Fleiri fréttir

Sendu blöðrur yfir til Norður Kóreu

Um 200 manns komu saman í Suður Kóreu og slepptu blöðrum sem svifu svo yfir til nágrannana í Norður Kóreu. Blöðrurnar voru fylltar af dreifibréfum sem á hafði verið ritaðar fréttir og víðs vegar að úr heiminum.

Mótmæltu vinnubrögðum borgarstjórans

Mótmælendur komu saman í Moskvu til að mótmæla borgarstjórunum Yri Lushkov, og vinnubrögðum hans. Lushkov hefur verið borgarstjóri í 17 ár og hefur gjörbreytt Moskvu á þeim tíma. Flestir segja til hins betra. En Luskov hefur verið gagnrýndur fyrir spillingu, eiginkona hans er ríkasta kona Rússlands, en hún er einmitt fyrirferðamikil verktakabransanum í Moskvu. Mómælin í dag fóru friðsamlega fram en þau eru haldin í tilefni þess að sveitastjórnarkosningar eru á næsta leiti.

Segja Svandísi reyna að bregða fæti fyrir Orkuveituna

Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, og Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri fyrirtækisins, segja Svandís Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, hafi ítrekað reynt að bregða fæti fyrir Orkuveituna. Þeir segja vanhugsaðar yfirlýsingar ráðamanna þjóðarinnar geta grafið undan þeim fyrirtækjum sem geri sitt besta til að efla trúverðugleika íslensks atvinnulífs erlendis.

Árásarmaðurinn enn í haldi lögreglu

Maðurinn sem stakk annan mann með hníf í kviðinn í Sjallanum á Akureyri í gærkvöld er enn í haldi lögreglu. Hann hefur hefur verið yfirheyrður í dag og málið er enn í rannsókn. Árásarmaðurinn hefur áður komið við sögu lögreglu

Býst ekki við frekari töfum á bólefninu

Haraldur Briem, sóttvarnalæknir, á ekki von á frekari töfum á að bólefni gegn svínaflensu komi til landsins. „Við erum ítrekað búin að ganga á eftir þessu og það er búið að fullyrða við okkur að þetta komi í lok mánaðarins.“

Margir vilja vinna í Valhöll

Yfir 140 umsóknir bárust um tvö störf á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins en umsóknarfrestur rann út fyrr í vikunni. Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, segir fjölda umsókna hafa farið fram úr björtustu vonum.

Vilja Ögmund aftur í ríkisstjórn

Vinstri grænir í Kópavogi vilja að Ögmundi Jónassyni verði boðið sæti í ríkisstjórn á nýjan leik. Ályktun þess efnis var samþykkt á félagsfundi VG í bæjarfélaginu fyrr í dag. Þingflokksformaður VG er sama sinnis.

Ófært um Öxarfjarðarheiði

Víða á norðausturlandi eru hálkublettir. Hálka er um Hálsa og við Þórshöfn. Ófært er um Öxarfjarðarheiði, að fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Castro ánægður ákvörðun Nóbelsverðlaunanefndarinnar

Fídel Kastró, fyrrverandi forseti Kúbú, er ánægður með ákvörðun norsku Nóbelsverðlaunanefndarinnar um að veita Barack Obama Bandaríkjaforseta friðarverðlaunin í ár. Ákvörðun nefndarinnar hefur vakið furðu margra.

Halda hermönnum í gíslingu

Hópur herskárra múslima sem réðst á höfuðstöðvar pakistanska hersins í borginni Rawalpindi í morgun halda innan við tíu hermönnum í gíslingu.Að minnsti kosti 12 féllu í árásinni.

Reynir að fresta staðfestingu Lissabon sáttmálans

Eiríkur Bergmann, forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst, segir að Vaclav Klaus, forseti Tékkalands, reyni nú hvað hann geti til að koma í veg fyrir að Lissabon sáttmálinn verði samþykktur heima fyrir.

Jóhanna að senda VG skilaboð

Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, telur að með Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sé að senda VG skilaboð um nú komið sé að ögurstund í stjórnarsamstarfinu. Fallist þingmenn flokksins ekki á afgreiðslu Icesave málsins geti verið að ríkisstjórnarsamstarfið lifi það ekki af.

Sigmundur: Jóhanna spillir fyrir að lánið fáist

Íslendingum stendur ekki til boða að fá risalán frá Noregi upp á rúma tvö þúsund milljarða króna. Þetta kemur fram í svarbréfi Jens Stoltenbergs, forsætisráðherra Noregs, til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Framsóknarmenn saka Jóhönnu um að senda villandi skilaboð til Noregs til að koma í veg fyrri að lánið fáist.

Samfélagið lítur enn á karlmenn sem fyrirvinnu

Samfélagið lítur enn á karlmenn sem fyrirvinnu og krefst þess að þeir eyði miklum tíma á vinnustaðnum. Þá er enn litið svo á að konur beri meginábyrgð á heimilisstörfum og umönnun barna. Þetta kemur fram í nýrri doktorsritgerð um kynjajafnrétti.

