Fleiri fréttir

Hellti í sig Jagermeister - svipt ökuleyfi í þrjú og hálft ár

Héraðsdómur Suðurlands svipti í dag konu ökuréttindum í þrjú og hálft ár fyrir að hafa ekið bifreið sem lenti utan vegar undir áhrifum áfengis. Þegar konan, sem er 43 ára, kom fyrir dóminn neitaði hún að hafa ekið undir áhrifum áfengis. Hún kvaðst hafa hellt í sig 700 millilítrum af Jagermeister eftir að hún ók út í kant.

Kragh fái tíu ára dóm hið minnsta

Ríkissaksóknari fer fram á að Þorsteinn Kragh og Jakob Van Hinte verði dæmdir í tíu ára fangelsi að lágmarki fyrir aðild sína að stórfelldum fíkniefnainnflutningi með Norrænu í sumar. Aðalmeðferð í málinu var fram haldið í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur. Sækjandi byggir kröfu sína um svo þunga dóma á því mikla magni sem mennirnir eru ákærðir fyrir að hafa reynt að smygla til landsins en alls var um að ræða tæp 200 kíló af fíkniefnum. Í máli sækjanda í morgun kom meðal annars fram að smyglið hafi verið gríðarlega vel skipulagt en til dæmis voru efnin vel falin í sérútbúnum húsbíl.

Nýskráningar ökutækja í sögulegu lágmarki

Þegar skoðaður er fjöldi nýskráninga ökutækja fyrstu 51 dag ársins 2009 og sá fjöldi borin saman við eldri nýskráningar kemur í ljós að ekki eru til dæmi um jafn fáar skráningar að minnsta kosti undanfarin 24 ár. Í úttekt Umferðarstofu kemur fram nýskráningum á fækkaði um 87% saman borið við sama tímabil í fyrra.

Sorphirðugjöld hækka um allt að 50 prósent

Útsvar í fjölmennustu sveitarfélögum landsins hækkaði í flestum sveitarfélögum í fyrra. Þá hækkaði sorphirðugjald og vatnsgjald víða. Hækkunin á sorphirðugjaldi hækkaði um allt að 50%. Þetta kemur fram í úttekt verðlagseftirlits ASÍ sem tekið hefur saman upplýsingar um breytingar á útsvari og álagningu fasteignagjalda í 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins á árinu 2009.

Huld skipuð forstjóri

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið að skipa Huld Magnúsdóttur forstjóra Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, til næstu fimm ára frá 1. mars næstkomandi.

Seðlabankinn á dagskrá Alþingis en ekki í viðskiptanefnd

Þriðja og síðasta umræðan um seðlabankafrumvarpið á að fara fram á Alþingi í dag. Þrátt fyrir það er frumvarpið ekki á dagskrá fundar viðskiptanefndar sem hófst klukkan hálf níu. ,,Þetta mál er ekki á dagskrá viðskiptanefndar," segir Álfheiður Ingadóttir formaður nefndarinnar. Hún útilokar þó ekki að einhver nefndarmanna taki málið upp undir liðnum önnur mál.

Meintur 14 barna faðir vill DNA-próf

Fyrrverandi kærasti konunnar, sem eignaðist áttbura í lok janúar, segist hugsanlega vera faðir 14 barna hennar og fer fram á faðernispróf.

Segjast vinna að gervihnetti

Norður-Kóreumenn tilkynntu í morgun að þeir undirbyggju að skjóta upp gervihnetti frá norðausturströnd landsins.

Meira en 500 handteknir í vændisaðgerð

Meira en 500 manns voru handteknir þegar bandaríska alríkislögreglan lét til skarar skríða í stóraðgerð sem átti sér stað í 29 bandarískum borgum samtímis í gær. Aðgerðinni var stefnt gegn barnavændi og voru 48 börn undir lögaldri tekin í gæslu lögreglu á þeim stöðum sem leitin náði til.

Vonast til að seðlabankafrumvarp komist á dagskrá í dag

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagðist í gærkvöldi vonast til þess að seðlabankafrumvarpið komist á dagskrá Alþingis í dag, eftir að þinghald fór út um þúfur í gær þegar ljóst varð að frumvarpið sæti fast í viðskiptanefnd.

