Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hindrunum rutt úr vegi „Þetta er ágætis árangur á 80 dögum,“ segir Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, um stefnu nýrrar ríkisstjórnar um Evrópusambandið. „Við höfum rutt úr vegi erfiðri hindrun í átt að fullri aðild,“ segir hann og vísar til sáttar um stjórnarskrárbreytingar sem þarf að fara í áður en aðild að Evrópusambandinu væri samþykkt. 3.2.2009 05:00
Segir stöðuna gjörbreytta „Þetta er ekkert annað en uppgjöf hjá mbl.is. Þessi gjaldtaka á eftir að lenda á neytendum og fólkið mun fljótlega uppgötva að í raun er fátt að sækja inn á fasteignavef mbl.is eftir þessar breytingar,“ segir Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala. 3.2.2009 04:00
Ódýrari tjöruhreinsir og rúðupiss Það er sama hvað maður reynir, bíllinn verður drulluskítugur eins og skot í þessari tíð. Tjöruhreinsirinn er ekki gefinn, búast má við að þurfa að borga yfir þúsundkall fyrir lítrann. Bílaspekingurinn Leó M. Jónsson (leoemm.com) segir að heimalagaðan 3.2.2009 03:15
Vonbrigði að síðasta ríkisstjórn hafi ekki komist lengra varðandi ESB Það er mikill misskilningur að það sé hægt að leysa bráðan vanda án þess að hafa skýra framtiðarsýn, segir Aðalsteinn Leifsson, aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík um stefnu stjórnmálaflokkanna í 2.2.2009 20:59
Nýr ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytið Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur sett Ragnhildi Arnljótsdóttur í embætti ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu til 30. apríl nk. Bolli Þór Bollason hefur fengið leyfi frá störfum ráðuneytisstjóra á sama tímabili og mun sinna sérverkefnum. 2.2.2009 19:48
Innbrotsþjófar réðust á húsráðanda Þrír ungir karlmenn réðust á mann í íbúð við Furugrund í Kópavogi á fimmta tímanum i dag. 2.2.2009 21:43
Jóhanna kynnir frumvarp um seðlabankastjóra á morgun Strax á morgun mun Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra kynna frumvarp um breytingar á Seðlabankanum sem fela í sér að skipaður verði einn bankastjóri í Seðlabankanum. 2.2.2009 19:37
Össur segir stjórnarsáttmála ekki eiga við Helguvík og Bakka Ákvæði í stjórnarsáttmála um engin ný álver hefur hvorki áhrif á álver í Helguvík né undirbúning álvers við Húsavík, að sögn iðnaðarráðherra. 2.2.2009 18:52
Þrjár milljónir hafa safnast vegna Gaza Rúmlega þrjár milljónir hafa safnast í Neyðarsöfnun fyrir Gaza, sérstöku átaki sem félagið Ísland-Palestína hefur staðið fyrir, allt frá fyrstu dögum árásarinnar á Gaza. 2.2.2009 21:58
Nýr aðstoðarrektor í HÍ Miðlægri stjórnsýslu Háskóla Íslands var skipt í tvo hluta í gær. Annars vegar í málefni vísinda og kennslu og hins vegar í málefni fjármála og reksturs. 2.2.2009 21:52
Ákvörðun um hvalveiðar standi Oddviti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi og verðandi forseti Alþingis, Guðbjartur Hannesson, vill að ákvörðun fyrrverandi sjávarútvegsráðherra um að leyfa hvalveiðar verði látin standa. 2.2.2009 19:10
Afturkallar ákvörðun um innritunargjöld á sjúkrahús Ögmundur Jónasson, nýskipaður heilbrigðisráðherra, hefur ákveðið að afturkalla ákvörðun fyrrverandi ráðherra um innritunargjöld á sjúkrahús. Þá kemur einnig til greina að falla frá fyrri ákvörðun um endurskipulagningu Sankti Jósefsspítala. 2.2.2009 18:37
Hollendingar rannsaka stuðning við innrásina í Írak Forsætisráðherra Hollands fyrirskipaði í dag að óháð nefnd verði fengin til þess að rannsaka stuðning ríkisstjórnarinnar við innrásina í Írak árið 2003. 2.2.2009 17:47
