Innlent

Vill verða varaformaður Frjálslynda flokksins

Ásta Hafberg.
Ásta Hafberg.
Ásta Hafberg, nemi í háskólanum á Bifröst, hefur ákveðið að gefa kost á sér sem varaformaður Frjálslynda flokksins á landsþingi flokksins sem fer fram um næstu helgi. Þar verður kosið í allar trúnaðarstöður flokksins. Ásta starfaði áður sem verkefnisstjóri hjá Markaðsstofu Austurlands.

Fram kom um helgina að Guðjón Arnar Kristjánsson sækist ekki eftir endurkjöri sem formaður. Frjálslyndi flokkurinn hvarf af þingi í kosningunum í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×