Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hvatti Jackson til að snúa aftur í kirkju Votta Jehóva Einn helsti andlegi ráðgjafi Michaels Jacksons segir að hann hafi verið blíður maður en hrelld sál. Óli Tynes ræddi við gyðingaprestinn Shmuley Boteachk og spurði hann meðal annars af hverju Jackson hafi reynt að verða hvítur. 27.6.2009 18:44
Kysstu mig Kata Fyrir allnokkrum árum var ekki óalgengt í höfuðborginni að sjá flugvélar af þessari gerð renna yfir Öskjuhlíðina á leið til lendingar á Reykjarvíkurflugvelli. 27.6.2009 17:39
Tsvangirai óttast upplausn hrökklist Mugabe frá Morgan Tsvangirai forsætisráðherra Zimbabwe sagði í viðtali við Reuters fréttastofuna í dag að það gæti valdið upplausn í landinu ef Robert Mugabe forseti hrökklaðist frá völdum vegna þrýstings frá Vesturlöndum. Þetta útspil kemur vægast sagt á óvart þar sem þeir Tsvangirai og Mugabe eru svarnir andstæðingar. Mugabe hefur ítrekað reynt að koma Tsvangirai fyrir kattarnef. 27.6.2009 17:22
Litla krúttið Þessi mynd er af henni Ungfrú Ellie. Hún var sigurvegari í samkeppni um ljótasta hund heims sem haldin var í Seattle í Bandaríkjunum í gær. 27.6.2009 17:11
Níðingar í Danmörku Danir eru slegnir yfir fréttum um að hópur ungmenna réðist á þroskaheftan fullorðinn mann og skutu hann margsinnis í andlitið með gasboltabyssu af stuttu færi. 27.6.2009 16:58
Á þriðja hundrað mótmæltu á Austurvelli Um þrjú hundruð manns voru á mótmælafundi Radda fólksins á Austurvelli í dag, þar sem Icesave samkomulaginu var mótmælt og sinnuleysi stjórnvalda í málefnum heimila og fyrirtækja. Þá krafist fundurinn þess að réttað verði tafarlaust yfir hvítflibbaglæpamönnum. 27.6.2009 16:47
Íslandsmetið í Esjugöngu slegið Tveir fjallgöngugarpur, Sveinn Halldór Helgason og Þorsteinn Jakobsson, slógu Íslandsmet í Esjugöngu með því að komast sjö sinnum upp á Esjuna í dag. Þeir tóku daginn snemma og byrjuðu klukkan tvö í nótt þar sem þeir töldu að það yrði sól og hiti í dag. 27.6.2009 16:43
Næstu skref móta framtíðina - 13 þingmenn vilja þjóðaratkvæði Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að næstu skref sem þjóðin taki muni móta framtíð hennar. Þrettán þingmenn Framsóknarflokks og Borgarahreyfingar vilja að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu eins fljótt og auðið er um hvort staðfesta eigi ríkisábyrgð vegna Icesave-reikninganna. 27.6.2009 16:16
Þjófar handteknir í Kringlunni Lögreglan handtók í hádeginu þrjá karlmenn sem staðnir voru að þjófnaði í verslun í Kringlunni. Öryggisverðir verslunarmiðstöðvarinnar höfðu afskipti af mönnunum og lauk þeim samskiptum með því að kalla þurfti til lögreglumenn, að sögn varðstjóra. 27.6.2009 15:45
Egyptar opna landmærin við Gaza Egyptar hafa opnað landamæri sín við Rafah á milli Egyptalands og Gaza. Landamærin verða opin í þrjá daga en það gerir einhverjum Palestínumönnum kleift að yfirgefa hið innilokaða svæði. 27.6.2009 15:17
Hvalur 8 á leið í land með tvær langreyðar Hvalveiðiskipið Hvalur 8 er á leið í land með tvær langreyðar. Þetta eru fyrstu dýrin sem skipið veiðir í 20 ár. Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf., gat ekki upplýst hvar dýrin voru veidd og endaði með því að skella á fréttamann. 27.6.2009 14:50
