Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Poe jarðsunginn aftur Bandaríski rithöfundurinn Edgar Allan Poe var loksins lagður til hinstu hvílu í gær, 160 árum eftir dauða sinn. 12.10.2009 08:09
Heimsendir líklega ekki 2012 Heimsendir verður að öllum líkindum ekki í desember 2012 þrátt fyrir spár fólks sem legið hefur í fornum dagatölum maja-indíána. 12.10.2009 07:38
Handtekinn með skammbyssu á Kastrup Flugfarþegi á sjötugsaldri var handtekinn á Kastrup-flugvelli í gær eftir að skammbyssa fannst í fórum hans. 12.10.2009 07:21
Skaut verðandi eiginkonu sína til bana Brúðgumi í Winter Springs í Flórída skaut verðandi eiginkonu sína til bana daginn fyrir brúðkaup þeirra í þeirri trú að hún væri innbrotsþjófur. Brúðguminn, John Tabutt, er 62 ára gamall. 12.10.2009 07:15
Þrefalt sprengjutilræði í Írak Rúmlega 20 eru látnir í borginni Ramadi í vesturhluta Íraks eftir þrefalt sprengjutilræði þar í gær. Fyrst var bíl, stútfullum af sprengiefni, ekið á vegg lögreglustöðvar og hann sprengdur í loft upp. 12.10.2009 07:13
Mótmælendur á þaki breska þingsins Að minnsta kosti 30 umhverfisverndarsinnum á vegum Greenpeace-samtakanna tókst að komast upp á þak breska þinghússins í London í nótt. 12.10.2009 07:04
Innbrot hjá eldri borgurum Brotist var inn í félagsmiðstöð eldri borgara í Vesturbæ Reykjavíkur um miðnætti í gær. Að sögn lögreglu var myndvarpa stolið úr miðstöðinni auk þess sem þjófurinn eða þjófarnir höfðu lítilræði af peningum upp úr krafsinu. 12.10.2009 06:55
Mótorhjólaslys í Garðabæ Ökumaður mótorhjóls slasaðist í Garðarbæ í gærkvöldi þegar hann ók aftan á brifreið með þeim afleiðingum að hann kastaðist af hjólinu. Að sögn lögreglu beinbrotnaði maðurinn en óljóst er um frekari meiðsli. Ökumann bílsins og farþega sakaði ekki en slysið átti sér stað á tíunda tímanum í gærkvöldi. 12.10.2009 06:54
Ægir kominn á slóðir fiskiskipsins Varðskipið Ægir er komið á slóðir vélarvana grænlensks fiskiskips sem statt er miðja vegu á milli Íslands og Grænlands. Ekki hefur fengist staðfest hvort tekist hafi að koma taug í skipið en til stendur að draga hann síðan til hafnar á Íslandi. 12.10.2009 06:53
Bændur slökkva ljósin í skugga skelfilegrar stöðu „Staðan er að verða skelfileg hjá garðyrkjubændum. Kostnaðurinn hefur hækkað mikið og hef ég heyrt að nokkrir íhugi að hætta heilsársframleiðslu um næstu áramót,“ segir Bjarni Jónsson, framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda. 12.10.2009 06:00
Stærði sig af líflegu kynlífi Dómstólar í Sádi-Arabíu hafa dæmt 32 ára gamlan mann í fimm ára fangelsi fyrir að stæra sig af líflegu kynlífi sínu í sjónvarpi. Fangelsisdómurinn dugði þó ekki alveg sem refsing því honum er líka gert að þola þúsund svipuhögg. 12.10.2009 05:00
Makríllinn enn á miðunum Fjögur íslensk tog- og nótaskip hafa undanfarna daga tekið þátt í makrílrannsóknum fyrir Austur- og Suðausturlandi sem skipulagðar eru af Hafrannsóknastofnun. Rannsóknin er hluti af því að kortleggja breytt hegðunarmynstur makrílsins við Ísland. 12.10.2009 05:00
Friðarsúlan skín líka á netinu Kveikt var á friðarsúlunni sem tileinkuð er minningunni um Bítilinn John Lennon í þrívíddarútgáfu af Viðey sem finna má í netsamfélaginu Second Life, nokkrum stundum eftir sama viðburð hér á föstudag. 12.10.2009 05:00
Samskipti ríkjanna enn stirð Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, segir að Armenar verði að yfirgefa Nagorno-Karabach, fjallahérað í Aserbaídsjan sem að mestu er byggt Armenum. Þetta sagði hann í gær, daginn eftir að Tyrkland og Armenía undirrituðu samning um að hefja stjórnmálasamskipti á ný eftir sextán ára hlé. 12.10.2009 05:00