Pólland staðfestir Lissabon sáttmálann

Forseti Póllands undirritaði Lissabon sáttmálann við hátíðlega athöfn í morgun. Tékkar eiga nú einir Evrópusambandsþjóða eftir að staðfesta sáttmálann.

Óánægður með ákvörðun Svandísar

Yfirlýsingar umhverfisráðherra um að nýta ekki undanþágur frá Kyotobókuninni eru vonbrigði að mati Illuga Gunnarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Miklir fjárhagslegir hagsmunir séu í húfi.

Dómsdagsspá og ofbeldi Jóhönnu

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir í samtali við fréttastofu að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisdóttir, leggja nú allt undir til að kúga þjóðina til að sætta sig við afarkosti Hollendinga og Breta. Öllum meðulum sé beitt þar á meðal endalausum dómsdagsspám.

Höskuldur: Fórum ekki fýluferð til Noregs

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir sig og formann flokksins ekki hafa farið í fýluferð til Noregs til að liðka um fyrir risaláni til Íslands. Þvert á móti hafi þeir greint mikinn vilja meðal norskra þingmanna. Höskuldur segir að hafi Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, beðið forsætisráðherra Noregs um að segja ekki stæði til að veita Íslendingum slíkt lán sé um skemmdarverk að ræða.

Átta hermenn látnir

Átta pakistanskir hermenn eru látnir eftir árás sem gerð var á höfuðstöðvar þeirra í Rawalpindi í morgun. Fjórir árásarmannanna voru skotnir til bana í átökum sem brutust út. Tveggja árásarmanna er hins vegar leitað.

Á þriðja hundrað látnir eftir aurskriður

Að minnsta kosti 260 eru látnir eftir aurskriður og flóð sem fellibylurinn Parma hefur valdið á Filippseyjum undanfarna daga. Parma fór yfir Filippseyjar aðeins tveimur vikum eftir að fellibylurinn Ketsana fór þar um og olli flóðum, gífurlegri eyðileggingu og manntjóni. Talið er að 600, að minnsta kosti, hafi látist á Filippseyjum af völdum þessara tveggja fellibylja.

Víða hálka

Á Vestfjörðum eru hálkublettir á Arnkötludal, Hálsunum og á Steingrímsfjarðarheiði þar sem einnig er óveður. Á Gemlufallsheiði er einnig óveður ásamt snjóþekju. Ófært er á Hrafnseyrarheiði og á Klettsháls. Hálka er á Kleifaheiði og hálkublettir á Hálfdán. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Stútar stöðvaðir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði sex ökumenn í nótt sem grunaðir voru um að aka undir áhrifum áfengis. Að sögn varðstjóra var nóttin að öðru leyti með rólegra móti.

Hnífsstunga í Sjallanum

Karlmaður á tvítugsaldri var stunginn með hnífi í kviðinn í Sjallinn á Akureyri á tíunda tímanum í gærkvöld. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús og er líðan hans eftir atvikum góð. Hann hefur nú verið útskrifaður. Maðurinn var starfsmaður skemmistaðnum.

Húsleit hjá fíkniefnasala á Akureyri

Lögreglan á Akureyri hafði í gærkvöldi afskipti af manni á þrítugsaldri þar sem grunsemdir höfðu vaknað um að hann seldi fíkniefni. Við leit á manninum fundust tæp 10 grömm af kannabisefnum, sem pakkað hafði verið niður í sölueiningar.

Louvre skilar verðmætum

Frakkar létu í gær undan kröfum Egypta um að ómetanlegum menningarminjum á Louvre-safninu í París yrði skilað aftur til Egyptalands. Egyptar, með fornleifafræðinginn Zahi Hawas í fararbroddi, hættu í vikunni samstarfi við Louvre-safnið til þess að þrýsta á kröfu sína. Samstarfsslitin hefðu orðið til þess að fornleifauppgröftur á vegum Louvre í Egyptalandi væri í uppnámi.

Ráðherra segir OR ekki bera meiri lán

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir fráleitt að láta sem úrskurður hennar um Suðvesturlínu standi álveri í Helguvík fyrir þrifum. Mun stærri ljón séu í veginum fyrir álversframkvæmdum en sá úrskurður sem þýði fárra vikna töf á línunni. Til að mynda sé spurningum ósvarað um orkuöflun.

Kona í dásvefni eignast barn

Fertug kona í Þýskalandi hefur fætt heilbrigt barn þrátt fyrir að hafa verið í dásvefni síðustu 22 vikur meðgöngunnar. Starfsfólk á háskólasjúkrahúsinu í Erlangen sagði aðstandendur konunnar hafa óskað eftir því að barnið yrði látið fæðast þrátt fyrir erfitt ástand móðurinnar, sem fékk hjartaáfall og hefur verið í dái síðan.

