Fleiri fréttir

Icesave gæti orðið að lögum á morgun

Icesave ríkisábyrgðin gæti orðið að lögum frá Alþingi á morgun. Það skýrist þó ekki fyrr en að loknum fundi Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, með formönnum þingflokka eftir hádegi en þar á að freista þess að ná samkomulagi um afgreiðslu þessa umdeilda máls.

Ráðherrar vilja að stofnanir niðurgreiði strætó

Umhverfisráðherra og samgönguráðherra hvetja stofnanir og fyrirtæki til að taka upp heildstæða samgöngustefnu. Ráðherrarnir leggja til að opinber fyrirtæki og stofnanir niðurgreiði fargjöld í strætó fyrir starfsmenn sína til að draga úr notkun einkabíls. Þá vilja þeir kanna mögulega aðkoma ríkisins að verkefninu ókeypis í strætó.

Segir sérstaka nefnd hafa takmarkað opinbert eftirlit

„Það var meira að segja sett upp þriggja manna nefnd sem átti að hafa stjórn á því að hinn svokallað eftirlitsiðnaður færi ekki úr hófi fram," segir Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, í samtali við Netvarpið.

Varað við slæmu veðri við Vatnajökul

Veður er nú afar slæmt norðan Vatnajökuls og beinir Slysavarnafélagið Landsbjörg þeim tilmælum til ferðafólks að vera ekki á ferð þar nema brýna nauðsyn beri til.

Skotbardagar milli lögreglu og bankaræningja í Árósum

Til skotbardaga kom milli lögregluþjóna og bankaræningja sem réðust inn í útibú Nordea bankans skammt frá Randersvej í Árósum um klukkan tíu í morgun að dönskum tíma. Lögregluhundur drapst eftir að hann varð fyrir skoti. Einn ræningjanna er í haldi lögreglunnar en talið er að þeir hafi verið fleiri og leitar lögreglan þeirra nú, meðal annars með aðstoð þyrlu. Talið er að ræningjarnir séu frá Litháen.

Lokið við stækkun friðlands í Þjórsárverum snemma næsta árs

Undirbúningur að stækkun friðlandsins í Þjórsárverum hefst nú þegar samkvæmt tillögu Svandísar Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, sem var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu segir að Svandís vilji ljúka stækkun friðlandsins eigi síðar en snemma árs 2010.

Reisa NATO og öðrum heimsvaldasinnum níðstöng

Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi hafa ákveðið að reisa Atlantshafsbandalaginu (NATO) níðstöng til að fyrirbyggja komu heimsvaldasinna til landsins vegna ásælni þeirra í olíulindir í Norðurhöfum.

„Loga ekki öll ljós í kolli háttvirts þingmanns"

„Það er nokkuð ljóst að það loga ekki öll ljós í kolli háttvirts þingmanns ef hann getur ekki munað tvær-þrjár spurningar sem beint er til hans hér úr ræðustól," sagði Ragnheiður Ríkharðsdóttur, þingmaður Sjálfstæðisflokks, í þingsal rétt fyrir hálftólf í gærkvöld.

Mannræningi mætti með mömmu í héraðsdóm

Yngsti mannræningi Íslands, Axel Karl Gíslason, hefur verið ákærður fyrir að skipuleggja Barðastrandaránið. Hann braust ekki sjálfur inn heldur gerði hann þá Viktor Má Axelsson og Marvin Kjarval M. út af örkinni.

Varað við ferðum undir Ingólfsfjalli

Sterkar vindhviður eru nú á Suðurlandsvegi undir Ingólfsfjalli og að mati lögreglu er ekkert ferðaveður með hjólhýsi, hestakerrur eða aðra eftirvagna. Þeir sem hyggja á ferðalög með slíkt er bent á leita áður upplýsinga hjá Vegagerðinni í síma 1777 eða á heimasíðu Vegagerðarinnar.

Lockerbie morðingi fékk konunglegar móttökur í Líbíu

Aðstandendur þeirra sem létust í Lockerbie ódæðinu eru ævareiðir yfir því að maðurinn sem sprengdi farþegaþotu í loft upp árið 1988 skuli vera frjáls maður. Honum var fagnað sem hetju við heimkona til Líbíu í gærkvöldi.

Flýja Ísland

Á fyrri helmingi ársins fluttu 1.532 fleiri frá landinu en til þess. Á sama tímabili í fyrra fluttu hins vegar um 2.674 fleiri til landsins en frá því, samkvæmt tölum frá Hagstofunni.

