Innlent

Gæsaveiðar hafnar á ný

MYND/Rósa

Veiðitímabilið á grágæs og heiðagæs hófst í gær og nokkur fjöldi skyttna fór til veiða. Illa viðraði og óvíst er hverjar gæftir voru.

Helsingja má veiða frá og með 1. september, þó ekki fyrr en 25. september í Skaftafellssýslum, en verið er að reyna að vernda varpstofn fuglsins. Helsingi verpir eingöngu í Skaftafellssýslum.

Blesgæs er áfram friðuð. Grágæsastofninn er áætlaður 100.000 dýr sem er svipað og árið 2007, heiðagæsastofninn 350.000 dýr og helsingjastofninn 70.000 dýr.- kóp








Fleiri fréttir

Sjá meira


×