Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ók á tvöföldum hámarkshraða Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði nítján ára ökumann í gærkvöldi eftir að bíll hans hafði mælst á 173 kílómetra hraða í Ártúnsbrekku. Þar er hámarkshraði 80 kílómetrar á klukkustund, þannig að hann var á meira en tvöföldum hámarkshraða. Hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða og mun mál hans að líkindum fara fyrir dómstóla.- 16.3.2010 06:57
Víða brotist inn í sumarbústaði Innbrotsþjófar gerðu tilraun til að stela hitalömpum úr gróðurhúsi í Reykhóltshverfi í Árnessýslu undir morgun. Eigandi gróðurstöðvarinnar var snemma á fótum og kom styggð að þjófunum, þegar þeir sáu til hans, og komust þeir undan. Brotist hefur verið inn í átta sumarbústaði í uppsveitum Árnessýslu undanfarna daga og þaðan stollið flatskjám og ýmsu öðru. Í einu tilvikinu virðist sem kona með barn hafi hafist við í bústað í einhvern tíma, án vitundar eða samþykkis eigendanna. 16.3.2010 06:52
Tekinn úr tjörn við íbúðarhús Furðufiskur sem fannst spriklandi úti í móa við Stekkjarhvamm í Hafnarfirði er síberíustyrja. Talið er að fugl hafi veitt skrautfiskinn úr tjörn við hús í Hafnar-firði. 16.3.2010 06:00
Barn fékk tífaldan sýklalyfjaskammt Sjö ára stúlka innbyrti um helgina tífaldan skammt af sýklalyfinu Furadantin, sem móðir hennar hafði leyst út í Árbæjar-apóteki. Málið hefur verið kært til Lyfjastofnunar. 16.3.2010 06:00
Fólk í hjólastól fær ókeypis í Smárabíó „Þarna get ég farið án þess að borga inn. Auðvitað kostar þetta stórfé í popp og kók en það er valfrjálst,“ segir Guðjón Sigurðsson, sem eins og aðrir sem eru í hjólastólum, fær frítt á sýningar í Smárabíói. 16.3.2010 04:00
Sérstakt félag stofnað til að reka hallalaust bílastæðahús Bílastæðasjóður Reykjavíkur mun leggja um 400 milljónir króna til félags, sem stofnað verður um bílastæðahús Hörpu, nýja tónlistar- og ráðstefnuhússins við Reykjavíkurhöfn. 16.3.2010 04:00
Verðhækkanir draga úr sölu áfengis Fjórtán prósent samdráttur varð í áfengissölu fyrstu tvo mánuði þessa árs miðað við janúar og febrúar 2009. 16.3.2010 04:00
Gistirýmið er aldrei fullnýtt í Reykjavík Alls bjóða nú 96 aðilar upp á gistingu í 4.898 rúmum á höfuðborgarsvæðinu, að því er kemur fram í gögnum frá Ferðamálaráði sem lögð voru fram á síðasta fundi skipulagsfulltrúans í Reykjavík. 16.3.2010 03:00
Lítil breyting á meðallánum Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmum 1,6 milljörðum króna í síðasta mánuði. Þetta er rúmlega helmingssamdráttur á milli ára og fjórðungslækkun á milli mánaða. Heildarútlánin námu 2,8 milljörðum króna í febrúar fyrir tveimur árum. 16.3.2010 02:00
Hverfafundum borgarstjóra frestað Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri ætlar ekki að halda fyrirhugaða hverfafundi með íbúum Reykjavíkur. Hins vegar stendur til að halda þá síðar á árinu, eftir kosningarnar. 16.3.2010 02:00
Í lagi fyrir skuldara að breyta myntkörfulánum Þeir sem tekið hafa gengistryggð lán munu ekki missa rétt sinn vegna aðgerða stjórnvalda gegn skuldavanda heimilanna. Þar á meðal er niðurfærsla fjármögnunar-fyrirtækja á bílalánum. 16.3.2010 01:00
Þrjú ungmenni svipt sig lífi í Hafnarfirði Vaxandi vanlíðunar gætir í samfélaginu. Nauðsynlegt er að fólk sýni náunga sínum hlýhug, ekki síst börnum og ungmennum, segir prestur í Hafnarfjarðarkirkju. Þrjú ungmenni úr bænum hafa svipt sig lífi á árinu. 15.3.2010 18:42
RÚV sjálfhætt læri það ekki á nýjustu tæknina Það verður sjálfhætt með Ríkisútvarpið innan tíðar, fylgi stofnunin ekki tækniþróun og nái til yngra fólks, að mati menntamálaráðuneytisins. Vinna við nýjan þjónustusamning stofnunarinnar við ráðuneytið er langt komin. 15.3.2010 18:38
Í farbann fyrir að hrista barn Móðir ungabarns og sambýlismaður hennar hafa verið úrskurðuð í farbann og staðfesti Hæstiréttur Íslands úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess eðlis í dag. 15.3.2010 17:08
Styttist í nýja sundlaug á Blönduósi Blönduósingar fá nýja sundlaug eftir tvö mánuði. Bæjarstjórinn segir að framkvæmdirnar hafa bjargað miklu í að halda uppi atvinnu í kreppunni. 15.3.2010 19:20