Ráðherra sagður tala OR niður „Það er sérkennilegt þegar ekki má benda á hið augljósa. Það eru erfiðleikar með bæði orkuöflun fyrir álver í Helguvík og fjármögnun Hverahlíðarvirkjunar,“ segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra. 12.10.2009 04:15
Niðurskurðurinn bitnar mest á öryrkjum Öryrkjar eru uggandi um sinn hag og óttast frekari tekjuskerðingar en orðið hafa á árinu, segir Guðmundur Magnússon, varaformaður Öryrkjabandalags Íslands, ÖBÍ. Aðalstjórn bandalagsins sendi frá sér ályktun í gær þar sem hún mótmælir „harðlega að ríkisstjórnin, sem kennir sig við félagshyggju og jöfnuð, skuli áforma að halda áfram að skerða kjör öryrkja umfram aðra þegna landsins“. Guðmundur segir mjög hart fyrir öryrkja og aðra lífeyrisþega að þurfa að takast á við verri kjör auk þess sem þeir finni auðvitað líka fyrir hækkandi verði á neysluvörum og hærri afborgunum lána. 12.10.2009 04:00
Enn neitað um sæti við samningaborðið Ísland hefur afþakkað boð um að senda áheyrnarfulltrúa á fund strandríkja um heildarstjórnun makrílveiða síðar í þessum mánuði. Fundarboðendum var tilkynnt að Ísland tæki ekki þátt í slíkum fundi nema sem fullgilt strandríki. 12.10.2009 04:00
121 námsmenn enn á atvinnuleysisskrá Vinnumálastofnun hefur sent bréf til 121 manns sem er bæði á atvinnuleysisskrá og skráður í nám án þess að hafa samið um það við stofnunina. Undanfarna daga hefur verið unnið að því að samkeyra atvinnuleysisskrána við nemendaskrár fjörutíu og þriggja háskóla og framhaldsskóla í landinu. 12.10.2009 03:00
Álver í landi Bakka mun rísa Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, segir að áfram verði unnið á grunni viljayfirlýsingar um álver á Bakka þótt yfirlýsingin sem slík hafi ekki verið framlengd, að ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Í samtali við Sveitarstjórnarmál, rit Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir Bergur Elías ákvörðun ríkisstjórnarinnar bakslag, „en við látum engan bilbug á okkur finna. Álver í landi Bakka við Húsavík mun rísa," segir hann. - bþs 12.10.2009 03:00
Gordon Brown ætlar að selja Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að safna þremur milljörðum punda í breska ríkissjóðinn með sölu ríkiseigna. Meðal annars stendur til að selja járnbrautarleiðina milli London og Ermarsundsganganna. Einnig verður Dartford-brúin yfir ána Thames og göng undir ána á sama stað seld. Þá á að selja veðmálafyrirtækið Tote og 33 prósenta hlut breska ríkisins í evrópska fyrirtækinu Urenco, sem framleiðir kjarnorkueldsneyti.- gb 12.10.2009 03:00
Nítján manns missa vinnuna „Þetta er sársaukafullt fyrir fólkið sem lendir í uppsögnunum en einnig fyrir okkur sem eftir eru. Það er erfitt að standa í svona löguðu en þetta var því miður nauðsynleg aðgerð,“ segir Páll Á. Jónsson, framkvæmdastjóri Mílu. Nítján starfsmönnum fyrirtækisins, sem rekur fjarskiptanet landsmanna, hefur verið sagt upp störfum, tíu á höfuðborgarsvæðinu og níu á landsbyggðinni. 12.10.2009 02:30
FME hefur farið í gegnum 800 þúsund tölvupósta Fjármálaeftirlitið hefur farið í gegnum 800 þúsund tölvupósta og viðskipti þúsund einstaklinga í rannsókn sinni á peningamarkaðssjóðum bankanna þriggja. 11.10.2009 18:45