Hækka ekki húsaleigu stúdenta í bili

Stjórn Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri hefur ákveðið að hækka ekki húsaleigu stúdenta næstu þrjá mánuðina en hún fylgir vísitölu neysluverðs sem hefur hækkað talsvert að undanförnu.

Tekinn ítrekað fyrir fíkniefnaakstur

Lögreglan á Akureyri sá í gærkvöldi til manns á bíl en búið var að svipta ökumanninn ökuréttindum vegna fíkniefnaaksturs. Þegar lögregla ætlaði að hafa tal af honum tók hann til fótanna en var hlaupinn uppi. Við athugun kom í ljós að hann var enn og aftur undir áhrifum fíkniefna og hafði enn og aftur verið að aka bíl í þannig ástandi.

Innbrot í Melabúð og á Vogi

Þrjú innbrot voru framin á höfuðborgarsvæðinu í nótt og komust þjófarnir undan í öllum tilvikum. Fyrst var brotist inn í Melabúðina í Vesturbænum upp úr miðnætti. Þjófurinn spennti upp aðaldyrnar og hafði á brott með sér talsvert af tóbaki.

Átti að fá 40 þúsund evrur fyrir smyglið

Hollendingurinn Jacob Van Hinte kvaðst fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær hafa átt að fá 40.000 evrur fyrir að koma húsbíl, hlöðnum fíkniefnum, hingað til lands. Hann er ákærður, ásamt Þorsteini Kragh, fyrir að hafa ætlað að smygla nær 200 kílóum af kannabisefnum og einu og hálfu kílói af kókaíni til landsins í húsbílnum.

Segir Ögmund vilja koma höggi á sig

„Það er ljóst að núverandi heilbrigðisráðherra einbeitir sér fyrst og fremst að því að koma höggi á undirritaðan í stað þess að hugsa um heilbrigðismál, enda málaflokkurinn flókinn og erfiður og ýmsar aðgerðir sem nú eru nauðsynlegar lítt fallnar til vinsælda," segir Guðlaugur Þór Þórðarson á vefsíðu sinni. Fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi frá því í kvöld að

Virðum sjónarmið beggja

„Þeir mátu stöðuna á mismunandi hátt í nefndinni í morgun eins og fram hefur komið hjá þeim og við virðum sjónarmið beggja," segir Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður framsóknarmanna, um mismunandi sjónarmið þeirra Höskuldar Þórhallssonar og Birkis J. Jónssonar í viðskiptanefnd Alþingis í morgun.

Danska lögreglan lagði hald á tvöfalt fleiri vopn

Vopnasérfræðingar dönsku lögreglunnar lögðu hald á tvöfalt fleiri vopn árið 2008 en árið 2007. Um það bil helmingur af vopnunum koma frá Balkanskaga og Austur - Evrópu en lögreglan hefur ekki hugmynd um það hvernig skotvopnunum er smyglað inn í landið.

Barnalíknarsamtök enn á hrakhólum vegna Kaupþings

Stjórnendur breskra líknarsamtaka fyrir börn sem hafði lagt 5,7 milljónir sterlingspunda inn á Singer & Friedlander banka Kaupþings í Bretlandi segja að breska ríkið ætli að skilja heimilið eftir úti í kuldanum.

Ný gögn um Drekasvæðið gefa meiri vonir um olíu

Ný rannsóknargögn um Drekasvæðið, sem norskt fyrirtæki hefur unnið, gefa meiri vonir um olíu undan ströndum Íslands. Milli tíu og tuttugu olíufyrirtæki hafa sýnt áhuga á að bjóða í olíuleitina.

Borgin vill endurkoðun á leigusamningi vegna Höfðatorgs

Framkvæmda- og eignaráð Reykjavíkurborgar samþykkti í dag tillögu fulltrúa Vinstri grænna og Samfylkingarinnar um að óska eftir viðræðum við Höfðatorg um endurskoðun á leigusamningi vegna húseignarinnar við

Vilja afgreiða seðlabankafrumvarpið fyrir komu AGS

Ríkisstjórnarflokkarnir leggja mikla áherslu á að frumvarp um breytingar á Seðlabankanum verði að lögum áður en að sendinefnd á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kemur til landsins á fimmtudaginn til að fara yfir efnahagsáætlun sjóðsins og íslenskra stjórnvalda.

