Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögregla í Mexíkó fann ellefu lík í bifreið Lögregla í Mexíkóborg í Mexíkó fann ellefu lík í bifreið nálægt landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna í gær. Höfðu hendur og fætur verið höggvin af sumum þeirra. 5.6.2009 08:26
Obama kominn til Þýskalands Barack Obama Bandaríkjaforseti er nú kominn til Þýskalands í opinbera heimsókn þar sem hann mun meðal annars eiga viðræður við Angelu Merkel kanslara landsins. 5.6.2009 08:21
Haldið sofandi í öndunarvél Karlmanni á þrítugsaldri er haldið sofandi í öndunarvél á Landspítalanum í Fossvogi eftir að hafa orðið fyrir árás í húsi á Grettisgötu í Reykjavík um miðjan dag í gær. Svæfingalæknir á spítalanum segir að stefnt sé að því að vekja hann síðar í dag. Sex manns eru í haldi lögreglu grunaðir um aðild að árásinni. 5.6.2009 08:20
Ók á girðingu eftir glæfraakstur Betur fór en á horfðist þegar ökumaður bíls sem ók á ofsahraða vestur Miklubraut við brúna yfir Bústaðaveginn missti stjórn á bílnum og lenti á girðingu sem skilur akbrautirnar að. 5.6.2009 08:10
Flugslys: Brak sem fannst er ekki úr þotunni Brak sem talið hafði verið að væri úr Air France þotunni sem fórst á dögunum með 228 manns innanborðs, er ekki úr þotunni og því hefur enn hvorki tangur né tetur fundist af vélinni. 5.6.2009 07:23
Gekk berserksgang í vesturbænum Lögregla var í nótt kölluð að húsi í vesturbæ þar sem tilkynnt hafði verið um mikil læti. Þar hafði maður gengið berserksgang að sögn vitna en hafði forðað sér áður en lögregla kom á staðinn. Skömmu síðar fær lögreglan aftur hringingu og nú hafði maðurinn snúið aftur og var sagður vopnaður. Þegar lögreglumenn komu vettvang tók maðurinn á móti þeim vopnaður barefli sem hann hótaði að nota. Lögreglumennirnir beittu þá piparúða á ofbeldissegginn og yfirbuguðu. Hann gistir nú fangageymslur. 5.6.2009 07:22
Karlmaður í lífshættu eftir misþyrmingar Tæplega þrítugur litháískur karlmaður slasaðist lífshættulega um miðjan dag í gær þegar til átaka kom í húsi við Grettisgötu í Reykjavík. Sex manns voru handteknir í kjölfarið, fjórir karlmenn og tvær konur. 5.6.2009 06:00
Ríkið þarf að eyða óvissu Stærri skref verða ekki tekin í lækkun stýrivaxta meðan ekki liggur fyrir áætlun um tilhögun ríkisfjármála. Þetta kom fram á vaxtaákvörðunarfundi Seðlabanka Íslands í gær. Kynnt var eins prósentustigs lækkun stýrivaxta, sem nú standa í tólf prósentum. 5.6.2009 05:45
Björgvin G. skilur vaxtaákvörðunina Þverpólitísk vonbrigði yfir lítilli stýrivaxtalækkun komu fram á Alþingi í gær. Þingmenn allra flokka – utan Borgarahreyfingarinnar – lýstu sárum vonbrigðum með að vextirnir hefðu aðeins lækkað í tólf prósent. Stjórnarandstæðingar stóðu klárir á ástæðunni: ríkisstjórnin hefði ekki tekið á ríkisfjármálunum. 5.6.2009 05:30
Áfangi í Icesave-deilu kynntur í ríkisstjórn Möguleg lausn á Icesave-deilunni verður kynnt í ríkisstjórn í dag. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verður tekin afstaða til þess hvort sú leið sé fær eða ekki. Það þarf þó ekki að þýða að lausn finnist á deilunni því ef íslensk stjórnvöld hafna þessari leið eru samningar enn þá opnir. 5.6.2009 05:00
Fyrning nær til alls „Miðað við það hvernig verið er að meðhöndla íslenskt atvinnulíf í vaxtamálum, haftamálum og varðandi fyrningarleið í sjávarútvegi þá sé ég ekki betur en fyrningarleið sé hugsuð fyrir allt íslenskt atvinnulíf“, sagði Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, á málþingi í Vestmannaeyjum í gær. 5.6.2009 04:30