Stjórnin þarf að leggja fram nýtt Icesave frumvarp Ríkisstjórnin þarf að leggja fram nýtt Icesave frumvarp í síðasta lagi í byrjun næstu viku til að koma í veg fyrir málsókn af hálfu Hollendinga og Breta vegna setningar neyðarlaganna. Slík málsókn gæti þýtt að lánshæfismat Íslands verði lækkað niður í ruslflokk. 11.10.2009 18:40
Kastrup lokað vegna tannbursta Lögreglan í Kaupmannahöfn var með mikinn viðbúnað í grennd við Kastrupflugvöll vegna grunsamlegrar tösku sem fannst í flugstöðvarbyggingunni seinnipartinn í dag. 11.10.2009 18:31
Höskuldur: Fullyrðingar Jóhönnu rangar Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að fullyrðingar forsætisráðherra í bréfi til forsætisráðherra Noregs séu rangar. Hann segir að hvorki hann né Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hafi farið fram á 2000 milljarða lán frá Noregi. 11.10.2009 17:11
Bréfaskipti Jóhönnu og Stoltenbergs birt Forsætisráðuneytið hefur birt nýleg bréfaskipti Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, í tengslum við fullyrðingar forystumanna Framsóknarflokksins um áhuga norskra þingmanna að veita Íslendingum lán fram hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. 11.10.2009 16:48
Nítján létust í átökunum í höfuðstöðvum pakistanska hersins Nítján létust í Pakistan í gær eftir að til átaka kom þegar hópur herskárra múslima réðst á höfuðstöðvar hersins í borginni Rawalpindi. 11.10.2009 19:24
Hægt að semja um flýtimeðferð Sérfræðingur í Evrópumálum hér á landi telur möguleika á því að semja við seðlabanka Evrópu um flýtimeðferð til að festa gengi íslensku krónunnar gagnvart evrunni. Slíkt gæti komið í veg fyrir frekara fall krónunnar og spákaupmenn gætu síður tekið stöðu gegn henni. 11.10.2009 19:18
Minni skömm en áður Nærri 170 fasteignir hafa verið seldar nauðungarsölu hjá Sýslumanninum í Reykjavík það sem af er þessu ári. Það eru fleiri nauðungarsölur en allt árið í fyrra. 11.10.2009 19:01
Reyna að fjölga ferðmönnum Á Suðausturlandi eru ferðaþjónustuaðilar farnir að þróa verkefni sem lýtur að því að selja sjálfan veturinn. Markmið verkefnisins er að fjölga verulega í hópi þeirra ferðamanna sem leggja land undir fót inn í vetrarríki landshlutans í framtíðinni. 11.10.2009 18:56
Gagnrýnir tímabundnar ráðningar ráðherra Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, gagnrýnir hvernig ráðherrar standa að tímabundnum ráðningum. Hún segir gegnsæi skorta og að ráðherrar hafi ráðið pólitíska aðstoðarmenn í stöður sem hafi ekki verið auglýstar. 11.10.2009 16:23
Útskrifaður eftir skoðun Maðurinn sem þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í morgun eftir slys í Jökulheimum reyndist ekki alvarlega slasaður. Áverkar hans reyndust minniháttar og að sögn vakthafandi læknis á slysadeild var maðurinn útskrifaður eftir skoðun. 11.10.2009 16:14
Sprengjurnar í Ramadi voru þrjár Að minnsta kosti 22 eru látnir og meira en 60 eru særðir eftir árás hryðjuverkmanna í borginni Ramadi í vesturhluta Íraks í morgun. Sprengjurnar voru þrjár en í fyrstu var talið að þær hafi verið tvær. 11.10.2009 15:34
Fara fram á að jafnræðis sé gætt milli landshluta Framsóknarmenn í Skagafirði undrast þær áherslur sem fram hafa komið í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem lúta að landsbyggðinni og sérstaklega að Norðurlandi vestra. Þeir gerir þá kröfu að ríkisstjórnin hafi það að leiðarljós að jafnræðis sé gætt milli landshluta. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar Framsóknarfélags Skagafjarðar. 11.10.2009 15:01