Talning hafin í Afganistan

Talning atkvæða er hafin í kjölfar forsetakosninga í Afganistan sem haldnar voru í landinu í gær. Milljónir Afgana létu hótanir um ofbeldi á kjörstað ekki aftra sér frá því að mæta en þetta er í annað sinn sem Afganar ganga að kjörborðinu eftir að Talíbanar voru hraktir frá völdum í landinu.

Hýdd fyrir að fá sér bjórglas

Fyrirsæta ein í Malasíu er fyrsta konan í sögu landsins sem dæmd hefur verið til þess að hljóta sex vandarhögg fyrir að drekka bjór á almannafæri. Dómurinn var felldur af Sharía dómstól landsins en fyrirsætan sjálf hefur nú krafist þess að dómnum verði framfylgt á almannafæri.

Rok í Kollafirði eyðilagði hjólhýsi

Stórt hjólhýs fauk út af Vesturlandsvegi í Kollafirði í snarpri vindhviðu á tólfta tímanum í gærkvöldi. Ökumanni bílsins, sem dró hjólhýsið, tókst að halda bílnum á veginum, en hjólhýðið er ónýtt.

Lögðu rangt mat á veruleikann

Óttar Pálsson forstjóri Straums Burðaráss biðst afsökunar á hugmyndum um árangurtengdar greiðslur, eða bónusgreiðslur, upp á allt að tíu milljarða króna til sín og starfsmanna bankans, fyrir að koma eignum bankans í verð, en Fjármálaeftirlitið fer nú tímabundið með stjórn bankans.

Mikill erill og fullar fangageymslur

Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt vegna ölvunar og afbrota, og eru fangageymslurnar í Reykjavík fullar eftir nóttina. Þar dvelur meðal annars par, sem reyndi að svíkja út vörur í Lyfju með stolnu greiðslukorti og tveir karlmenn, sem handteknir voru eftir að hafa ekið bíl á vegrið í grennd við Höfðabakkabrúna.

Enn óvissa um nýja skólann í Reykjavík

Menntaráð Reykjavíkur tekur umsókn Menntaskólans, um starfsemi nýs einkarekins grunnskóla í Heilsuverndarstöðinni í Reykjavík, fyrir á fundi sínum á miðvikudag. Grunnskólar í Reykjavík verða settir á mánudaginn.

Stefnt vegna ummæla viðmælanda

Guðríður Haraldsdóttir, ritstjóri Vikunnar, hefur hafnað samtals tíu milljóna króna miskabótakröfum fjölskyldu úr Sandgerði vegna umfjöllunar um málefni hennar í nýlegu tölublaði Vikunnar. Telur fjölskyldan að umfjöllunin, sem ekki var merkt höfundi, hafi verið full af grófum ærumeiðingum og að hún hafi brotið gegn friðhelgi einkalífs hennar. Fjölskyldan hyggst fara með málið fyrir dómstóla.

Lífskjaratrygging of dýr fyrir sveitarfélög

Hugmyndin um 186.000 króna lífskjaratryggingu gæti kostað Reykjavíkurborg 760 milljónir á ári, miðað við kostnað borgarinnar við fjárhagsaðstoð til einstaklinga á fyrstu sex mánuðum ársins, að sögn Jórunnar Frímannsdóttur, formanns Velferðarráðs borgarinnar.

Margfalt fleiri karlar en konur

Fleiri útlendingar fluttust frá landinu en til þess á fyrstu þremur mánuðum ársins. Er það í fyrsta sinn síðan árið 1992, sem einnig var kreppuár, að sögn Ólafar Garðarsdóttur, dósents við Háskóla Íslands og doktors í fólksfjöldafræði.

Vopnið enn rannsakað og rætt við vitni

Lögreglan rannsakar enn gögn sem aflað var á morðvettvanginum í Dalshrauni á þriðjudag. Þá er enn verið að ræða við vitni úr húsinu. Rannsóknin er þó langt komin. Ekki fæst uppgefið hvort Bjarki Freyr Sigurgeirsson, grunaður morðingi, hefur játað glæpinn eða hvort hann man yfir höfuð eftir því sem gerðist.

Tvö skip gætu skýrt olíubrák á Faxaflóa

Lýsing staðhátta þar sem eftirlitsflugvél Landhelgis-gæslunnar fann olíubrák á dögunum gæti bent til þess að annað skip en bandaríska varðskipið USCGC Alexander Hamilton liggi þar á hafsbotni, eins og greint var frá í fjölmiðlum í gær. Hugsanlegt er að í hlut eigi annað skip sem þýskur kafbátur sökkti á stríðsárunum, að mati Gæslunnar.