Fimmtán ára fékk fangelsisdóm fyrir líkamsárás

Fimmtán ára piltur var, í Héraðsdómi Suðurlands í dag, dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa veist að átján ára gömlum pilt þann 13. nóvember 2007 Á Selfossi. Hinn ákærði var sakaður um að hafa slegið piltinn nokkrum hnefahöggum í andlitið, með þeim afleiðingum að Stefán vankaðist og hlaut eymsli og bólgur. Hinn ákærði játaði brot sitt og var dæmdur í mánaðarlangt skilorðsbundið fangelsi. Hann gaf þá skýringu á hegðun sinni að sá sem hann réðst á hefði áreitt sig.

Fjögur og hálft ár fyrir að nauðga og lemja barnsmóður sína

Karlmaður var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands í morgun fyrir nauðgun og hrottalega líkamsárás gagnvart barnsmóður sinni. Honum var einnig gert að greiða miskabætur að upphæð 1.200.000 krónur. Árásin var nokkuð harkaleg og var tekið tillit til þess í dómnum en konan hlaut mikla áverka.

FÉSTA frystir leiguverð á stúdentaíbúðum

Næstu þrjá mánuði mun leiga íbúða hjá Félagsstofnun stúdenta á Akureyri, FÉSTA, ekki hækka samkvæmt vísitölu neysluverðs. Eftir þann tíma verður farið yfir stöðuna á ný. Þetta var niðurstaða stjórnar FÉSTA sem fundaði um ástandið á leigumarkaðnum.

Ríkisvaldið ræðst að eignaréttinum með siðlausum kröfum

„Þjóðlendumálið er einn angi græðgisvæðingar sem á endanum leiddi mikla ógæfu yfir þjóðina. Ríkisvaldið réðst að sjálfum eignarréttinum, einum af hornsteinum samfélagsins með öfgafullum og siðlausum kröfum án þess að spyrja um afleiðingar og herkostnað.

Karpað um störf þingsins

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins gagnrýndu ríkisstjórnarflokkanna og fundarstjórn Guðbjarts Hannessonar, forseta Alþingis, harðlega þegar þingfundur hófst klukkan hálf sex. Þingfundi hafði þá þrívegis verið frestað.

400 óku of hratt eftir Hringbraut

Hraðakstursbrot 396 ökumanna voru mynduð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu á miðvikudag og fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem ekið var Hringbraut í vestur og yfir fyrrnefnd gatnamót.

Borgarahreyfingin hyggur á þingframboð

Nýtt stjórnmálaafl, Borgarahreyfingin, hefur verið stofnað. Hreyfingin er sprottin upp úr bandalagi fólks úr ýmsum grasrótarsamtökum. Formaður var kjörinn Herbert Sveinbjörnsson.

Siðareglur í borginni: Beðið eftir Framsókn

Beðið er eftir afstöðu Framsóknarflokksins svo hægt sé að samþykkja siðareglur hjá Reykjavíkurborg, segir Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn. Samkvæmt þeim eiga kjörnir fulltrúar að forðast hagsmunaárekstra og gæta þess að fara ekki út fyrir umboð sitt í störfum sínum.

Pólverji úrskurðaður í farbann

Karl á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í farbann til 19. mars að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn, sem var handtekinn í byrjun mánaðarins og sat í gæsluvarðhaldi um tíma, er grunaður um aðild að innflutningi fíkniefna.

Klósettnauðgarinn handtekinn í Póllandi

Robert Dariusz Sobiecki, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í desember, hefur verið handtekinn í Póllandi. Unnið er að því að hann afpláni refsingu sína þar ytra.

Seðlabankafrumvarp verði eins gott og mögulegt er

„Það er enginn klofningur í flokknum. Við höfum verið mjög samstíga í þessu máli en eftir að hafa hlustað á sérfræðinginn í morgun þá mat ég það þannig að það væri tíðinda að vænta í þessari skýrslu sem snýst einmitt um þau mál sem við erum að ræða.“ Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins.

Samfylkingin með netprófkjör í Norðvesturkjördæmi

Á kjördæmisþingi Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi sem haldið var á laugardaginn í Menntaskólanum í Borgarnesi var ákveðið að velja í sex efstu sætin á framboðslista flokksins í komandi alþingiskosningum með netprófkjöri 6. til 8. mars.

