Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nítján létust í átökunum í höfuðstöðvum pakistanska hersins Nítján létust í Pakistan í gær eftir að til átaka kom þegar hópur herskárra múslima réðst á höfuðstöðvar hersins í borginni Rawalpindi. 11.10.2009 19:24
Hægt að semja um flýtimeðferð Sérfræðingur í Evrópumálum hér á landi telur möguleika á því að semja við seðlabanka Evrópu um flýtimeðferð til að festa gengi íslensku krónunnar gagnvart evrunni. Slíkt gæti komið í veg fyrir frekara fall krónunnar og spákaupmenn gætu síður tekið stöðu gegn henni. 11.10.2009 19:18
Minni skömm en áður Nærri 170 fasteignir hafa verið seldar nauðungarsölu hjá Sýslumanninum í Reykjavík það sem af er þessu ári. Það eru fleiri nauðungarsölur en allt árið í fyrra. 11.10.2009 19:01
Reyna að fjölga ferðmönnum Á Suðausturlandi eru ferðaþjónustuaðilar farnir að þróa verkefni sem lýtur að því að selja sjálfan veturinn. Markmið verkefnisins er að fjölga verulega í hópi þeirra ferðamanna sem leggja land undir fót inn í vetrarríki landshlutans í framtíðinni. 11.10.2009 18:56
Gagnrýnir tímabundnar ráðningar ráðherra Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, gagnrýnir hvernig ráðherrar standa að tímabundnum ráðningum. Hún segir gegnsæi skorta og að ráðherrar hafi ráðið pólitíska aðstoðarmenn í stöður sem hafi ekki verið auglýstar. 11.10.2009 16:23
Útskrifaður eftir skoðun Maðurinn sem þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í morgun eftir slys í Jökulheimum reyndist ekki alvarlega slasaður. Áverkar hans reyndust minniháttar og að sögn vakthafandi læknis á slysadeild var maðurinn útskrifaður eftir skoðun. 11.10.2009 16:14
Sprengjurnar í Ramadi voru þrjár Að minnsta kosti 22 eru látnir og meira en 60 eru særðir eftir árás hryðjuverkmanna í borginni Ramadi í vesturhluta Íraks í morgun. Sprengjurnar voru þrjár en í fyrstu var talið að þær hafi verið tvær. 11.10.2009 15:34
Fara fram á að jafnræðis sé gætt milli landshluta Framsóknarmenn í Skagafirði undrast þær áherslur sem fram hafa komið í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem lúta að landsbyggðinni og sérstaklega að Norðurlandi vestra. Þeir gerir þá kröfu að ríkisstjórnin hafi það að leiðarljós að jafnræðis sé gætt milli landshluta. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar Framsóknarfélags Skagafjarðar. 11.10.2009 15:01
Úrskurðurinn veldur ekki stórkostlegum töfum „Ég áttaði mig á því að þessi ákvörðun mín myndi valda titringi,“ segir Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, um úrskurð sinn um Suðvesturlínu. Hún segir óeðlilegt að halda því fram að úrskurðurinn komi til með að valda stórkostlegum töfum á iðnaðarframkvæmdum á Suðurnesjum. 11.10.2009 14:47
Kallar forystu sjálfstæðismanna og Steingrím umskiptinga „Umskiptingar eru gjarnan á ferðinni á stjórnmálasviðinu. Sjaldan hefur það verið jafn bersýnilegt og eftir þingkosningarnar í vor,“ segir Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður, í pistli á heimasíðu sinni. Þar beinir hann spjótum sínum að forystumönnum Sjálfstæðisflokksins og formanni Vinstri grænna. 11.10.2009 14:06
Engar breytingar fyrirhugaðar á losunarheimildum Formaður samninganefndar Íslands um loftslagsmál segir að engar breytingar séu framundan á losunarheimildum íslenskra stóriðjufyrirtækja fram til ársins 2012. Árið 2013 muni íslensk stóriðja hins vegar fá allar sínar heimildir í gegnum evrópska kerfið og standa jafnfætis evrópskum fyrirtækjum í orkufrekum iðnaði. 11.10.2009 13:30