Þurfum að segja bless við AGS og nei við Icesave „Við þurfum kjark til að segja bless við AGS og kjark til að segja nei við Icesave og biðja Breta og Hollendinga um að setjast aftur að samningaborðinu,“ segir Valgeir Skagfjörð, varaþingmaður Borgarahreyfingarinnar. Hann gerir síðustu daga að umfjöllunarefni í pistli á heimasíðu sinni en frá því á mánudaginn hefur Valgeir setið á þingi sem varamaður Þórs Saari. 27.6.2009 14:07
Nóg komið af órökstuddum hræðsluáróðri Ólafur Elíasson, einn af forsvarsmönnum InDefence hópsins, segir nóg komið af hræðsluáróðri og órökstuddum fullyrðingum ráðamanna varðandi Icesave samkomulagið. Hann segir kjánalegt að halda því fram að nágranna- og vinaþjóðir fari í viðskiptastríð við okkur samþykki Alþingi ekki samkomulagið við bresk og hollensk stjórnvöld. 27.6.2009 13:37
Öryggisherbergi innréttuð í Danmörku Ofbeldisverk eru tíð í innbrotum í Danmörku þar sem innbrotsþjófar víla ekki fyrir sér að brjótast inn að næturþeli þegar íbúarnir eru heima. 27.6.2009 13:00
Hiti verður á bilinu 8 til 22 stig í dag Það verður hægviðri eða hafgola á landinu í dag og víða bjartviðri eða bjart með köflum, en þokuloft úti við ströndina norðan- og austanlands. Á morgun þykknar upp og fer að rigna sunnantil á landinu, en norðanlands verður nokkuð bjart fram eftir degi. Hiti verður á bilinu 8 til 22 stig, hlýjast í innsveitum en svalast í þokunni. 27.6.2009 12:15
Fjallgöngugarpur búinn að ganga fimm sinnum upp á Esjuna í dag Þorsteinn Jakobsson, fjallgöngugarpur, stefnir á að komast sjö sinnum upp á Esjuna í dag og slá þar með Íslandsmet í Esjugöngu en þetta er gert til styrktar Ljósinu, sem er endurhæfingar og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda. Þorsteinn tók daginn snemma og byrjaði klukkan tvö í nótt. 27.6.2009 12:14
Ungmennin ekki í lífshættu Fimm ungmenni voru flutt á sjúkrahús, þar af fjögur með sjúkraflugi, eftir að bifreið sem þau voru í fór útaf veginum í Fagradal í Fjarðarbyggð. Fólkið er ekki í lífshættu. 27.6.2009 12:00
Fimmtíu og eitt lík fundið úr Air France vélinni Tvöhundruð tuttugu og átta manns fórust með Air France flugi 447. Meðal þeirra var einn Íslendingur. 27.6.2009 12:00
Brotist inn í leikskólann Örk á Hvolsvelli Brotist var inn í leikskólann Örk á Hvolsvelli aðfaranótt föstudagsins. Þaðan voru teknar tvær fartölvur og skjávarpi. Þeir sem hafa orðið varir við mannaferðir í kringum leikskólann aðfaranótt föstudagsins eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á Hvolsvelli í síma 488-4110. 27.6.2009 11:23
Þyrla sótti slasað barn Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í morgun vegna slyss á þriggja ára stúlku í Félagsheimilinu Breiðabliki í Eyja og Miklaholtshreppi. Stúlkan var við leik þegar hún féll um einn og hálfa metra niður á gólf. Hún lenti á bakinu og var óttast að um innvortis meiðsl. 27.6.2009 11:01
Mótmæla sinnuleysi stjórnvalda Samtökin Raddir fólksins hafa boðað til útifundar á Austurvelli í dag klukkan þrjú en þetta er 31. fundurinn á Austurvelli undir merkjum samtakanna. 27.6.2009 11:00
Írskir skæruliðar farga loks vopnum Sjálfstæðisher Ulsters á Norður-Írlandi tilkynnti loks í dag að hann hefði fargað vopnum sínum. 27.6.2009 10:30
Eyða þarf 180 milljarða króna halla Ef ekki kæmi til aukinnar tekjuöflunar ríksins með skattahækkunum þyrfti að skera niður um 40% af umfangi hins opinbera. Þetta kemur fram í grein sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ritar í Fréttablaðið í dag. 27.6.2009 10:14
