Fleiri fréttir

Ekki strikað yfir skuldirnar

Ekki verður hægt að strika yfir hluta af skuldum almennings, segir nýskipaður viðskiptaráðherra. Slíkt myndi setja allt fjármálakerfið á annan endann.

Nýgræðingarnir sitja lengst frá forsætisráðherranum

Ríkisstjórnin hyggst koma fimmtán til tuttugu frumvörpum í gegnum Alþingi á næstu vikum til að verja heimilin og atvinnulífið frekari áföllum. Fyrsti ríkisstjórnarfundurinn undir forsæti Jóhönnu Sigurðardóttur var í morgun.

Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur

Sjálfstæðisflokkurinn fengi flest atkvæði ef gengið yrði til kosninga nú samkvæmt niðurstöðu könnunar Fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Tæp fjörutíu prósent kjósenda hafa þó ekki gert upp hug sinn. Könnun var gerð í gær en hringt var í 800 einstaklinga á landinu öllu.

Ný menntastefna borgarinnar verður mótuð

Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt að skipa vinnuhóp sem á að móta nýja menntastefnu á grundvelli nýrra laga um leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda.

Flugstjórinn gat varla talað

Farþegum í rússnesku Aeroflot vélinni leist ekki á blikuna þegar þeir sáu flugstjórann sem átti að fljúga með þá frá Moskvu til New York í desember síðastliðnum.

Ræður sér óflokksbundinn aðstoðarmann

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, hefur ráðið Sigtrygg Magnason rithöfund sem aðstoðarmann sinn. Sigtryggur hefur einnig starfað við blaðamennsku og markaðsmál.

Ný könnun: Mikið flökt á fylgi flokkanna

Í skoðanakönnun sem framkvæmd var fyrir fréttastofu kemur í ljós að tæp 40 prósent aðspurðra eru óákveðnir þegar þeir eru spurðir hvaða flokk þeir myndu kjósa ef kosið væri í dag. Mikið flökt virðist vera á fylgi flokkanna.

Flest allir hestarnir tryggðir

„Flest allir hestarnir voru tryggðir held ég," segir Rúnar Þór Guðbrandsson, deildarstjóri einstaklingsviðskipta hjá VÍS en hann var á vettvangi þegar um tíu hestar fóru ofan í Reykjavíkurtjörn eftir að ís gaf sig.

Angela Merkel sendir páfa tóninn

Angela Merkel kanslari Þýskalands sagði í dag að Benedikt páfi yrði að gera alveg ljóst að Páfagarður leyfi enga afneitun á helför gyðinga í síðari heimsstyrjöldinni.

Hamas verða að viðurkenna Ísrael

Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að Bandaríkjamenn séu reiðubúnir að vinna með öllum deilendum í Miðausturlöndum.

Fjölnir Þorgeirs bjargaði gæðingum

„Ísinn hrundi allt í einu niður," sagði Fjölnir Þorgeirssonar þegar blaðamaður náði tali af honum niður við Reykjavíkurtjörn eftir að sjö hestar fóru ofan í tjörnina.

Jón nýr þingflokksformaður VG

Jón Bjarnason var kjörinn nýr formaður þingflokks Vinstri grænna á þingflokksfundi fyrr í dag. Hann tekur við af Ögmundi Jónassyni, heilbrigðisráðherra, sem sem gegnt hefur embættinu allt frá því að fulltrúar flokksins tóku fyrst sæti á Alþingi árið 1999.

Myntsamstarf ólíkleg framtíðarlausn

Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, telur myntsamstarf við Norðmenn ólíklega framtíðarlausn fyrir Íslendinga. Tveir norskir ráðherrar eru jákvæðir fyrir myntsamstarfi þjóðanna.

Gæðingar á þunnum ís

Betur fór en á horfðist þegar ísinn á Tjörninni í Reykjavík brast undan gæðingum sem þar voru komnir til þess að taka þá í hestasýningu. Fram fór kynning á Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum og stóð til að láta gæðingana tölta um ísilagða Tjörnina.