Strax færð til yfirheyrslu

Ellefu menn úr áhöfn rússneska flutningaskipsins Arctic Sea voru samstundis færðir til yfirheyrslu eftir að áhöfnin kom til Moskvu með flugi í gær.

Lögreglumenn ræða við ríkið

Kjaraviðræður hófust í gær á milli lögreglumanna og ríkisins hjá ríkissáttasemjara. Lögreglumenn felldu í síðustu viku kjarasamninga við ríkið með miklum meirihluta, yfir 90 prósent felldu samninginn.

Lægstu og hæstu tekjur lækka

Þeir sem voru með undir tvöhundruð þúsund krónum í laun í maí í fyrra, eru nú að meðaltali með „verulega minni tekjur en þá,“ segir í Vefriti fjármálaráðuneytisins. Um leið hafa þeir tekjuhæstu misst um helming tekna sinna.

Gæsaveiðar hafnar á ný

Veiðitímabilið á grágæs og heiðagæs hófst í gær og nokkur fjöldi skyttna fór til veiða. Illa viðraði og óvíst er hverjar gæftir voru. Helsingja má veiða frá og með 1. september, þó ekki fyrr en 25. september í Skaftafellssýslum, en verið er að reyna að vernda varpstofn fuglsins. Helsingi verpir eingöngu í Skaftafellssýslum. Blesgæs er áfram friðuð. Grágæsastofninn er áætlaður 100.000 dýr sem er svipað og árið 2007, heiðagæsastofninn 350.000 dýr og helsingjastofninn 70.000 dýr.- kóp

Skotárás á Norðurbrú í Kaupmannahöfn

Óeinkennisklæddur lögreglumaður er særður eftir skotárás við Jægersborggade á Norðurbrú í Kaupmannahöfn fyrr í kvöld. Maðurinn hlaut skotsár á handlegg og maga. Árásin átti sér stað í hverfi þar sem fíkniefnasalar og glæpagengi ráða ríkjum.

Kosningaþáttaka dræm í Afganistan

Kjörstöðum hefur nú verið lokað í Afghanistan en í dag fóru fram forsetakosningar í landinu. Ofbeldi og hótanir öfgamanna vörpuðu þó ákveðnum skugga á kosningadaginn.

Ágúst ræður Eyjólf Kjalar á Bifröst

Dr. Eyjólfur Kjalar Emilsson hefur verið ráðinn prófessor við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst. Eyjólfur hefur verið prófessor í heimspeki við Háskólann í Osló undanfarin 14 ár og mun gegna því starfi áfram. Hann er heimspekingur að mennt með doktorsgráðu frá Princeton háskóla í Bandaríkjunum.

Vill afnema boðsferðir í Elliðaánum

Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri Grænna, lagði fram tillögu fyrir stjórn Orkuveitu Reykjavíkur í dag, þess efnis að Orkuveitan hætti að bjóða völdum sveitarstjórnarmönnum og embættismönnum til laxveiða Í Elliðaánum.

Skaðabótamál gegn stjórnendum skoðað

Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, fyrrverandi bankastjórar Landsbankans og aðrir stjórnarmenn gætu þurft að greiða skaðabætur úr eigin vasa til íslenska ríkisins vegna Icesave - ákveði stjórnvöld að höfða skaðabótamál á hendur þeim.

Flutningabíll valt á Holtavegi

Lögreglan var kölluð að Holtavegi nú á fimmta tímanum en flutningabíll fór þar á hliðina. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er ekki vitað til þess að neinn hafi slasast í óhappinu.

Orkufyrirtæki í almannaeigu rædd á opnum fundi

Vinstri græn boða til opins fundar í Salthúsinu í Grindavík til að ræða framtíð Hitaveitu Suðurnesja og hvernig tryggja megi eignarhald þjóðarinnar yfir auðlindum þjóðarinnar.

Cameron fordæmdir lausn Lockerbie morðingja

David Cameron, flokksleiðtogi íhaldsmanna í Bretlandi, fordæmir þá ákvörðun skoskra yfirvalda að sleppa Abdelbaset Ali al-Megrahi úr haldi en hann átti aðild Lockerbie ódæðinu árið 1988 en þá fórust 270 manns um borð í þotu Pan Am flugfélagsins. Cameron segir ákvörðun yfirvalda algjörlega fjarstæðukennda.

Sló konu í andlitið á Kaffi Akureyri

Tuttugu og tveggja ára karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Maðurinn er sakaður um að hafa slegið 26 ára gamla konu með glerglasi í andlitið með þeim afleiðingum að hún hlaut fjölda sára í hársverði, á enni, á vinstra gagnauga og víðar.

Sjá næstu 50 fréttir