Sjálfstæðismenn ætla að leggja fram frumvarp um greiðsluaðlögun Þingflokkur sjálfstæðismanna hyggst leggja fram frumvarp um greiðsluaðlögun eða skuldaaðlögun þegar þing kemur saman að nýju. Frá þessu greinir Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður á bloggsíðu sinni í dag. 2.2.2009 17:45
Síbrotamaður dæmdur í 18 mánaða fangelsi Karlmaður á 28. aldursári var dæmdur í 18 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir ítrekuð brot, til að mynda tékkafölsun, þjófnað og vörslu fíkniefna. Brotin sem hann var ákærður fyrir voru alls 43 talsins og voru þau öll framin á síðasta ári. 2.2.2009 17:01
Jóhanna á forsíðu Wikipedia Forsætisráðherra Íslands, Jóhanna Sigurðardóttir, er á forsíðu rafræna alfræðisafnsins Wikipedia.org. Hún er undir liðnum fréttir á vefnum og trónir þar á toppnum ásamt úrslitum Superbowl keppninnar sem var haldin síðustu nótt. 2.2.2009 17:00
Skólabörn Jamies Olivers tóku miklum framförum Skólabörnum í Greenwich í Bretlandi gengur betur í eðlisfræði og ensku eftir að áttatíu og einn skóli þar tók upp matseðil sem meistarakokkurinn Jamie Oliver setti saman. 2.2.2009 16:50
Útborgun atvinnuleysisbóta gengur hægt Útborgun atvinnuleysisbóta gengur hægt og hafa fjölmargir haft samband við fréttastofu vegna þessa. Vinnumálastofnun greiðir út atvinnuleysistryggingar í dag til um 9500 einstaklinga fyrir tímabilið 20. desember til 19. janúar. 2.2.2009 16:38
Atvinnulausum heldur áfram að fjölga Atvinnulausum heldur áfram að fjölga á nýju ári og á vef Vinnumálastofnunnar eru nú 13.280 skráðir atvinnulausir. Í lok síðasta árs voru 8.982 skráðir án atvinnu og hefur þeim því fjölgað um 4300 á rúmum mánuði. 2.2.2009 16:00
Samtök grasrótarhreyfinga stofnuð Stofnfundur samtaka grasrótarhreyfinga var haldinn í Iðusölum í Reykjavík í gær en hreyfingin eru samráðsvettvangur grasrótarfélaga á Íslandi sem vinna að lýðræðisumbótum og stjórnkerfisbreytingum og stefna að framboði í næstu alþingiskosningum í öllum kjördæmum. Framhaldsstofnfundur verður haldinn næstkomandi sunnudag 8. febrúar. Að honum loknum verða helstu stefnumál kynnt og nafn hreyfingarinnar. 2.2.2009 15:04
Aðgerð Geirs heppnaðist vel Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, gekkst í dag undir speglunaraðgerð á Háskólasjúkrahúsinu í Amsterdam þar sem fjarlægt var illkynja mein í vélinda. Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum kemur fram að aðgerðin hafi heppnaðist vel að mati lækna. 2.2.2009 14:41
Eyþór íhugar þingframboð Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna í Árborg, íhugar að gefa kost á sér á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir kosningarnar í apríl. Eyþór segir að hann taki ákvörðun á næstu dögum. „Það hefur ekki verið rætt um ákveðið sæti en í rauninni er allt opið.“ Eyþór bendir þó á að kjördæmisráð flokksins hafi ekki ákveðið hvaða leið verði farin við val á framboðslista flokksins. 2.2.2009 14:38
Fæðandi konu bannað að blóta Heilbrigðisyfirvöld í Noregi kanna nú mál hjóna sem kærðu ljósmóður fyrir að banna konunni í blóta þegar hún var að fæða barn sitt. 2.2.2009 14:36
Slegist um hvalina Félagar í Sea Shepherd samtökunum fá blautar móttökur þegar þeir hrella hvalveiðiskip Japana á Suður-Íshafinu. 2.2.2009 14:13