Þyrlan lent Þyrla Landhelgisgæslunnar sem var kölluð út í morgun til að sækja slasaðan mann í Jökulheima við rætur Vatnajökuls lenti við Borgarspítalann klukkan rúmlega hálf eitt. 11.10.2009 13:02
Jóhanna: Var ekki að setja þrýsting á Vinstri græna Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segist ekki hafa verið að setja þrýsting á Vinstri græna með því að birta greinagerð Seðlabankans og viðskiptaráðuneytisins um hvaða afleiðingar frekari tafir á endurskoðun Alþjóðgjaldeyrisjóðsins kann að hafa fyrir íslenskt efnahagslíf. 11.10.2009 12:30
Öryrkjabandalagið óskar eftir frestun Stjórn Öryrkjabandalags Íslands ætlar óska eftir því að fyrirhuguðum skerðingum á örorkulífeyri sem taka eiga gildi um næstu mánaðamót verði frestað. 11.10.2009 12:12
Þyrla sækir slasaðan mann Þyrla Landhelgisgæslunnar er að sækja slasaðan mann við Jökulheima við rætur Vatnajökuls. Hjá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fengust þær upplýsingar að talið sé að maðurinn hafi orðið undir bíl sem hann var að gera við. Ekki fengust upplýsingar um líðan mannsins. 11.10.2009 11:43
Mannskæð sprengjuárás í Írak Að minnsta kosti 10 létust og margir slösuðust þegar tvær bílasprengjur sprungu á sama tíma í morgun fyrir utan opinbera byggingu í Írak. Árásin var gerð í borginni Ramadi sem er í vesturhluta landsins. 11.10.2009 10:57
Ólögmæt ákvörðun ráðherra Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, er allt annað en sáttur með fjármála- og umhverfisráðherra. Hann segir að nýlegur úrskurður þess síðarnefnda um Suðvesturlínu sé ólögmæt ákvörðun. Helgi var gestur Sigurjóns M. Egilssonar á Bylgjunni í morgun. 11.10.2009 10:32
Obama hyggst bæta stöðu samkynhneigðra innan hersins Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ætlar að bæta verulega stöðu samkynhneigðra innan bandaríska hersins. Hann lýsti þessu yfir á fundi með baráttuhóp fyrir réttindum samkynhneigðra í gær. Áður hafði forsetinn sagst ætla að vinna að bættum réttindum samkynhneigðra. 11.10.2009 09:55
Gíslar frelsaðir í Pakistan Pakistönskum hermönnum tókst í morgun að frelsa 40 gísla sem voru í haldi Talibana í herstöð nálægt höfuðborginni Islamabad. Fólkið var tekið í gíslingu í gær þegar Talibanar náðu herstöðinni á sitt vald. Þrír gíslar létu lífið í átökunum í morgun, sex hermenn og að minnsta kosti fjórir Talibanar. 11.10.2009 09:51
Ófært um Hellisheiði eystri og Öxi Á Austurlandi er ófært um Hellisheiði eystri og Öxi. Þungfært er um Breiðdalsheiði. Hálka er í Oddskarði, Fagradal og á Fjarðarheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 11.10.2009 09:06
Sjö gistu fangageymslur í nótt Nóttin virðist víðast hvar hafa verið róleg hjá lögreglumönnum. Lögregla þurfti að hafa lítil afskipti af fólki í miðbæ Reykjavíkur en sinnti nokkrum hávaðaútköllum víðsvegar um borgina. Einn ökumaður var stöðvaður grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna. Sjö gistu fangageymslur lögreglu. 11.10.2009 08:57
70 létust eftir að olíuflutningabíll sprakk Að minnsta kosti 70 létust eftir að olíuflutningabíll sprakk í loft upp í suðurhluta Nígeríu í gær. Það er talið allt eins líklegt að tala látinna komi til með að hækka en fjöldi fólks slasaðist. Margir alvarlega. 11.10.2009 07:45
Maóistar drápu 13 lögreglumenn Skæruliðar Maóista á Indlandi myrtu að minnsta kosti 13 lögreglumenn í Maharashtra héraði í suðurhluta landsins í gærkvöldi. Skæruliðarnir segjast vera að berjast fyrir rétti fátækra bænda og farandverkamanna. Þeir hafa hert aðgerðir sínar að undanförnu í Indlandi en einungis eru nokkrir dagar síðan þeir myrtu 17 lögreglumenn. 11.10.2009 06:30