Umferðaróhöppum fækkaði árið 2008

Eftir nokkurra ára stöðuga fjölgun umferðaróhappa fækkaði tjónum í umferðinni í fyrra um 5% samkvæmt samantekt Forvarnahússins. Slysum á fólki í umferðinni fækkaði mun meira eða um 14,2%. Á sama tíma fjölgaði ökutækjum um 1.25% samkvæmt tölum Umferðarstofu úr rúmlega 240 þúsund í rúmlega 243 þúsund.

Vilja vopnasölubann til Ísrael og Palestínu

Alþjóðlegu mannréttindarsamtökin, Amnesty International, vilja að Sameinuðu þjóðirnar setji á vopnasölubann til Ísrael og Palestínu. Samtökin saka Hamasliða og Ísraelsmenn um notkun vopna sem beinast fyrst og fremst að saklausum borgurum.

Útskýrir milljónir með skattsvikum og fölsuðum miðum

Í morgun fór fram aðalmeðferð í máli Þorsteins Kragh og hollendingsins Jacob Van Hinte sem ákærðir eru fyrir fíkniefnainnflutning með Norrænu. Í húsbíl sem Jacob kom á hingað til lands fundust um 200 kg af kannabisefnum auk 1 ½ kg af kókaíni. Hollendingurinn bendlaði Þorstein við málið í upphafi en eftir að þeir hittust á Litla-Hrauni dró hann framburð sinn til baka og segir Þorstein ekkert hafa komið nálægt málinu. Fram kom að tæpar 80 milljónir voru inni á bankareikningum Þorsteins sem hann sagði tilkomnar vegna skota undan skatti og í tengslum við miða sem hann hafi falsað á tónleika sem hann hafi haldið í gegnum tíðina.

Steingrímur les úr Passíusálmunum

Fimmta árið í röð lesa alþingismenn og ráðherrar úr Passíusálmunum í Grafarvogskirkju alla virka daga föstunnar. Hver lestur hefst klukkan 18 og tengist stuttri helgistund í kirkjunni, sem tekur um fimmtán mínútur. Fastan hefst á morgun þriðjudag og af því tilefni mun Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, lesa úr sálmunum.

Stolnu fjórhjólin fundin

Lögreglan á Suðurnesjum hefur fundið þrjú fjórhjól, sem grunur leikur á að séu úr fjórhjólaflotanum , sem stolið var af hjólaleigu í Grindavík í síðustu viku. Þá var fimm gulum fjórhjólum af gerðinnni Can-am stolið, ásamt göllum, hjálmum og ýmsum búnaði.

Kærir ummæli um Íslandssetrið

Forstöðumaður Íslandssetursins í Danmörku ætlar að kæra íslensk hjón sem sögðu farir sínar ekki sléttar í samskiptum sínum við setrið.

Endurreisnarnefndin skilar skýrslu á landsfundi

Endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins hefur verið að störfum í um þrjár vikur. Fram kemur í tilkynningu að nefndinni er ætlað að leggja fram hugmyndir og tillögur fyrir flokkinn í því mikla starfi sem framundan er við að byggja upp efnahag landsins og atvinnulíf. Niðurstaða nefndarinnar verður lögð fram í formi skýrslu og kynnt á landsfundi flokksins í lok mars.

Framsóknarmenn klofnir í Seðlabankamáli

Viðskiptanefnd náði ekki ljúka umfjöllun sinni um Seðlabankafrumvarpið á fundi sínum í morgun en til stóð að þriðja umræða um málið hæfist í dag. Fulltrúar Framsóknarflokksins í nefndinni, þeir Birkir Jón Jónsson og Höskuldur Þórhallsson, klofnuðu í afstöðu sinni. Birkir Jón greiddi atkvæði með tillögu ríkisstjórnarflokkanna um að afgreiða málið úr nefnd en það gerði Höskuldur ekki.

Tugir sækja um í samgönguráðuneytinu

Samgönguráðuneytinu barst alls 124 umsóknir um stöður tveggja skrifstofustjóra í ráðuneytinu en umsóknarfrestur rann út í seinustu helgi. Alls bárust 65 umsóknir um stöðu skrifstofustjóra samskiptaskrifstofu og 59 umsóknir um stöðu skrifstofustjóra samgönguskrifstofu. Allmargir sóttu um báðar stöðurnar.

Sjá næstu 50 fréttir