Fundu flak af frægu orrustuskipi Bandarískir fjársjóðsleitarmenn hafa fundið flakið af breska orrustuskipinu Victory sem fórst í fárviðri á Ermarsundi fyrir 264 árum. 2.2.2009 13:40
Guðlaugur í formannsslag Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, hyggst bjóða sig fram til formanns í Sjálfstæðisflokknum á landsfundi flokksins sem fram fer dagana 26. til 29. mars í Laugardalshöll. Guðlaugur mun tilkynna um framboð sitt á morgun, samkvæmt heimildum fréttastofu. 2.2.2009 13:31
Kragh krefst frávísunar Athafnamaðurinn Þorsteinn Kragh, sem er ákærður fyrir stærsta fíkniefnasmygl Íslandssögunnar, hefur krafist frávísunar á dómsmálinu og sakar lögregluna um að hafa þverbrotið á réttindum sínum. 2.2.2009 13:12
Femínistar fagna ríkisstjórn Jóhönnu Femínistafélag Íslands fagnar nýrri ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem tók við völdum í gær. „Í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins er kona skipuð forsætisráðherra og í fyrsta sinn er jafnt kynjahlutfall ráðherra á Alþingi,“ eins og segir í ályktun félagsins. 2.2.2009 13:06
Hraðahindrun ölvuðum ökumanni ofviða Lögreglumenn komu að ökumanni sem átti í erfiðleikum með að komast yfir hraðahindrun á Selfossi nú um helgina. Í tilkynningu frá lögreglu segir að ekki hafi komið til þess að lögreglumenn þyrftu að aðstoða manninn því hann reyndist vera undir talsverðum áfengisáhrifum og án ökuréttinda. 2.2.2009 12:54
Þingmenn VG skipta með sér verkum Þingflokkur Vinstri grænna kemur saman í fyrsta sinn eftir stjórnarskiptin klukkan 18 í kvöld og skiptir með sér verkum. Fyrir liggur að kjörinn verður nýr þingflokksformaður. Ögmundur Jónasson sem gegnt hefur embættinu allt frá því að fulltrúar flokksins tóku fyrst sæti á Alþingi árið 1999 lætur af störfum í kjölfar þess að hann var skipaður heilbrigðisráðherra í gær. 2.2.2009 12:51
Gaddafi nýr leiðtogi Afríkusambandsins Muammar Gaddafi Líbýuleiðtogi var í morgun kosinn framkvæmdastjóri Afríkusambandsins á fundi þess í Eþíópíu. Gaddafí hlaut yfirgnæfandi stuðning í embættið en einhverjir fundarmenn voru áhyggjufullir vegna þess hve hann hefði verið umdeildur og væri talinn hvikull. Gaddafi hefur verið virkur innan sambandsins. Hann hefur lengi stutt hugmyndir um nánara samstarf Afríkuríkja á vettvangi þess og lagt til milljónir í stuðning við fátækari sambandsríki. 2.2.2009 12:38
Mestu snjókomu í tvo áratugi spáð í Bretlandi Spáð er mestu snjókomu í tvo áratugi um nánast allt Stóra-Bretland í dag. Almenningssamgöngukerfið í Lundúnum og víðar er nær algjörlega lamað vegna ofankomu. 2.2.2009 12:32
Barist í Srí Lanka Níu almennir borgarar féllu og tuttugu særðust þegar sprengjum var varpað þrívegis á sjúkrahús á norð-austurhluta Srí Lanka. Árásirnar voru gerðar á síðasta sólahring. Uppreisnarmenn Tamíltígra hafa völdin á svæðinu. Stjórnarher landsins segist ekki hafa gert árásir á sjúkrahúsið. 2.2.2009 12:31
Öskuregn í Tokyo Ösku rigndi í morgun yfir úthverfi Tokyo þegar gos hófst í eldfallinu Asama. Fjallið er um hundrað og fjörutíu kílómetra norðvestur af höfuðborg Japans. Viðvörun hefur verið gefin út og fólki bannað að fara innan við fjóra kílómetra að fjallinu. Aska hefur fallið til jarðar í allt að hundrað sjötíu og fimm kílómetra fjarlægð frá fjallinu og grjóthnullungar fundist í þúsund metra fjarlægð. 2.2.2009 12:27
Ólafur í Mjólku: Hyggur á framboð í Kraganum Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólku, hyggst bjóða sig fram gegn Siv Friðleifsdóttur í fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi. „Ég hef ákveðið að taka slaginn,“ segir Ólafur aðspurður um framboð. 2.2.2009 12:00