Sendu blöðrur yfir til Norður Kóreu Um 200 manns komu saman í Suður Kóreu og slepptu blöðrum sem svifu svo yfir til nágrannana í Norður Kóreu. Blöðrurnar voru fylltar af dreifibréfum sem á hafði verið ritaðar fréttir og víðs vegar að úr heiminum. 10.10.2009 20:45
Mótmæltu vinnubrögðum borgarstjórans Mótmælendur komu saman í Moskvu til að mótmæla borgarstjórunum Yri Lushkov, og vinnubrögðum hans. Lushkov hefur verið borgarstjóri í 17 ár og hefur gjörbreytt Moskvu á þeim tíma. Flestir segja til hins betra. En Luskov hefur verið gagnrýndur fyrir spillingu, eiginkona hans er ríkasta kona Rússlands, en hún er einmitt fyrirferðamikil verktakabransanum í Moskvu. Mómælin í dag fóru friðsamlega fram en þau eru haldin í tilefni þess að sveitastjórnarkosningar eru á næsta leiti. 10.10.2009 19:37
Segja Svandísi reyna að bregða fæti fyrir Orkuveituna Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, og Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri fyrirtækisins, segja Svandís Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, hafi ítrekað reynt að bregða fæti fyrir Orkuveituna. Þeir segja vanhugsaðar yfirlýsingar ráðamanna þjóðarinnar geta grafið undan þeim fyrirtækjum sem geri sitt besta til að efla trúverðugleika íslensks atvinnulífs erlendis. 10.10.2009 17:20
Árásarmaðurinn enn í haldi lögreglu Maðurinn sem stakk annan mann með hníf í kviðinn í Sjallanum á Akureyri í gærkvöld er enn í haldi lögreglu. Hann hefur hefur verið yfirheyrður í dag og málið er enn í rannsókn. Árásarmaðurinn hefur áður komið við sögu lögreglu 10.10.2009 17:08
Býst ekki við frekari töfum á bólefninu Haraldur Briem, sóttvarnalæknir, á ekki von á frekari töfum á að bólefni gegn svínaflensu komi til landsins. „Við erum ítrekað búin að ganga á eftir þessu og það er búið að fullyrða við okkur að þetta komi í lok mánaðarins.“ 10.10.2009 16:47
Margir vilja vinna í Valhöll Yfir 140 umsóknir bárust um tvö störf á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins en umsóknarfrestur rann út fyrr í vikunni. Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, segir fjölda umsókna hafa farið fram úr björtustu vonum. 10.10.2009 16:24
Vilja Ögmund aftur í ríkisstjórn Vinstri grænir í Kópavogi vilja að Ögmundi Jónassyni verði boðið sæti í ríkisstjórn á nýjan leik. Ályktun þess efnis var samþykkt á félagsfundi VG í bæjarfélaginu fyrr í dag. Þingflokksformaður VG er sama sinnis. 10.10.2009 15:44
Ófært um Öxarfjarðarheiði Víða á norðausturlandi eru hálkublettir. Hálka er um Hálsa og við Þórshöfn. Ófært er um Öxarfjarðarheiði, að fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. 10.10.2009 15:18
Castro ánægður ákvörðun Nóbelsverðlaunanefndarinnar Fídel Kastró, fyrrverandi forseti Kúbú, er ánægður með ákvörðun norsku Nóbelsverðlaunanefndarinnar um að veita Barack Obama Bandaríkjaforseta friðarverðlaunin í ár. Ákvörðun nefndarinnar hefur vakið furðu margra. 10.10.2009 15:13
Halda hermönnum í gíslingu Hópur herskárra múslima sem réðst á höfuðstöðvar pakistanska hersins í borginni Rawalpindi í morgun halda innan við tíu hermönnum í gíslingu.Að minnsti kosti 12 féllu í árásinni. 10.10.2009 14:41
Reynir að fresta staðfestingu Lissabon sáttmálans Eiríkur Bergmann, forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst, segir að Vaclav Klaus, forseti Tékkalands, reyni nú hvað hann geti til að koma í veg fyrir að Lissabon sáttmálinn verði samþykktur heima fyrir. 10.10.2009 14:12