Ný stjórn FME skipuð í vikunni

Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segist eiga von á því að ný stjórn Fjármálaeftirlitsins verði skipuð í vikunni. Á blaðamannafundi sem Gylfi hélt í ráðuneytinu kom fram að þótt stofnunin sé starfhæf eins og er sé ekki í lagi að hafa núverandi ástand til langframa. Hann segist ekki boða breytingar á lögum um stofnunina.

Enn skotið á sjúkrahús á Sri Lanka

Hundruð óbreyttra borgara á Sri Lanka flúðu í dag sjúkrahús á vígvellinum í norðurhluta landsins eftir að skotið var á það úr fallbyssum í fjórða skipti á nokkrum dögum.

Baðst afsökunar á líkamsárás

Tvítugur piltur var handtekinn síðastliðna helgi en hann hafði lent í útistöðum við fólk á skemmtistað og síðan í átökum við dyraverði á staðnum. Pilturinn fékk að gista geymslur lögreglunnar þá nóttina.

Nokkur fíkniefnamál um helgina

Nokkur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Í tilkynningu segir að tæplega fertugur karl hafi verið stöðvaður í Kópavogi á föstudagskvöld en sá var með fíkniefni í fórum sínum. Fíkniefni fundust við húsleit í miðborginni um kvöldmatarleytið á sunnudag og á sama stað lagði lögreglan hald á peninga sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu.

Árni Páll vill varaformannsembættið

Árni Páll Árnason þingmaður Samfylkingarinnar hefur ákveðið að gefa kost á sér í kjöri til varaformanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins sem haldinn verður í næsta mánuði.

Google býður í reisu um heimshöfin

Google Earth er í sífelldri endurnýjun og í gær voru kynntar nýjungar þar sem meðal annars er hægt að ferðast neðansjávar um heimshöfin.

Átök hvalveiðimanna og liðsmanna Sea Shepherd

Hvalverndarsinnar segja japanska hvalveiðimenn hafa slasað tvo úr þeirra hópi með járnplötum og golfkúlum þegar sló í brýnu milli milli þeirra í Suðuríshafi í gær. Hvalverndarsinnar voru þá að trufla veiðar. Japönsku hvalveiðimennirnir neita sök og segjast bara hafa sprautað vatni á þá.

Vitni að ákeyrslu: Hummerinn hægði aldrei á sér

„Þetta var bara hræðilegt, ótrúlega ljótt," segir vitni sem sá þegar Hummer-bifreið ók á mann á þrítugsaldri fyrir tveimur helgum. Atvikið átti sér stað á Laugaveginum um klukkan hálf fjögur um nóttina.Ökumaður bílsins flúði af vettvangi eftir að hafa ekið manninn niður.

Vinir til vinstri

Hugo Chavez forseti Venesúela er svo ánægður með að hafa setið á valdastóli í tíu ár að hann taldi ástæðu til þess að lýsa yfir þjóðhátíð og fyrirskipa skrúðgöngur.

Skó kastað að forseta Kína í Cambridge háskóla

Mótmælandi kastaði skó í átt að forsætisráðherra Kína þar sem hann hélt ræðu í Cambridge-háskóla í Bretlandi í gær. Breska ríkisstjórnin hefur beðið þá kínversku afsökunar á þessu.

Kom til Seyðisfjarðar í fyrsta sinn á árinu

Ferjan Norræna kom til Seyðisfjarðar í morgun í fyrstu ferð sína á þessu ári. Sárafáir farþegar voru með henni en talsvert af vörum. Ferjan siglir samkvæmt vetraráætlun til Seyðisfjarðar á þriðjudögum og fer þaðan aftur á miðvikudagskvöldum til Færeyja og Esbjerg í Danmörku. Ekki er siglt til Noregs eða Skotlands. Sumaráætlun hefst 13. júní.

Engin frekari leit gerð á Breiðafirði

Ekkert verður leiltað frekar á Breiðafirði í dag nema að nýjar upplýsingar gefi tilefni til. Víðtæk leit var gerð á filrðinum í nótt, eftir að að þar sáust tvö neyðarblys á lofti laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi.