Ekki tekið tillit til áætlana stjórnvalda „Ég hafði vonast eftir meiri lækkun og það olli mér vonbrigðum að hún varð ekki meiri en þetta,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra um ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um lækkun stýrivaxta um eitt prósentustig. 5.6.2009 04:00
Fyrning þýðir gjaldþrot Formaður sjávarútvegsnefndar segir ekki koma til greina að fara fyrningarleið í sjávarútvegi ef það sannast að hún hafi neikvæð áhrif á byggðirnar í landinu. Hann segir að sátt verði að ríkja um málið svo það fái framgang. 5.6.2009 03:30
Halda sig vel innan línunnar Búið er að veiða sjö hrefnur frá því að veiðar hófust 26. maí. Fjórar veiddi áhöfn Jóhönnu ÁR á miðvikudaginn. 5.6.2009 03:00
Mönnum bjargað fyrir utan Sandgerði „Auðvitað verður manni brugðið. Maður væri ekki heilbrigður annars. Ég hef verið á sjó síðan ég var krakki og veit hvað sjórinn getur gert. Hann gefur og tekur,“ segir Karl Einar Óskarsson, annar hafnsögumannanna sem voru hætt komnir þegar bát þeirra hvolfdi í innsiglingunni í Sandgerði í gær. 5.6.2009 02:30
Háð því að lán fáist á sæmandi kjörum „Það er alveg ljóst að þetta háir stýrivextir eru alveg óviðráðanlegir bæði fyrir heimili og fyrirtæki í landinu,“ segir Sigurður Jóhannesson, framkvæmdastjóri SAH afurða ehf. á Blönduósi. 5.6.2009 02:00
Ríkið ber ekki kostnað Þingmenn Framsóknarflokksins reyndu á Alþingi í gær að sannfæra stjórnarliða um ágæti tillögunnar um afskriftir hluta lána heimila og fyrirtækja. En allt kom fyrir ekki; stjórnarliðar sátu við sinn keip. 5.6.2009 01:00
Niðurlægir milljarðamæring fyrir pólitískan stöðugleika Vladimar Pútin náði nýjum hæðum í andstöðu sinin gagnvart olígörkum þegar hann skipaði milljarðamæringnum Oleg Derpaska til þess að fylgja sér til bæjarins Pikalevo Þar var verskmiðjuí eigu Oleg var lokað í síðustu viku með þeim afleiðingum að verkamennirnir fengu ekki greidd launin sín. 5.6.2009 00:01
Kallar eftir nýju upphafi Barack Obama Bandaríkjaforseti kallaði eftir nýju upphafi í samskiptum Bandaríkjanna og múslima í ræðu sinni í Kaíró í Egyptalandi í gær. Hann sagði að binda þyrfti enda á vítahring tortryggni og ósættis. Í sameiningu væri hægt að takast á við hryðjuverkamenn og öfgastefnur um allan heim og vinna að friði í Mið-Austurlöndum. 5.6.2009 00:00
VR fundur hófstilltur - skuggastjórnin hélt sig til hlés „Þetta var hófstilltur fundur," segir Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR en félagsfundur var haldin í kvöld að beiðni félagsmanna. Að sögn Kristins var aðallega um upplýsingafund að ræða og var hvergi hvikað frá fundardagskrá. 4.6.2009 23:15
Þurfa að skila spænskum fjársjóði Fjársjóðsleitarfyrirtækið Odyssey Marine Exploration, þarf að skila spænskum fjársjóði sem tilheyrir Spáni. 4.6.2009 21:56
Kona slösuð á Esjunni Kallað var eftir aðstoð lögreglu vegna konu sem slasaðist í Esjunni nú fyrir stundu. Konan er ekki illa slösuð og gat gengið eitthvað niður hlíðarnar. Hún náði þó ekki að klára þann spöl. 4.6.2009 21:22
Veitir Gordon Brown náðarhöggið Atvinnumálaráðherra Breta, James Purnell, sagði af sér ráðherradómi í kvöld og er talinn hafa veitt forsætisráðherra Breta, Gordon Brown, pólitískt náðarhögg með afsögn sinni. 4.6.2009 21:05
