Hægt að semja um flýtimeðferð 11. október 2009 19:18
Sérfræðingur í Evrópumálum hér á landi telur möguleika á því að semja við seðlabanka Evrópu um flýtimeðferð til að festa gengi íslensku krónunnar gagnvart evrunni. Slíkt gæti komið í veg fyrir frekara fall krónunnar og spákaupmenn gætu síður tekið stöðu gegn henni. Eiríkur Bergmann forstöðumaður Evrópufræðaseturs á Bifröst hefur gefið út bókina sem ber heitið Frá Evróvision til evru. Þar er fjallað um Evrópusambandið og meðal annars hvernig áhrif það hefði á íslenskt samfélag. Eiríkur telur að Íslendingar ættu að leggja áherslu á að fá flýtimeðferð í undirbúningi að upptöku evru með það að markmiði „Að fá Seðlabanka Evrópu í Frankfurt til þess að hjálpa okkur að tryggja skiptigengi krónunnar á við evru og það verði gert um leið og samningur verði undirritaður," segir Eiríkur. Íslenska samninganefndin sem fer með aðildarviðræður hefur enn ekki verið skipuð en hún þyrfti að fara fram á fyrirkomulagið. Eiríkur telur mögulegt að það gæti komið til framkvæmda ári áður en þjóðin gengi í sambandið. En samningaferli tæki um tvö ár. „Mér sýnist á þeim samtölum sem ég ég hef átt í við ýmsa fulltrúa Evrópusambandsins í Brussel að það gæti verið möguleiki að búa til einhverja sérstaka lausn fyrir Ísland einfaldlega vegna þeirrar fordæmalausastöðu sem hér er komin upp," segir Eiríkur.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Sjá meira