Jóhanna að senda VG skilaboð Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, telur að með Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sé að senda VG skilaboð um nú komið sé að ögurstund í stjórnarsamstarfinu. Fallist þingmenn flokksins ekki á afgreiðslu Icesave málsins geti verið að ríkisstjórnarsamstarfið lifi það ekki af. 10.10.2009 13:45
Sigmundur: Jóhanna spillir fyrir að lánið fáist Íslendingum stendur ekki til boða að fá risalán frá Noregi upp á rúma tvö þúsund milljarða króna. Þetta kemur fram í svarbréfi Jens Stoltenbergs, forsætisráðherra Noregs, til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Framsóknarmenn saka Jóhönnu um að senda villandi skilaboð til Noregs til að koma í veg fyrri að lánið fáist. 10.10.2009 12:47
Björgunarsveitir sinntu um 150 útköllum í gær Björgunarsveitir á Suður- og Vesturlandi sinntu um 150 útköllum í gær vegna veðurofsans. Mikið eignatjón varð í óveðrinu en engan sakaði. 10.10.2009 12:41
Samfélagið lítur enn á karlmenn sem fyrirvinnu Samfélagið lítur enn á karlmenn sem fyrirvinnu og krefst þess að þeir eyði miklum tíma á vinnustaðnum. Þá er enn litið svo á að konur beri meginábyrgð á heimilisstörfum og umönnun barna. Þetta kemur fram í nýrri doktorsritgerð um kynjajafnrétti. 10.10.2009 12:23
Pólland staðfestir Lissabon sáttmálann Forseti Póllands undirritaði Lissabon sáttmálann við hátíðlega athöfn í morgun. Tékkar eiga nú einir Evrópusambandsþjóða eftir að staðfesta sáttmálann. 10.10.2009 12:16
Óánægður með ákvörðun Svandísar Yfirlýsingar umhverfisráðherra um að nýta ekki undanþágur frá Kyotobókuninni eru vonbrigði að mati Illuga Gunnarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Miklir fjárhagslegir hagsmunir séu í húfi. 10.10.2009 12:11
Dómsdagsspá og ofbeldi Jóhönnu Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir í samtali við fréttastofu að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisdóttir, leggja nú allt undir til að kúga þjóðina til að sætta sig við afarkosti Hollendinga og Breta. Öllum meðulum sé beitt þar á meðal endalausum dómsdagsspám. 10.10.2009 11:47
Höskuldur: Fórum ekki fýluferð til Noregs Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir sig og formann flokksins ekki hafa farið í fýluferð til Noregs til að liðka um fyrir risaláni til Íslands. Þvert á móti hafi þeir greint mikinn vilja meðal norskra þingmanna. Höskuldur segir að hafi Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, beðið forsætisráðherra Noregs um að segja ekki stæði til að veita Íslendingum slíkt lán sé um skemmdarverk að ræða. 10.10.2009 10:43
Átta hermenn látnir Átta pakistanskir hermenn eru látnir eftir árás sem gerð var á höfuðstöðvar þeirra í Rawalpindi í morgun. Fjórir árásarmannanna voru skotnir til bana í átökum sem brutust út. Tveggja árásarmanna er hins vegar leitað. 10.10.2009 10:14
Á þriðja hundrað látnir eftir aurskriður Að minnsta kosti 260 eru látnir eftir aurskriður og flóð sem fellibylurinn Parma hefur valdið á Filippseyjum undanfarna daga. Parma fór yfir Filippseyjar aðeins tveimur vikum eftir að fellibylurinn Ketsana fór þar um og olli flóðum, gífurlegri eyðileggingu og manntjóni. Talið er að 600, að minnsta kosti, hafi látist á Filippseyjum af völdum þessara tveggja fellibylja. 10.10.2009 10:07
Víða hálka Á Vestfjörðum eru hálkublettir á Arnkötludal, Hálsunum og á Steingrímsfjarðarheiði þar sem einnig er óveður. Á Gemlufallsheiði er einnig óveður ásamt snjóþekju. Ófært er á Hrafnseyrarheiði og á Klettsháls. Hálka er á Kleifaheiði og hálkublettir á Hálfdán. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 10.10.2009 09:35