Innlent

Árleg sólstöðuganga í Reykjavík

Merki sólstöðugöngu. Frummyndin er fornindversk en Ágústa P. Snæland hönnuður teiknaði merkið að beiðni sólstöðuhópsins.
Merki sólstöðugöngu. Frummyndin er fornindversk en Ágústa P. Snæland hönnuður teiknaði merkið að beiðni sólstöðuhópsins.
Hinn árlega sólstöðuganga í Reykjavík verður farin á mánudaginn en þá eru sumarsólstöður, sem er lengsti dagur ársins.

Þetta er 26. sólstöðugangan í Reykjavík og nágrenni. Eins og undanfarin ár verður gengin stór hringur um Öskjuhlíð. Lagt verður lagt af stað klukkan átta um kvöldið frá hitaveitugeymunum undir Perlunni, segir í tilkynningu.

Farið verður um skógarstíg vestan í hlíðinni og niður að Fossvogi, síðan inn með voginum og um Fossvogskirkjugarð, og þaðan sem leið liggur stóran sveig upp að Perlunni þar sem göngunni lýkur um klukkan 10:30.

Þetta er róleg tveggja og hálfs tíma ganga þar sem staldrað verður við öðru hverju og hlýtt á fróðleik um náttúru og sögu Öskjuhlíðar. Sólstöðugangan hefur verið kölluð "meðmælaganga með lífinu og menningunni". Undanfarið hafa um 100 manns tekið þátt í göngunni, segir í tilkynningu.

Allir eru velkomnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×