Framsókn styður líklega Seðlabankafrumvarp

Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, telur líklegt að framsóknarmenn muni styðja frumvarp ríkisstjórnarinnar um skipulagsbreytingar í Seðlabankanum miðað við það sem komið hefur fram í fjölmiðlum um innihald þess. Hún bendir á að framsóknarmenn hafi áður lagt fram svipað frumvarp. Siv segir að ekki sé um pólitískar ofsóknir að ræða.

Ákvörðun Einars um hvalveiðar hugsanlega breytt

Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sagði á fundi með blaðamönnum að ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar um hvalveiðar í stórum stíl verði hugsanlega snúið við. Steingrímur sagði að málið væri kominn í tiltekinn farveg. Umhverfisráðuneytið og Ferðamálastofa koma að þeirri vinnu.

Fjórtán stútar teknir um helgina

Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Í tilkynningu frá lögreglu segir að einn ökumaður hafi verið stöðvaður á föstudagskvöld, fjórir á laugardag, átta á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags.

Banaslys af völdum svefns við akstur

Umferðarstofa vill ítreka þau skilaboð sem fram komu í auglýsingaherferðinni 15 sem sýnd var í fyrra, en nafn herferðarinnar vísar til þess að ekki þarf nema 15 mínútna svefn til að koma í veg fyrir slys af völdum svefns og þreytu. Talið er að svefn og þreyta sé fjórða algengasta örsök alvarlegra umferðarslysa á Íslandi.

Heimdallur ósáttur með ríkisstjórn Jóhönnu

Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, lýsir yfir vonbrigðum með nýja minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna. Félagið telur ríkisstjórnina ekki vera þjóðinni til heilla.

Nýr ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneytið

Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir verið sett ráðuneytisstjóri í félags- og tryggingamálaráðuneytinu eftir að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, setti Ragnhildi Arnljótsdóttur í embætti ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu til 30. apríl næstkomandi.

VG með prófkjör í Norðausturkjördæmi

Vinstri græn í Norðausturkjördæmi halda prófkjör vegna Alþingiskosninganna í apríl laugardaginn 28. febrúar næst komandi. Kjörstjórn auglýsir eftir frambjóðendum í átta efstu sæti á framboðslista flokksins í kjördæminu.

Íranar skjóta á loft gervihnetti

Íranar skutu í dag á loft sínum fyrsta heimasmíðaða gervihnetti. Þeir segja að hann verði aðeins notaður í friðsamlegum tilgangi.

Jóhanna stýrir fyrsta ríkisstjórnarfundi

Fyrsti fundur ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hófst í Stjórnarráðinu við Lækjartorg klukkan hálftíu í morgun. Þetta var jafnframt fyrsti ríkisstjórnarfundurinn þar sem Jóhanna Sigurðardóttir er í forsæti við enda fundarborðs ríkisstjórnarinnar.

Orkuveitan fær lán á nýjan leik

Evrópski þróunarbankinn hefur ákveðið að opna á ný fyrir viðskipti við Orkuveitu Reykjavíkur, en þau lokuðust við hrun íslenska fjármálakerfisins síðastliðið haust. Með því opnast á ný lánalína til virkjunarframkvæmda Orkuveitunnar á Hellisheiði. „Þetta er til marks um það traust, sem bankinn ber til verkefna Orkuveitu Reykjavíkur," segir Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitunnar í tilkynningu.

Harma hvalveiðileyfi fyrrverandi sjávarútvegsráðherra

Talsmenn fimm hvalaskoðunarfyrirtækja harma hvalveiðileyfið, sem fyrrverandi sjávarútvegsráðherra gaf út nýverið og segja að hvalveiðar og hvalaskoðun fari ekki saman. Um það bil 200 manns starfi við hvalaskoðun og hún sé því atvinnuskapandi grein. Ímynd Íslands hafi þegar beðið hnekki og hvalveiðar muni ekki bæta þar úr.

Breskt þjóðfélag lamað vegna fannfergis

Breskt þjóðfélag hefur nánast verið í kyrrstöðu vegna fannfergis og kulda síðustu daga. Í fyrsta sinn í manna minnum lágu allar strætisvagnasamgöngur í London niðri í gær en snjóþekja í borginni var tæpir 30 sentimetrar.

Sjá næstu 50 fréttir