Innlent

Stjórnin þarf að leggja fram nýtt Icesave frumvarp

Ríkisstjórnin þarf að leggja fram nýtt Icesave frumvarp í síðasta lagi í byrjun næstu viku til að koma í veg fyrir málsókn af hálfu Hollendinga og Breta vegna setningar neyðarlaganna. Slík málsókn gæti þýtt að lánshæfismat Íslands verði lækkað niður í ruslflokk.

Frestur tryggingasjóðs innstæðueigenda til að greiða út tryggingar vegna Icesave reikninganna rennur út 23. október næstkomandi.

Ekki er heimilt að framlengja þennan frest og verði ekki búið að semja um Icesave fyrir þennan tíma er ljóst að sjóðurinn mun ekki geta staðið við skuldbindingar sínar. Eignir sjóðsins nema um 17 milljörðun króna en kröfurnar um 800 milljörðum.

Í greinargerð sem Seðlabankinn og Viðskiptaráðuneytið unnu fyrir forsætisráðherra er talið líklegt að greiðsluþrot sjóðsins muni hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér. Sjóðurinn gæti átt von á málsókn á hendur sér og sömuleiðis ríkið fyrir að mismuna innistæðueigendum eftir staðsetningu.

Bretar og Hollendingar munu með öðrum orðum stefna ríkinu vegna setningu neyðarlaganna. Slík málsókn, að mati höfunda greinargerðarinnar, gæti þýtt að lánshæfismat Íslands verði lækkað niður í ruslflokk.

Ríkisstjórnin hefur samkvæmt þessu tólf daga til að leiða Icesave málið til lykta og koma þannig í veg fyrir þessa atburðarrás. Það mun taka Alþingi að minnsta kosti þrjá til fimm daga að afgreiða málið og því er ljóst að frumvarpið verður að líta dagsins ljós ekki seinna en á mánudaginn eftir viku.

Sumir vilja láta reyna á dómstólaleiðina en af orðum forsætisráðherra að dæma er ljóst að hennar vilji stendur til þess að klára málið áður en fresturinn rennur út.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×