoðið hennar og ein helsta fyrirmynd hennar. Samband Thatcher, eða Járnfrúarinnar eins og hún er oft kölluð, og Ronald Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseta, er skýrt dæmi um hið sérstaka samband milli Bandaríkjanna og Bretlands, að mati Palin. Hún greinir frá því á samskiptasíðunni Facebook að henni hafi nýverið verið boðið til Bretlands. Palin vonist til að hitta Thatcher í þeirri ferð. 15.6.2010 08:40
Má stunda lækningar þrátt fyrir ákæru um manndráp Lækni Michaels Jackson sem ákærður var fyrir manndráp af gáleysi vegna andláts popparans er frjálst að stunda lækningar. 15.6.2010 07:59
Öryggisráðið fjallar um deiluna á Kóreuskaga Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fjallar nú deilu Norður- og Suður-Kóreu en bæði ríkin hafa lagt fram gögn máli sínu til stuðnings. 15.6.2010 07:56
Ætla að stuðla að uppbyggingu í Vatnsmýrinni Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir að nýr meirihluti í borginni ætli að stuðla að uppbyggingu í Vatnsmýrinni, en ekki er þó ljóst hvort það þýðir að flugvöllurinn verði endanlega fluttur þaðan. Dagur kynnti málefnasamning Samfylkingarinnar og Besta flokksins í gærkvöldi, þar sem þetta kom farm og að stefnt sé að sameiningu ýmissa sviða og ráða í borginni, til hagræðingar. 15.6.2010 07:52
Hjólhýsi fauk aftan úr bíl og splundraðist Hjólhýsi fauk aftan úr bíl og splundraðist utan vegar rétt austan við Ólafsvík á Snæfellsnesi, undir kvöld í gær, en ökumann og farþega bílsins sakaði ekki. Bíllinn hélst á veginum. 15.6.2010 07:50
Myrti og át eiginkonuna í Vegas Bandarískur karlmaður á sjötugsaldri hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða eiginkonu sína á hóteli í Las Vegas fyrir fjórum árum. 15.6.2010 07:48
Nýr strandveiðikvóti gefinn út um næstu mánaðamót Strandveiðar á svæði B, eða frá Hornafirði vestur á Snæfellsnes, voru stöðvaðar á miðnætti, þar sem heildarkvóti strandveiðibáta á svæðinu í þessum mánuði, er búinn. 15.6.2010 07:25
Eldur í skúr við Nýlendugötu Eldur kviknaði í geymsluskúr á milli tveggja íbúðarhúsa við Nýlendugötu í Reykjavík um klukkan hálf tvö í nótt. Svo vel vildi til að nágranni varð var við reyk frá skúrnum og kallaði á slökkvilið, áður en eldurinn hafði náð að magnast og tók slökkvistarf skamma stund. Eldsupptök eru ókunn. 15.6.2010 07:23
Á þriðja tug látnir eftir uppþot í fangelsi Að minnsta kosti 28 létust uppþoti í fangelsi norðurvesturhluta Mexíkó í nótt. Ekki er vitað hvort að fangaverðir og aðrir starfsmenn fangelsisins séu í hópi hinna látnu en tveir fangaverðir særðust. Yfirvöld segja ástæðuna fyrir uppþotinu vera uppgjör milli tveggja klíka í fangelsinu. Einungis er vika síðan að fangelsisstjórinn varaði við því að illa gæti farið þar sem fangelsið væri yfirfullt. Hann óskaði jafnframt eftir því að hættulegustu fangarnir yrðu fluttir í annað fangelsi. 15.6.2010 07:22
FBI birtir leyniskjöl um Kennedy Bandaríska alríkislögreglan, FBI, hefur birt fjölmörg leyniskjöl um Edward Kennedy, fyrrum öldungadeildarþingmann. Flest þeirra fjalla um morðhótanir gegn honum en þar er lítið að finna um bílslys þegar Edward varð valdur að dauða vinkonu sinnar í júlímánuði árið 1969. Hann fór af vettvangi án þess að tilkynna slysið, en baðst síðar afsökunar á því. 15.6.2010 07:20
Fullyrða að Pakistanar aðstoði talíbana í Afganistan Leyniþjónusta Pakistans aðstoðar talibana í Afganistan með ýmsum hætti svo þeir geti barist við hermenn NATÓ-ríkjanna og afganska lögreglu- og hermenn. 15.6.2010 07:17
Barist um bensíndropann Mikið verðstríð geisar milli olíufélaganna. Það sýnir að svigrúm er fyrir hagræðingu og samkeppni á eldsneytismarkaðnum, að sögn Gísla Tryggvasonar, talsmanns neytenda. „Það er greinilega sveigjanleiki til staðar, sem gerir það að verkum að hægt er að lækka bensínverð. Þrátt fyrir það er verðið enn mjög hátt,“ segir hann. 15.6.2010 06:00
44 verslanir opnar allan sólarhringinn Verslunum, sem hafa opið allan sólarhringinn, hefur fjölgað mikið á síðustu misserum. Í sumar verða 44 verslanir opnar allan sólarhringinn, 30 matvöruverslanir, þrettán bensínstöðvar og ein önnur verslun. Flestar slíkar verslanir eru á höfuðborgarsvæðinu eða 36 talsins en átta eru á landsbyggðinni. 15.6.2010 06:00
Vilja draga umsókn til baka Þingmenn allra flokka sem sæti eiga á Alþingi, utan Samfylkingarinnar, lögðu í gær fram þingsályktunartillögu á Alþingi þar sem lagt er til að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu verði dregin til baka. 15.6.2010 06:00