Fyrstu myndirnar sýndu lítið

Bandarískt geimfar brotlenti á suðurpól tunglsins í gær. Harkaleg lendingin var vel skipulögð og taldist vel heppnuð. Um borð í geimfarinu eru mælitæki sem ætlað er að finna ummerki vatns á tunglinu.

Svört spá um áhrif tafa á áætlun AGS

Töf á endurskoðun efnahagsáætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) mun draga úr tiltrú á efnahagsstefnu stjórnvalda heima og erlendis, seinka afnámi gjaldeyrishafta, auka líkur á lægra gengi en hærri verðbólgu, draga úr svigrúmi til vaxtalækkunar og auka líkur á vaxtahækkun. Lánshæfismat ríkissjóðs mun lækka í flokki ótryggra fjárfestinga, sem mun hafa slæm áhrif á endurfjármögnun skuldbindinga innlendra aðila.

Genapróf verði fyrir alla

Innan fárra ára munu genapróf kosta milli eitt og tíu prósent af því sem þau kosta í dag, enda verða verkfærin sífellt ódýrari, sem þarf til að gera þau. Svo segir Kári Stefánsson, stofnandi Íslenskrar erfðagreiningar. „Ég er sannfærður um að nær allir Vesturlandabúar muni fara í slík próf innan nokkurra ára,“ sagði hann í gær á alþjóðlegri líftækniráðstefnu IJP-samtakanna í Heidelberg í Þýskalandi.

Sprotafrumvarp loksins fyrir Alþingi

Fjármálaráðherra kynnti í gær stjórnarfrumvarp fyrir nýsköpunar- og sprotafyrirtæki. Gangi það í gegn geta fyrirtækin fengið fimmtung rannsókna- og þróunarkostnaðar endurgreiddan og fjárfestar fengið ívilnanir vegna kaupa á hlutafé.

Fréttablaðið verður fáanlegt um allt land

Stefnt er að því að Fréttablaðið verði aðgengilegt um land allt eftir breytingar á dreifingu þess í lok mánaðarins. Blaðinu hefur ekki verið dreift svo víða áður.

Ríkið leggur fram 1,1 milljarð

Ríkið ætlar að taka þátt í 23 milljóna evra hlutafjáraukningu í Eignarhaldsfélaginu Farice ehf. og leggja fram 6,25 milljónir evra, jafngildi 1,1 milljarðs króna. Heimildar er aflað í frumvarpi til fjáraukalaga.

Úthlutun friðarverðlauna vekur furðu

Ákvörðun norsku Nóbelsverðlaunanefndarinnar um að veita Barack Obama Bandaríkjaforseta friðarverðlaunin í ár vakti furðu víðs vegar um heim. Sjálfur sagðist Obama undrandi og finna til auðmýktar, en hann myndi líta á verðlaunin sem hvatningu til dáða.

Vilhjálmur telur að skattlagning muni fæla frá erlenda fjárfesta

Áhrif skattlagningar á orkufrekan iðnað verða fyrst og fremst þau að fæla fjárfesta frá og byggja starfsemina upp annars staðar, sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins á umhverfisþingi í morgun. Hann sagði að umhverfisáhrifin af skattinum væru því engin.

Vegagerðir: Færð á vegum

Þverárhlíðarvegur 522 er lokaður við bæinn Norðtungu vegna raflínu sem liggur á veginum.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er ekki gert ráð fyrir að hægt verði að opna veginn aftur fyrr en á morgun.

Hátt í 80 útköll í dag - engin stórtjón

Lögregla og björgunarsveitir hafa þurft að sinna hátt í 80 útköllum í dag vegna óveðursins. Það er óheyrilega mikið eins og varðstjóri lögreglunnar orðaði það.

Viðhöfn í Viðey frestað

Búið er að fresta auglýstri dagskrá í Viðey vegna tendrun Friðarsúlunnar í kvöld samkvæmt tilkynningu. Þess í stað er stefnt á að halda viðhöfnin á morgun, 10. október.

Gömul refabú fjúka yfir Grundarhverfi

Skæðardrífa af þakjárni gekk yfir Brautarholt á Kjalarnesi, Grundarhverfi, fyrir skömmu og kom hún frá gömlu refahúsunum í Hjassa sem er utarlega á Kjalarnesi. Björgunarsveitamenn reyna nú að hemja fokið. Auk þeirra eru tvær dráttarvélar á leið á staðinn til aðstoðar.

Komin af gjörgæslu

Konan sem varð fyrir alvarlegri árás í Hörðalandi í Reykjavík í vikunni hefur verið útskrifuð af gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni.

Ástandið að batna í Zimbabwe

Morgan Tswangirai forsætisráðherra Zimbabwes segir að ástandið í mannréttindamálum hafi skánað mikið síðan flokkur hans myndaði þjóðstjórn með Robert Mugabe forseta.

Sjá næstu 50 fréttir