Eiginkonan fylgdist með lífsháska mannsins Eiginkona annars mannsins sem var hætt kominn er hann var um borð í lóðsbátnum Aðunni sem hvolfdi við björgunarstörf í dag, varð vitni af því þegar bátnum hvolfdi. Hún var á landi og fylgdist með björgunaraðgerðunum eins og svo margir þegar Auðunn togaðist með togaranum Sóley-Sigurjóns og hvolfdi í kjölfarið. 4.6.2009 20:04
Sektaði jólasveina á aðfangadag Sýslumaður Snæfellinga sektaði yfir sextán þúsund ökumenn fyrir hraðakstur í fyrra og aflaði hann mestra tekna fyrir ríkið á þessu sviði á árinu. Meira að segja jólasveinar voru sektaðir á aðfangadag. 4.6.2009 19:15
Landeyjahöfn nálgast Vestmannaeyjar hratt Varnargarðar nýju Landeyjahafnar nálgast nú Vestmannaeyjar hratt og er verktakinn á tveimur vikum búinn með þrjúhundruð metra af sjöhundruð. Þetta stærsta jarðvinnuverk sem nú er unnið að hérlendis mun valda byltingu í samskiptum Eyjamanna við aðra landsmenn. 4.6.2009 19:08
Tveir hafnsögumenn hætt komnir Tveir menn voru mjög hætt komnir í Sandgerði síðdegis þegar dráttarbát hvolfdi um leið og strönduðum togara var komið á flot. Annar mannanna sat fastur í stýrishúsinu fullu af sjó í á þriðju mínútu. 4.6.2009 18:49
Útibústjóra vikið úr starfi vegna meints lögbrots Einn af útibústjórum Landsbankans hefur orðið uppvís af brotum á starfsreglum bankans samkvæmt tilkynningu sem Landsbankinn sendi frá sér fyrir stundu. 4.6.2009 18:27
Hatrömm átök skugganna við nýja stjórn VR Búist er við átakafundi á félagsfundi VR í kvöld en hann hefst klukkan hálf átta. Nýkjörinn stjórnarmaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson, hefur snúið vörn í sókn og birt tölvusamskipti „VR skugganna" sem eru þeir sem eru á móti nýrri stjórn eða tilheyrðu þeirri gömlu. 4.6.2009 17:21
Togarinn á flot - björgunabáturinn sökk Togarinn Sóley Sigurjón GK - 200 er laus en meðal björgunabáta var Auðunn frá Keflavík. Hann mun hinsvegar hafa lent sjálfur í hremmingum og sokkið við björgunarstörfin. Þegar rætt var við varðstjóra hjá Landhelgisgæslunni þá sagði hann að engan hefði sakað, hvorki á björgunabátnum né togaranum. 4.6.2009 17:07
Herbert sigraði í hæstarétti - Málið rústaði hjónabandinu „Mér finnst að réttlætið hafi unnið í þessu máli,“ segir Herbert Guðmundsson, söngstjarna. Hæstiréttur vísaði í dag máli húsfélagsins að Prestbakka 11-21 gegn Herberti og fyrrum konu hans, Svölu Guðbjörgu Jóhannesdóttur, frá héraðsdómi. 4.6.2009 17:04
Farþegar fengu áfallahjálp Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi Icelandair segir að einhverjir farþegar hafi þegið áfallahjálp sem boðið var uppá eftir að vél félagsins þurfti að lenda á Gatwick flugvelli í London eftir að reykur kom upp í farþegarými vélarinnar. Vélin var að koma frá París og átti að lenda í Keflavík. Guðjón segir að útlit sé fyrir að allir farþegarnir komist áfram til íslands í kvöld. 4.6.2009 16:43
Hæstiréttur staðfestir dóm yfir Keilufellshrottum Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir fjórum pólskum karlmönnum fyrir húsbrot og sérstaklega hættulega líkamsárás í Keilufelli þann 22. mars síðastliðinn. 4.6.2009 16:38
Fjögurra ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stúlkubarni Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi Jóhann Sigurðarson í fjögurra ára fangelsi í desember síðastliðnum fyrir að hafa brotist inn á heimili um miðja nótt og sleikt kynfæri fimm ára gamlar stúlku. Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttardómari, skilaði sératkvæði en hann taldi hæfilega refsingu vera þrjú ár. 4.6.2009 16:32