Harma breytingar á heilsugæslu Stjórn Fagdeildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga harmar þá ákvörðun yfirstjórnar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að fækka stöðugildum hjúkrunarfræðinga um 12, sem og að gjörbylta starfsemi Miðstöðvar heilsuverndar barna og Miðstöðvar mæðraverndar sem báðar verða lagðar niður. 2.2.2009 11:56
Gáfust upp á að prenta peninga Seðlabankinn í Zimbabwe reyndi í dag að hressa upp á dollara sinn með því að skera tólf núll aftan af honum. 2.2.2009 11:03
Össur kominn með lyklavöld í utanríkisráðuneytinu Össur Skarphéðinsson tók við embætti utanríkisráðherra í gær af svilkonu sinni Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingarinnar. Formleg lyklavöld fékk hann í morgun þegar Ingibjörg afhenti honum lykla af ráðuneytinu. 2.2.2009 11:02
Kaldrifjaður forstöðumaður skattasviðs Fyrrverandi ríkisskattstjóri, Indriði Þorláksson, telur það heldur kaldrifjað að fyrrum forstöðumaður skattasviðs Landsbankans, Kristján Gunnar Valdimarsson, hafi farið með umsjón fjögurra eignarhaldsfélaga sem öll eru skrásett á karabísku eyjunni Tortola. 2.2.2009 10:45
Þing kemur saman á morgun Samkomulag nýju ríkisstjórnarflokkanna felur meðal annars í sér að Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, verði forseti Alþingis. Guðbjartur telur líklegt að þing komi saman á morgun í fyrsta skipti eftir stjórnarskiptin. Á þeim tímamótum lætur Sturla Böðvarsson af embætti forseta en gera má ráð fyrir umtalsverðum breytingum á nefndarskipan og ljóst er að nýir nefndarmenn verða kjörnir. 2.2.2009 10:27
Ásdís Halla íhugar forystuframboð í Reykjavík Ásdís Halla Bragadóttir, fyrrum bæjarstjóri í Garðabæ, íhugar framboð í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi þingkosningar. Samkvæmt heimildum Vísis stefnir hún á að leiða lista í öðru Reykjavíkurkjördæmanna. 2.2.2009 09:47
Nældu sér í saur á náttúrugripasafninu í London Steingerður risaeðlusaur var það eina sem nokkrir þjófar höfðu upp úr krafsinu þegar þeir létu greipar sópa á náttúrugripasafninu í London. 2.2.2009 08:07
Ísraelar vörpuðu sprengjum á Gaza í gær Ísraelskar orrustuþotur gerðu árás á öryggismiðstöð í þorpi á Gaza-svæðinu í gærkvöldi auk þess að varpa sprengjum á munna smyglganga við egypsku landamærin. Enginn særðist í árásinni en Ísraelar hringdu á undan sér og vöruðu við árásinni. Um var að ræða hefndaraðgerð eftir að liðsmenn Hamas-samtakanna skutu flugskeytum yfir til Ísrael og særðu nokkra hermenn fyrr í gær. 2.2.2009 07:35
Japanska eldfjallið Asama gýs Gos hófst í japanska eldfjallinu Asama snemma í morgun en það er um 140 kílómetra norðvestur af höfuðborginni Tókýó. Viðvörun hefur verið gefin út og er fólki bannað að vera á ferli nær fjallinu en fjóra kílómetra. Aska úr gosinu er tekin að falla til jarðar í allt að 175 kílómetra fjarlægð frá fjallinu. Asama, sem er eitt af 108 virkum eldfjöllum í Japan og gaus síðast árið 2004. 2.2.2009 07:32
Sex ár frá Kólumbíuslysinu í gær Fánar voru dregnir í hálfa stöng í gær við Kennedy-geimferðamiðstöðina til að minnast geimfaranna sjö sem fórust þegar Kólumbía splundraðist í þann mund sem hún kom til baka inn í lofthjúp jarðar eftir ferðalag sitt en þetta er í eina skiptið í bandarískri geimferðasögu sem slys hefur orðið á heimleið. 2.2.2009 07:28