Innlent

Fjórtán stútar teknir um helgina

Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Í tilkynningu frá lögreglu segir að einn ökumaður hafi verið stöðvaður á föstudagskvöld, fjórir á laugardag, átta á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags.

Tólf voru teknir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Garðabæ.

Að sögn lögreglu var um tíu karla að ræða á aldrinum 17-55 ára og fjórar konur, sem allar eru á þrítugsaldri. Flestir karlanna eru hinsvegar á fertugsaldri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×