Innlent

Tveir teknir undir áhrifum fíkniefna í Ísafjarðardjúpi

Mynd/Pjetur
Tveir ökumenn voru teknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna í Ísafjarðardjúpi í síðustu viku. Í öðru tilvikinu var lagt hald á ætluð fíkniefni, að fram kemur í dagbók lögreglunnar á Vestfjörðum.

Í umdæmi lögreglunnar urðu fjögur umferðaróhöpp en akstursskilyrði voru ekki góð. Engin slys urðu á fólki.

Lögreglan á Vestfjörðum stöðvaði fimm ökumenn fyrir of hraðan akstur í síðustu viku. Tvo á Ísafirði og þrjá í nágrenni við Hólmavík. Sá sem hraðast ók, var mældur á 111 km/klst þar sem leyfilegur hámarshraði er 90 km.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×