Úrskurðurinn veldur ekki stórkostlegum töfum „Ég áttaði mig á því að þessi ákvörðun mín myndi valda titringi,“ segir Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, um úrskurð sinn um Suðvesturlínu. Hún segir óeðlilegt að halda því fram að úrskurðurinn komi til með að valda stórkostlegum töfum á iðnaðarframkvæmdum á Suðurnesjum. 11.10.2009 14:47
Kallar forystu sjálfstæðismanna og Steingrím umskiptinga „Umskiptingar eru gjarnan á ferðinni á stjórnmálasviðinu. Sjaldan hefur það verið jafn bersýnilegt og eftir þingkosningarnar í vor,“ segir Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður, í pistli á heimasíðu sinni. Þar beinir hann spjótum sínum að forystumönnum Sjálfstæðisflokksins og formanni Vinstri grænna. 11.10.2009 14:06
Engar breytingar fyrirhugaðar á losunarheimildum Formaður samninganefndar Íslands um loftslagsmál segir að engar breytingar séu framundan á losunarheimildum íslenskra stóriðjufyrirtækja fram til ársins 2012. Árið 2013 muni íslensk stóriðja hins vegar fá allar sínar heimildir í gegnum evrópska kerfið og standa jafnfætis evrópskum fyrirtækjum í orkufrekum iðnaði. 11.10.2009 13:30
Þyrlan lent Þyrla Landhelgisgæslunnar sem var kölluð út í morgun til að sækja slasaðan mann í Jökulheima við rætur Vatnajökuls lenti við Borgarspítalann klukkan rúmlega hálf eitt. 11.10.2009 13:02
Jóhanna: Var ekki að setja þrýsting á Vinstri græna Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segist ekki hafa verið að setja þrýsting á Vinstri græna með því að birta greinagerð Seðlabankans og viðskiptaráðuneytisins um hvaða afleiðingar frekari tafir á endurskoðun Alþjóðgjaldeyrisjóðsins kann að hafa fyrir íslenskt efnahagslíf. 11.10.2009 12:30
Öryrkjabandalagið óskar eftir frestun Stjórn Öryrkjabandalags Íslands ætlar óska eftir því að fyrirhuguðum skerðingum á örorkulífeyri sem taka eiga gildi um næstu mánaðamót verði frestað. 11.10.2009 12:12
Þyrla sækir slasaðan mann Þyrla Landhelgisgæslunnar er að sækja slasaðan mann við Jökulheima við rætur Vatnajökuls. Hjá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fengust þær upplýsingar að talið sé að maðurinn hafi orðið undir bíl sem hann var að gera við. Ekki fengust upplýsingar um líðan mannsins. 11.10.2009 11:43
Mannskæð sprengjuárás í Írak Að minnsta kosti 10 létust og margir slösuðust þegar tvær bílasprengjur sprungu á sama tíma í morgun fyrir utan opinbera byggingu í Írak. Árásin var gerð í borginni Ramadi sem er í vesturhluta landsins. 11.10.2009 10:57
Ólögmæt ákvörðun ráðherra Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, er allt annað en sáttur með fjármála- og umhverfisráðherra. Hann segir að nýlegur úrskurður þess síðarnefnda um Suðvesturlínu sé ólögmæt ákvörðun. Helgi var gestur Sigurjóns M. Egilssonar á Bylgjunni í morgun. 11.10.2009 10:32
Obama hyggst bæta stöðu samkynhneigðra innan hersins Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ætlar að bæta verulega stöðu samkynhneigðra innan bandaríska hersins. Hann lýsti þessu yfir á fundi með baráttuhóp fyrir réttindum samkynhneigðra í gær. Áður hafði forsetinn sagst ætla að vinna að bættum réttindum samkynhneigðra. 11.10.2009 09:55
Gíslar frelsaðir í Pakistan Pakistönskum hermönnum tókst í morgun að frelsa 40 gísla sem voru í haldi Talibana í herstöð nálægt höfuðborginni Islamabad. Fólkið var tekið í gíslingu í gær þegar Talibanar náðu herstöðinni á sitt vald. Þrír gíslar létu lífið í átökunum í morgun, sex hermenn og að minnsta kosti fjórir Talibanar. 11.10.2009 09:51