Piltur ógnaði öðrum með hníf Nóttin var tíðindalítil á höfuðborgarsvæðinu, að sögn aðalvarðstjóra lögreglunnar. Lögregla handtók þó undir morgun 16 ára pilt í miðborginni þar sem hann ógnaði öðrum með vasahníf. Drengurinn var færður á lögreglustöð en sökum ungs aldurs var hringt í foreldra hans sem komu og sóttu hann. 27.6.2009 10:10
Fimm ungmenni slösuðust í bílslysi Fimm ungmenni slösuðust eftir að bíll sem þau voru í fór út af veginum í Fagradal um klukkan hálf fjögur í morgun. Beita þurfti klippum til að ná fólki út úr bílnum og var tækjabíll slökkviliðs Fjarðarbyggðar sendur á staðinn ásamt sex sjúkrabílum. 27.6.2009 09:59
Krufning á Jackson skilaði engu Engar vísbendingar fundust um dánarorsök þegar Michael Jackson var krufinn í gær. Dánardómstjóri segir að frekari rannsóknir hafi verið fyrirskipaðar, meðal annars til þess að komast að því hvaða lyf poppstjarnan hafi tekið fyrir dauða sinn. 27.6.2009 09:51
Fulltrúadeildin samþykkti loftslagsfrumvarpið Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær með naumum meirihluta loftslagsfrumvarp sem ætlað er að draga úr loftmengun. Samþykki öldungadeildin einnig frumvarpið þurfa fyrirtæki í orkufrekum iðnaði að draga úr útblæstri gróðurhúslofttegunda um 17% fyrir árið 2020. 27.6.2009 09:29
Bróðir árásarmanns tekinn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á fimmtudag mann sem sterklega er grunaður um að tengjast alvarlegu líkamsárásarmáli. Bróðir þess handtekna hafði áður verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 29. júní vegna málsins. 27.6.2009 06:00
Ræddu um hælisleitendur Ragna Árnadóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, fundaði í gær með norrænum ráðherrum útlendingamála í Lardal í Noregi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. 27.6.2009 05:15
Vill gjaldeyrishöft á ný Robert Mugabe, forseti Simbabve, sagði í gær að það kæmi til greina að gera Simbabve-dalinn aftur að eina gjaldmiðli þjóðarinnar. 27.6.2009 05:00
Vinna hefur áhrif á tíðni krabbameins Minnstar líkur eru á því að bændur og garðyrkjumenn fái krabbamein, en mestar líkur á krabbameini eru meðal starfsstétta sem hafa auðvelt aðgengi að tóbaki og áfengi, eins og starfsfólk veitingastaða. Þetta eru niðurstöður umfangsmikillar rannsóknar á Norðurlöndunum á nýgengi krabbameina meðal starfsstétta. 27.6.2009 04:45
Strákar hærri þegar karlar kenndu „Stelpur taka oft fyrr út þroska en strákar. Það gæti verið ástæðan,“ segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, spurður hverja hann telji ástæðu þess að stúlkur eru með hærri einkunnir en drengir í grunnskóla og eru nú í miklum meirihluta í vinsælustu framhaldsskólum landsins. Hann segir að KÍ hafi ekki rætt þetta á fundum. 27.6.2009 04:15
Ríflega 300 milljóna aukaniðurskurður í dómsmálaráðuneytinu Dómsmálaráðuneytið hefur boðað forstöðumönnum flestra stofnana sem undir það heyra niðurskurð á seinni hluta þessa árs upp á ríflega 300 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. 27.6.2009 04:00
Yfirfull fangelsi nú hættuástand Gripið hefur verið til þess ráðs að nýta einangrunarklefa í fangelsum hér á landi til vistunar á almennum afplánunarföngum. Öll fangelsi eru yfirfull og um 200 brotamenn á boðunarlista til afplánunar, auk 1.600 einstaklinga sem sitja eiga af sér vararefsingu. Virkir, dæmdir brotamenn leika lausum hala þar sem ekki er pláss til að láta þá hefja afplánun, eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær. 27.6.2009 03:45