Stolinn Audi Q7 fundinn Lögreglan fékk ábendingu frá vegfaranda eftir að auglýst var eftir Audi Q7 bifreið í morgun. Billinn fannst síðan nú síðdegis við hús í Efstasundi í Reykjavík.Lögreglan tekur nú bílinn og tekur fingraför. Þjórfurinn er hisnvegar ófundinn. 4.6.2009 16:20
Leið framsóknarmanna um 20% niðurfellingu skulda rædd á þingi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, mælti á Alþingi í dag fyrir umtöluðu frumvarpi þingflokks framsóknarmanna um 20% niðurfellingu skulda. Fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra tóku þátt í umræðum um frumvarpið. 4.6.2009 16:03
Dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni Karlmaður á fertugsaldri var í dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að brot gegn valdstjórninni. Brotin áttu sér stað í júní árið 2008 á skemmtistaðnum Áttunni að Hraunbergi 4 í Reykjavík. 4.6.2009 15:58
Enski boltinn líklega áfram hjá 365 Ari Edwald, forstjóri 365, segir í viðtali við Vísi að félag hans stefni á áframhaldandi útsendingarétt á enska boltanum en útboð á réttinum fer fram þann 9. júní næstkomandi og er rétturinn til fjögurra ára. 4.6.2009 15:37
Forsetinn ræddi nýtingu hreinnar orku við forseta Kýpur Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson átti í dag fund með Dimitris Christofias forseta Kýpur. Á fundinum var rætt um samvinnu smárra þjóða í Evrópu, árangur Kýpur og Íslands við nýtingu hreinnar orku og hugsanlega lausn á langvarandi deilum um skiptingu eyjarinnar en forseti Kýpur lýsti ítarlega tilraunum sínum til að ná samkomulagi við forystusveit tyrkneska minnihlutans sem skapað gæti grundvöll að nýju stjórnskipulagi á Kýpur og tryggt friðsamlega sambúð allra eyjarbúa. 4.6.2009 15:16
Vél frá Icelandair þurfti að lenda vegna reyks í farþegarými Farþegaþota Icelandair á leið frá París til Keflavíkurflugvallar lenti á Gatwick flugvelli við London um klukkan 13.20, eftir að reykur kom upp í farþegarýminu um borð. 4.6.2009 15:07
Brasilíski sjóherinn finnur meira brak úr vélinni Brasilíski sjóherinn er kominn á þær slóðir þar sem talið er að Airbus farþegaþota Air France flugfélagsins hafi hrapað aðfaranótt mánudags. Talið er að flugriti vélarinnar, eða hinn svokallaði svarti kassi, muni aldrei finnast þar sem hann er staðsettur á gríðarlega miklu dýpi. 4.6.2009 14:39
Viðræðum haldið áfram Árni Stefán Jónsson, varaformaður BSRB, segir að viðræðum um samkomulag samtaka launafólks, atvinnurekenda og ríkisins um launalið opinberra starfsmanna verði haldið áfram. Viðræðurnar eru í ákveðinni óvissu eftir að Seðlabankinn tilkynnti um 1% lækkun stýrivaxta í morgun. 4.6.2009 14:29
Fjórir grunaðir um kynferðisbrot á Ísafirði Rannsókn lögreglunnar á Vestfjörðum á meintu kynferðisafbroti sem mun hafa átt sér stað um helgina miðar vel. 4.6.2009 14:22
Vill sjá atvinnulíf og launþega leggja niður störf „Stjórnvöld bera mikla ábyrgð á því hvernig komið er fyrir þessari þjóð," segir Ólafur M. Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólku. Ólafi er nóg boðið eftir stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og vill að atvinnulífið og launþegar snúi bökum saman. 4.6.2009 14:06
Norskt varðskip til taks við Sandgerði Tvísýnt er talið hvort að takist að ná togaranum Sóleyju Sigurjóns af strandstað í innsiglinginnu í Sangerði á háflóðinu síðdegis í dag. Norska varðskipið Harstad er á leið á staðinn og verður til taks ef á þarf að halda. 4.6.2009 13:41