Kallar forystu sjálfstæðismanna og Steingrím umskiptinga 11. október 2009 14:06 Kristinn átti sæti á þingi frá 1991 til 2009 fyrir þrjá flokka. Alþýðubandalag, Framsóknarflokk og Frjálslynda flokkinn. „
Umskiptingar eru gjarnan á ferðinni á stjórnmálasviðinu. Sjaldan hefur það verið jafn bersýnilegt og eftir þingkosningarnar í vor," segir Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður, í pistli á heimasíðu sinni. Þar beinir hann spjótum sínum að forystumönnum Sjálfstæðisflokksins og formanni Vinstri grænna. Kristinn segir að Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, segi eitt í stjórnarandstöðu og annað í stjórn. Það sama eigi við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, varaformann flokksins. Þau hafi aðra skoðun í stjórnarandstöðu en þau töluðu fyrir sem stjórnarliðar. „Forystumaður Vinstri grænna var einarðastur og stóryrtastur allra gegn Icesave og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum," segir Kristinn um Steingrím sem sé nú öllum öðrum einarðari og staðfastari málsvari þess að ljúka samningum um Icesave og fylgja efnahagsáætlun ríkisstjórnar Geirs Haarde og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þá segir Kristinn að forysta Sjálfstæðisflokksins hafi leitt ríkisstjórn og Alþingi til þeirrar niðurstöðu að semja um greiðslu á Icesave innistæðunum. Sama forysta hafi samið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um efnahagsáætlun og lánsfé. „Það var fyrir kosningar. Eftir kosningar vill forysta sama flokks ekki borga Icesave og vill ekki samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Efnahagsáætlunin er nú ómöguleg og engin þörf á lánsfénu," segir Kristinn. Kristinn telur þetta háttalag ekki vera til þess að auka álit almennings á stjórnmálamönnum. Hann segir að Steingrímur hafi það sér til málsbóta að hann sé að gera það sem þurfi að gera. „Hin hafa það ekki, þau víkja frá því sem þau vita að þarf að gera. Þau falla í þá freistni að gera ríkisstjórninni frekar óleik en að vinna að þjóðarhag. Stjórnmálin þurfa að breytast og leikrit umskiptinganna er eitt af því sem má hverfa."
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Sjá meira