Skagaströnd græðir á atvinnuleysinu Skagaströnd er sennilega eina byggðarlagið á Íslandi sem græðir á atvinnuleysi. Eftir því sem fleiri missa vinnuna, því fleiri störf skapast á Skagaströnd. 15.3.2010 19:06
Skuldamálin við Húnaflóa eitt það sorglegasta í hruninu Fjármálaherra og bankastjóri Landsbankans segja báðir að skuldastaða sparisjóðseigenda við Húnaflóa sé eitt það sorglegasta sem komið hafi á þeirra borð. Hvorugur treystir sér til að lofa þeim neinni sérmeðferð umfram aðra skuldara. 15.3.2010 18:51
Fjöldi kærumála tvöfaldaðist á tveimur árum Fjöldi kærumála til efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra tvöfölduðust á árunum 2007 til 2009. Þau voru 58 árið 2007 en 133 í fyrra. 15.3.2010 14:06
Bretar og Hollendingar bíða eftir gagntilboði Íslendinga Bretar og Hollendingar eru tilbúnir að halda áfram samningaviðræðum við Íslendinga vegna Icesave. Samkvæmt fréttavef Reuters þá ræddu Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, og Jan Kees de Jager, fjármálaráðherra Hollands, saman í síðustu viku og þá var sameiginlegur skilningur þeirra að Ísland yrði að taka næsta skref í samningaviðræðunum og leggja fram gagntilboð. 15.3.2010 17:34
Nunna erfði hóruhús Fimmtíu og fimm ára gömul nunna í Skotlandi erfði hóruhús í Austurríki eftir móður sína sem hún hafði aldrei séð. 15.3.2010 16:53
Hundruð stúlkna koma til Íslands til að dansa á nektarstöðum Hundruð ungra erlendra stúlkna koma til Íslands á hverju ári til þess að dansa á nektardansstöðum. Lögregluyfirvöldum hefur reynst mjög erfitt að kanna stöðu þeirra, aðstæður og ástæður fyrir því að þæ 15.3.2010 16:11
Höfum byggt í Jerúsalem í 40 ár Bandaríkjamenn þrýsta mjög á Ísraela að hætta við áform um að byggja 1600 nýjar íbúðir í austurhluta Jerúsalem. 15.3.2010 15:57
Vill bin Laden fjölskylduna lausa Í bréfi sem sagt er vera frá einum af sonum Osama bin Ladens er æðsti trúarleiðtogi Írans hvattur til þess að sleppa fjölskyldumeðlimum bin Ladens úr prísund sinni. 15.3.2010 15:22
Tígrisdýrin eru að hverfa Gersamlega hefur mistekist að vernda stofn tígrisdýra sem nú er í alvarlegri útrýmingarhættu að sögn stofnunar Sameinuðu þjóðanna um bann við sölu á afurðum dýra í útrýmingarhættu, CITES. 15.3.2010 15:08
Verst málssókn Gunnars Gunnar Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi, krefst einnar milljónar króna í skaðabætur vegna ummæla flokksbróður hans Þórarins Hjartar Ævarssonar, í Morgunblaðsgrein síðasta sumar. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 15.3.2010 15:00
Nafn mannsins sem lést Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Vallarvegi á Héraði í fyrradag hét Þórólfur Helgi Jónasson. Hann var frá Lynghóli í Skriðdal. Hann var fæddur 1988, ógiftur og barnlaus. 15.3.2010 14:59
Ósprungnar fosfórsprengjur á Gaza ströndinni Sprengjusérfræðingar Sameinuðu þjóðanna hafa sprengt upp 340 fallbyssukúlur og sprengjur sem ekki sprungu þegar Ísraelar vörpuðu þeim á Gaza ströndina í innrásinni á síðasta ári. 15.3.2010 14:51
Þolinmæði lögreglumanna á þrotum „Lögreglumenn hafa gríðarlegt langlundargeð og mikla þolinmæði en sú þolinmæði er nú á þrotum," segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, í pistli á vef sambandsins. Hann bendir á að kjarasamningar lögreglumanna hafi verið lausir í næstum 290 daga. 15.3.2010 14:20
Handskrifað ritmál er að hverfa Handskrifað ritmál er smámsaman að leggjast af og eftir einhver ár verður hætt að kenna það í skólum, segir framtíðarrýnirinn Johan Peter Paludan í samtali við danska blaðið 24timer. 15.3.2010 13:53
Viðurkenndi morð á sex börnum sínum Þrjátíu og átta ára gömul frönsk kona viðurkenndi fyrir rétti í dag að hún hefði myrt sex nýfædd börn sín. Lík barnanna fundust í plastpokum í kjallara hennar. 15.3.2010 13:24
Fundum frestað - ekki blásnir af Aðstoðarmaður borgarstjóra segir það ekki rétt að hefðbundnir hverfafundir borgarstjóra hafi verið blásnir af heldur verði þeir haldnir síðar á árinu, segir Magnús. Hann bendir á að í tilvitnuðum tölvupósti í fréttinni sjálfri komi fram að áætlun hafi. Það sé því ranglega ályktað að fundirnir verði ekki haldnir í ár. 15.3.2010 12:53