Stal meðlagi og notaði í rekstur Tæplega fimmtugur karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt. Jafnframt til að greiða Innheimtustofnun sveitarfélaga hálfa milljón króna. 27.6.2009 03:30
Boða stóreignaskatt og hækkun á áfengi Fjármálaráðherra boðar 30 til 40 prósenta hækkun á áfengis- og tóbaksgjaldi á næstu mánuðum í nýrri skýrslu um jöfnuð í ríkisfjármálum sem gerð var opinber í gær. Áætlað er að slíkar hækkanir gætu skilað ríkinu fjórum milljörðum í auknar tekjur. Hægt væri að hækka gjöldin í áföngum út næsta ár. 27.6.2009 02:15
Allt nötrar enn vegna Icesave Enn er alls óvíst hvort ríkisábyrgð vegna Icesave-lánsins verður samþykkt á Alþingi. Til stendur að frumvarpið verði lagt fram í næstu viku. 27.6.2009 02:00
Neyðarlínusímtal Jacksons - upptaka Slökkviliðið í Los Angeles sendi frá sér upptökuna af neyðarlínu símtali sem hringt var úr húsi Michael Jackson þegar hann missti meðvitund. 26.6.2009 22:26
Skrið að komast á umferð í Kömbum Nokkurt skrið er komið á umferð í Kömbunum en bíll bið bíl var þar fyrr í kvöld. Mikill straumur ferðamanna lagði leið sína austur fyrir fjall og skapaðist öngþveiti í Kömbunum. 26.6.2009 21:38
Snæugla við Hvalfjarðargöng Systrunum Auði og Elínu Valdimarsdætrum brá heldur betur í brún þar sem þær óku fram á Snæuglu skammt frá Kjalarnesinu áðan „Við öskruðum upp yfir okkur. Héldum fyrst að þetta væri hauslaus fugl en þegar við komum nær sáum við að þetta var Snæugla," segir Auður Valdimarsdóttir. 26.6.2009 19:44
Bíll við bíl í Kömbum Gífurlegur straumur ferðalanga liggur nú austur fyrir fjall og er bíll við bíl í Kömpunum. Íbúi við Heiðmörk í Hveragerði hafði samband við fréttastofu en hann segir að umferðin hafi um nokkurt skeið bifast áfram á um tíu kílómetra hraða en nú er hún nánast stopp. 26.6.2009 18:31
Loftorka tekin til gjaldþrotaskipta Loftorka Borgarnesi ehf. lagði í dag inn beiðni til Héraðsdóms Vesturlands um að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta. Þetta kemur fram á fréttavef Skessuhorns. 26.6.2009 18:05
Lögreglan leitar læknis Michael Jackson's Lögreglan í Los Angeles leitar nú að týndum lækni Michael Jackson's þar sem hún telur að hann geti gefið mikilvægar upplýsingar varðandi andlát söngvarans. 26.6.2009 17:08
Bíll Bootcampþjálfarans fundinn Bifreið Ingu Þóru Ingadóttur, Bootcampþjálfara er komin í leitirnar en henni var stolið í nótt. Bíllinn sem er af gerðinni PT Cruiser fannst í miðbænum fyrir skemmstu og er kominn í hendurnar á Ingu Þóru á ný. 26.6.2009 17:33
Stefnt að hallalausum Landspítala Stefnt er að hallalausum rekstri Landspítala í árslok þrátt fyrir umtalsverða hagræðingarkröfu á árinu sem nemur um 2800 milljónum króna frá rekstri síðasta árs. Staða og þróun íslensku krónunnar gerir hins vegar það verkefni afar erfitt. Á spítalanum hefur verið gripið til margháttaðra hagræðingaraðgerða sem m.a. lúta að skilvirkara stjórnskipulagi, breyttu vaktafyrirkomulagi hjá starfsfólki, sparnaði í innkaupum og ódýrari stoðþjónustu. Staðfastlega er reynt að standa við það markmið að skerða ekki þjónustu spítalans við sjúklinga. 26.6.2009 16:32