Minni skjálftavirkni Skjálftavirkni var enn undir Eyjafjallajökli í nótt, en þó mun minni en þegar mest var. Engin skjálfti mældist heldur yfir þremur á Richter og upptökin voru á miklu dýpi sem fyrr. 15.3.2010 12:18
Pípari framseldur til Póllands Dómsmálaráðherra var heimilt að framselja 53 ára gamlan pólskan pípulagningarmann til heimalands síns, en Hæstiréttur felldi úr gildi ógildingu héraðsdóms í málinu. 15.3.2010 12:18
Flugumferðastjóradeilan enn í hnút Ríkissáttasemjari hefur boðað flugumferðarstjóra og viðsemjendur þeirra á sáttafund klukkan hálfþrjú í dag. Ekkert þokaðist í samkomulagsátt á samningafundi á föstudag, og óformlegar þreifingar um helgina báru heldur engan árangur. 15.3.2010 12:05
Sigurjón gefur kost á sér - vill Guðjón í ráðherrastól Sigurjón Þórðarson hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Frjálslynda flokksins, segir fréttavefurinn Feykir. Landsþing flokksins fer fram í Reykjavík helgina 19. – 20. mars. Áður hafði Guðjón Arnar Kristjánsson, sem verið hefur formaður í 7 ár, gefið það út að hann gefi ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku. Sigurjón vill að Guðjón Arnar verði sjávarútvegsráðherra fari Frjálslyndi flokkurinn í ríkisstjórn. 15.3.2010 11:34
Máttu ekki breyta einkunn nemanda síns Umboðsmaður Alþingis hefur úrskurðað að fjölbrautaskóla hafi verið óheimilt að breyta einkunn nemanda síns úr 5 í 4. 15.3.2010 11:22
Vill verða varaformaður Frjálslynda flokksins Ásta Hafberg, nemi í háskólanum á Bifröst, hefur ákveðið að gefa kost á sér sem varaformaður Frjálslynda flokksins á landsþingi flokksins sem fer fram um næstu helgi og verður kosið í allar trúnaðarstöður flokksins. Ásta starfaði áður sem verkefnisstjóri hjá Markaðsstofu Austurlands. 15.3.2010 11:07
Tveir teknir undir áhrifum fíkniefna í Ísafjarðardjúpi Tveir ökumenn voru teknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna í Ísafjarðardjúpi í síðustu viku. Í öðru tilvikinu var lagt hald á ætluð fíkniefni, að fram kemur í dagbók lögreglunnar á Vestfjörðum. 15.3.2010 10:44
Norðmenn missa bíla sína Nauðungaruppboð á bílum jukust um 40 prósent í Noregi árið 2009 miðað við árið áður. Það eru bílaumboð og lánastofnanir sem heimta bílana aftur þegar kaupendurnir geta ekki staðið í skilum með afborganir. 15.3.2010 10:34
Óku of hratt um Ásbraut Brot 15 ökumanna voru mynduð á Ásbraut í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásbraut í vesturátt, á milli Vörðu- og Goðatorgs. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 96 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða, að fram kemur á vef lögreglunnar. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75. 15.3.2010 10:34
Ein stærsta rannsókn sem unnin hefur verið á orsökum geðklofa Ef báðir foreldrar barns eru haldnir geðklofa eru næstum 70% líkur á því að barnið sjálft verði haldið einhverjum geðsjúkdóm, sýnir ný dönsk rannsókn. Um 25% líkur eru á því að barnið fá sjálft geðklofa. 15.3.2010 10:17
Bæjarstjórinn leiðir Samfylkinguna á Akureyri Framboðslisti Samfylkingarinnar á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor var samþykktur einróma á félagsfundi sem haldinn var um helgina. Í lok janúar fór fram prófkjör og er röð efstu manna í samræmi við niðurstöður þess en það er Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri, sem leiðir listann. 15.3.2010 10:00
Fangelsi og há sekt fyrir að selja hvalkjöt Japanskur veitingamaður í Kaliforníu á yfir höfði sér eins árs fangelsi og um 40 milljóna króna sekt fyrir að selja sushi með hvalkjöti. 15.3.2010 09:54
Hverfafundir borgarstjóra blásnir af Búið er að blása af hverfafundi borgarstjóra en þeir hafa um árbil verið hugsaðir sem hluti af samræðum borgarbúa og æðsta stjórnanda Reykjavíkurborgar. Fjölmennur hópur sem fékk tölvupóst um málið var beðinn um að eyða fyrri dreifibréfi sínu varðandi fundina. 15.3.2010 09:53
Flokkur Sarkozy tapaði Allt lítur út fyrir að hægriflokkur Frakklandsforseta hafi beðið ósigur í fyrri umferð í héraðskosningunum sem fóru fram í gær. 15.3.2010 08:13